Dagur


Dagur - 16.02.1989, Qupperneq 12

Dagur - 16.02.1989, Qupperneq 12
Akureyri, fimmtudagur 16. febrúar 1989 -■ ' ■ ....... Er Véladeild Akureyrarbæjar vanbúin tækjrnn? Komidagurinn er á sunnudaginn Opið í Hafnarstræti: Laugardag frá kl. 09.00-18.00 og sunnudag frá kl. 09.00-18.00. Sunnuhlíð: Laugardag frá kl. 10.00-18.00. Blómabúðin Laufás Hafnarstræti 96 • Sími 242S0 Sunnuhiíð • Sími 26250. Strætisvagnar Akureyrar hafa átt í erfðileikum og orðið fyrir skakkaföllum af völdum tíðar- farsins undanfarnar vikur. Vagnarnir hafa lent í 6 minni- háttar umferðaróhöppum frá áramótum, flestum í Kaup- vangsstræti, og slitið dekkjum fyrir umtalsvert fé á sama tíma vegna keðjunotkunar. Stefán Baldursson, forstöðu- maður, segir að færðin hafi oft verið það þung undanfarið að vagnarnir lentu í umtalsverðum erfiðleikum. Samstarfið við véla- deild bæjarins væri ágætt en sannleikurinn væri sá að vegna þungrar umferðar kæmu vagn- arnir oft á tíðum ekki á réttum tíma. Þá virtist sem bærinn hefði hreinlega ekki yfir nægjanlegum tækjakosti að ráða til að halda akstursleiðum þokkalega opnum við erfiðar aðstæður. „Austursíða, Miðsíða, Teigar- síða og Smárahlíð eru dæmi um erfiðar götur í Glerárhverfi. Pessar götur grafast meira og minna í sundur og verða mjög ósléttar. Við biðstöðvarnar myndast líka svellbunkar sem gera okkur erfitt fyrir. Vagnarnir eru búnir keðjum og við erum búnir að slíta dekkjum fyrir 140 þúsund krónur frá áramótum vegna keðjunotkunarinnar," sagði Stefán. Starfsmenn SVA eru óhressir vegna beygjunnar sem vagnarnir verða að taka til vinstri úr Kaup- vangsstræti upp í Eyrarlandsveg. „Lögreglan þyrfti að fylgja lokun Kaupvangsstrætis betur eftir og loka alveg fyrir umferð niður götuna í siæmri færð. Varðandi leiðakerfisbreytinguna virðist gæta nokkurs misskilnings hér í bæ. Bæjarfulltrúar virðast halda því fram að breytingin hafi verið gerð vegna íbúa Glerárhverfis en þeir vita betur, við vorum hrein- lega hraktir úr miðbænum. Petta er eina raunverulega ástæðan fyr- ir leiðakerfisbreytingunni,“ sagði Stefán. EHB Félagar úr hestamannafélaginu Létti á Akureyri halda árshátíð sína að Hlíðarbæ næsta laugardag og eflaust verður þar mikill glaumur og gleði. Léttisfélagar riðu um bæinn og höfðu gjallarhorn sér til aðstoðar. Mátti úr því heyra hvatningarhróp mikil þar sem eindregið var mælt með mætingu manna á nefnda árshátíð. Mynd: vg Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra, um varaflugvallarmálið: Geri engan greinarmun á undirbúningi eða framkvæmdum við þennan hemaðarflugvöll - athyglisvert ef menn eru að beita sér fyrir Aronsku „Eg er aigerlega andvígur öll- um hernaðarmannvirkjum og hef aldrei verið harðari í þeirri afstöðu en nú þegar manni sýnist víðast hvar annars staðar stefna í rétta átt í þessum efnum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra, aðspurður um þá skoðun Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, að heimila beri gerð hagkvæmnisathugun- ar á vegum mannvirkjasjóðs NATO vegna byggingar vara- flugvallar hér á landi. Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir það sína skoðun og annarra þingmanna flokksins að eigi að framkvæma nefnda hagkvæmniathugun. Hann segir það beinlínis stór- varasamt þegar samgönguráð- herra og þar með samgönguráðu- neytið setji sig upp á móti því, á Efasemdir um niðurstöður könnunar SUS á afstöðu íslendinga til hvalveiða: Könnunardagana var vissulega mikill áróður gegn hvalveiðum „bað er vissulega rétt að taka undir það að einmitt þá daga sem könnunin var unnin var mikill áróður gegn hvalveiðum á síðum Morgunblaðsins og víðar,“ segir Arni Sigfússon, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, en dagana 9. og 10. febrúar sl. gerði SKÁIS að beiðni þess könnun á afstöðu Islendinga til hval- veiða. Tímasetning þessarar könnunar hefur sætt gagnrýni og menn hafa látið uppi efa- segir Arni Sigfússon, formaður SUS semdir um réttmæti niður- stöðu hennar vegna óvenju neikvæðrar umræðu