Dagur - 16.02.1989, Page 4

Dagur - 16.02.1989, Page 4
fx o 4 - DAGUR - 16. febrúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, Sl'MI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Borgríki við Faxaflóa Þrátt fyrir íslandsmet í fólksfjölgun á síðasta ári fjölgaði búsettum utan höfuðborgar- svæðisins og Suðurnesja ekki um einn ein- asta, þegar á heildina er litið. Reyndar varð nokkur fólksfjölgun á einstaka stöðum utan Reykjavíkur og Reykjaness en víðast hvar á landsbyggðinni fækkaði fólki talsvert. Það er mikill misskilningur að halda því fram að byggðaröskunin sé fyrst og fremst áhyggjuefni þeirra sem úti á landsbyggðinni búa. Ljóst er að hún er engum landsmanni óviðkomandi, enda hafa kannanir sýnt að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa ekki síður þungar áhyggjur af þessari þróun en aðrir landsmenn. Það er allra hagur að jafnvægi komist á í byggðaþróuninni. Það er fróðlegt að skoða nokkrar tölur í þessu sambandi: Frá síðustu aldamótum hef- ur íbúatala landsins ríflega þrefaldast. Að um það bil þremur/fjórðu hlutum hefur sú aukn- ing átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu en ein- ungis 25% utan þess. Árið 1960 bjó 50,7% þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu en 49,3% í öðrum landshlutum. Um síðustu áramót var staðan orðin sú að einungis 37,7% þjóðarinn- ar bjó utan Reykjavíkur og Reykjaness. Á síð- ustu fimm árum hefur landsmönnum fjölgað úr rúmlega 238 þúsund í tæplega 252 þúsund manns, eða um 13.750 manns. Öll þessi fjölg- un er á höfuðborgarsvæðinu og sem dæmi má nefna að þessi tala, 13.750 manns, samsvarar u.þ.b. heildaríbúafjölda á Akureyri um síð- ustu áramót! Þetta er hin margnefnda byggðaröskun í hnotskurn og því verður ekki neitað að ofan- greindar tölur eru ískyggilegar. Aðeins einu sinni á þessari öld, á árunum 1975-1980, hef- ur stjórnvöldum tekist að stöðva búsetu- röskunina í landinu. Að þeim árum undan- skildum hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina. Frammi fyrir þessum vanda standa stjórn- völd nú. Ljóst er að brýnna aðgerða er þörf, þótt vandinn verði auðvitað ekki leystur í einni svipan. Fyrsta skrefið er að draga úr byggðaröskuninni. Það verður ekki gert nema markviss byggðastefna hafi verið mótuð af hálfu stjórnvalda til langs tíma. Því miður skortir mikið á að svo sé. Þess vegna eru bráðabirgða„reddingar“ algengustu byggða- aðgerðirnar hér á landi - því miður. Og svo mikið er víst, að ef ekki tekst að snúa taflinu við í náinni framtíð, verður ísland orðið borg- ríki við Faxaflóa fyrr en varir. BB. „Vmnan er stærri hluti af lífinu og því höfum viö tilhneigingu til að vilja njóta frítíma okkar á dýrari máta en aörir,t4 segir greinarhöfundur m.a. í mimungu forfeðranna Það er dimmur og þungbúinn janúarmorgunn. Slyddan fellur til jarðar og frýs þar til hálfs. Bíl- arnir ösla saltforina og börnin setja skólatöskurnar fyrir andlitið þegar þau hlaupa fyrir húshorn og fá vestanvindinn í fangið. Það er þessi mánuður þegar íslend- ingar ættu helst að liggja upp í rúmi og lesa góðar bækur eins og Guðni rektor komst einu sinni að orði. Það er engin lægð eða deyfð í stjórnmálunum. Það er vinstri stjórn í margflokkakerfinu og hægri mönnum líður illa og hafa tilhneigingu til að láta ófriðlega. Ólafur Ragnar er orðinn fjár- málaráðherra og því mikið í sviðsljósinu. Hann hefur alltaf getað komið orðum að því sem hann vill segja frammi fyrir alþjóð, allt frá því að hann á unga aldri starfaði fyrir Ríkis- útvarpið og spurði kirkjugesti á Skólavörðuhæð, um leið og þeir gengu frá kirkju, hvað presturinn hefði talað um. Flestum hinum öldnu kirkjugesta, sem fóru til messu að gömlum vana á sunnu- dagsmorgni, hafði láðst að taka eftir ræðu prestsins. Fleiri taka eftir umróti Ólafs í pólitíkinni og Þorsteinn er farinn að skerpa sig, tala ákveðið, skýrt og skilmerki- lega til aþjóðar og svara vinstri- stjórninni af festu. Ef til vill á stjórnarandstaðan eftir að verða honum til góðs. Vextirnir eru einnig komnir í stjórnarandstöðu og vonandi verður sá tími, sem nú er að líða, þeim til góðs þegar til lengri tíma er litið. Eins og sakir standa haga þeir sér eins og gormur í gamaldags legubekk eftir því hvernig búkurinn byltir. Gormur er ekkert fyrir það að láta þrýsta sér niður með handafli og neytir hvers tækifæris til að rétta úr sér aftur. Þannig eru íslendingar. Þetta er því einskon- ar þríeiki, gormurinn, vextírnir og landinn þegar þeim