Dagur - 27.01.1989, Page 4

Dagur - 27.01.1989, Page 4
c - HU£iA£I ~ SB&f nsíinei -^S 4 - DAGUR - 27. janúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Tilraunabúskapur Árum saman hefur stjórnmálamenn greint á um hvernig farsælast sé að stýra þjóðarskút- unni. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar í þeim efnum og hafa sumar reynst þjóðinni æði dýr- keyptar. Almenningur hefur smám saman tekið efnahagslegum kollsteypum á nokkurra ára fresti sem sjálfsögðum hlut. Það er stund- um sagt að sveiflur í þjóðarbúskapnum séu óumflýjanlegar vegna þess hve einhæft atvinnulífið sé í reynd. Ytri aðstæður, svo sem aflabrögð, markaðsverð útflutningsafurð- anna á erlendum mörkuðum svo og olíuverð, ráði í raun mestu um afkomu sjávarútvegsins frá ári til árs. í þessu felst nokkurt sannleikskorn en í höfuðatriðum er þessi fullyrðing röng. Vitan- lega ráða ytri aðstæður miklu um afkomuna hverju sinni en stjórnvöld hafa samt sem áður töglin og hagldirnar. Það er á þeirra valdi að jafna sveiflurnar í efnahags- og atvinnulífinu og koma þannig á meiri stöðugleika í þjóðar- búskapnum. Þjóðin gengur nú í gegnum enn eitt sam- dráttarskeiðið. Eftir nokkurra ára góðæris- tímabil fór að gæta samdráttar í byrjun síð- asta árs. Eins og ávallt áður var beint sam- hengi milli versnandi afkomu almenns atvinnurekstrar í landinu og slæmrar stöðu útflutningsgreinanna. Engin leið er að kenna ytri aðstæðum um þessa stöðu nema að litlu leyti. Árið 1988 var nefnilega metár í íslands- sögunni hvað aflabrögð varðar, þótt markaðs- verð hafi verið lægra en oft áður. Þvert á móti verður að skrifa versnandi stöðu útflutnings- greinanna á reikning rangrar efnahagsstjórn- unar. í rangri gengisskráningu og gífurlegum fjármagnskostnaði er rót vandans að finna. Þannig var búið um hnútana að útflutnings- tæki gátu ekki náð endum saman. Þau voru rekin með tapi og eru reyndar ennþá öfugu megin við núllið. Samt er vitað að ef undir- stöðuatvinnuvegirnir tapa hefur það bein áhrif á allan atvinnurekstur í landinu. Við náum ekki að vinna okkur út úr aðsteðjandi vanda fyrr en þessum taprekstri linnir. Spurningunni um það, hvernig stjórna eigi þjóðarskútunni svo vel sé, má svara með einni setningu: Rekum sjávarútveginn, þ:e. fiskvinnslu og útgerð, með hagnaði og þá er öðrum atvinnurekstri borgið. Um þetta geta flestir verið sammála. En eflaust mun stjórn- málamenn og efnahagssérfræðinga áfram greina á um það hvaða leið sé best að þessu marki. Þess vegna er líklegt að þjóðarbúið verði áfram rekið sem eins konar tilraunabú, með þeirri óvissu sem slíkum rekstri fylgir. BB. á góðum degi Af ómöffum og öðru fólkí í dag er margt skrifað og skrafað, um þá sem minna mega sín, t.d. að hinar ýmsu bætur, t.a.m. örorkubætur og ellilífeyrir, þyrftu að vera hærri og er ekki vafi á að þær þyrfti að hækka verulega. Með lögum mætti e.t.v. breyta því að þingmenn, sem fara í mjög vel launuð embætti eftir sína þingsetu, fengju eitthvað minna en fram hefur komið í fréttum og þeim fjárhæðum væri veitt til fyrrnefndra bótaþega. Þó er ómögulegt annað en að viðurkenna að víða er vel búið að fullorðna fólkinu og þeim fötl- uðu. Sú saga