Dagur


Dagur - 16.02.1989, Qupperneq 3

Dagur - 16.02.1989, Qupperneq 3
16. febrúar 1989 - DAGUR - 3 Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra: ViD að menn hugi strax að framhaldi flugmalaáætlunar - í því skyni að byggja upp flugvelli á landinu til fragtflugs Steingrímur J. Sigfússon, sam- gönguráðherra, teiur að eftir að núgildandi flugmálaáætlun hefur runnið sitt skeið á enda, að tæpum 9 árum liðnum, beri að beina sjónum að frekari uppbyggingu nokkurra flug- valla á landinu m.a. í.því skyni að tryggja fragtflug fil og frá ákveðnum svæðuin. Þar vísar hann til vaxandi flutninga á ferskum fiski, bæði botnfiski og eldisfiski, víða af landinu beint á markað erlendis. Hugmynd samgönguráðherra er í þá veru að í hverjum lands- hluta verði einn flugvöllur sem uppfylli allar kröfur til slíkra fragtflutninga, bæði hvað varðar brautarlengd og tilskilinn öryggis- búnað. „Þetta mál er ekki endi- lega eitthvað sem menn þurfa að taka endanlega ákvörðun um á næstu mánuðum. En ég tel mikil- vægt að menn skoði þetta og hug- leiði í framhaldi'núgildandi flug- málaáætlunar,“ segir Steingrím- ur. Samkvæmt flugmálaáætlun er gert ráð fyrir að klæða allar áætl- unarflugbrautir bundnu slitlagi fyrir árslok árið 1997. Steingrím- ur segir að í ljósi þess muni upp- bygging flugvalja á landinu, sem nú þegar uppfylla ekki öll skilýrði til fragtflugs, verða auðveldari og kostnaðarminni. Flugleiðir hafa nú yfir að ráða einni flugvél af gerðinni Boeing- 727 sem bæði er útbúin til fragt- og farþegaflugs. Leifur Magnús- son hjá Flugleiðum segir að sú vél verði í rekstri a.m.k. fram á haustið en þá verði tekin ákvörð- un um hvort keypt verður önnur vél í hennar stað fyrir fragtflug- ið. Sú hugmynd hefur komið upp að festa kaup á svokallaðri Combi-vél frá Boeing verksmiðj- unum. Þessi vél, sem ber númer- ið 757-200, býður upp á bæði fragt- og fólksflutninga. Leifur segir að auk kaupa félagsins á tveimur vélum af þessari gerð til farþegaflugs eigi það kauprétt í einni vél til viðbótar. „Þessi vél gæti komið árið 1991 og vissulega er möguleiki á því að hún verði búin til fragtflutninga. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um hvort FÍugleiðir nýta sér kauprétt á þessari vél,“ segir Leifur. Hann segir að flugvélar af gerðinni Boeing 757-200 þurfi mun styttri flugbrautir en eldri sambærilegar vélar. „Miðað við góð skilyrði komast þessar vélar vel af með 2000 metra flug- braut,“ segir Leifur. Samkvæmt þessu munu nokkr- ir flugvellir á landinu uppfylla skilyrði til fragtflugs. Leifur nefndi Sauðárkrók, Akureyri, Húsavík og Egilsstaði í því sambandi. Vegna óhagstæðra skilyrða við flugvelli á Vestfjörð- um gengi dæmið ekki eins upp þar. Leifur segir t.d. ísafjörð alveg út úr myndinni með fragtflug. óþh Dýraspítali Ágústs og Elfu: Vonandi verður hægt að taka hann í notkun næsta haust segir Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir „Málið er í biðstöðu þar til teikningar og kostnaðaráætlun fyrir byggingu dýraspítalans liggja fyrir. Þegar þessir frum- þættir byggingarinnar verða klárir munum við geta sótt um lán til að hefja framkvæmdir,“ sagði Elfa Agústsdóttir, dýra- læknir, aðspurð um hvernig liði fyrirhugaðri byggingu dýraspítala við Akureyri. Þau feðgin og dýralæknar, Elfa og Ágúst Þorleifsson, munu byggja dýraspítalann í samein- ingu. Þá er ráðgerð bygging íbúð- arhúsnæðis við spítalann