skal þrýst niður. Eyda í dag - afla á morgun Sparnaður hefur lengi verið talinn til dyggða. Nútíma hag- kerfi hefur tekið þá dyggð bók- staflega. Hann er undirstaða þess að fjármunamyndun geti átt sér stað. Sparnað er þó ekki hægt að kaupa það dýru verði að atvinnu- rekstur á viðkomandi hagstjórn- arsvæði geti engan veginn borgað fyrir hann. Það hefur gerst hér. Það er sá vandi sem bitnar á vöxt- unum núna og veldur því að þeir teygja sig til og frá eftir því Þórður Ingimarsson skrifar: hvernig höndin þrýstir þá. íslend- ingar hafa aldrei verið gefnir fyrir að spara. Þeir hafa lengi haft til- hneigingu til að lifa um efni fram. Eyða strax því sem þeir afla og eyða helst einnig í dag því sem þeir ætla að afla í næstu viku í trausti þess að þá aflist dálítið meira. Þeir hófu að gera út á von- ina á landnámsöld. Annars hefðu þeir trúlega ekki sest hér að. Við höfum haldið því áfram og þetta hefur alltaf gengið því aflinn hef- ur aukist aftur þótt það yrði stundum ekki fyrr en í þar næstu viku. Trúlega gengur þetta enn um sinn en tilraunin til að upp- hefja sparnað á íslandi með því að beita háum vöxtum hefur mis- tekist. Eftirspurnin eftir pening- um til fjárfestingar og eyðslu var svo mikil að allur sparnaður var samstundis tekinn að láni. Vand- inn sem síðan kom í ljós er sá að atvinnureksturinn getur ekki borgað vextina. íslendingseðlið íslendingasögurnar greina okkur frá bláeygum víkingum sem komu hingað til að losna undan yfirráðum einræðis. A síð- ari tímum hefur þeim skoðunum aukist fylgi, að fólkið sem settist hér að hafi verið friðsemdarfólk sem vildi vinna að sínu en þoldi ekki ofríki og yfirráð. Víkingarn- ir hafi fremur haft hér viðkomu og haldið áfram för. Eyja með risjótt veðurfar og litla manna- byggð hafi ekki hentað víkinga- eðlinu. Það íslendingseðli, sem við þekkjum í dag svarar vel til hugmynda um friðsamt fólk, sem vildi búa að sínu en átti ákaflega erfitt með að þola yfirráð. Við vinnum einnig eftir þess- um hugsunarhætti. Það er oft tal- að um og rökstutt með könnun- um, sem gerðar hafa verið sam- kvæmt evrópskum stöðlum, að vinnuafköst Islendinga séu minni en nágrannaþjóða okkar. Niður- stöður slíkra kannana verða í samræmi við þær forsendur sem eru gefnar. Þegar talað er um vinnuafköst má ekki rugla því saman við framleiðni. Hún tekur mið af fjölbreyttari forsendum. „Det er stengt nu“ íslendingar vinna að jafnaði mun lengri vinnudag en fólk í nálæg- um löndum. Vinnan er stærri hluti af lífinu og því höfum við tilhneigingu til að vilja njóta frí- tíma okkar á dýrari máta en aðrir. Okkur finnst hreinlega við eiga það skilið. Við viljum vinna í törnum. Aðstæðurnar hafa kennt okkur það. Að bjarga afla þegar hann berst á land. Bjarga heyjum undan rigningu. Ljúka framkvæmdum áður en vetur sest að. Þessi vinnuhugsunarhátt- ur hefur flust yfir í þjónustu- greinarnar. Hafa opið og veita þjónustu. Við höfum ekki til- einkað okkur þann verksmiðju- hugsunarhátt sem ríkir á meðal íbúa gamalgróinna iðnríkja. „Det er stengt nu,“ sagði úrillur vörður í norskri postulínsverk- smiðju klukkan hálfa mínútu yfir fjögur þegar þreytta ferðalanga frá íslandi bar að garð. Þeir höfðu áhuga á að versla á mark- aði verksmiðjunnar. íslendingur hefði eflaust selt þeim vasa eða skál þótt klukkan væri rétt orðin fjögur. Það gerði Norðmaðurinn ekki. Elín í fatahreinsuninni sagði hins vegar þegar ég kom nokkrum mínútum of seint með buxurnar mínar og hún hafði gleymt að skella í lás á slaginu. „Eg loka ekki á meðan einhver kemur inn.“ Stöðugleiki nauðsynlegur Þarna er ef til vill munurinn á okkur og þeim útlendu og svo ætlum við að trúa því að við afköstum minna en þeir. Á móti má spyrja hvernig við hefðum bjargast í þessu landi ef við hefð- um ekki unnið það sem þarf og á þeim tíma sem varð að vinna það. Við skulum varðveita þetta eðli þótt við verðum eflaust að endurskoða almenna afstöðu okkar til fjárfestinga og eyðslu á næstunni. Það þarf hugarfars- breytingu fremur en vaxtabreyt- ingu. Stöðugleiki á efnahags- undrinu á íslandi er nauðsyn- legur undanfari slíkra breytinga. Þá skiptir ekki máli hvort fjár- málaráðherrann heitir Ólafur, Þorsteinn eða bara Jónas. Það skiptir máli að beitan verði ekki of dýr. Hvort sem hún heitir vextir, steinsteypa, stál eða aðeins ákvörðun um að una sér við eitthvað annað en hingað til. Við getum ekki endalaust trúað á að afla meira á morgun.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.