Kiljans, sem ég hefi oftast lesið og er að mínu viti sú skemmtilegasta sem hann hefur skrifað, er Heimsljós, sagan af niðursetningnum Ólafi Kárasyni ljósvíkingi, eins og hann kallaði sig. Þegar ég var unglingur hélt ég að bækur eftir Nóbelsverð- launaskáldin, hlytu að vera mjög þungar aflestrar og hélt mér því lengi vel frá þeim bókmenntum. En eftir að ég réðist í að lesa „ís- landsklukkuna", mér til mikillar ánægju, fannst mér ég skilja af hverju slíkir rithöfundar fengju stórar viðurkenningar. Allur stíll og atburðarlýsingar voru svo lif- andi og skemmtilegar, að þær breyttu gjörsamlega mínu lestr- armynstri. Þeir eru samt ófáir sem finnast margar af sögum Laxness hafa meira bókmennta- legt gildi en „Ljósvíkingurinn“, en eins og ég sagði áður þá er hann mín uppáhaldslesning. Þeir sem lesið hafa söguna, vita að hún fjallar um þetta umkomu- lausa skáld sem fannst hann vera veikasti maður á íslandi, niður- setningur, sem komið var fyrir á bænum Fæti undir Fótafæti, þar sem yngri bróðirinn Júst og sá eldri Nasi, voru eins og ógnar- vættir sem börðust um líf hans og sál. Þegar annar skipaði honum til fjalls, sagði hinn honum að halda sig á láglendinu. Seinna voru það svo oddvitinn og Pétur Þríhross á Sviðinsvík sem léku hann eins. Samt virðist Ljósvík- ingurinn hafa öðlast sinn skerf af hamingjunni, út úr lífi sínu, enda þurfti lítið til að gleðja hann. Á fremstu síðum bókarinnar segir t.d.: „Magnína heimasæta kenndi honum að lesa, það voru til ritjur af stafrófskveri. Hún sat yfir hon- um eins og þúst og benti á stafina með bandprjóni. Hún sló hann utanundir ef hann sagði þrisvar rangt til um sama stafinn, en aldrei fast og aldrei í illu, alltaf eins og arinars hugar, og honum var sama. Hún var digur og hörð, en blá framaní, og hundurinn hnerraði þegar hann þefaði af henni. Hún gekk í tvennum svell- þykkum sokkum vegna lángvar- andi fótakulda, ytri sokkarnir voru alltaf niðrum hana, innri sokkarnir voru stundum einnig niðrum hana.“ Margir trúa því að sagan af Ó. Kárasyni Ljósvíkingi sé byggð á ævi skáldsins frá Þröm, og það gerir bókina enn fýsilegri. íslendingar áttu lengi sína, niðursetninga og sannarlega var misjafnlega að þeim búið. Sumir áttu því láni að fagna að lenda hjá góðu fólki, en aðrir fengu vist hjá fólki sem hugsaði einungis um að fá meðlagið frá viðkomandi sveitarfélagi og áttu þeir niður- setningar mjög illa ævi. í annál frá 1771 las ég um eyfirskan sveitarómaga sem ráðamenn Skriðuhrepps töldu verstu plágu hreppsins. Mál þessarar veslings manneskju gekk svo 'angt að Kóngi var skrifað bréf, til lausnar málinu. 1 bréfinu segir svo: „Þegar búið er að gjalda landskuld, leigur, allar tíundir, heilmarga skatta af þessum fátæka svokallaða Skriðuhreppi, og marga tolla þar fyrir utan, þá eru flestar fjaðrir af plokkað- ar . . . Hér fyrir utan hefur yfir- vald vort, velnefndur Jón Jakobs- son, skikkað oss einn hinn þyngsta ómaga, er meinast vera muni f þessari sýslu, konu eina hér úr næsta hreppi, sem hér í Skriðuhreppi er að sönnu fædd og fór héðan með foreldrum sín- um fimm vetra í þennan næsta svokallaða Hvammshrepp, þar hún hefur framfærst og þjónað allan sinn aldur . . . Þessi Hvammshreppur liggur við sjó- síðuna og við veiðiskapinn sumar og vetur og við það hefur þessi manneskja upp alist og etið stundum óhreint. Hún er fyrst með hæstu kvenpersónum, og svo gild af einhverjum óþokka- hvapa, að varla nokkur hestur ber hana bæjarleið, en hún sjálf gengur ekki neitt. Hún er búin að eyða hér hjá oss sex ára tillagi fyrir þau fimm ár, er hún dvaldist hér ung, en á síðastliðnu vori afsögðu hreppsstjórar í oft nefndum Skriðuhreppi að hýsa hana lengur. En sýslumaður skikkaði þeim það samt. En þessi kerling flæktist svo út í hrepp sinn og dvaldist þar svo hjá fólki sínu, þar til í vetur fyrir jól. Þá var hún flutt á Skriðuhrepp með attest frá sýslumanni með þeim orðum, að hann skikkar oss að taka á móti þroti þessu . . . Ef það mætti segjast að vér í Skriðu- hreppi fengjum svar með léleg- heitum, að ómaga þessum af oss létti, þættumst vér fullsælir. Þennan póst um ómaga þennan, felum vér hans kónlegrar Majesta- tis commision á hendur, oss til hins besta . . . Ef upp á vort bráf . . kemur nokkurt svar, almúgans gagn áhrærandi, biðj- um vér allra undirdánugast, að það mætti koma fyrir almúgans augsýn . . .“ Undir þetta bónarbréf til kóngs- ins skrifar síðan Jón Jónsson hreppsstjóri, Efstalandi í Öxna- dal, 1771. Ef þessi kona hefði lifað sinn tíma í dag er ég viss um að hún hefði fengið góða umönnun á einhverri bæjar- eða ríkisstofn- uninni og kannski hefðu læknar getað fundið, hvað olli þessum slæma kvilla hennar. Og eitt er víst að ekki hefði hún þurft að leggja sér neitt óhreint til matar svo vel búum við af mat á okkar ágæta landi í dag. Eins er með „Ljósvíkinginn“ ef hann væri raunverulegur og væri uppi á vor- um dögum, teldi ég víst að hann hefði orðið mikið skáld, jafnvel á launum hjá ríkinu. í frístundum hefði hann svo kannski verið að rannsaka hve lengi Jónas Hall- grímsson hefði verið að yrkja Gunnarshólma, eða e.t.v. hefði hann fengið að rannsaka rímur Sigurðar Breiðfjörðs og útlista kenningar í ljóðum hans. Sigurð- ur Breiðfjörð var jú hans uppá- haldsskáld. Allavega veit ég að hann hefði ekki þurft að vera í grjótburði hjá þeim Stjórngrýt- ingum á Sviðnisvík, því til þess hafði skáldið enga burði. Ég hlusta oft á leikrit ríkisút- varpsins. Sama leikritið er sent út tvisvar í viku svo það er vandalít- ið að ná því á öðrum hvorum tímanum. Oft er þetta hin besta skemmtun, en því miður er þess- um tíma líka stundum mjög illa varið, en það er auðvitað afstætt eins og annað. Fyrir nokkrum vikum var ég að hlusta á eitt verkið. Það var um heimavinn- andi húsmóður og ef ég man rétt þá gekk það að mestu út á spjall þessarar ágætu konu við frysti- kistuna sína. í sjálfu sér er ekkert athugavert við það þótt konur (eða karlmenn) séu í hrókasam- ræðum við frystikisturnar sínar eða önnur áhugaverð heimilis- tæki á þessum síðustu tímum. En mér finnst lágmark að samræð- urnar séu skemmtilegar þegar þeim er útvarpað svona beint inní stofu til okkar. „í sjálfu sér er ekkert athugavert við það þótt konur (eða karlmenn) séu í hrókasamræðum við frystikisturnar sínar eða önnur áhugaverð heimilis- tæki . . .“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.