Dagur - 21.01.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 21.01.1989, Blaðsíða 4
ð - fluoAQ - eeer isúnBi .rs 4 - DAGUR - 21. janúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavik vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, UÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Skattar og skattpíning Því er oft haldið fram að íslendingar séu skatt- pínd þjóð; að hið opinbera seilist sífellt dýpra ofan í vasa almennings eftir peningum til rekst- urs hins mikla bákns, þ.e. ríkis og sveitarfélaga. Þetta er að sumu leyti rétt en að sumu leyti rangt. Vissulega er það rétt að skattlagning hef- ur aukist jafnt og þétt með árunum. Hins vegar er beinlínis rangt að halda því fram að íslenska þjóðin sé skattpínd. Að minnsta kosti er skatt- lagning hins opinbera hér á landi mun minni en í helstu nágrannalöndum okkar, þeim löndum sem við gjarnan lítum til eftir samanburði. Heildarskatttekjur hins opinbera hér á landi árið 1987 voru sem nemur 29,1% af landsfram- leiðslu, en í þeirri tölu eru allir skattar ríkis og sveitarfélaga, beinir og óbeinir. í Hollandi var þetta hlutfall 46,1% sama ár, í Belgíu 46,9%, í Noregi 49,9%, í Danmörku 50,3%. Svíar tróna síðan á toppnum, en þar í landi tók hið opinbera hvorki meira né minna en 52,2% af landsfram- leiðslunni í skatta. Þótt nýir skattar hafi verið lagðir á íslensku þjóðina frá því þessar tölur giltu, er ljóst að við eigum enn langt í land með að verða jafningjar nágrannaþjóðanna hvað þetta varðar. Vonandi kemur sá tími aldrei. Auðvitað er öllum ljóst að skattar eru fyrst og fremst tekjuöflun fyrir ríki og sveitarfélög. Eftir því sem samneyslan eykst og velferðarkerfið þenst út þarf hið opinbera meira í sinn hlut. Þess vegna þarf annað hvort að skera rekstur hins opinbera niður ellegar auka tekjurnar. Það verður ekki bæði sleppt og haldið samtímis. Hins vegar geta allir verið sammála um það að brotalamir íslenska skattkerfisins eru margar. Sköttum er nefnilega ekki síður ætlað að vera jöfnunartæki en tæki til tekjuöflunar. Þeim, sem meira bera úr býtum, er ætlað að greiða meira til samneyslunnar en hinum, sem minna mega sín og þeim peningum skal síðan deilt út eftir kúnstarinnar reglum. Því miður hefur orðið mik- ill misbrestur á þessu. Flestum er ljóst að gera þarf veigamiklar breytingar á tekjuöflun hins opinbera. Það er brýnt verkefni fyrir þá ríkisstjórn sem nú situr. Hún þarf ekki að auka skattheimtu til mikilla muna til að ná endum saman, heldur gera breyt- ingar sem miða að því að dreifa skattbyrðinni meira en nú er gert. Lágtekjufólk og fyrirtæki sem eiga í erfiðleikum greiða allt of háa skatta til hins opinbera. Hátekjumenn og ýmiss arðbær fyrirtækjarekstur greiða allt of lítið til samneysl- unnar. í þessu er meinsemd skattkerfisins fólgin. Þá meinsemd þarf að uppræta. BB. úr hugskotinu Fluttur Ejjafjörður Það er þetta eilífa vandamál með hann Múhameð og fjallið. Hin algilda regla, sem meðal annars einkennir íslenska byggðastefnu er sú, að hann Múhameð litli skal ávallt til fjallsins. Fyrir kemur þó að eins- konar hlutverkaskipti verði, þannig að litla, sæta krúttið Múhameð gangi inn í hlutverk sjálfs fjallsins og öfugt. Menn ætlast þó yfirhöfuð ekki til þess að hið fyrrum fjall hreyfi sig mikið úr stað, og því verður lausnin vitanlega sú að hið nýorðna fjall má gjöra svo vel og taka á rás, fara jafnvel á flakk landshlutanna á milli. Þýðverskir Nonnaóðir? Eitthvað var það í þessa áttina sem við hér á klakanum svokall- aða ásamt íbúum stórra lands- svæða í Mið-Evrópu, fengum augum litið á sjónvarpsskjám okkar yfir blessaðar hátíðarnar sem nú heyra sögunni til, og eigum væntanlega einhverntím- ann aftur eftir að berja augum á öðrum hátíðum þegar aura vantar í kassa okkar ríkisreknu fjölmiðla. Þá var frumsýndur myndaflokkur einn þýðverskrar ættar sem maður las einhvers staðar að væri skrifaður af aust- urrískum nafna tónskáldsins kunna Thelemans, og byggður á bókum þess Akureyrings sem þekktastur hefur orðið, föður Jóns Sveinssonar. Þar sem sennilega hefur verið ókleift að filma þessa nítjándualdar frá- sögn á hennar raunverulega sögusviði, fyrst og fremst vegna þeirra umhverfisbreytinga sem orðið hafa, var auðvitað ekki annað ráð fyrir hendi en það að láta fjallið eða í þessu tilviki Eyjafjörðinn, taka á rás vítt og breytt um landið og koma gömlu, góðu Akureyrinni sem Nonni lýsir svo fallega í verkum sínum, fyrir suður í Flatey, þeirri er státar af Skáldu, öðru nafni Flateyjarbók, þó svo eigi fái hún nú að geyma frumrit dýrgripsins sakir reykvískrar menningarheimsvaldastefnu. Það skal strax tekið fram, að sennilega hefur ekki áður verið