Dagur - 27.01.1989, Page 15

Dagur - 27.01.1989, Page 15
27. janúar 1989 - DAGUR - 15 Ólafur Haraldsson og Stefán Arnaldsson dæmdu vel á Baltic-Cup í V.- Þýskalandi. Mynd: ap Knattspyrna: Dómarahópurinn tilkynntur 3 nýir í 20 manna „úrvalsliðinu“ Hópurinn, sem dæma mun alla leiki 1. og 2. deildar íslands- mótsins í knattspyrnu, hefur nú verið valinn. Dómaranefnd KSÍ kom saman til fundar á þriðjudagskvöld og þar var ákveðið að hópinn skipi 20 dómarar, eða jafnmargir og á síðasta keppnistímabili. Þrjár breytingar verða á hópn- um frá fyrra ári. Þeir Baldur Scheving, Fram og Eysteinn Guðmundsson, Þrótti, hafa báðir lagt flautuna á hilluna og þá er Róbert Jónsson, Val, ekki í hópnum. í stað þeirra koma Ágúst Guðmundsson, KR; Gunnar R. Ingvarsson, Þrótti og Gylfi Orrason, Fram, inn í 20 manna hópinn. Gunnar R. Ingvarsson, Þrótti Gylfi Orrason, Fram Haukur Torfason, KA Magnús Jónatansson, Þór Ólafur Lárusson, KR Ólafur Sveinsson, Fram Óli P. Ólsen, Þrótti Sveinn Sveinsson, Fram Sæmundur Víglundsson, ÍA Þorvarður Björnsson, Þrótti Þóroddur Hjaltalín, Þór Dómarar: Við erum alveg í skýjuiium - segir Stefán Arnaldsson um Baltic-Cup keppnina Stefán Arnaldsson og Ólafur Haraidsson handknattleiks- dómarar eru komnir heim aft- ur eftir að hafa dæmt á Baltic- Cup í V.-Þýskalandi. Þar íslenskar getraunir: KA aftur á toppinn KA tókst að endurheimta fyrsta sætið af Þórsurum í Islenskum getraunum í síðustu viku. Það munar að vísu ekki nema rúmlega fjögur hundruð röðum þannig að keppnin er mjög jöfn. Golfklúbbur Húsa- víkur er einnig sterkur og held- ur örugglega þriðja sætinu. Ekki var farið nákvæmlega rétt með aldur Dalvíkingsins Ingólfs Kristjánssonar sem vann rúma milljón á laugardaginn. Sagt var að hann væri 23 ára en það rétta er að hann er ekki nema tvítugur. En milljónina fékk Ingólfur hvort sem var. En lítum þá á Topp 10 á Norðurlandi: raðir 1. KA 10.891 2. Þór 10.469 3. Golfkl. Hús. 4.076 4. Leiftur 3.750 5. Dalvík 2.815 6. Vorboðinn 2.055 7. Völsungur 2.050 8. Einherji 815 9. Eilífur 763 10. Möðruvallas. 698 Ingólfur Kristjánssun frá Dalvík sem hlaut rúma milljón á laugardag- inn. dæmdu þeir m.a. úrslitaleikinn sjálfan í mótinu milli Sovét- manna og V.-Þjóðverja og fengu mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína. Stefán Arnaldsson sagði í.sam- tali við Dag að þeir félagarnir væru alveg í skýjunum eftir mótið. „Eftirlitsdómarinn gaf okkur góða einkunn fyrir leikina og það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti sem þýsku blöðin sögðu að við hefðum fengið morðhótun eftir leikinn,“ sagði Stefán. Hann sagði að þeir hefðu heyrt um einhverja sprengjuhótun en þetta hefði heldur betur verið rangtúlkað í blöðunum. Ólafur og Stefán dæmdu fyrst leik V.-Þýskalands og Ungverja- lands og síðan leik Póllands og V.