Dagur - 14.01.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 14.01.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 14. janúar 1989 Hvað myndir þú gera? Góðan daginn lesandi góður. Mig langar að spyrja þig beint og persónlega: Hvað myndir þú gera ef þú yrðir svo heppinn að vinna 250 krónur í skafmiða- happdrætti? Ef þú ættir fjögur arðbær fyrirtæki myndir þú kafna úr hlátri og gætir þannig ekki svarað spurningunni. Saklaust barn myndi setja pen- ingana í sparibauk, einstæð móðir með þrjú börn myndi kaupa mat handa börnun- um, kærulaus galgopi myndi kaupa skafmiða fyrir alla upp- hæðina, en þú? Nei, þetta segir ekki mikið upp í snekkju eða sjávarþorp á Vestfjörðum, en þetta eru peningar engu að síður. Ástæðan fyrir þessari spurn- ingu er ekki sú að ég sé að hæð- ast að ákveðinni sjónvarpsaug- lýsingu, því fer fjarri. Ég er ein- faldlega að skírskota til eigin reynslu. Mitt í nýársdrunganum glitti í ljós skafmiðagæfunnar og viti menn, ég hafði unnið nákvæmlega 250 krónur. Petta er stærsti happdrættisvinningur sem mér hefur áskotnast um ævina og þó hef ég tekið þátt í hvers kyns happdrættum, get- raunum, lottói og hvað þetta nú kallast í meira en aldarfjórð- ung. Þarna er aðeins undanskil- ið happdrætti Sjálfstæðisflokks- ins því af einhverjum ástæðum vilja þeir kumpánar ekki selja mér miða. Og hvað gerði ég við vinning- inn? O, ég gerði svo sem ekki neitt. Ég var enn á kafi í fjár- hagsáætlun þegar konan hrifs- aði peningana til þess að geta keypt sér hárnæringu. Þetta var mikið áfall. Ekki það að konan skyldi taka peningana, heldur aðallega það að hún keypti sér hárnæringu. Ég var búinn að ákveða að gefa henni þetta sull í jólagjöf eða lauma þessu jafnvel að henni á brúðkaupsafmælinu. LíML1/ Skafa, spila, tippa, velja, spá og spekúlera. Ef vel gengur gætir þú keypt þér sjávarþorp á Vestfjöröum. i heilsupósturinn r/'Umsjón: Sigurður Gestsson og Einar Guðmann Feitar konur Samkvæmt nýlegum rannsóknum geta gulrætur minnkað kólester- olmagn um allt að 20%. Gulræt- ur innihalda óvenju mikið magn af efni sem kallast Calcium pectat í trefjunum. Það hefur þau áhrif á líkamann að öll efnaskipti varð- andi kólesterol úrvinnslu örvast verulega. Aðrar grænmetisteg- undir hafa einnig svipuð áhrif á kólesterolið en það eru spergil- kál, kál og laukur sem helst ber þar að nefna. Fita verri fyrir karla en konur Niðurstöður úr langtímarann- sókn sem gerð var í Finnlandi sýnir fram á að offita hefur verri heilsufarsleg áhrif á karla en konur. Rannsakaður var 8000 manna hópur finnskra karla og kvenna í sjö ár. Sýnt var fram á að offita hafði „töluvert mikla fylgni“ við hjartasjúkdóma í karl- mönnum, en hefði engin veruleg áhrif á hjartasjúkdóma meðal kvenna. Ástæðan eins og sagt var í tímaritinu British Medical Journal, er sú að karlmenn bera megnið af þyngd sinni á magan- um, senr getur haft verri áhrif á lifrina, meltingarkerfið og hjartað. Skokk á miðjum aldri Mun maður sem er orðinn fimm- tugur og byrjar að skokka lifa lengur? Ekki örugglega, segir Dr. Michael J. Lichtenstein við Vanderbilt háskólann. Hjá manni sem byrjar reglulegar æfingar mun samt sem áður, jafn- vel á þessum aldri HDL kolester- olið aukast, (HDL - High density lipoproteins - góða kólesterol- tegundin) blóðþrýstingurinn minnkar og maðurinn mun senni- lega minnka reykingar. En hverjar skyldu líkur hans vera á því að detta niður dauður á meðan hann skokkar? Það er