Dagur - 21.01.1989, Page 7
e8G21íqanóprlt98£F^JOAQyfB- 7
poppsíðon
fl Umsjón: Valur Sæmundsson.
I
Eiríkur Hauksson að
slá í gegn með Artch
- hljómsveitin væntanleg til Islands
íslenskir tónlistaráhugamenn kann-
ast mæta vel við nafnið Eiríkur
Hauksson. Margir hafa einnig veitt
sérstæðu útliti hans athygli, þ.e.
rauöa faxinu sem flæðir niður herð-
ar hans og bak (þetta var býsna
skáldlega til orða tekið, enda
ábyggilega stolið einhvers staðar
fráj. Annars er hún Heiða mágkona
mín líka með rautt hár. Það er
kannski aukaatriði í þessu sam-
bandi en hún er svo skemmtileg að
það er allt'í lagi að minnast á hana.
En hvað viðvíkur Eiríki Haukssyni
þá er um það bil áratugur síðan
hann söng fyrst inn á plötu. Það hef-
ursennilegaverið á plötunni Kvöld-
vísu sem kQ|Ti út árið 1979- Ein-
hverja athygli vakti hann þá en það
var ekki fyrr en, með hljóm?yeitinhi
Start að hann.vakti verulega athygli
og frægðin bankaði á dyrnar.
Eftir að sú hljómsveit lagði upp
laupana, brallaði Eiríkur ýmislegt,
setti m.a. á fót hljómsveitirnar Deild
eittog þungarokksbandið Drýsil (þið
munið eftir Left Right, Left Right,
ekki satt?). Síðustu árin hefur hann
aðallega sungið fyrir hina & þessa,
m.a. í Eurovision eins og frægt er
orðið (Gleðibankinn sárrar minning-
ar). Þá blöskraði mörgum og þótti
sem Eiríkur hefði fjarlægst ímynd
bárujárnsblesans um of og fest sig í
diskóinu. Og þegar Model-hryll-
ingurinn bættist ofan á þetta allt
Eiki orðinn þungarokkari á ný. Víga-
legur, ekki satt.
saman, féllust þeim hendur alveg
endanlega sem höfðu álitið Eirík
Hauksson eina alvöru þungarokkar-
ann á (slandi. En „batnandi mönn-
um er best að lifa". Eiríkur hefur nú
„snúið frá villu síns vegar" og hellt
sér af fullum krafti í þungarokkið á
ný. Ekki þó á íslandi, heldur í Nor-
egi. Það var hljómsveitin Artch þar í
landi sem vantaði söngvara og þeir
leituðu ekki langt yfir skammt heldur
sneru sór til Eiriks sem tók þessu
tækifæri fegins hendi. Til að gera
stutt mál enn styttra þá hafa þeir
kumpánar nú sent frá sér plötu. Ei-
ríkur er þar vígalegur mjög á um-
slaginu og er titlaður Eric Hawk.
Platan heitir annars Another Return
og er alveg fantagóð af þunga-
rokksplötu að vera. Lögin eru hvert
öðru betra og Eiríkur sjálfur hefur
aldrei sýnt betri frammistöðu. Rödd
hans nýtur sín langbest í þessari
tegund tónlistar, á því er enginn
vafi. Hljóðfæraleikararnir norsku eru
líka starfi sínu vel vaxnir. Hljóm-
sveitin hefur raunarfengið afbragðs
dóma í Bretlandi, enda er plátan
þeirra greinilega stíluð á þann
markað. Another Return hefurfeng-
ið hæstu einkunnir þarlendra
þungarokkstímarita og hefur Eiríki
verið líkt við Bruce Dickinson,
söngvara Iron Maiden. Það er ekki
títill heiður.
Það er best að hafa þetta ekki öllu
lengra, Artch er komin á beinu
brautina og þá er bara að bíða og
sjá hver framvindan verður. Rúsín-
an í pylsuendanum er þó eftir. Það
var nefnilega verið að ganga frá þvi
að Artch komi hingað til íslands og
haldi konsert. Nánar tiltekiö í mars.
Þetta hef ég eftir áreiðanlegum
heimildum og þá er bara að fara og
kaupa plötuna, hlusta á hana og
drífa sig suður á hljómleikana. Því
að sjálfsögðu verða þeir í Reykja-
vik.
Proclaimers
koma í febrúar
Eins og kemur fram hér á öðrum
stað á síðunni er yfirvigtarsveitin
Artch með Eirík Hauksson í broddi
fylkingar, væntanleg til (slands í
mars til hljómleikahalds. Allt gott um
það að segja en það eru fleiri tíðindi
og ekki ómerkilegri úr tónlistarheim-
inum. Samkvæmt mjög áreiðanleg-
um heimildum síðunnar, eru samn-
ingar nú á lokastigi við Proclaimers
um að þeir mæti í febrúar og haldi
hljómleika á Hótel fslandi. Öruggt er
talið að samningar náist. Kannski er
betra að segja „nær öruggt". Þá
verð ég a.m.k. ekki hengdur.