-Þýskalands b. Eftir að hæfnis- nefndin hafði farið yfir frammi- stöðu allra dómaraparanna var ákveðið að íslendingarnir dæmdu sjálfan úrslitaleikinn. Stefán segir að mikil. stemning hafi verið á úrslitaleiknum en hann fór fram í höll með sæti fyr- ir 13 þúsund áhorfendur. „Lík- legast hafa verið um átta þúsund manns á leiknum og þeir fengu að sjá handknattleik eins og hann gerist bestur í heiminum í dag,“ sagði Stefán. Fullvíst er talið eftir þessa góðu frammistöðu þeirra félaga að þeir muni dæma meira af alþjóðlegum leikjum í framtíð- inni. Langt er nú liðið á keppnis- tímabil handknattleiksmanna í Evrópu og því er ekki líklegt að Ólafur og Stefán verði settir á lejki í lokaumferðum Evrópu- leikja á þessu keppnistímabili, en Stefán segist vera vongóður um að strax næsta haust muni þeir fá meira af leikjum til að dæma. íþróttir helgarinnar: Handbolti, íþróttir hclgarinnar eru fjöl- breyttar að vanda. Um helg- ina er handknattleikur, blak, körfuknattleikur og svo er fyrsta skíðamót vetrarins á dagskrá á Siglufirði. Þórsarar leika tvo leiki við Ármenninga í handknattleik. Sá fyrri, á föstudagskvöldið, er í 2. deildinni og hefst kl. 19.15. Á laugardeginum mætast síðan liðin aftur í Bikarkeppninni og hefst sá leikur kl. 13.15. Báðir leikirnir eru í íþróttahöllinni. Körfuboltadrengirnir í Þór mæta ÍR-ingum í Höllinni á sunnudagskvöldið kl. 20. Þórs- arar veittu Valsmönnum verð- uga keppni í síðasta heimaleik og munu stefna að því að vinna sigur á heimavelli. Vítakeppnin góða verður að sjálfsögðu í leik- hléi. Akureyrarmótinu í yngri flokkunum í handknattleik verður fram haldið í Höllinni á sunnudaginn. Mótiö hefst kl. 9.00 um morguninn og verður spilað fram eftir degi. Á Húsavík er fjölliðamót í 4. fl. kvenna og karla og verður leikið alla helgina. Á Siglufirði fer fram fyrsta punktamót Skíðasambands Islands í norrænum greinum. Mótið hcfst kl. 13.00 á laugar- dag og síðan er keppt í bikar- keþpni á sunnudag. Bikarkeppni 1. flokks í blaki verður fram haldið um helgina. Óðinn og Skautafélagið keppa í Glerárskóla á laugardag kl. blak, karfa 13.00. og á sunnudag leiða sam- an hesta sína Dalvík og KA á Dalvík kl. 14.00 og síðan kl. 18.00 spila Óðinn og Eik í kvennaflokki í Glerárskóla. íslandsmótinu í innanhúss- knattspyrnu verður fram haldið í Laugardalshöll. Stclpurnar í KA leika í dag, föstudag, og cr fyrsti leikurinn hjá þeim kl. 15.00. Á laugardag og sunnu- dag fara síðan leikirnir í 4. og 5. deild fram. Þó nokkuð mörg lið að norðan eru í baráttunni og þar má nefna í 4. deildinni Dalvík, Magna, Tindastól, Kormák, UMSEb, Neista og Eflingu. í 5. deildinni eru það st'ðan TBA og SMÖ. Þrír lyftingamenn frá Akur- eyri keppa á Unglingameistara- mótinu sem haldið verður í Seljaskóla í Reykjavík á laugar- daginn. Þetta eru þeir Kristján Magnússon, Snorri Arnaldsson og Tryggvi Heimisson. Tindastólsdrengirnir í körfu leika við ÍS fyrir sunnan og ætti það að vera léttur leikur fyrir þá. Stelpurnar í 4. flokki KA halda á Borgarnes og spila þar gegn stöllum sínum í öðrum liðum. Yngri flokkar KA í blaki keppa í Digranesi í Kópvogi