Dagur - 16.02.1989, Qupperneq 2
K - mSZiM ~ öttftr iKÍrirt-M f»r
2 - DAGUR - 16. febrúar 1989
I dag kl. 17.00 verður opnuð sýningin Börn Norðursins í Dynheimum á
Akureyri, en þar er um að ræða sýningu á myndskrcytingum úr norrænum
barnabókum. Á myndinni eru þær Halldóra Ágústsdóttir sem sæti á í stjórn
Norræna félagsins og Bergljót Jónasdóttir starfsmaður norrænu upplýsinga-
skrifstofunnar á Akureyri, en þær unnu við uppsetningu sýningarinnar í gær.
Sýningin stendur í eina viku og verður lesið upp úr barnabókum og börnum
sagðar sögur sýningardagana. Mynd: tlv
Gallupkönnun um neyslu áfengis:
Skiptar skoðanir um vín-
andamagn í blóði ökumanna
- þriðjungur aðspurðra ætlar ekki
að neyta bjórs eftir 1. mars
Þeir sem búa utan höfuðborg-
arsvæðisins eru ákveðnari
andstæðingar áfengisveitinga í
opinberum samkvæmum en
þeir sem búa á höfuðborgar-
svæðinu. Meirihluti fólks er
andvígt áfengisveitingum í
opinberum samkvæmum og er
þessi skoðun almennari eftir
því sem fólk er eldra. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í
nýrri símakönnun sem Gallup
á Islandi gerði fyrir nefnd um
átak í áfengisvörnum.
Mjög skiptar skoðanir virðast
vera um hvort breyta eigi reglum
um leyfilegt vínandamagn í blóði
ökumanna. 47,1% telja ekki þörf
á að breyta núgildandi reglum en
hins vegar vilja 47,1% strangari
reglur. 2,2% vilja rýmka reglurn-
ar en 3,5% taka ekki afstöðu til
þessa máls. Konur eru mun
ákveðnari stuðningsmenn þess en
karlar að reglur um vínanda-
magnið verði hertar.
Um þriðjungur aðspurðra ætl-
ar ekki að neyta bjórs eftir 1.
mars en hins vegar svöruðu rúm-
lega 60% aðspurðra þessari
spurningu játandi. Flestir þeirra
sem ætla að neyta bjórs eftir 1.
mars eru á aldrinum 25-34 ára.
Flestir þeirra sem ekki ætla að
neyta bjórs eftir 1. mars eru 60
ára og eldri. Þó er eftirtektarvert
að 34% þeirra sem ekki ætla að
neyta bjórs eftir 1. mars eru á
aldrinum 15-24 ára.
Samkvæmt könnuninni er lítill
munur á viðhorfi til bjórsins eftir
því hvar á landinu fólk er búsett.
65,5% þeirra sem ætla að neyta
bjórs eftir 1. mars býr á höfuð-
borgarsvæðinu, 58% í öðru þétt-
býli og 54% í dreifbýli. Minnsta
andstaðan við bjórneyslu virtist
hins vegar vera á höfuðborgar-
svæðinu. JÓH
Búseti á Akureyri:
Búist við svari frá Húsnæðis-
stofhun um miðjan mánuðinn
- Búsetafélag stofnað í Ólafsfirði 19. febrúar nk.
Gert er ráð fyrir að undir lok
þessarar viku muni Húsnæðis-
stofnun ríkisins gefa Búseta á
Akureyri svar um lánafyrir-
greiðslu til fjármögnunar bygg-
ingar íbúða fyrir félagið á
Akureyri. Umsókn var send
inn til Húsnæðisstofnunar í
nóvember sl., og er hún endur-
nýjun fyrri umsókna Búseta,
því allar götur frá stofnun sam-
takanna á Akureyri, árið 1984,
hefur verið sótt um lánafyrir-
greiðslu til Húsnæðisstofnun-
ar. Búseti hefur gert samning
við byggingaraðila á Akureyri
um kaup á íbúðum í Síðu-
hverfi, sem nú eru í smíðum,
að því tilskildu að Húsnæðis-
stofnun gefí jáyrði við umsókn
Búseta.
