Dagur


Dagur - 23.02.1989, Qupperneq 2

Dagur - 23.02.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 23. febrúar 1989 Ærsladraugur- inn á Húsavík Vofa eða draugur birtist á gafli Samkomuhússins á Húsavík sl. föstudagskvöld og hefur síðan blasað við vegfarendum sem leið eiga framhjá húsinu. Ekki hafa borist fregnir af því að draugur þessi hafl hrætt börn eða gert nokkrum manni mein, enda skiltið sem hann birtist á Vátryggingafélag íslands hf.: „Starfsemin ígang eftir 2 mánuðr - segir Axel Gíslason „Ég geri ráð fyrir að félagið hefji starfsemi sína eftir um 2 mánuði. Við erum nú að vinna ýmis gögn sem fylgja þurfa umsókn til Tryggingaeftirlitsins um starfsleyfl og þegar svar hefur borist við þeirri umsókn getur starfsemin haflst,“ segir Axel Gíslason. forstjóri Sam- vinnutrygginga um gang mála í sameiningu félagsins og Brunabótafélags Islands hf. Axel segir að nú sé lokið við uppsagnir og enduráðningar starfsfólks og þessa dagana sé unnið að endurskipulagningu á umboðsmannakerfinu út um land. Á dögunum hlaut hið nýja tryggingafélag nafn en félögin tvö auglýstu eftir tillögum að nafni. Alls bárust 5900 tillögur enda eft- ir 200 þús. króna verðlaunafé að sækjast. Fyrir valinu varð Vá- tryggingafélag íslands hf. en þetta nafn sendu 80 manns inn í samkeppnina. Nafn Gunnars Gunnarssonar úr Garðabæ var dregið út úr tillögubunkanum og hlaut hann því verðlaunin. JÓH verk félaga í Leikfélagi Húsa- víkur sem kunnir eru að öðru en valda samborgurum sínum slíkum leiðindum. Skiltið er sett upp í tilefni af fyrirhugaðri sýningu leikfélagsins á Ærsladraugnum eftir Noel Coward, þekktan, breskan rit- höfund og leikara en hann er m.a. höfundur Einkalífs sem Leikfélag Akureyrar sýndi fyrir 4-5 árum. Ærsladraugurinn sló á sínum tíma öll aðsóknarmet í Englandi og er orðinn þekktur farsi sem sýndur hefur verið mjög víða. Leikstjóri er Hávar Sigurjóns- son sem setti upp Gísl hjá Leik- félagi Húsavíkur í fyrra. Sjö leikarar taka þátt í sýningunni á Ærsladraugnum og er frumsýn- ing fyrirhuguð 11. mars. IM Ógnvekjandi ærsladraugur á gafli Sainkomuhússins á Húsavík minnir gesti og gangandi á frumsýningu Leikfélag Húsavíkur á Ærsladraugnum 11. mars nk. Mynd: im Sala bjórsins knýr á um nákvæmari útskýringar á áfengislögum: Reglugerð sett um bann við áfengisauglýsmgum - heilbrigðisráðherra segir eftirlitshlutverkið ekki síst hjá almenningi Heilbrigðisráðuneytið hefur sett reglugerð um bann við áfengisauglýsingum þar sem skilgreint er hvað átt er við með auglýsingu en í megin- atriðum er tekið mið af sömu reglum og gilda um auglýsing- ar á tóbaki. Ráðuneytinu hafa borist margar fyrirspurnir varðandi þessi efni í tengslum við auglýsingar á bjór. Reglu- gerðin er byggð á 16. grein áfengislaganna en samkvæmt henni eru áfengisaugiýsingar bannaðar. Bannað verður að sýna neyslu Það eru margir sem notfæra sér þá góðu aðstöðu sem er í Kjarnaskógi til úti- veru. Einn af þeim er Sævar Herbertsson sem renndi sér á gönguskíðum þegar Ijósmyndari Dags var þar á ferð fyrir nokkru. Mynd: ap eða hvers konar meðferð áfengis í auglýsingum og upplýsingum um annars konar vöru eða þjón- ustu. Samkvæmt nýju reglugerð- inni er með auglýsingu átt við hvers konar tilkynningar til almennings þar sem sýndar eru í máli eða myndum áfengistegund- ir eða atriði tengd áfengisneyslu, áfengisvöruheiti eða auðkenni, eftirlíkingar á áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnað- ur og þess háttar. Hvað varðar bjórinn