Dagur - 27.01.1989, Page 2
2 - DAGUR - 27. janúar 1989
Efra stig Grunnskóla Sauðárkróks:
Innbrot í nemendasjoppu
- ferðasjóðurinn 6000 krónum fátækari
Síðastlidið miðvikudagskvöld
eða aðfararnótt fúnmtudags var
brotist inn í sjoppu nemenda
efra stigs Grunnskólans á
Sauðárkróki. Hurð í sjoppuna
var brotin upp og höfðu inn-
brotsþjófar, eða þjófur, á brott
með sér innkomu vikunnar í
peningum, eða um 6000 krónur.
Ekki er vitað hverjir voru
þarna á ferðinni, eða hver, en
rannsókn málsins stendur yfir.
Engin ummerki voru um inn-
brot inn í sjálft skólahúsið og því
líkur á að innbrotsþjófar, eða
þjófur, hafi haft lykil að útidyra-
hurð. Hurðin að sjoppunni var
illa brotin og lás farinn af hurð-
inni. Þarna hefur því þurft mikið
átak til að komast í gegn.
Sem fyrr segir var innkomu
vikunnar í peningum stolið úr
sjoppunni. Sú upphæð var óvenju-
mikil að þessu sinni, m.a. vegna
þess að 9. bekkingar voru nýbyrj-
aðir að selja smurðar samlokur í
sjoppunni til að auka við ferða-
sjóðinn. -bjb
í vetur hafa fjölmargir félags-
menn í Einingu og Iðju félagi
verksmiðjufóiks á Akureyri,
sótt starfsnám í matvælaiðn-
aði. Starfsnám þetta er sam-
kvæmt kjarasamningum og
hækkar laun þeirra félags-
manna sem þau sækja.
Hvert námskeið er 40
kennslustundir og á því er farið
yfir alla helstu þætti sem snerta
matvælaiðnaðinn. M.a. aðbún-
að og hollustuhætti, efnisfræði,
reglugerðir í matvælaiðnaði,
næringafræði, tæki og búnað og
samskipti á vinnustað, svo
eitthvað sé nefnt.
Er ljósmyndari Dags leit við í
Alþýðuhúsinu í vikunni, hitti
hann fyrir starfsmenn ístess hf
sem voru á umræddu námskeiði.
Námskeiðið hefur jafnan verið
haldið utan vinnutíma starfs-
manna en þó fengu starfsmenn
ístess að taka hluta þess í vinnu-
tímanum. -KK
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Hugmynd um fyrirtæki í Ólafsfirði
til að reykja fisk:
Reyking á laxi er
ákaflega vandasöm
- segir Gunnar L. Jóhannsson í Hlíð
Akureyri:
Starfsnám í matvælaiðnaði
Þeirri hugmynd var hreyft á
fundi atvinnumálanefndar
Ólafsfjarðarbæjar í desember
sl. að koma á fót fyrirtæki í
Ólafsfirði til að reykja fisk,
fyrst og fremst lax. Málið kom
til umræðu á fundi bæjar-
stjórnar Ólafsfjarðar þann 10.
janúar sl. og sagði Ármann
Þórðarson reykingu á fiski
hafa verið reynda hjá Sæveri
hf. með sæmilegum árangri og
sjálfsagt væri að athuga hag-
kvæmni hennar nú.
Að sögn Bjarna Kr. Grímsson-
ar, bæjarstjóra, er hér einungis
um að ræða hugmynd sem ekki
hefur verið unnið frekar úr. Þó
hafi menn lítilsháttar kynnt sér
starfsemi samskonar fyrirtækja
hér á landi. Bjarni nefndi í því
sambandi Eðalfisk hf. í Borgar-
nesi.
Á bænum Hlíð í Ólafsfirði hef-
ur verið laxeldi á annað ár.
íbúðir aldraðra við Víðilund á Akureyri:
Framkvæmdir ganga ágætlega
- Híbýli á að skila fyrra húsinu í júní
Gunnar L. Jóhannsson, bóndi og
skólastjóri í Hlíð, segir að hann
sé reyndar nýbyrjaður að fikta
við bleikjueldi. Laxinn hefur ver-
ið reyktur heima í Hlíð og þannig
seldur m.a. til Fiskbúðar Baldurs
á Akureyri. Gunnar segir reyk-
ingu fisksins hafa gengið nokkuð
vel. Hann segir reykingu vissu-
lega nokkuð vandasama, sérstak-
lega þurfi hitastigið að vera
nákvæmt. „Það er afskaplega
auðvelt að gera lax ónýtan í reyk-
ingu,“ segir Gunnar. Algengt er
að taðreykja laxinn en Gunnar
fer nokkuð ótroðnar slóðir, notar
einfaldlega spýtukubba við reyk-
inguna.
