Dagur - 27.01.1989, Side 5
27. janúar 1989 - DAGUR - 5
Hvað er að gerast
Akureyri:
^ Hörður sýnir
í Útvegsbankanum
Um þessar mundir stendur yfir
málverkasýning Harðar Jörunds-
sonar í Útvegsbankanum á Akur-
eyri.
Hörður er fæddur í Hrísey árið
1931. Hann lærði fyrst teikningu
hjá Jónasi Jakobssyni mynd-
höggvara. Síðan stundaði hann
nám í Den Tekniske Selskabs-
skole í Khöfn í viðar- og marm-
aramálningu. Hörður hefur hald-
ið tvær einkasýningar hér á
Akureyri og eina á Húsavík, og
hefur auk þess tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Þetta er 17. málverkasýningin
sem sett hcfir verið upp í Útvegs-
bankanum. Sýning Harðar stend-
ur yfir út febrúarmánuð. Petta er
sölusýning og er hægt að kaupa
myndir með afborgunarskilmál-
um. 13 vatnslitamyndir eru á sýn-
ingunni.
Alpahátíð
í SjaUanum
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur í
samvinnu við Flugleiðir býður til
sérstakrar kynningar á vetrar-
ferðum til Alpanna. í því skyni er
slegið upp sannkallaðri Alpahá-
tíð í Sjallanum á Akureyri næstu
tvær helgar, eða föstudagana
27.1. og 3.2. og laugardagana
28.1. og 4.2.
Svissneski kokkurinn Erwin
Derungs útbýr hlaðborð að hætti
helstu skíðahótelanna í Ölpun-
um. Hlj'ómsveitin All Arounds,
frá Ölpunum, skemmtir gestum.
Hljómsveitin er sérstaklega feng-
in hingað til lands til að gefa gest-
um Alpahátíðarinnar forsmekk-
inn að þeirri fjallhressu tónlist
sent hljómar bæði á kránum og
skíðahótelunum í Ölpunum.
Útifatnaður fyrir vetraríþrótta-
fólk verður sýndur, svo sem vél-
sleðabúningar og skíðafatnaður.
Vetraríþróttatækin verða einnig
sýnd - vélsleðar, skíði, skautar
og fleira. Alpahátíðinni lýkur kl.
03 með dynjandi dansi undir
hressum tónum akureyrsku
hljómsveitarinnar Karakter.
Fjölmennt í
KA-heimilinu
Fræðslunámskeið
fyrir alkóhólista
hefjast mánudaginn 6. febrúar 1989 kl. 18.00.
Upplýsingar og innritun í síma 96-27611.
S.Á.Á.-N.
_Til viÓskiptamanna_
banka og sparisjóða
Dráttarvextir af
víxlum við banka
og sparisjóði
Frá og með miðvikudeginum 1. febrúar
1989, verða dráttarvextir af víxlum
reiknaðir strax eftir gjalddaga þeirra.
Dráttarvextirnir reiknast sem dagvextir.
Sama regla gildir um víxla, sem
stofnanirnar innheimta fyrir
viðskiptamenn.
Tónlistarfélag Akureyrar:
Jón Hlöðver Áskelsson
flytur fyrirlestur
Næstkomandi sunnudag, þann
29. janúar 1989 kl. 5 e.h. mun
Jón Hlöðver Áskelsson flytja
fyrirlestur í Gamla Lundi. Mun
hann ræða um Kínaferð, sem
hann fór í síðastliðið sumar,
ásamt öðru tónlistarfólki. Mun
hann í máli sínu minnast á stöðu
vestrænnar tónlistar í Kína, þjóð-
lega tónlist, tónlistaruppeldi o.fl.
og segja frá heimsóknum í skóla
og leika upptökur með ungu kín-
versku listafólki.
Kínverskt te verður á boðstól-
um til hressingar!
Allir á skíði
í Hlíðarfjall
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður
opnað á morgun í fyrsta skipti í
vetur. Vegna snjóleysis hefur
verið „ófært“ þar fyrir skíðafólk,
en nú hyggjast forráðamenn gefa
fólki kost á að renna sér þar eftir
langa bið. Enn er þó lítill snjór í
Fjallinu og er fólki bent á að fara
varlega því víða er grunnt á
grjótið. Svæðið verður opið á
morgun og sunnudag frá
kl. 10.00-17.00.
Aðgangur verður ókeypis fyrir
alla félagsmenn, meðan húsrúm
leyfir, en utanfélagsfólki verður
seldur aðgangur á kr. 400,-.
Fyrsta kaffihlaðborðið í KA
heimilinu um síðustu helgi tókst
með eindæmum vel og komu
þangað yfir 100 manns í gómsæt-
ar veitingarnar. Sem kunnugt er
verður hér um fasta uppákomu
að ræða alla sunnudaga í vetur og
stendur frá kl. 14.00-17.00. Peir
sem komust ekki síðasta sunnu-
dag ættu að drífa sig núna og
gestir frá síðustu helgi láta örugg-
lega sjá sig aftur.
Reykjavík, 24. janúar 1989
Samvinnunefnd bankaog sparisjóóa
Leikfélag Akureyrar:
Vinsældir Emils og ídu
fara sívaxandi
Ekkert lát er á vinsældum leik-
ritsins Emil í Kattholti sem Leik-
félag Akureyrar sýnir um þessar
mundir. Uppselt er á hverja sýn-
ingu og verður leikritið sýnt fram
í mars með þessu áframhaldi.
Um helgina verða sýningar á
laugardag og sunnudag kl. 15 og
næstu sýningar verða á þriðjudag
og fimmtudag í næstu viku kl. 18.
Skólakrakkar víða af Norður-
landi hafa flykkst til Akureyrar í
því skyni að sjá uppátæki prakk-
arans Emils í Kattholti og vænt-
anlega hafa allir snúið ánægðir til
síns heima.
Þau Júlía Egilsdóttir og Ingvar
Már Gíslason, sem leika ídu og
Emil, eru nú vinsælustu börnin á
Akureyri og nægir þar að vitna í
Húsavík:
Gestakokkur í kaupfélagi
Gestakokkur verður í Matbæ
Kaupfélags Þingeyinga milli kl.
16-18 í dag. Dagur veit ekki til að
slík uppákoma hafi verið reynd
áður í matvöruverslun en að
undanförnu hafa gestakokkar
notið vinsælda á ýmsum matsölu-
stöðum, í sjónvarpi og fleiri fjöl-
miðlum. Kaupfélagið fyrirhugar
að bjóða almennum borgurum að
vera gestakokkar í Matbæ við og
við á næstu vikum, og verður
aðaláhersla þá lögð á einfalda,
fljótlega og ódýra rétti og munu
uppskriftir liggja frammi um leið
og viðskiptavinum býðst að
smakka á réttunum. Eftir því
sem Dagur hefur komist næst
mun gestakokkurinn í dag verða
mættur með pottrétt kl. 16:00.
IM
leiki barna á dagvistum þar sem
allar stelpur vilja fá að leika ídu
og strákarnir Emil.
dagblaðið á
landsbyggðinni
ÓKAMARKAÐUR
Bækur á gó5u ver5i
Opnum bókamarkab í dag,
föstudaginn 27. janúar kl. 13.00
í bókasölu okkar að Tryggvabraut 18-20.
Mikið úrval af góðum bókum • Verð frá kr. 200.
Nú er tækifæri til að fá góðar bækur fyrir lítið verð.
Opið laugardag frá kl. 10.00-16.00.
Ath: Sumir titlar aðeins til í mjög takmörkuðu upplagi.
Bókaforlag Odds Björnssonar
Tryggvabraut 18-20.