sáralítil en einhver hætta á því segir Lichtenstein. í Bandaríkja- unum deyja árlega 12 karlmenn af 100.000 sem stunda skokk, sem várla getur talist mikið. Veistu? ★ Að of hár blóðþrýstingur get- ur verið vegna taugaspennu sem fylgir því að fara til læknis. ★ Að í framtíðinni verða fiskolíur og D-vítamín notuð við lækningu á psoriqsis. ★ Að ein asprín á dag (325 mg) er talin minnka líkurnar á hjartaslagi, en að meira en það auki hættuna? ★ Að matur sem inniheldur mikið af trefjum getur leitt til þess að þú borðir minna með því að taka pláss í magan- um. ★ Að meðalmaður missir 1% af vöðvastyrk og hæfileika sínum til þess að nýta súrefni á hverju ári eftir að hann verður sextugur ef hann stundar ekki einhverjar æfingar. ★ Að sjötug- ur maður þarf ekki að eyða nema sex vikum við æfingar til þess að auka vöðvastyrk sinn u.þ.b. 20% og einungis fjórar vikur til að bæta þolið. ★ Að reykingamenn sem drekka mjólk daglega eru Hallfreður Örgumleiðason: sem er víst einhvern tíma á þessu ári. Gott ef það er ekki á hverju ári. Jú, nú man ég það. Alltaf á haustin eins og lúsin! Æ, hvenær verð ég sjötugur? Það er víst nokkrir áratugir í það enn. Hvers vegna ég er að velta því fyrir mér? Jú, reynslan undanfarið hefur sýnt að sá sem stjórnar því hver fær stóra happdrættis- og lottóvinninga setur þau skilyrði að viðkom- andi sé orðinn 70 ára hið minnsta. Ella getur hann bara étið það sem úti frýs. Það er ekki laust við að þetta fólk sjái fram á áhyggjulaust ævikvöld meðan ég, skáldið og hugsuður- inn, svelt heilu hungri hálfu dagana. Margt er mannanna bölið og á ég þá ekki bara við ölið. En fyrst ég er kominn að því þá verð ég að lýsa yfir ánægju rninni með hugmyndir um að leggja 5 krónur á hverja bjórdós til að borga viðgerð á Þjóð- leikhúsinu. Bæjarstjórn Akur- eyrar mætti færa þessa hugmynd heim í hérað. Þannig gæti hún lagt aukagjald á Flóru smjörlíki til að fjármagna viðbygginguna við Amtsbókasafnið, lagt skatt á Lindu nammi til að hrinda breytingunum við Ráðhústorg í framkvæmd og smurt dálítið á Braga kaffið til þess að geta byggt íbúðir fyrir allt það fólk sem vill flytja í bæinn en fær ekki húsnæði. Það er raunar skandall að Akureyri skuli hafa hleypt Hafnarfirði fram úr sér hvað íbúafjölda snertir. Samt fæddust fleiri börn en áður á Akureyri þannig að barneigna- stefna bæjarstjórans virðist hafa skilað sér. En því miður flutti fólk frekar úr bænum en til hans. Ég hlusta ekki á væl manna um að bærinn sé á hausnum. Einfalt mál virðist stundum flókið en ég tel að smáskatta- lausnin myndi mælast vel fyrir hjá bæjarbúum. Hér væri auð- vitað um tímabundnar aðgerðir að ræða og smáskatturinn gæti sveiflast á milli vörutegunda. Margt smátt gerir eitt stórt og þess vegna skalt þú, lesandi góður, ekki fussa yfir 250 króna skafmiðavinningi. Gildir þá einu hvort þú ert framsettur for- stjóri eða örvita atvinnuleys- ingi. Og að lokum eitt allsherjar ráð til lausnar efnahagsvanda þjóðarinnar á hverjum tíma: Ríkisstjórn hækki ávallt verð á áfengi og tóbaki 5% meira en nauðsynlegt þykir. Þannig skap- ast ómældar aukatekjur og hana nú! Offita hefur verri áhrif á karla en konur. mun ólíklegri með að fá krónískt bronkitis. Samkvæmt Journal of Chronic Disease hafa þessar niðurstöður gert rannsakendurna all ruglaða í ríminu. Álíka undar- legt er að þeir sem reykja ekki en drekka mjólk daglega njóta ekki sömu áhrifa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.