Dagur - 21.02.1989, Side 7
21. febrúar 1989 - DAGUR - 7
Héðinn Gilsson átti stórlcik í síðari hálfleik og skoraði þrjú glæsimörk í röð.
Mynd: TLV
Handknattleikur:
Ingibjörg má ekki
leika með strákum
- segir HSÍ
Framkvæmdastjórn HSÍ hefur
nú svarað málaleitan KA um
hvort Ingibjörg H. Ólafsdóttir
fái að leika með 5. flokki
drengja á íslandsmótinu í
handknattleik neitandi. Það er
því Ijóst að Ingibjörg mun ekki
geta leikið meir með liðinu í
vetur.
Aðalsteinn Jónsson formaður
handknattleiksdeildar KA sagði
Ingibjörg H. Ólafsdóttir.
að þeir KA-menn væru að sjálf-
sögðu svekktir yfir þessari niður-
stöðu en ljóst væri að samkvæmt
stífustu túlkun laganna hefði
framkvæmdastjórn HSÍ ekki get-
að svarað þessu öðruvísi. „Málið
verður tekið fyrir á fundi hjá
stjórninni í dag og þar munum
við fara yfir hver næsti leikur
okkar í þessu máli verður,“ sagði
formaðurinn.
í skeyti sem KA fékk frá HSÍ
segir orðrétt: „Með tilvísun til
Reglugerðar HSÍ um handknatt-
leiksmót, greinar 2 og 5, þar sem
kveðið er á um kynskiptingu í
keppnum í handknattleik, þá er
það skoðun framkvæmdastjórnar
HSÍ, að framkvæmdastjórn hafi
ekki heimild til að breyta frá
ákvæðum núverandi reglugerðar.
Þetta þýðir að Ingibjörg Harpa
mun ekki geta leikið meir með
liðinu í vetur og það eina sem
KA gæti hugsanlega gert er að
taka þetta mál upp á næsta HSÍ-
þingi.
Þetta mál vekur einnig upp
spurningar um gjaldgengi Ingi-
bjargar í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu næsta sumar. Það er víst
ekki hægt að útiloka þann mögu-
leika að eitthvert lið sýni þá
„óíþróttamannslegu" framkomu
að kæra KA fyrir að nota stelpu í
strákaliði.
B-keppnin í handknattleik:
Stórglæsilegur sigur
íslendinga
- á V-Þjóðverjum 23:21
íslendingar unnu frábæran sig-
ur á V-Þjóðverjum 23:21 í B-
hcimsmeistarakcppninni í
Frakklandi í gær. Þrátt fyrir að
vera undir 10:9 í leikhléi og
tveir lykilmenn, Alfreð Gísla-
son og Kristján Arason, væru
útilokaðir um miðjan síðari
hálfleikinn héldu Islendingar
haus og sigruðu glæsilega.
Guðmundur Guðmundsson
gaf tóninn í leiknum með því að
skora glæsilegt mark í byrjun
og kom hann Islendingum yfir
1:0. V-Þjóðverjar jöfnuðu þó
strax í næstu sókn og jafnt var á
flestum tölum fram í miðjan hálf-
„Ástæðan fyrir þessu var fyrst
og fremst athugunarleysi í
okkur. Við héldum að leikur-
inn ætti að fara fram kl. 20 en
samkvæmt mótabók var hann
settur á kl. 14,“ sagði Pétur
Ólafsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls,
aðspurður um ástæður þess að
liðið mætti ekki til leiks gegn
KR í Reykjavík síðastliðinn
sunnudag. Sigurður Valgeirs-
son, dómari, flautaði leikinn af
eins og reglur segja til um að
gera skuli þegar lið er ekki
mætt til leiks 15 mínútum eftir
auglýstan leiktíma. KR var því
dæmdur sigur í leiknum en nú
er Ijóst að leikurinn verður
spilaður þar sem stjórn körfu-
knattleiksdeildar KR sam-
þykkti í gær ósk Tindastóls-
manna um að reynt yrði að
komast að samkomulagi um að
setja leikinn á að nýju.
Mál af þessu tagi hafa áður
komið upp. Dæmi eru þess að
leikur hafi verið spilaður þrátt
fyrir að dómari hafi flautað hann
af og dæmt liði sigur en til þess að
leikinn.
Þá tóku V-Þjóðverjar góðan
sprett og komust tveimur mörk-
um yfir. Þar munaði mestu um
frábæra markvörslu Jurgens Thi-
el í markinu og varði hann í allt
10 skot á stuttum tíma frá íslend-
ingum.
Þá náðu Þjóðverjar tveggja
marka forskoti en með mikilli
hörku minnkuðu íslendingar
muninn í eitt mark fyrir leihlé
10:9.
Sigurður Sveinsson gaf tóninn í
síðari hálfleik er hann jafnaði
leikinn 10:10 með hörkuskoti.