En það er óhætt að segja að koma
Proclaimers sé mikill hvalreki á fjör-
ur (slenskra poppunnenda. Plata
skosku tvíburanna sem kom út fyrir
sl. jól, Sunshine on Leith, varð ein
sú allra söluhæsta af erlendum plöt-
um fyrir áðurnefnd jól, og lagið l’m
gonna be hefur verið þaulsætið á
vinsældalistum. Það lag er þó eng-
an veginn einkennandi fyrir tónlist
Proclaimers, flest þeirra lög eru
rólegar og hugljúfar ballöður þar
sem kassagítarinn er eina hljóðfær-
ið. Sem dæmi um þetta er titillagið
af Sunshine on Leith, sem er alveg
dýrlega fallegt.
Proclaimers hafa gefið út eina aðra
plötu til viðbótar Sunshine on Leith.
Það er platan This is the story sem
kom út árið 1987. Eitt lag af þeirri
plötu náði umtalsverðum vinsæld-
um, lagið Letter from America,
rólegt og fallegt lag með hárbeittum
texta. Margir textar hljómsveitarinn-
ar eru mjög pólitískir, enda er þeim
afar illa við fólk eins og Thatcher og
Reagan (sem hætti að vísu sem
forseti í gær). En þeir sem ekki
aðhyllast svipaðar stjórnmála-
skoðanir geta bara lokað eyrunum
fyrir textanum og bara notið tónlist-
arinnar. Auk þess er afar erfitt að
skilja skosku. En það ættu allir að
drífa sig á Hótel ísland á tónleikana.
Það verður gaman.
Eitthvað varð umsjónarmanni á í
messunni þegar hann fjallaði um
nýliðið ár í poppheiminum f síðasta
poppþætti. Þá sagði eitthvað á þá
leið að plata Sykurmolanna, Life’s
too good, hefði hafnað í öðru sæti í
tímaritunum Melody Maker og New
Musical Express. Þetta er ekki alls
kostar rétt, þar eð New Musical
Express átti hvergi að koma nærri.
Þetta sem sagt var í greininni átti
einungis við um Melody Maker. í
NME ná Sykurmolarnir „ekki nerna”
13. sæti yfir bestu plöturnar. í efsta
sætinu á þeim bæ er hins vegar
plata Public Enemy, It Takes A
Nation of million to hold us back.
Pixies, sem MM setti í efsta sætið,
nær ekki nema 10. sætinu í NME.
Annars er sú plata eina platan sem
er á báðum listunum, fyrir utan
plötuna Green með R.E.M. Hún er f
fjórða sæti hjá MM og í þvf þriðja
hjá NME.
í sambandi við bestu lögin, þá kem-
ur nokkuð á óvart að blöðin eru
sammála um besta lagið. Þar er um
að ræða lag Nick Cave, Mercy Seat
af meistaraverkinu Tender Prey.
Gæðasveitin House of Love er í
fimmta sæti hjá báðum, þ.e.a.s. lag-
ið Destroy the heart. Annars eru list-
ar þessara tímarita frekar ólíkir að
venju.
Forsætisráðherra
með fnnd á Akureyri
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, heldur
almennan fund á Hótel
KEA þriðjudaginn 24. jan.
kl. 21.00.
Fundarefni:
Atvinnu- og efnahagsmál.
Ællir velkomnir
Stjórn K.F.N.E.
gnLAWDSVIRKJUW
Samkeppni um gerð
útilistaverks við stjórnstöð
Landsvirkjunar
Landsvirkjun býður til samkeppni um gerð
útilistaverks við stjórnstöð Landsvirkjunar,
Bústaðavegi 7, Reykjavík.
Allir íslenskir listamenn hafa heimild til þátttöku.
Heildarverðlaunaupphæð er allt að kr. 500.000.- þar
af verða 1. verðlaun ekki lægri en kr. 300.000.-
/ dómnefnd eru:
Dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar,
Guðmundur Kr. Kristinsson, arkitekt,
Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar,
Halldór B. Runólfsson, listfræðingur
og Pór Vigfússon, myndhöggvari.
Keppnisgögn verða afhent af trúnaðarmönnum
dómnefndar, Jóhönnu S. Einarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra myndlistar-
manna, Ásmundarsal, Freyjugötu 41, Reykjavík,
alla virka daga kl. 12.00-15.00 og Ólafi Jenssyni,
framkvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar,
Hallveigarstíg 1, Reykjavík, frá og með mánu-
deginum 23. janúar 1989.
Skilabrygging er kr. 1.000,-
Skila skal tilllögum til annars hvors trúnaðarmann-
anna fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 21. mars 1989.
Reykjavík 20. janúar 1989.
LANDSVIRKJUN.