um hval- veiðar í fjölmiðlum þá daga sem hún var gerð. Árni segir það af og frá að könnunin hafi vísvitandi verið tímasett þessa daga beinlínis í því skyni að fá fram sem mesta andstöðu almennings í landinu gegn hvalveiðum. Þá vísar hann því algjörlega á bug að tengsl séu á milli tímasetningar könnunar- innar og mjög harðra skrifa í Morgunblaðinu gegn hvalveiðum könnunardagana. „Málið var það að við ætluðum að leggja niður- stöðu þessarar könnunar fram á fundi okkar um hvalveiðar á Akureyri sem átti að vera um síð- ustu helgi, en varð síðan að aflýsa vegna veðurs,“ segir Árni. I þessari könnun SKÁÍS var spurt: „Telur þú að íslendingar eigi að hætta hvalveiðum?“ Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 45,2% telja að hætti beri hval- veiðum. í könnun Stöðvar 2 um þetta mál voru hins vegar 34,4% andvígir hvalveiðum. „Miðað við neikvæða umræðu í fjölmiðlum um hvalveiðar þegar þessi könn- un var gerð, kemur mér þessi niðurstaða ekki á óvart. Ég bend; þó á að þessi spurning, sem 632 svöruðu, er mjög takmörkuð, þ.e. hvort við eigum eða eigum ekki að hætta hvalveiðum. Öll hljótum við stefna að nýtingu auðlinda hafsins," segir Árni Sig- fússon. óþh íþróttahöllin á Akureyri: „Hönniin burðarvirkis þaksins var ekki ábótavanf - segir Haraldur Sveinbjörnsson hjá VST „Það er ekkert athugavert við þær upplýsingar sem koma fram í fréttinni en menn virð- ast skilja hlutina á þann veg að við höfum verið að spara sér- staklega til gerðar þaksins. Ég tel hins vegar að þessum ummælum sé ekki beint til okkar,“ sagði Haraldur Svein- björnsson hjá vcrkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen á Akur- eyri. Haraldur vitnar hér til ummæla Ríkharðs Kristjánssonar hjá Línuhönnun hf. sem birtust hér í blaðinu í gær. Þar segir Ríkharð- ur að menn hefðu verið að reyna að komast á ódýran hátt frá þak- inu á Höllinni án þess að það væri skilgreint nánar, enda tæpast pláss til þess í fréttaformi. „Mér finnst æskilegt að þetta komi fram þar sem við erum nefndir í greininni. En ummæli Ríkharðar geta ekki beinst að hönnun burðarvirkis þaksins, enda talar hann um frágang á þökum sem hafi verið í tísku á sínum tíma. Þar er hann að ræða um frágang á ytri húð þaksins en ekki límtrésbitana eða annað burðarvirki," sagði Haraldur. EHB grundvelli fordóma og gamalla slagorða um „ísland úr NATO- herinn burt!“, að þessi athugun verði gerð. Þessi ummæli Halldórs Blöndal segir samgönguráðherra að séu vart svaraverð. „Mér sýnist nú satt að segja að menn séu á milli tveggja elda og má ekki á milli sjá á hvorum er verra að brenna sig. Annars vegar er um það að ræða að menn viðurkenni þá staðreynd að þarna er hernað- armannvirki á ferðinni. Á hinn bóginn vísa menn til bréfs sem afsanni að um hernaðarmann- virki sé að ræða. Þar með er verið að tala um að þessi herflugvöllur sé borgaralegt mannvirki. Og þá eru þessir ágætu menn komnir út í þá ófæru að láta Kanann borga innlendar framkvæmdir. Á mínu máli heitir það Aronska og út af fyrir sig er það athyglisvert ef menn ætla að beita sér fyrir henni,“ segir Steingrímur. Aðspurður um hvort varaflug- vallarmálið sé eldfimt í núver- andi ríkisstjórnarsamstarfi segir Steingrímur ekki telja svo vera. „Það liggur auðvitað á borðinu að þessi framkvæmd og gerð hag- kvæmniathugunar á vegum mannvirkjasjóðs NATO er út úr myndinni samkvæmt stjórnar- sáttmála og öllum aðstæðum. Ég hef verið í þessari ríkisstjórn á grundvelli þeirrar málamiðlunar í utanríkismálum að hér verði eng- ar nýjar hernaðarframkvæmdir leyfðar þann tíma sem hún situr. Ég geri engan greinarmun á undirbúningi eða framkvæmdum við slíkt mannvirki," segir Steingrímur. Hann segist telja sig vera að vinna að stefnumörkun í samgöngumálum á grundvelli stjórnarsáttmála núverandi ríkis- stjórnar og í samræmi við hann hafi hann m.a. talið það vænleg- an kost að byggja upp varaflug- völl fyrir íslenskt millilandaflug á Akureyri og Egilsstöðum. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.