Dagur - 16.02.1989, Side 1

Dagur - 16.02.1989, Side 1
Akureyrarflugvöllur: 32 farþegar sluppu með skrekkinn er Fokkervél hlekktíst á í gær - „varð ekki skelkuð fyrr en ég kom inn í flugstöðina“ Klukkan 14.06 í gærdag endaði lending einnar Fokker flugvél- ar Flugleiða með því að vélin stakkst nærri því á kaf í snjó- ruóning skammt frá flugstöðv- arbvggingunni. Farþega eða áhöfn sakaði ekki en Ijóst er að flugvélin er eitthvað skemmd. Jón Lárusson, deildarstjóri í Vöruhúsi KEA, var meðal far- Skagaprður: Harður árekstur á Vatnsskarði Laust fyrir hádegi í gær varð harður árekstur á Vatns- skarði, rétt hjá aðveitustöð KAKIK, er hrossaflutninga- bíll ók framan á kyrrstæðan stóran jeppa. Blindhríð, svo varla sá út úr augum, var er áreksturinn átti sér stað. Engin meiriháttar meiðsl urðu á fólki, en jeppinn er stórskemmdur og flutninga- bfllinn nokkuð laskaður að framan. Mildi var að ekki fór 'verr í þessum árekstri því farþegi í jeppanum var nýkominn inn í hann eftir að hafa fariö út og hreinsað framan af ljósum og framrúðu á jeppanunt. Jepp- inn var vart farinn af stað aftur, þegar flutningabíllinn koin aðvífandi úr sortanum og skall harkalega framan á jeppánn. Hrossunum f flutn- ingabílnum varð ekki mcint af í þessu óhappi. -bjb Þórshöfn: Hópur lækna sinni héraðinu Náttfari fór heldur flatt er hann lenti á Akureyrarflugvelli í gærdag. Ferðin endaði uppi í snjóskafli, en engan sakaði og gekk fljótt og vel að koma far- þegum frá borði. Mynd: TLV Fjármálaráðuneytið boðar lokunaraðgerðir hjá fyrirtækjum þeganna, en hann var að koma úr viðskiptaerindum í Reykjavík. Jón sagði að í fyrstu hefði lend- ingin virst ganga eðlilega fyrir sig. Fljótlega eftir að hjól snertu jörð var þó eins og flugvélin væri ekki almennilega á brautinni og fundu farþegar ýmsa skrykki, eins og flugvélin færi á mikilli ferð yfir ójöfnur. Snjódrífur byrgðu alla útsýn úr gluggum. Ferðin endaði með því að vélin stakkst inn í skafl eða snjóruðn- ing en áður hafði hún snúist snögglega í hálfhring. Ljósin slokknuðu og drepið var á hreyfl- unum. Þessu næst gekk flugstjórinn aftur í og tilkynnti farþegum að ekkert væri að óttast, þeim yrði fljótlega hjálpað út. Hann og flugfreyjan opnuðu síðan útgang- inn og farþegarnir fóru út einn af öðrum. Þegar það gerðist voru starfsmenn flugvallarins og Flug- leiða komnir á vettvang og aðstoðuðu þeir fólkið inn í flug- stöðvarbygginguna. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að 32 farþegar hefðu verið með flugvélinni og 930 kg af farangri og pósti. í gær var talið að hreyflar flugvélarinn- ar hefðu sloppið við skemmdir svo og mikilvæg stjórntæki. „Skömmu fyrir flugtak í Reykjavík tafðist vélin í 20 mínútur því flugstjórinn sagði að rautt auðvörunarljós hefði kvikn- að og gæfi til kynna bilun í hægri hreyfli. Vélin fór síðan í loftið því þetta reyndist ekki alvarlegt. Mikil ókyrrð var í loftinu og lét flugvélin því illa. Vélin var á miklum hraða á brautinni þegar hún snerist í hálfhring og stakkst í ruðninginn. Þetta gerðist allt svo skyndilega að ég varð ekki skelkuð fyrr en ég kom inn í flug- stöðina," sagði ónafngreind kona, farþegi með vélinni. EHB vegna vanskila á staðgreiðslu: Dæmi um að einn aðili skuldi yfír 30 milljónir í staðgreiðslu - 199 aðilar hafa haldið eftir einni milljón af staðgreiðslu síðasta árs Luusn er nú í sjónmáli á læknisleysi Þórshafnarbúa, en þar hefur ekki veriö læknir frá því í desember og hefur læknir Vopnfirðinga hlaupiö í skarðið til þessa. Nú er hins vegar verið að vinna í því að fá lækna frá öðrum heilsugæslustöðvum til þess að sinna Þórshöfn skipulega uns læknir með fasta búsetu fæst. „Við stefnum að því að mynda fastan hóp lækna, hvort sem þeir verða þrír, fjórir eða fleiri, til að taka þetta að sér. Þar verði tengsl innbyröis og samvinna. Það er verið að ræða þetta sem lausn þangað til hingað fæst fastur læknir,“ sagði Daníel Árnason sveitarstjóri. Hann sagðist hafa ýtt við þessu tnáli að undanförnu og sagðist vongóður um að fram- búðarlausn væri í sjónmáli hjá landlæknisembættinu. SS Fjármálaráðherra hefur óskað eftir því við innheimtustofnan- ir ríkisins að þeim aðilum sem skulda meira en eina milljón króna af staðgreiðslufé síðasta árs verði sent bréf þar sem krafist er uppgjörs nú þegar. Ákveðið hefur verið að hafi uppgjör ekki farið fram fyrir 15. mars þá verði gripið til aðgerða, þ.á.m. lokunar- aðgerða í fyrirtækjum. Sam- kvæmt upplýsingum fjármála- ráðuneytisins skulda 199 aðilar yfir eina milljón í staðgreiðslu frá síðasta ári. Innheimta vegna opinberra gjalda á landsvísu á síðasta ári er rúmlega 96%. Heildarvanskil námu þann 5. janúar sl. tæpum 1500 milljónum hjá 8300 aðilum. Þar af eru rúmar 733 milljónir hjá 199 aðilum. Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir að í vanskilaskránni sé að finna fyrirtæki í mörgum greinum bæði stór fyrirtæki og smá, þekkt og óþekkt. Hann segir dæmi þess að eitt fyrirtæki skuldi um 30 milljónir króna í staðgreiðslu. Samkvæmt lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda er heimilt að loka fyrirtækjum sem skulda staðgreiðslufé sem þau hafa tekið af starfsfólki sínu. Þessari heimild hefur ekki verið beitt að neinu marki þrátt fyrir að einstakir launagreiðendur skuldi verulegar fjárhæðir en Ólafur Ragnar segir að ekki verði við það unað lengur að launagreið- endur sem eru í verulegum van- skilum geti haldið áfram starf- semi sinni án þess að greiða van- skil á staðgreiðslu nú þegar. „Það væri hróplegt ranglæti ef menn kæmust upp með að taka staðgreiðsluna inn í rekstur fyrir- tækjanna í stað þess að skila henni í hinn sameiginlega sjóð vegna þess að þetta eru þeir skattar sem skráð er hjá starfs- fólkinu að það eigi að greiða,“ segir Ólafur Ragnar. I undirbúningi eru hliðstæðar aðgerðir varðandi vanskil á sölu- skatti en í smíðum er greinargerð um hvernig bæta megi innheimtu- kerfi á söluskatti svo dregið verði úr vanskilum. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.