um helgina. Svo er vert aö minna skíða- áhugamenn á Akureyri á það að aðstaðan í Hlíðarfjall verður opin urn helgina þrátt fyrir að snjórinn sé frekar lítill. Góða íþróttahelgi. Eftirtaldir dómarar dæma því leiki 1. og 2. deildar á komandi keppnistímabili: Ágúst Guðmundsson, Fram Bragi V. Bergmann, UMSE-b Eyjólfur Ólafsson, Víkingi Friðgeir Hallgrímsson, KR Friðjón Eðvarðsson, Fylki Gísli Guðmundsson, Val Guðmundur Haraldsson, KR Guðmundur S. Maríasson, Leikni Guðmundur Sigurðsson, Fylki Dómaranefndin hefur sent bréf til þessara dómara og ekki er vitað annað en þeir gefi allir kost á sér til starfa næsta sumar. Nokkrar deilur urðu um dóm- aramál í fyrra vegna nýs fyrir- komulags sem tekið var upp í sambandi við þann hóp sem dæmir í 1. og 2. deildinni. Það má því búast við að einnig í ár verði einhverjar deilur um valið enda hafa dómarar ekki setið á neinum sáttastóli undanfarin ár. íþróttamaður Norðurlands: Hveijir eru tilnefiidir - hringurinn þrengist Eins og sagt var frá í Degi í gær er kosningu um íþróttamann Norðurlands 1988 lokið. Úrslit- in verða kunngjörð í hófi á Hótel KEA laugardaginn 4. febrúar. Eftirtaldir íþróttamenn hlutu fleiri en eina tilnefningu en það skal tekið fram að raðað er upp eftir stafrófsröð en ekki stiga- fjölda: Axel Stefánsson handk.l., Daníel Guðmundsson frjálsar, Daníel Hilmarsson skíði, Eiríkur Eiríksson knattspyrna, Erlingur Kristjánsson knattsp./handkn.l., Eyjóífur Sverrisson karfa/ knattsp., Guðlaugur Halldórsson júdó, Guðrún H. Kristjánsdóttir skíði, Halldór Áskelsson knatt- spyrna, Haraldur Ólafsson lyft- ingar, Haukur Valtýsson blak, Lilja M. Snorradóttir sund, Orm- arr Örlygsson knattspyrna, Ómar Árnason sund, Sigurpáll Á. Aðalsteinsson handknl., Svavar Þór Guðmundsson sund, Þor- valdur Jónsson knattspyrna/skíði og Þorvaldur Örlygsson knatt- spyrna. Innanhússbolti: Bragi Bergmann fer til Skotlands. Bragi á Hampden Park Bragi Bergmann dómari frá Akureyri fer til Skotlands 26. apríl ásamt Guðmundi Haralds- syni og Sveini Sveinssyni til að sjá um dómgæsluna á landsleik Skota og Kýpurbúa á Hampden Park í Glasgow. Leikurinn er liður í Heimsmeistarkeppninni í knattspyrnu. Guðmundur dæmir leikinn en Sveinn og Bragi sjá í línuvörsl- una. Þetta er fyrsti leikur Braga í Heimsmeistarkeppni en hann hlaut réttindi sem alþjóðlegur dómari í fyrra. Þór byrjar á morgun - fyrir 4. og 5. flokk Innanhússæfingar hjá knatt- spyrnudeild Þórs hefjast á morgun laugardag í Glerár- skóla. Vegna þrengsla í húsum verður einungis hægt að hefja æfingar hjá 4. og 5. flokki nú en aðrir flokkar fá inni síðar og verða þeir tímar auglýstir sér- staklega þegar þar að kemur. Tímarnir byrja kl. 9.30 í fyrra- málið og er sá tími fyrir 5. flokk. Strax á eftir kl. 10.30 mætir 4. flokkurinn. Yngstu keppendurnir í 6. flokki munu að öllum líkindum hefja æfingar í byrjun febrúár og verður sá tími auglýstur sérstak- lega.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.