framleitt vandaðra sjónvarps- efni á íslandi en þessi þýðverski Reynir Antonsson skrifar unglingakrimmi, og hinir ungu leikarar í myndinni stóðu sig með mikilli prýði, féllu meðal annars ekki í þá gryfju að fara að tala reykvísku, en vitanlega átti þessi mynd lítið skylt við þá Nonna og Manna, nema nöfn þeirra bræðra, og nokkurra annarra persóna og staða, enda verður að segjast, að ýmislegt í þessum sögum hefði nú verið harla ókræsilegt sjónvarpsefni fyrir vel uppalda mið-evrópska aría, svo ^em sú staðreynd að Sveinn amtmannsskrifari faðir þeirra, maður orðlagður fyrir skyldurækni dó úr sullaveiki eft- ir hetjulega baráttu við að fram- færa fjölskyldu sína til hinstu stundar. Nei, þá var það nú miklu rómantískara að láta hann stinga af frá allri vesöld- inni til Ameríku þar sem smjör- ið draup. Það er því af þessari ástæðu sem er afar alvarlegs eðlis, og öðrum sem sumar verða að telj- ast meira og minna af fyndnara taginu, a.m.k. fyrir þá sem stað- kunnugir eru í Eyjafirði, best að ganga alveg fram hjá því að þessi framleiðsla hafi nokkuð átt með Nonna og Manna að gera, taka þættina eins og þeir koma fyrir, sem afþreyingar- efni, vel til þess fallið að sam- eina fjölskyldurnar fyrir framan skjáinn, þó svo varla sé nú til nein hallærislegri leið til að sameina þær, en við sjónvarps- gláp, er útheimtir fyrst og fremst einbeitingu sem leyfir engan kjaftagang, sem þó er undirstaða allra mannlegra samskipta. En burtséð frá Magnúsi vonda og Haraldi góða, Barna- fossunum í Hörgárdal eða Kröflueldunum í Eyjafirðinum, þá virðist svo sem eitthvert „Nonnaæði" hafi gripið um sig í Þýskalandi. Að vísu skulum við hafa þann fyrirvara á því, að það er fréttaritari RÚV í Þýskalandi sem dyggilegast hef- ur af þessu æði flutt fregnir en Ríkisútvarpið var einmitt einn þeirra aðila sem að framleiðslu þáttanna stóð. Það segir ekki mjög mikið þó að Flugleiðir hafi fengið tuttugu og sex þús- und svör við getraun í tengslum við þættina. Það eru nefnilega einhverjar milljónir krakka á þeim aldri sem hún höfðaði til á svæðinu, þannig að ekki er nú prósentan ýkja há. Jæja, Guði sé lof fyrir Breiðfirðinga, þá eru þrátt fyrir allt ekki miklar líkur til þess að allt fyllist hjá þeim af öskrandi þýðverskum krökkum í leit að Nonnahúsinu, því þótt undarlegt sé þá hafa víst ein- hverjir farið að lesa hinar einu og sönnu Nonnabækur í kjölfar þáttanna. Tunsmi Það fór auðvitað ekki hjá því að Flugleiðir, þetta óskabarn þeirra Ólafs Ragnars og Stein- gríms frá Gunnarsstöðum, reyndu að gera sér mat úr þess- um þáttum, þetta fyrirtæki sem fær ekki bara hverja gengisfell- ingu bætta upp í topp meðan almúginn má blæða, heldur er einnig boðið að eignast gjald- þrota flugfélög á silfurfati. Þættirnir eru nefnilega alveg fyrirtaks túristaáróður með fal- legu landslagi, fossum, eldgosi, og í kaupbæti fallegum hestum sem þýskir kváðu mjög girnast á landi hér, en þar sem þeir Nonni og Manni voru nú Ey- firðingar og Akureyringar í þokkabót, þá finnst manni nú ekki nema sanngjarnt að svæðið fái að njóta einhvers af ágóðan- um. Úr því að þeir aðilar sem að framleiðsiu myndarinnar stóðu voru ekki að láta svo lítið að hafa fyrst af öllu samband við svæðissjónvarp staðarins, eins og venjan er í viðlíka tilvik- um, heldur Ríkisútvarpið í Reykjavík þar sem allt er grass- erandi í spillingu morkinna og útjaskaðra ættarvelda (maður varð eiginlega undrandi að sjá ekki nafn Hrafns Gunnlaugs- sonar í lok Nonnaþáttanna), er eðlilegt að bæjarbúar hafi sjálfir frumkvæði að því að kynna raunverulegt líf og starf þessa heiðursborgara síns. Og því miður verður nú að segjast, að bæjaryfirvöld hafa ekki alveg staðið sig þarna í stykkinu, og ef til vill ekki verið beitt nægjanlegum þrýstingi af hálfu almennings. Þannig mætti að skaðlausu skíra einhverja mikilvæga götu eða torg í bæn- um eftir Nonna og jafnvel reisa honum þar minnismerki, gefa mætti út hið fjölbreyttasta mynd- og lesefni, og síðast en ekki síst heimta heim til Akur- eyrar allt það efni sem þýskir aðilar afhentu varðandi Nonna, og gáfu þjóðinni, til varðveislu í fyrirhugaðri nýbyggingu Amts- bókasafnsins. Þetta er akur- eyrskur menningararfur sem Reykvíkingar verða að skila, líkt og Danir handritunum. Allt þetta og fleira til gæti stuðlað að miklu meiri og umfram allt var- anlegri Nonnatúrisma en þessi þýski fjölskyldu- eða unglinga- krimmi sem af einhverjum ástæðum kennist við Nonna og Manna. En burtséð frá Magnúsi vonda og Haraldi góða, Barnafossum í Hörgár- dal eða Kröflueldunum í Eyjaflrðinum þá virðist sem eitthvert „Nonna- æði“ hafi gripið um sig í Þýskalandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.