Aðspurður um hvort markaðir
virtust nægir fyrir fiskinn segir
Gunnar að hann þurfi ekki að
kvarta en hins vegar beri að líta á
að hann framleiði ekki það mikið
magn að þurfi að koma til sérstök
markaðsöflun. óþh
Vinna við pússningu stendur
nú yfir af fullum krafti í fyrra
fjölbýlishúsi aldraðra við Víði-
lund á Akureyri. Múrarar á
vegum Híbýlis hf. nota sér-
staka vél til að sprauta gips-
pússningu á veggi íbúðanna,
en vinna við það verk hófst að
nýju 12. þ.m. eftir hlé um ára-
mótin. Híbýli á að skila húsinu
af sér um miðjan júní sam-
kvæmt verksamningi.
„Þetta stendur alveg þokka-
lega,“ sagði Magnús Garðarsson,
en hann fer með byggingaeftirlit
f.h. Akureyrarbæjar og Fram-
kvæmdanefndar um íbúðabygg-
ingar á vegum aldraðra. Magnús
sagði að múraranir væru búnir að
pússa 3 íbúðir á 4. hæð hússins,
fyrir utan eina „sýningaríbúð" á
neðstu hæðinni. Reiknað er með
að pússningarvinnu ljúki í maí
eða jafnvel fyrr, ef vel gengur.
Kosturinn við gipspússningu er
m.a. sá að hægt er að hefja vinnu
við tréverk viku eftir að búið er
að pússa hverja íbúð. Baðher-
bergin verða þó pússuð á hefð-
bundinn hátt. Magnús Garðars-
son sagði að Híbýlismenn ætluðu
fljótlega að smíða milliveggi og
sinna öðrum frágangi.
Hörður Tulinius hjá Híbýli
segir um gipspússninguna að
stefnt sé að því að hægt sé að
pússa hverja íbúð á liðlega þrem-
ur dögum. Á hverri hæð eru sex
íbúðir og ætti því ekki að taka
nema rúman hálfan mánuð að
ljúka múrverki innanhúss á
hverri hæð með þessari aðferð.
Magnús Garðarsson var spurð-
ur um þjónustukjarnann, en
Akureyrarbær mun eiga að kosta
byggingu hans. Hann sagðist hafa
heyrt að takmarkað fjármagn
yrði sett í þá framkvæmd á árinu
í ár og væru það ekki góðar
fréttir, því best væri að koma
þjónustukjarnanum „upp úr
jörðinni," eins og sagt er, fyrir
næsta vetur, þ.e. kjallaranum. Þá
væri hægt að ýta jarðvegi að
kjallaraveggjum hans og ganga
frá lóð og bílastæðum fyrra húss-
ins fyrir veturinn.
Fjölnismenn luku við að steypa
botnplötu síðara fjölbýlishússins
fyrir áramót, en hafa ekki steypt
meira í bili vegna anna við Verk-
menntaskólann. EHB
Kiwanismenn gefa Sjálfs-
björg ljósbylgjutæki
í vikunni veitti Sjálfsbjörg félag fatlaðra á Akureyri við-
töku laiser Ijósbylgjutæki, en það var Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur á Akureyri sem gaf félaginu tækið. Ljós-
bylgjutæki þetta er ætlað til lækninga ýmiskonar innri
meina, til að mynda eftir íþróttaslys og sagði Snæbjörn
Þórðarson formaður Sjálfsbjargar að tækið kæmi í góðar
þarfir. Tækið kostar um 200 þúsund krónur. Snæbjörn
sagði þá Sjálfsbjargar menn eiga góða að þar sem þeir eru
Kiwanismenn úr Kaldbak, en þeir hefðu áður stutt starf-
semina á Bjargi með tækjagjöfum. Að lokinni afhendingu
var boðið til kaffisamsætis að Bjargi. Ljósmyndarinn
TLV var á staðnum og festi atburðinni á filmu. Á stærri
myndinni eru samankomnir félagar úr Kiwanisklúbbnum,
en á þeirri innfelldu þakkar Snæbjörn formaður Sjálfs-
bjargar Þorsteini Konráðssyni formanni Kaldbaks tækja-
gjöfina. mþþ
Hver hreppir verð-
launin að þessu sinni
Á fundi dómnefndar um bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs í Kaupmannahöfn í dag
27. janúar, verður tekin
ákvörðun um það, hver hljóti
bókmenntaverðlaunin árið
1989 og verður sú ákvörðun
kynnt á fréttamannafundi í
danska þinghúsinu, Christians-
borg, þann dag kl. 12 að
dönskum tíma. Af hálfu
íslands sitja rithöfundarnir
Jóhann Hjálmarsson og Sveinn
Einarsson í dómnefndinni.
Af íslands hálfu voru tilnefnd
verkin „Dagur vonar“ eftir Birgi
Sigurðsson og „Tengsl“ eftir Stef-
án Hörð Grímsson.
Verðlaunin, sem eru 150.000
danskar krónur, verða nú veitt í
28. sinn. Þau verða afhent við
hátíðlega athöfn í tengslum við
37. þing Norðurlandaráðs í
Stokkhólmi 28. febrúar nk.
íslendingar hafa þrívegis hlotið
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs; Ólafur Jóhann Sigurðsson,
árið 1976; Snorri Hjartarson, árið
1981 og nú síðast Thor Vil-
hjálmsson, en hann hlaut þessi
eftirsóttu verðlaun í fyrra.