Dagur - 21.02.1989, Blaðsíða 9
21. febrúar 1989 - DAGUR - 9
Enska knattspyrnan:
Þeir stóru áfram í I A-bikarnum
3. deild kom á óvart og er enn með
Graeme Sharp fagnar marki, en mark hans dugði gegn Barnsley og Everton
heldur áfram í bikarnum.
Um helgina fór fram 5. umferð
FA-bikarkeppninnar á Eng-
landi og lentu stórliðin þar í
kröppum dansi gegn mótherj-
um úr neðri deildunum. Þrátt
fyrir það eru þau flest í hattin-
um þegar dregið verður til
næstu umferðar og má segja að
þau hafi sloppið með
skrekkinn.
Liverpool sem flestir spá sigri í
keppninni þurfti að taka á öllu
sínu gegn 2. deildarliði Hull City.
Sigur Liverpool í leiknum var þó
sanngjarn þrátt fyrir að hann væri
naumur. Fyrsta hálftímann hafði
Liverpool mikla yfirburði, náði
forystu og hefði hæglega getað
skorað tvö í viðbót. John Barnes
skoraði fyrir meistarana eftir 15
mín. með skalla, en þá hafði
Gary Gillespie þurft að fara
meiddur af velli. Varnarmistök
Iiðsins urðu til þess að Hull City
hafði yfir 2:1 í leikhléi. Billy
Whitehurst jafnaði eftir mistök
Gary Ablett og síðan kom Keith
Edwards liðinu yfir eftir mistök
Jan Molby. Kenny Dalglish fram-
kvæmdastjóri Liverpool hefur
lesið yfir sínum mönnum í hléinu
og það bar skjótt árangur. Tvö
mörk John Aldridge á 6. og 8.
mín síðari hálfleiks eftir undir-
búning Peter Beardsley og Steve
McMahon gerðu út um leikinn.
Liverpool hefði getað bætt við
mörkum eftir það og Andy Payt-
on var nærri búinn að jafna fyrir
Hull City, en það hefði ekki verið
sanngjarnt.
Leikur Bournemouth og Man.
Utd. var sýndur í beinni útsend-
ingu í sjónvarpinu. Mark Hughes
náði forystu fyrir Utd. á 53. mín..
Staðan
1. deild
Arsenal 24 15- 6- 3 50:24 51
Norwich 24 13- 8- 3 36:25 47
Man.Utd. 24 10- 9- 5 34:19 39
Nott.Forest. 24 9-11- 4 34:26 38
Coventry 24 10- 7- 7 33:25 37
Liverpool 23 9- 9- 5 30:20 36
Millwall 23 10- 6- 7 35:30 36
Derby 23 10- 5- 8 26:18 35
Evcrton 24 8- 9- 7 29:26 33
Wimbledon 23 9- 5- 9 27:30 32
Middlesbro 24 8- 6-10 30:36 30
Aston Villa 24 7-10- 7 34:38 30
Luton 24 7- 8- 9 27:29 29
Southampton 25 6-11- 9 37:47 28
Tottenham 24 6- 9- 9 34:36 27
QPR 24 6- 7-11 24:24 25
Charlton 24 5- 9-10 26:35 24
Shelf.Wed. 23 5- 8-10 18:33 23
Newcastle 24 5- 6-13 21:43 21
West Ham 23 4- 5-14 20:41 17
2 deild
Chelsea 29 16- 9- 4 60:29 57
Man.City 29 16- 8- 5 45:24 56
Watford 28 14- 6- 8 42:29 48
Blackburn 28 14- 6- 8 46:40 48
W.B.A. 29 12-10- 7 46:29 46
Leeds Utd. 29 11-11- 7 36:27 44
Bournemouth 2813- 4-1131:3243
C.Palace 27 11- 9- 7 43:35 42
Barnsiey 28 11- 9- 8 39:37 42
Stoke 28 11- 8- 9 34:44 41
Swindon 28 10-10- 8 42:36 40
Ipswich 28 12- 4-12 42:39 40
Sunderland 29 10-10- 9 37:36 40
Portsmouth 29 10- 9-10 38:36 39
Hull 28 10- 8-10 39:39 38
Plymouth 29 10- 7-12 36:41 37
Leicester 29 9-10-10 35:40 37
Bradford 29 8-11-10 30:34 35
Oxford 28 9- 6-13 42:43 33
Oldham 29 7-10-12 44:47 31
Brighton 29 8- 6-15 40:48 30
Shrewsbury 28 4-11-13 22:43 23
Birmingham 29 4- 7-18 19:53 19
Walsall 29 3- 9-17 25:52 18
- Brentford í
en áður hafði Gordon Strachan
skotið í stöngina á marki Bourne-
mouth. Hughes mistókst hins
vegar í góðu færi síðar og Trevor
Aylott jafnaði fyrir Bournemouth
á 72. mín. Það munaði litlu að
Luther Blissett tækist að skora
sigurmark Bournemouth undir
lokin, en liðin verða að mætast
aftur og þá á Old Trafford í
Manchester. Framherjar Utd.
voru ekki nógu grimmir gegn
þungum varnarmönnum Bourne-
mouth, sérstaklega var John
Williams miðvörður liðsins
skrautlegur að sjá og hefðu stíg-
vél farið honum mun betur en
knattspyrnuskórnir.