þar sem feðginin munu búa. Þau hafa fengið úthlutað lóð til fram- kvæmda og er hún í landi Ytri- Varðgjár í Öngulsstaðahreppi. Elfa segir að byggingu húsanna hafi verið frestað sökum þess að fyrirliggjandi teikningar þóttu ekki henta. Jón Geir Ágústsson, byggingafulltrúi, var því fenginn til að gera nýjar teikningar af fyrirhuguðum dýraspítala og íbúðarhúsnæði. Hann hóf þá vinnu skömmu fyrir síðustu jól og gerir ráð fyrir að ljúka þeim innan skamms. Ef allar áætlanir standast segir Elfa að fyrirhugað sé að taka nýj- an dýraspítala í notkun næsta haust. Stærð hans er áætluð 180 fermetrar. „Við höfum ekki í hyggju að breyta okkar starfsemi með tilkomu spítalans. Það verð- ur fyrst og fremst aðstaðan sem breytist. Að vísu má segja að það verði ákveðin breyting að geta tekið við veikum dýrum og haft þau hjá sér,“ segir Elfa Ágústs- dóttir. óþh Ný ísbúð Nýir eigendur hafa tekið við rekstri ísbúðarinnar við Kaupvangsstræti. Hefur búðin nú verið opnuð eftir miklar endurbætur og er hún öll hin vistlegasta. Þar er hægt að fá allt það sem söluturnar hafa venjulega uppá að bjóða, auk þess sem settur verður upp samlokubar, sem er nýjung þess efnis að viðskiptavinir geta valið sér hvaða álegg þeir vilja á brauðið sitt. Þá verður að sjálf- sögðu ís-bar þar sem hægt verður að fá ísrétti af öllum stærðum og gerðum. Við kassann stendur Eyþór Jósepsson því næst Linda Tómasdóttir, en þau eru eigendur ísbúðarinnar. Með þeim á myndinni er Erna Þorsteinsdóttir starfsstúlka. Mynd: tlv /--------------------------------\ Skumasýníng verður haldin í Barnaskóla Árskógshrepps, Stærri-Árskógi þann 19. febrúar frá kl. 12.00 á hádegi til kl. 16.00. Sama dag og stað verður aðalfundur Loðdýrafélags Eyjafjarðar og hefst hann kl. 16.00 stundvíslega. Stjórnin. V________________________________✓ Eldridansa- klúbburinn Dansleikur í Lóni, Hrísalundi 1. laugardaginn 18. febrúar 1989 ki. 22.00-03.00. Hljómsveit Bigga Mar sér um fjörið. Allir velkomnir. Stjórnin. Styrktarfélag vangefinna Þorrablót verður laugardaginn 18. febrúar að Félagsmiðstöðinni Lundar- skóla. Borðhald hefst kl. 17.30. Allir þroskaheftir velkomnir. Stjórnin. Orðsending til bænda á fjárskiptasvæðum Sauðfjárbændur sem eiga rétt á að taka upp sauð- fjárhald að nýju haustið 1989, þurfa að leggja inn pöntun á líflömbum fyrir 15. mars 1989. Pöntuninni þarf að fylgja úttektarvottorð héraðsdýra- læknis um að sótthreinsun hafi verið iokið skv. samningi. Allar pantanir skulu vera skriflegar og sendast til Sauðfjárveikivarna, Rauðarárstíg 25,150 Reykjavík. Reykjavík 9. febrúar 1989. Sauðfjárveikivarnir. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Forval Póst- og símamálastofnunin hyggst láta leggja Ijós- leiðarastreng á milli Borgarness og Búðardals, og á milli Búðardals og Blönduóss. Verkið felur í sér lögn á strengnum ásamt frágangi á tengibrunnum. Óskað verður eftir tilboðum í verkin sitt í hvoru lagi, þó þannig að hægt verði að semja við einn verktaka um bæði verkin. Til greina kemur að leigja til vænt- anlegs vérktaka sérhæfðan búnað (plóg, kapalvagn o.s.frv.). Þeir sem óska eftir að gera tilboð í fyrrgreind verk sendi uppiýsingar um vinnuvélakost sinn og fyrri verk til Póst- og símamálastofnunar, Tæknideild, Landsímahúsinu, 150 Reykjavík, merkt: „Forval, Borgarnes-Blönduós“ fyrir 21. febrúar n.k.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.