verður óheimilt að auglýsa áfengt öl og tekur ákvæði regiugerðarinnar einnig til auglýsinga sem fela í sér firmanafn eða firmamerki áfeng- isframleiðenda. Framleiðandan- um er þó heimilt að nota firma- nafn eða merki í auglýsingu ef þar kemur skýrt fram að ekki sé um auglýsingu á áfengum drykk að ræða. í reglugerðinni er einnig að finna undanþáguákvæði. Auglýs- ingar á áfengi á erlendum tungu- málum í erlendum prentritum sem hingað eru flutt eru heimilar nema megintilgangur ritsins sé að auglýsa áfengi hér á landi. Einnig verður leyfilegt að auðkenna búnað til áfengisveitinga á veit- ingastað með firmamerki eða nafni og einnig verður áfengis- framleiðanda heimilt að nota þessi merki á flutningatækjum, vöruumbúðum, bréfsefni eða því sem tengist starfseminni. Guðmundur Bjarnason, heil- brigðsráðherra, segir að Hollustu- vernd ríkisins, Heilbrigðiseftirlit- ið, Áfengisvarnaráð og áfeng- isvarnanefndir sveitarfélaganna komi til með að sjá um að þess- um reglum verði framfylgt. Þar komi dómsyfirvöld og löggæsla einnig til skjalanna. „Við verðum að gera ráð fyrir að almenningur verði líka virkur í þessu eftirliti, líkt og verið hef- ur varðandi tóbaksauglýsingarn- ar. Við höfum ástæðu til að álíta að svipuð viðbrögð verði við þess- um auglýsingum eins og tóbaks- auglýsingum og sá skilningur verði almennur að óheimilt sé að auglýsa áfengi og áfenga drykki,“ segir Guðmundur Bjarnason. JÓH Fj ármálaráðuneytið: Helmingur hækkunar innflutningS' verðs skilar sér út í verðlagið - þar koma m.a. áhrif frá vaxandi samkeppni og minnkandi eftirspurn inn í Frá september 1988 til fcbrúar- byrjunar 1989 hækkaöi vísitala framfærslukostnaðar um tæp 4%. Þessi hækkun svarar til 9% verðbólgu á heilu ári. Til samanburðar má nefna, að næstu mánuði á undan hafði verðbólguhraðinn verið í kringum 30%. Af þessu má sjá, að það hafa orðið veruleg umskipti í verðlagsmálum á síðustu mánuðum. Af þessum 4% má rekja um það bil fjórðung til ákvarðana ríkisstjórnarinnar um að hækka óbeina skatta. Er þar um að ræða hækkun á bensíngjaldi og inn- flutningsgjaldi bifreiða svo og breytingar á vörugjaldi, bæði til hækkunar og lækkunar. Vöru- gjald á sykruðum vörum, svo sem sælgæti og gosdrykkjum hækkaði nokkuð, en vörugjald á ýmsum heimilistækjum, þvottavélum, ísskápum og sjónvörpum, lækk- aði um 5%. Samkvæmt útreikningum Hag- stofu íslands hefur verðhækkun á innfluttum vörum leitt til 1,5-2% hækkunar framfærsluvísitölunnar á þessu tímabili, þegar áhrif óbeinu skattanna eru undanskil- in. í Ijósi gengisþróunar á tíma- bilinu og erlendra kostnaðar- hækkana hefði hins vegar mátt ætla að áhrifin yrðu mun meiri eða kringum 4%. Af þessu má draga þá ályktun að tæplega helmingur af hækkun innflutningsverðs síðustu mánuð- ina hafi skilað sé út í verðlag hér innardands. Þetta má vafalaust að einhverju leyti skýra með áhrifum af vaxandi samkeppni og minnkandi eftirspurn á undan- förnum mánuðum. Afgang verðhækkunarinnar, eða 1-1,5%, má rekja til ýmissa útgjaldaliða, meðal annars þeirra sem hækka aðeins einu sinni á ári. Má þar nefna skólabækur, námskeiðshald hvers konar, happdrættismiða o.fl. Loks er rétt að vekja athygli á því, að lækkandi verðbólga og lægri vextir í kjölfarið hafa leitt til rúmlega 9% lækkunar á vaxta- og verðbótagreiðslum í hús- næðislið vísitölunnar. Þessi breyting ein sér hefur lækkað framfærsluvísitöluna um rúmlega 0,5% á síðustu mánuðum. (Fréttatilkynning)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.