Ef lán fást frá Húsnæðisstofn-
"un verður gerð könnun á meðal
félaga í Búseta á Akureyri um
þeirra húsnæðisþörf og í fram-
haldi af því verða þeim boðnar
íbúðirnar í Síðuhverfi. Þær eru
12 að tölu og er stærð þeirra frá
Þriðjudaginn 31. janúar 1989 var
kveðinn upp dómur í lögbanns-
máli Bílstjórafélags Akureyrar
gegn Glæsibílum sf. Dóminn
kvað upp Freyr Ófeigsson hér-
aðsdómari. Dómsorð:
„Máli þessu er vísað frá dómi
ex officio. Málskostnaður dæmist
eigi.“
Komið hefur fram að lög-
bannsaðgerðin með úrskurði
fógeta þann 29. janúar 1988, sem
höfðuð var með réttarstefnu 9.
febrúar 1988, var þá úr gildi fallin
samkvæmt lögum.
Hefur því kröfu Bílstjórafé-
lagsins um staðfestingu lögbanns-
2ja herbergja upp í 4ra her-
bergja. Gylfi Guðmarsson, for-
maður Búseta á Akureyri, segir
að félagar hafi verið um 130 á sl.
hausti en hann áætlar að sú tala
hafi hækkað upp í 160. Hann seg-
ir að við úthlutun íbúðanna verði
farið eftir forgangsröð um 100
í bréfí sem utanríkisráðherra
barst frá Manfred Wörner,
aðalframkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, síðastliðinn
föstudag kemur fram að sá
varaflugvöllur sem lagt er til að
byggður verði á íslandi verði
áAkureyri
ins verið vísað frá dómi.
Á þessu sést að lögbannið var
aðeins í gildi eina viku, nánar til-
tekið frá 29. janúar til og með 5.
febrúar 1988.
Glæsibílar sf. hafa samkvæmt
þessum dómi verið ranglega
álitnir í lögbanni frá 6. febrúar
1988.
Er því eðlilegt að spurningar
vakni um, hverjir beri ábyrgð á
öllum þeim óþægindum, töfum
og fjárhagslegu tjóni ásamt álits-
hnekki, sem Glæsibílar sf. og við-
skiptavinir þeirra hafa orðið fyrir
á þessu rúma ári.
Fréttatilkynning frá Glæsibílum sf.
stofnfélaga Búseta. í næstu sæt-
um koma síðan félagar í Búseta í
þeirri röð sem þeir hafa gengið í
hann.
Gylfi segir að ef lánafyrir-
greiðsla fáist frá Húsnæðisstofn-
un sé við það miðað að íbúðirnar
verði fullfrágengnar til afhend-
mannaður og starfræktur af
óbreyttum borgurum og ekki
talinn herflugvöllur nema á
stríðstímum. Wörner segir í
bréfí sínu að gera verði ráð fyr-
ir að herflugvélum jafnt sem
borgaralegum vélum yrði beint
til þessa varaflugvallar þegar
veður eða neyðarástand gerði
slíkt óhjákvæmilegt.
„Eins og þetta bréf ber með sér
þá staðfestir það að varaflugvöll-
ur, byggður á kostnað Mann-
virkjasjóðs Atlantshafsbanda-
lagsins, myndi ekki gegna neinu
hernaðarhlutverki á friðartím-
um. Yfirstjórn og rekstur yrði
eingöngu í höndum íslenskra
starfsmanna, við slíkan flugvöll
yrðu aldrei staðsettir neinir her-
menn á friðartímum og þar yrðu
engin vopn eða vopnabúnaður.
Þýðing slíks flugvallar fyrir varn-
arliðið og þar með réttlæting fyrir
framlögum úr Mannvirkjasjóðn-
um er fyrst og fremst flugöryggi,
þ.e.a.s. að vélar varnarliðsins
sem og aðrar geti við slæm veður-
skilyrði lent á velli sem ekki er á
sama veðursvæði og Keflavíkur-
flugvöllur,“ segir Jón Baldin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra.
ingar í desember nk.
Þess má svo geta að sunnudag-
inn 19. febrúar nk. verður stofn-
fundur Búsetafélags í Ólafsfirði.
Á þann fund er ráðgert að mæti
fulltrúar Búseta í Reykjavík og
Landssambands Búsetafélaga.
óþh
Jón Baldvin segir undanþágu-
ákvæði í reglum Mannvirkja-
sjóðsins þar sem vikið er frá regl-
um sjóðsins um greiðslu kostnað-
ar við framkvæmdir sem þjóna
sameiginlegum varnarbúnaði.
Þeirri undanþágu sé beitt hvað
varðar varaflugvöll á íslandi.