Óvænt úrslit úrðu í leik 2.
deildarliðs Blackburn á heima-
velli gegn 3. deildarliði
Brentford. 3. deildarliðið hóf
leikinn af miklum krafti og Terry
Gennoe í marki Blackburn varði
tvívegis vel á fyrstu mínútunni.
Blackburn lék undan vindi í síð-
ari hálfleik, en tókst ekki að ná
tökum á leiknum. Simon Garner
fékk þó gott færi, en Tony Parks
gamli Tottenham markvörðurinn
sá við honum. Það var síðan á
síðustu 10 mín. leiksins sem
Brentford gerði út um leikinn.
Gary Blissett var hetja liðsins,
fyrst skoraði hann eftir sendingu
Richard Cadette og síðan 5 mín.
fyrir leikslok gerði hann sitt ann-
að mark er hann komst inn í
sendingu til markvarðar og
tryggði liði sínu óvæntan sigur.
FA-bikarmeistarar Wimble-
don fengu óvænta mótspyrnu á
heimavelli sínum gegn 4. deildar-
liði Grimsby. Keith Alexander
náði forystu fyrir Grimsby með
skallamarki í fyrri hálfleik eftir
hornspyrnu John Cockerill og
Richard O’Kelly hefði átt að
bæta við marki stuttu síðar. John
Gary Gillespie var nýkominn inn í
Liverpool liðið eftir meiðsli, en var
borinn meiddur útaf í sigurleik liðs-
ins gegn Hull City.
Vegna bikarkeppninnar foru
aðeins fram þrír leikir í 1. deild
og sjö í 2. deild. Mestur áhug-
inn var fyrir bikarleikjunum,
en rétt er að skoða deildarleik-
ina aðeins. Efsta lið 1. deildar
Arsenal varð að gera sér marka-
laust jafntefli á útivelli gegn
nágrönnum sínum Q.P.R. að
góðu og hefur nú fjögurra stiga
forystu í 1. deild.
Sheffield Wed. rak fram-
kvæmdastjórann Peter Eustace í
vikunni og réð í hans stað Ron
Atkinson sem stjórnaði liðinu
gegn Southampton á heimavelli á
laugardag. Mörkin í þeim leik
komu á síðustu 5 mín. Fyrst skor-
aði Rodney Wallace fyrir South-
ampton, en Mark Proctor jafnaði
fyrir Sheffield tveimur mín. fyrir
Fashanu átti skalla í þverslá fyrir
Wimbledon og Steve Sherwood
átti stórleik í marki Grimsby.
Wimbledon lék undan vindi f síð-
ari hálfleik og var ekkert á því að
gefa bikarinn eftir. Tvö mörk
með stuttu millibili eftir um 15
mín. í síðari hálfleik komu
hlutunum í lag hjá liðinu. Fyrst
jafnaði Fashanu eftir að Sher-
wood hafði hálfvarið skot og síð-
an gott skallamark frá Terry
Phelan. Dennis Wise bætti þriðja
marki Wimbledon við með
hörkuskoti á síðustu mín. og
Wimbledon heldur því bikarnum
enn.
Andy Linighan og Ian Butt-
erwort miðverðir Norwich hafa
oftast haft betur í baráttunni við
miðherja 1. deildarliðanna i
vetur, en þeir áttu í hinum mesta
leikslok. Steve Foster skoraði
sigurmark Luton á heimavelli
gegn Middlesbrough á 55 mín.
2. deild
• W.B.A. fékk skell gegn
Bradford, tapaði 2:0 og þeir
Robert Hopkins og Carlton
Palmer voru báðir reknir útaf.
• Manchester City sigraði
Birmingham á útivelli með mörk-
um Nigel Gleghorn og Neil
NcNab.
• Leeds Utd. vann góðan sigur
á útivelli gegn Leicester, öll
mörkin skoruð í fyrri hálfleik.
Bobby Davison skoraði fyrst fyrir
Leeds Utd., en Nicky Cross náði
að jafna fyrir Leicester. Sigur-
mark Leeds Utd. skoraði síðan
basli með miðherja 3. deildarliðs
Sheffield Utd., þá Tony Agana
og Brian Deane í leik liðanna í
Norwich. Sjálfsmark Steve
Thompson hjá Sheff. Utd. kom
Norwich yfir, en Brian Deane
jafnaði fyrir Sheffield fyrir hlé.