Þjóðverjar náðu aftur forystunni
svo megi verða þurfa liðin að ná
samkomulagi. í þessu tilfelli
hefði KR getað hafnað því að
spila leikinn og þar með hefðu
stigin verið þeirra.
Þegar ljóst var á sunnudaginn
hvað gerst hafði óskaði starfs-
maður mótanefndar KKÍ eftir
því við stjórnarmenn körfuknatt-
leiksdeildar KR að þeir tækju
ákvörðun um það hvort þeir
frestuðu leiknum til hálf sex eins
og Tindastólsmenn höfðu farið
fram á. Lazlo Nemeth, þjálfari
KR, var því algerlega mótfallinn
og stjórnarmenn KR skutu á
skyndifundi. Á meðan á honum
stóð tók Sigurður Valgeirsson,
dómari, um það ákvörðun, eftir
að hafa rætt við formann Körfu-
knattleiksdómarafélags íslands,
að flauta leikinn af eins og lög
kveða á um. Því leit allt út fyrir
að Tindastólsmenn hefðu með
mistökum sínum fært KR stigin á
silfurfati en nú er ljóst að KR vill
spila leikinn. Útlit er fyrir að
leikurinn geti farið fram þriðju-
daginn 7. mars en sá leikdagur er
ekki ákveðinn. JÓH
en íslendingar neituðu að hleypa
þeim fram úr sér. Guðmundur
Guðmundsson kom íslandi yfir í
fyrsta skipti í leiknum 12:11 og
eftir það var ekki aftur snúið fyrir
Þjóðverjá.
Alfreð jók forystuna fyrir
ísland upp í 14:11 en þá var kom-
ið að þætti frönsku dómaranna,
sem reyndar höfðu sýnt ansi
skrautlega dómgæslu frarn að
því. Þeir vísuðu Kristjáni út af í
þriðja skiptið í leiknum fyrir
meinlaust brot og þar með gat
hann ekki leikið meira með.
Skömmu síðan sýndu þeir
Alfreði rauða spjaldið fyrir ein-
hverja sök sem engin á vellinum
sá og nú fór að fara urn íslending-
ana. Þjóðverjar gengu á lagið
gegn fjórum fslendingum og
minnkuðu muninn í 16:15.
En með þremur stórkostlegum
mörkum í röð tókst Héðni Gils-
syni að auka forskot íslendinga í
þrjú mörk 20:17. Mikil spenna
var í höllinni og hinum frámuna-
legu lélegu dómurum virtist ætla
að takast að klúðra leiknum með
því að dæma fullkomlega löglegt
mark af Sigurði Sveinssyni.
En Einar stóð fyrir sínu í
markinu og varði tvívegis frá
taugaóstyrkum Þjóðverjunum og
það var því viðeigandi að Guð-
mundi Guð'mundssyni tókst að
innsigla sigur íslendinga með því
að skora úr hraðaupphlaupi 23.,
mark íslands og þá var staðan
orðin 23:19. Þjóðverjar skoruðu
síðan tvö síðustu mörkin í leikn-
um en mikilvægur sigur íslands
23:21 var staðreynd.
Sigurður Sveinsson og Héðinn
Gilsson eiga heiður skilið fyrir
þennan leik. Þeir taka við erfiðu
hlutverki þegar Alfreð og Krist-
ján eru útilokaðir, en stóðu sig
með sóma og skoruðu sannkölluð
draumamörk fyrir áhorfendur og
lið sitt. En í heild stóð liðið sig
allt mjög vel. Einar fór að verja á
mikilvægu augnabliki í síðari
hálfleik og segja má að sú mark-
varsla hafi ráðið úrslitum í leikn-
um. Þessi sigur þýðir það að
íslendingum nægir að sigra annað
hvort Svisslendinga eða Hol-
lendinga til þess að tryggja sér
sæti í Heimsmeistarkeppninni í
Tékkóslóvakíu árið 1990.
Reyndar eiga íslendingar góða
möguleika á verðlaunasæti því
þeir eru nú komnir með 4 stig í
úrslitunum og á venjulegum degi
eigum við að sigra bæði Hollend-
inga og Svisslendinga. En engin
leikur er unninn fyrirfram og það
verður að bera virðingu fyrir báð-
um þessurn liðum. Skemmst er að
minnast þess að Sviss lagði V-
Þjóðverja að velli 18:17 í riðla-
keppninni þannig að þeir eru
með mjög gott lið.
Mörk íslendinga: Sigurður Sveinsson
9/5, Guðmundur Guðmundsson 4, Héð-
inn Gilsson 3, Sigurður Gunnarsson 3,
Alfreð Gíslason 2, Kristján Arason 1 og
Valdimar Grímsson 1.
Eyjólfur og félagar gleymdu leiknum en fá annað tækifæri.
Tindastólsmenn
gleymdu leiknum
- en KR-ingar hafa samþykkt að leika
þrátt fyrir það