Dagur - 27.01.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 27.01.1989, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 27. janúar 1989 Þorrinn byrjaöur Afgreiöum þorrabakka alla daga eftir pöntunum Sími 21818 Tómas Ingi Olrich áhyggjuMur vegna andstöðu Jóns Baldvins við Sjálfstæðisflokkinn: Sjálfstæðisflokkur stendur frammi fyrir ákveðinni hættu - „hefur orðið trúnaður milli Sjálfstæðisflokks og Kvennalista,“ segir Halldór Blöndal þessir flokkar Halldór Blöndal, alþingismað- ur Sjálfstæðisflokksins, telur að miðað við núverandi aðstæð- ur í þjóðmálum sé einsýnt að Sjálfstæðismenn myndu leita eftir samstarfi við Kvennalista, kæmi upp sú staða að þyrfti skyndilega að stokka upp ríkis- stjórnarspilin. Þetta kom fram í máli hans á fundi sjálfstæöis- félaganna á Akureyri sl. mið- vikudagskvöld. Halldór sagði auðvitaö best að geta myndað ríkisstjórn með Kvennalista eða „betri helmingi Alþýðu- bandalagsins“ og geta þannig veitt krötum og Framsókn þá Drangey SK-1: Góð sala í Hull Drangey SK-1 seldi ágætlega í Hull í Bretlandi sl. miðvikudag. Skipið seldi 68 tonn og var uppistaða aflans þorskur. Aflaverðmætið var um 5,8 milljónir króna, meðalverðið var um 86 krónur á kílóið og telst það vera vel í meðallagi. Eftir að skipið hafði selt afla sinn fór það rakleiðis í slipp í Hull. Hegranes SK-2 kom til heima- hafnar fyrir skömmu eftir ágætan veiðitúr, landaði 140 tonnum af þorski í frystihúsin þrjú. Skafti SK-3 er á veiðum og Skagfirðing- ur SK-4 er um þessar mundir að selja afla sinn í Bremerhaven. Þaðan fer skipið síðan til Hull í slipp. -bjb ráðningu sem ættu skilið. Ætlunin var að ÓlafUr G. Ein- arsson, formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, yrði annar frummælenda á fundinum en veðurguðirnir komu í veg fyrir það. Það kom því í hlut Halldórs að hafa framsögu um fundarefn- ið, skatta- og atvinnumál. Tómas Ingi Olrich, sem skip- aði þriðja sæti á lista Sjálfstæðis- manna í Norðurlandskjördæmi eystri fyrir síðustu alþingiskosn- ingar, sagðist telja Sjálfstæðis- flokkinn standa frammi fyrir ákveðinni hættu sem kæmi m.a. til af því að Alþýðuflokkurinn hafi að undanförnu fjarlægst verulega ýmis stefnumið flokksins. Tómas sagði að sam- kvæmt ýmsum yfirlýsingum Jóns Baldvins Hannibalssonar á síð- ustu dögum og vikum virtist hann ekki fús til að starfa aftur með Sjálfstæðisflokknum. í Ijósi þessa beindi Tómas þeirri spurningu til Halldórs Blöndal hvaða flokka þingmenn Sjálfstæðisflokksins teldu nú vænlegasta til samstarfs. Halldór sagði að í ljósi góðs sam- starfs við Kvennalista í stjórnar- andstöðu þætti honum sá flokkur vera vænlegur samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokks. Hann benti á nokkur mál sem flokkarnir hefðu náð samstöðu um á þingi en hins vegar væri því ekki að leyna að í nokkrum grundvallarmálum væri verulegur ágreiningur milli flokk- anna, t.d. í utanríkis- ogstóriðju- málum. Halldór sagði að samkvæmt útskiptingareglu Kvennalistans myndi „vinstrisinnaði“ þingmað- urinn Guðrún Agnarsdóttir og Kristín Halldórsdóttir væntan- lega hætta þingmennsku eftir þetta þing og hægrisinnaðri þing- menn kæmu í þeirra stað (Guð- rún Halldórsdóttir er varamaður Guðrúnar Agnarsdóttur og Anna Ólafsdóttir Björnsson er vara- maður Kristínar Halldórsdóttur). Hann sagði þessa breytingu auka líkur á samstarfi Sjálfstæðis- flokks og Kvennalista. Þessi ummæli Halldórs voru borin undir Guðrúnu Agnars- dóttur. Svar hennar var stutt og laggott. „Ég segi bara; sínum augum lítur hver á silfrið.