Malcolm Allen kom síðan Nor-
wich yfir með marki úr víta-
spyrnu er brotið var á Mike
Phelan. Tony Agana jafnaði fyrir
Sheffield, en sigurmark Norwich
gerði Dale Gordon eftir sendingu
Phelan. 3. deildarliðið sótti
stöðugt það sem eftir var en tókst
ekki að jafna þrátt fyrir að leik-
menn liðsins ættu það fyllilega
skilið.
Charlton gerði sér góðar vonir
um sigur á heimavelli gegn West
Ham sem hefur gengið mjög illa
að undanförnu. Ekki bætti úr
Glynn Snodin.
• Adrian Owers skoraði fyrir
Brighton gegn Oldham, en það
dugði skammt því Tommy
Wright og Andy Holden tryggðu
Oldham sigur.
• Chelsea hefur nú leikið 16
deildarleiki án taps, sigraði Ply-
mouth á útivelli með marki Kerry
Dixon.
• Stuart Rimnter skoraði fyrir
Walsall í fyrri hálfleik gegn Ports-
mouth, en Mike Quinn jafnaði
fyrir Portsmouth í þeirn síðari.
• Swindon sigraði Sunderland
4:1 heima þrátt fyrir að Sunder-
land skoraði fyrst. Duncan She-
arer skoraði tvö af mörkum
Swindon í leiknum.
Þ.L.A.
skák hjá West Ham að þeir Juli-
an Dicks og aðal markaskorarinn
Leroy Rosenior voru meiddir
auk þess sem Mark Ward var rek-
inn út af hjá liðinu rétt fyrir hlé.
En á móti kom að Phil Parks hinn
38 ára gamli markvörður liðsins lék
nú með að nýju, hans annar leik-
ur með liðinu á tveim árum og
stóð hann sig mjög vel. Stuttu
eftir hlé skoraði Stuart Slater sem
kom inn í liðið fyrir Rosenior
mark eftir sendingu Alan
Devonshire og reyndist það eina
mark leiksins. Parks sá um að
halda hreinu fyrir West Ham það
sem eftir var þrátt fyrir þunga
sókn Charlton.
2. deildarlið Barnsley lék mjög
vel á heimavelli gegn Everton,
David Currie, Steve Agnew og
Paul Futcher fengu góð færi sem
þeiin tókst ekki að nýta. Neville
Southall markvörður Everton lék
af ntiklu öryggi og félagar hans
tóku enga áhættu í leiknum. Eina
rnark leiksins skoraði Graeme
Sharp fyrir Everton á 15 mín.
fyrri hálfleiks, fallegt mark sem
Neil McDonald, Ian Snodin og
Trevor Steven lögðu upp fyrir
Sharp. Sanngjarnt hefði verið að
Barnsley hefði náð að minnsta
kosti jafntefli, en með öguðum
leik tókst Everton að verjast öll-
um þeirra sóknum.
Sunnudagur
2. deildarlið Watford var ekki
mikil fyrirstaða gegn hinu sterka
liði Nottingham For. á sunnudag-
inn. 1. deildarliðið hafði mikla
yfirburði í leiknum, en tókst ekki
að skora fyrr en 5 mín. fyrir lok
fyrri hálfleiks. Neil Webb skoraði
með skoti sem lenti í varnar-
manni á leið í markið. Forest
bætti tveim mörkum við í síðari
hálfleik án þess að Watford tæk-
ist að svara fyrir sig. Franz Carr
lagði upp bæði mörkin, það fyrra
með aukaspyrnu sem Lee
Chapman skallaði í mark og síð-
an undir lokin opnaði hann vörn
Watford. upp á gátt þannig að
bakvörðurinn Brian Laws skor-
aði þriðja og síðasta mark
Forest. Þ.L.A.
Úrslit
FA-bikarinn
5. umferð
Barnsley-Evcrton 0:1
Blackburn-Brentford 0:2
Bourncmouth-Manchester Utd. 1:1
Charlton-West Ham 0:1
Hull City-Liverpool 2:3
Norwich-Sheffield Utd. 3:2
Watford-Nottingham For. 0:3
Wimbledon-Grimsby 3:1
1. deild
Luton-Middlesbrough 1:0
Q.P.R.-Arsenal 0:0
Sheffield Wed.-Southampton 1:1
2. deild
Birmingham-Manchester City 0:2
Bradford-W.B.A. 2:0
Leicesler-Leeds Utd. 1:2
Oldham-Brighton 2:1
Plymouth-Chelsea 0:1
Portsmouth-Walsall 1:1
Swindon-Sunderland 4:1
Úrslit í vikunni 1. deild
Everlon-Aston Villa 1:1
Deildabikarinn undanúrslit
fyrri leikur
Nottingham For.-Bristo! City 1:1
Fátt markvert í deildinui
- Arsenal gerði jafntefli - Chelsea og Man. City
að stinga af í 2. deildinni