Skilyrði Atlantshafsbandalagsins
eru að flugbrautin verði 3000
metra löng, flughlöð verði nægi-
lega rúm til að leggja megi flug-
vélum og að aðstaða verði til við-
gerða, eldsneytisgeymsla verði til
staðar með mögulegri tengingu
við olíuhöfn og að á vellinum
verði fullkominn flugturn, flug-
leiðsögutæki, slökkvistöð og
þjónustubygging fyrir áhafnir og
farþega.
I ríkisstjórninni greinir menn á
um hvort heimila eigi að for-
könnun fyrir byggingu slíks flug-
vallar fari fram en Mannvirkja-
sjóður hefur samþykkt fjárveit-
ingu til slíkrar forkönnunar. Mið-
að við fyrrgreind skilyrði er
kostnaður við völlinn talinn um
10 milljarðar króna og rekstar-
kostnaður um 75-100 milljónir á
ári. Jón Baldvin segir að ráð sé
fyrir gert að samningur verði
gerður við Bandaríkin um greiðslu
á rekstrarkostnaði. JÓH
Glæsibílar sf. ekki lengur
í lögbanni
Bréf aðalframkvæmdastjóra Nató til íslenskra stjórnvalda:
Varaflugvöllur ekki herflug-
völlur nema á stríðstímum
- ósk um að forkönnun verði leyfð til umræðu í ríkisstjórn
Akureyri:
■ Stjórn fulltrúaráðs og
samninganefnd Starfsmanna-
félags Akureyrárbæjar sagði
upp launalið gildandi kjara-
samnings frá og með 1. febrú-
ar síðastliðinn. Erindinu var
vísað til kjaranefndar.
■ Bæjarráð hefur synjað
beiðni Lionsklúbbsins Hængs
um niðurfellingu á fasteinga-
skatti af félagsheimili klúbbs-
ins að Norðurgötu 2b.
■ Aðalfundur Kaupþings
Norðurlands var haldinn í gær
á Hótel KEA. Bæjarráð haíði
lagt til að Sigfús Jónsson
bæjarstjóri yrði fulltrúi bæjar-
ins í stjórn fyrirtækisins og
Valgarð Baldvinsson til vara.
■ Bæjarráð hefur lagt til að
fyrirkomulag vaktavinnu hjá
slökkviliði og íþróttamann-
virkjum verði tekið til endur-
skoðunar.
■ Bygginganefnd hefur veitt
Trésmíðaverkstæði Sveins H.
Jónssonar hf., leyfi til bygg-
ingar raðhúss á lóðinni nr. 2-4-
6-6A við Múlasíðu. Einnig
veitt Aðalgeir Finnssyni hf.
Ieyfi fyrir byggingu einbýlis-
húss á lóðinni nr. 12 við
Bakkasíðu.
■ Síjórn veitustofnana hefur
samþykkt að verða við beiðni
frá hreppsnefnd Hálshrepps í
S.-Þingevjarsýslu, þar sem
óskað er eftir samningum við
Akureyrarbæ um vatnskaup
frá Reykjum í Fnjóskadal.
■ Stjórn veitustofnana hefur
samþykkt að fela hitaveitu-
stjóra að sækja um hækkun á
gjaidskrá hitaveitunnar frá 1.
mars n.k. í samræmi við hækk-
un byggingarvísitölu, jafn-
framt samþykkir veitustjórn
að gjaldskrá hitaveitunnar
verði framvegis breytt mánað-
arlega í samræmi við breyting-
ar á byggingarvísitölu. Sama
gildir urn hitataxta rafveitu.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt að loka helmingi dag-
vista bæjarins frá 10. júlí til
24. júlí, öllum dagvistum frá
24. júlí til 8. ágúst og hinum
helmingi dagvista frá 8. ágúst
til 22. ágúst.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt og vísað til bæjarráðs,
tillögu frá Guðrúnu Sigurðar-
dóttur, þess efnis að upphæð
sú sem starfsfólki ráðgjafa-
deildar er heimilt að ráðstafa
til fjárhagsaðstoðar án sam-
þykkis félagsmálaráðs, hækki
úr kr. 40.000,- í 50,000.-.
Einnig að upphæð sú sem
félagsmálaráð getur ráðstafað
án samþykkis bæjarráðs hækki
úr kr. 80.000,- í 100.000,-
■ íþróttaráð og bæjarráð
hafa samþykkt að ganga að til-
boði Smára Sigurðssonar o.fl.
í Hammerle snjótroðara.
■ Æskulýðsráði hefur borist
bréf frá Sundfélaginu Óðni,
þar sem tilkynnt er um nám-
stefnu félagsins sem haldin
verður á Akureyri dagana 7,-
9. apríl og er öllum opin.