“ Guð- rún sagði ekki liggja fyrir hvernig staðið yrði að útskiptingum þeirra Kristínar. „Það er ekki ákveðið hvenær og hvernig það verður gert,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir. óþh Sumir leyfa sér að fara yfir á rauðu Ijósi, aðrir halda sig við það græna . . . Mynd: GB Fasteignagjöld á Akureyri: Ívíð slakari mnheimta míðað við fyrra ár - gjaldendum til hægðarauka fá þeir nú senda heim gíróseðla Innheimta fasteignagjalda hjá Akureyrarbæ var ívið slakari á síðasta ári ef miðað er við árin á undan, en við áramót höfðu Rúta Norðurleiðar hf. lenti í ófærð á Öxnadalsheiði: Ellefu biðu í 2 tíma á heiðinni Rúta frá Norðurleið hf., á leið frá Akureyri til Reykjavíkur, þurfti að leita aðstoðar fjalla- bfls frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri til þess að komast yfir Öxnadalsheiði í gær. Veð- ur var heldur leiðinlegt á heið- inni framan af degi í gær og renndi stöðugt í slóðir. Nokk- uð vel gekk fyrir rútana að komast upp hina illræmdu Bakkaselsbrekku en í Klifi var fyrirstaðan of mikil og því ákv- að bílstjórinn, Óskar Stefáns- son, að leita eftir aðstoð fjalla- bfls frá Akureyri. Fjallabíllinn var kominn að rútunni um kl. hálf tvö í gær og hafði bílstjóri og 10 farþegar beð- ið átekta í um tvær klukkustund- Það er sitthvað að hjakka í ófærð eða bruna eftir breiðstrætum. ir. Með aðstoð fjallabílsins gekk síðan greiðlega að koma rútunni gégnum haftið. Dagur náði tali af Óskari laust fyrir klukkan fjögur í gær og var hann þá staddur á Blönduósi. Hann sagðist gera ráð fyrir að vera kominn til Reykja- víkur milli 22 og 23 í gærkvöld, enda þyrfti hann, sökum ófærðar á Holtavörðuheiði, að fara Lax- árdalsheiði og Heydali. óþh 91.4% gjalda ársins skilað sér í kassann. Fyrir árið 1987 var innheimtuhlutfallið hins vegar 95.7%. Valgarður Baldvinsson bæjarritari segir að ætíð megi búast við sveiflum á þessum vettvangi og ekki þurfi annað til en stór gjaldandi lendi í erf- iðleikum með greiðslur til að talan detti niður um nokkur prósent. „Við erum ekki óhress með innheimtu fasteignagjaldanna, fólk hér er yfirleitt mjög skilvíst. Það er í sjálfu sér þokkalegt þeg- ar innheimtan er komin yfir 90%,“ segir Valgarður. Álögð fasteignagjöld síðasta árs numu um 246 milljónum króna og þar af höfðu um 225 milljónir verið greiddar fyrir áramótin. Álögð fasteignagjöld á þessu ári eru nokkru hærri en þau voru í fyrra, eða um 306 milljónir króna. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp við innheimtu fasteigna- gjalda hjá Akureyrarbæ að gjald- endur fá nú sendan gíróseðil með gjaldseðlinum og geta menn því greitt sín gjöld í bönkum, spari- sjóðum og pósthúsum auk þess sem tekið verður við greiðslum á skrifstofu bæjarins eftir sem áður. Gíróseðlar verða sendir út fyrir hvern gjalddaga, en þeir eru tíunda dag hvers mánaðar fyrir mánuðina frá janúar til maí. „Við vonum að þetta verði til hægðarauka fyrir gjaldendur, því nú geta þeir greitt gjöld sín víðar en hér á bæjarskrifstofunni," seg- ir Valgarður og bætti við að iðu- lega hefði myndast nokkur örtröð á skrifstofunni á eindaga gjaldanna, en nú þyrfti ekki að koma til þess. mþþ Tveir 3ja Ma árekstrar á Króknum Síðastliðinn miðvikudag urðu tvcir þriggja bíla árekstar á Sauðárkróki með fjögurra klukkustunda millibili. Það sem meira var'að árekstrarnir voru á nákvæmlega sama stað í bænum og tildrög þeirra voru þau sömu. Klukkan 8 að morgni þriðju- dags stöðvaði saklaus en kurteis ökumaður bifreið sína við gang- braut á Skagfirðingabraut, nánar tiltekið neðan grunnskólans, og hleypti gangandi vegfaranda yfir götuna. Það skipti engum togum að næstu tveir bílar fyrir aftan náðu ekki að hemla í tíma og bíll númer 2 lenti á bíl númer 1 og bíll númer 3 á bíl númer 2. Semsagt; þriggja bíla árekstur. Örlögin höguðu því þannig að um klukkan tólf á hádegi, þenn- an sama dag, endurtók sagan sig, að vísu áttu aðrir þrír bílar og bílstjórar hlut að máli. Bíll núm- er eitt stöðvaði við gangbrautina og hleypti gangandi vegfaranda yfir Skagfirðingabraut. Þessi sjálfsagða kurteisi hafði í för með sér annan þriggja bíla árekstur. Rétt er að taka fram að engin slys urðu á fólki og bílarnir sex eru lítið skemmdir. óþh/bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.