Dagur - 21.01.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 21.01.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, Iaugardagur 21. janúar 1989 15. tölublað fjArmAl ÞlN SÉRGREIN OKKAR FJARFESTlNGARFELAGlDi Ráðhústorgi 3, Akureyri I gær var unnið af fullum krafti við útskipun á fiski frá ÚA M M Erill við Akureyrarhöfn: 35 þúsund fiskikassar frá ÚA til Sovét í gærmorgun hófst gríðarmikil útskipun á freðfiski frá Utgerðarfélagi Akureyringa. í þessari atrennu fara hvorki meira né minna en 35 þúsund kassar af fiski um borð í frysti- skip Eimskips, Hofsjökul. Gróft áætlað vega þessir kass- ar um 900 tonn. Hofsjökull mun flytja þennan farm til Sovétríkjanna, líklega Murmansk. Að sögn Einars Óskarssonar hjá ÚA er bróðurpartur fisksins karfi og grálúða. Þessi fiskur er frá síðari hluta síðasta árs. Einar segir að skýringin á því að svo mikið magn fari nú sé að á síð- asta ári hafi verið gert ráð fyrir viðbótarsamningi, en ekkert hafi orðið af honum. „Petta magn er upp í nýjan samning Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna við Sovétmenn." óþh Notuð ferja til vöruflutninga til og frá Hrísey og Grímsey: Samgönguráðherra vill fá feijuna inn á lánsfjárlög - „mikilvægt að fá ferjuna strax í vor,“ segir ráðherra Góðar Iíkur eru taldar á að fjármagn fáist á þessu ári til kaupa á nýrri vöruflutninga- ferju fyrir Eyjafjarðarsvæðið, einkum Hrísey og Grímsey. Að þessum málum hefur verið unnið í ráðuneyti samgöngu- mála á undanförnum vikum og liggja nú fyrir útlínur í mögu- leikum á kaupum á ferju. í sigtinu eru notuð skip og sam- kvæmt upplýsingum Dags er hentug vöruflutningaferja föl fyrir á bilinu 20-30 milljónir króna. Steingrímur J. Sigfús- son, samgönguráðherra, segist vera því mjög hlynntur að slík vöruflutningaferja verði keypt, ekki síst þar sem fyrstu athug- anir hafi leitt ■ Ijós að rekstrar- grundvöllur sé fyrir hana. Hann hyggst beita sér fyrir því að kaup á nýrri ferju fari inn á lánsfjárlög, sem koma til afgreiðslu þegar þing kemur saman á nýjan leik. Hugmyndin er að ný ferja verði rekin við hlið Hríseyjarferj- unnar Sævars. Hún annaði eftir sem áður fólksflutningum en vöruflutningar til Hríseyjar færð- ust yfir á nýja ferju. Éað skip myndi og annast alla flutninga, bæði vöru- og fólksflutninga, til og frá Grímsey. Rekstur ferjunn- ar væri á höndum sveitarfélag- anna og myndi að öllum líkind- um tengjast rekstri Hríseyjarferj- unnar. f>á færðist framlag til Skipaútgerðar ríkisins, sem henni hefur verið reiknað til flutninga til og frá Grímsey, yfir á nýja ferju. í samtali við Dag sagði sam- gönguráðherra að hann teldi mjög mikilvægt að bæta vöru- flutninga við Grímsey. Hann sagði það óviðunandi að Gríms- eyingar þyrftu að búa við það óöryggi að fá ekki aðföng eða koma burtu sinni framleiðslu, nema þegar stór vöruflutninga- skip Skipaútgerðarinnar gætu lagst þar að bryggju. „Ástæðan fyrir því að ég tel mjög mikilvægt að fá ferjuna strax í vor er m.a. sú að fyrir dyrum standa miklar framkvæmdir í Grímsey næstu tvö sumur. Þá verður einnig ráð- ist í miklar framkvæmdir í Hrísey sem kalla á þungaflutninga,“ seg- ir Steingrímur J. Sigfússon. óþh Fjórir ráðherrar á fundaralli: „Nonni og Manni“ með fund Pólitískir áhugamenn á Norðurlandi hafa í nógu að snúast þessa dagana. Ráðherr- ar þeysa um héruð og boða fagnaðarerindið, í efnahags- legu, pólitísku og atvinnulegu tilliti. Steingrímur J. Sigfússson, landbúnaðar- og samgönguráð- herra, hóf fundaryfirreið sl. fimmtudag á Raufarhöfn og í gær- kvöld var hann með fund í Lunda- skóla í Öxarfirði. í dag kl. 13.30 boðar hann til almenns fundar um landbúnaðar-, samgöngu og byggðamál í ídölum í Aðaldal og ámorgun síðasti fundur ráðherrans í þessari lotu verður kl. 14 á morgun, sunnu- dag, í Bergþórshvoli á Dalvík. Formenn A-flokkanna, Jón Baldvin Hannibalsson og Ólafur Ragnar Grímsson, sem gárung- arnir hafa uppnefnt Nonna og Manna, verða með fund í „serí- unni“ á rauðu ljósi í Alþýðuhús- inu á Akureyri á morgun. Flautað verður til leiks kl. 14. Þá mun Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, halda almennan fund á Hótel KEA nk. þriðjudag, 24. janúar, kl. 21. Fundarefni er atvinnu- og efnahagsmál. óþh Mývatnssveit: Skj áJftavirkiH og landris „Land er eitthvað að rísa og það er búin að vera skjálfta- virkni síðan í nóvember, en mismunandi mikil,“ sagði Ármann Pétursson í Reyni- hlíð er Dagur spurðist fyrir um skjálftavirkni í Mývatns- sveit. Að undanförnu hefur fund- ist einn og einn skjálfti í sveit- inni en enginn þeirra mælst meira en þrjú stig á Richter. Einna stærstur var skjálfti sem fannst á miðvikudagskvöldið, en hanp mældist tæplega þrjú stig. Ármann sagði að útilokað væri að segja fyrir um fram- hald skjálftavirkninnar, hún gæti haldið áfram eða hætt og hvað sem væri gæti skeð. Mývetningar kippa sér ekkert upp við þennan titring og voru staðráðnir í heilsa þorra með fjölmennu þorrablóti f gær- kvöldi. IM Bæjarstjórn Akureyrar: Fundl frestað um viku Bæjarráð ákvað í gær að fresta fundi Bæjarstjórnar Akureyrar um eina viku, en halda átti bæjarstjórnarfund samkvæmt dagskrá 24. jan- úar. Næsti fundur verður því þriðjudaginn 31. janúar. Sigurður J. Sigurðsson, bæjarráðsmaður, sagði að þetta væri gert til að unnt væri að vinna betur að ýmsum mál- um sem upp hafa komið í um- ræðum um fjárhagsáætlunina. Ákveðnum þáttum fjárhags- áætlunar hefði verið vísað aft- ur til nefnda til endurskoðunar þar sem sýnt hefði verið að breytingar hefði þurft á ein- staka liðum. Mikilvægt væri að til fjárhagsáætlunarinnar væri vandað þegar hún kæmi til umræðu og endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. EHB Helgarveðrið: Skíðasnjór? Veðurspáin fyrir daginn í dag kætir eflaust skíðafólk á Norðurlandi. Gert er ráð fyrir hvassri norðanátt og snjókomu, eða „norðlenskri hríð,“ eins og veðurfræðing- ur komst að orði. Hins vegar mun þessi snjó- koma ekki standa lengi yfir því að á sunnudag spáir Veðurstofa íslands hægri norðaustanátt og einhverjum éljagangi á Norðurlandi. Vægt frost verður áfram. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.