Dagur - 14.01.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 14.01.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 14. janúar 1989 Akureyringar — Nordlendingar! Verðum á vélsleðasýningunni í íþróttahöllinni, helgina 14. og 15. janúar, með nýja gerð af 66*N SEXTtUœSEXNORÐUR vélsleðagöllum WEYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Simi 22275 Framsóknarfélag Dalvíkur fundur með þingmönnum kjördæmisins Guðmundi Bjarnasyni og Valgerði Sverrisdóttur verður haldinn í Jónínubúð sunnudaginn 15. janúar n.k. kl. 16.00. Allir velkomnir. Stjórnin. Framsóknarfélag Ólafsfjarðar Fundur með þingmönnum kjördæmisins Guðmundi Bjarnarsyni og Valgerði Sverrisdóttur verður haldinn í Tjarnarborg sunnudaginn 15. janúar n.k. kl. 21.00. Allir velkomnir. Stjórnin. íþróttir Bikarkeppni KKÍ: Auðveldur sigur Tindastóls Stúdentar voru Tindastói auð- veld bráð sl. fimmtudagskvöld í fyrri leik liðanna í Bikarkeppni KKÍ, sem fram fór í íþrótta- húsi Sauðárkróks. Raunar má segja að Stúdentar hafí verið Val Ingimundarsyni auðveld bráð því Valur fór hreinlega á kostum í þessum leik, gerði 50 stig af 102 stigum Tindastóls. Úrslitin urðu sem sagt 102:63, Tindastól í vil. Það var aldrei spurning allan leikinn hvort Iiðið myndi vinna. Leikurinn fór rólega af stað og náðu heimamenn strax forystu. ÍS tókst að halda tveggja stiga mun í þrjár mínútur en upp frá því juku leikmenn Tindastóls muninn jafnt og þétt og átti Val- ur drjúgan þátt þar í. Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknunt var staðan 17:13 fyrir Tindastól og fimm mínútum síðar var stað- an 28:13, Stúdentar gerðu ekki körfu í heilar fimm mínútur. Staðan í hálfleik var 46:35, Tindastól í vil. Tindastóll hclt áfram að auka forskotið í seinni hálfleik og þeg- ar hálfleikurinn var hálfnaður höfðu heimamenn náð 40 stiga forskoti, 80:40. Mestur varð munurinn 46 stig þegar 7 mínútur voru til leiksloka, 89:43. Þá slök- uðu leikmenn Tindastóis aðeins á, auk þess sem sumir voru komnir í villuvandræði. En Stúdentar fengu ekkert að koma of nálægt, heimamenn héldu 40 stiga forskotinu út leikinn, eða hér um bil, 39 stiga munur í leiks- lok, 102:63. I heild var þessi leikur bragð- daufur og þurfa sterkari lið en ÍS að heimsækja „krókódílasíkið“ til að áhorfendur fái eitthvað fyr- ir sinn snúð. Það var einna helst Valur Ingimundar sem gladdi augað, drengur sá er greiniiega í góðri æfingu eftir leikina með landsliðinu yfir hátíðirnar. Pá átti Eyjólfur góða spretti, svo og Haraldur og Sverrir. Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 50, Eyjólfur Sverrisson 22, Björn Sig- tryggsson 7, Sverrir Sverrisson 7, Agúst Kárason 6, Haraldur Leifsson 4 og þeir Kári Marísson, Kristinn Baldvinsson og Pétur Vopni Sigurðsson 2 hver. Stig ÍS: Guðmundur Jóhannsson 33, Jón Júlíusson 10, Valdimar Guðlaugsson 6, Auðunn Elísson og Bjarni Hjartar 4, og Gísli Pálsson, Kristján Oddsson og Heimir Jónasson 2 hver. Dómarar voru Indriði Jósafatsson og Pálmi Sighvatsson og dæmdu þeir stór- áfallalaust. -bjb Valur Inginiundarson gerði 50 stig af 102 stigum Tindastóls. Ungfrú heimur kynnir ísland 400 g Samstarfssamningur um formlega þátttöku Lindu Pétursdóttur í íslenskri landkynningarstarfsemi undirritaður Búið er að undirrita samstarfs- samning milli eigenda Miss World kcppninnar annars veg- ar og Ferðamálaráðs íslands, Flugleiða hf. og Útflutnings- ráðs íslands hins vegar, um að Ungfrú heimur, Linda Péturs- dóttir, muni á árinu 1989 starfa umtalsvert við kynningu á ís- landi og íslenskum framleiðslu- vörum víða um heim. Sem kunnugt er fylgja mikil ferðalög útnefningu Lindu sem sigurvegara Miss World keppn- innar. Eitt af aðalverkefnum hennar verður kynning á íslensk- um afurðum og íslandi sem ferðamannalandi, í þeim tilgangi að vekja athygli á landi, þjóð og framleiðslu. Stefnt er að því að hún komi fram í fjölmiðlum víða um heim, jafnframt því sem hún taki þátt í sérstökum kynningum og sýningum íslenskra fyrirtækja. NY 250 g ASKJA Ný og létftari askja fyrir litla ísskápa Nú geturðu fengið Létt og laggott í nýjum 250 g öskjum. Það hentar stórvel fyrir litlar fjölskyldur - og það er alltaf ferskt og símjúkt úr ísskápnum. Lagaðu línurnar, settu Létt og laggott á brauðið! Verkefnin hefjast nú þegar um miðjan janúar þegar Ungfrú heintur mun koma fram á ferða- kaupstefnu í Sviss á vegum Flug- leiða. í byrjun febrúar er svo ferðinni heitið til Japans, þar sem Linda mun aðstoða japanskan umboðsmann SH við kynningu á nýjum framleiðsluvörum frá dótturfyrirtækinu Icelandic Freezing Plants í Bretlandi. Ferðakaupstefna verður haldin í Berlín í byrjun mars og að öllum líkindum verður Ungfrú heimur þar, og í beinu framhaldi á fata- kaupstefnu í Dusseldorf þar sem íslenskar ullarvörur verða kynnt- ar ásamt fleiru. í mars er einnig á dagskrá sýning á sjávarafurðum og tækjum fyrir sjávarútveg í Boston. Kynningarstarfsemi er kostn- aðarsöm og fjármunir íslenskra fyrirtækja takmarkaðir. Því er mikilvægt að fjármagn nýtist sem best og góð samvinna sé milli þeirra sem hlut eiga að máli. Stefnt er að því að þetta sam- vinnuverkefni verði upphafið að frekari samvinnu þeirra aðila, sem starfa að kynningu á íslandi á erlendri grund. Er ekki að efa að Linda Pétursdóttir mun reynast verðugur fulltrúi lands og þjóðar urn heim allan. Gleymið ekki að gefa smáfuglunum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.