Dagur - 23.02.1989, Side 3
23. febrúar 1989 - DAGUR - 3
Húsavíkurflugvöllur:
„Ekki hægt að haftia þessari forkönnun
- menn mega ekki láta pólitískt moldviðri villa sér sýn,“
segir Gunnar Páll Jóhannesson
„Okkur finnst að við séum
ekki látnir sitja við sama borð
og aðrir, í sambandi við vara-
flugvöll, því við erum aldrei
nefndir nema í sambandi við
herflugvöll. Við teljum að það
sé gert í ákveðnum tilgangi -
það sé útilokunaraðferð,“
sagði Gunnar Páll Jóhannes-
son, starfsmaður Farkaups á
Húsavíkurflugvelli. Þar kom
Dagur við og hitti að máli
Gunnar og Sigurð Karlsson,
starfsmann Flugmálastjórnar
og spurði þá um afstöðu þeirra
til flugvallarmálanna, sem svo
mjög hafa verið til umræðu að
undanförnu.
„Þessi völlur er svo nálægt
Akureyri og þar eru einhverjir
hræddir um að missa spón úr sín-
um aski ef hér kemur betri flug-
völlur. Þá yrði mikið meira um
að flogið yrði hingað með ferða-
fólk, sem nú flýgur til Akureyrar
en það er í rauninni hlálegt að
troða því inn í rútur þar og keyra
með það austur í sýslu í skoðun-
arferðir,“ sagði Sigurður. „Við
höfum ekkert á móti flugi til
Akureyrar og góðum flugvelli
þar en við viljum láta meta okkur
á sama grunni og veðurskilyrði
og öryggissjónarmið eru ekki inni
í þeirri mynd þegar samgöngu-
ráðherra álítur sambærilega
aðstöðu til aðflugs hér og í Eyja-
firði.“
„Fullt af fólki vill gjarnan fá
góðan völl hér, byggðan af
Islendingum. Stjórn landeigenda-
félagsins ályktar gegn NATOr
flugvelli en hún minnist ekki á
annan flugvöll - við teljum að
það sé útilokunaraðferð að veifa
þessum NATOfána,“ sagði
Gunnar Páll.
Þeir félagar sögðust geta tekið
undir hógvær orð Vigfúsar Jóns-
sonar á Laxamýri í Degi 21. feb.
varðandi það að sjálfsagt hefði
verið að tala við landeigendur um
málið en Gunnar sagðist telja að
aðeins einn alþingismaður hefði
farið með offorsi í málinu og það
væri Steingrímur J. Sigfússon.
Sigurður gat þess að ríkið ætti
land fyrir 2700 m braut á Húsa-
víkurflugvelli eða 1500 metra
ónotaða sunnan við núverandi
braut, og að þetta virtist ekki öll-
um hafa verið kunnugt, ekki einu
sinni hjá Flugmálastjórn.
, Bygging stúdentagarða á Akureyri:
Itarlegar upplýsingar
sendar í dag til
Húsnæðisstofiiunar
- „verður vonandi boðið út í mars,“
segir formaður Félagsstofnunar stúdenta
Eins og áður hefur komið fram
hefur Húsnæðisstofnun ríkis-
ins til umfjöllunar umsókn Fé-
lagsstofnunar stúdenta á Akur-
eyri vegna fyrirhugaðrar bygg-
ingar stúdentagarða á Akur-
eyri. Húsnæðisstofnun hefur
óskað eftir frekari upplýsing-
um um byggingu garðanna,
t.d. í sambandi við kostnaðar-
áætlun og lóðir, og munu þær
væntanlega verða póstlagðar í
dag.
Sigurður P. Sigmundsson, for-
maður stjórnar Félagsstofnunar,
segist vænta þess að stjórn Hús-
næðisstofnunar afgreiði umsókn-
ina jákvætt fljótlega eftir að hún
hefur fengið í hendur tilskilin
fylgiskjöl. Hugsanlegt er að
Húsnæðisstofnun fjalli um málið
á fundi í næstu viku.
„Við getum ekki boðið út
byggingu stúdentagarðanna fyrr
en Húsnæðisstofnun hefur sam-
þykkt umsókn okkar. Við höfum
bundið vonir við að bjóða verkið
út í byrjun næsta mánaðar og eft-
ir það þurfa að líða um 3-4 vikur
þar til tilboðin verða opnuð.
Æskilegast- væri að ganga frá
verksamningum um miðjan apríl-
mánuð,“ segir Sigurður. Hann
segist vera mjög bjartsýnn á já-
kvæða afgreiðslu Húsnæðisstofn-
unar. „Hún hefur sýnt okkur vel-
vilja. Spurningin er bara hversu
hratt hún getur greitt lánin út,“
segir Sigurður P. Sigmundsson.
óþh
Flutningar á fóðri frá ístess hf.:
Við reynum að leita
hagkvæmustu leiðauna
- segir Guðmundur Stefánsson,
framkvæmdastj óri
Á næstunni verður tekin
ákvörðun um hvaða aðilar
verða fengnir til að flytja fram-
leiðslu ístess hf., bæði á mark-
að erlendis og innanlands.
„Við erum einfaldlega að
skoða okkar flutninga og finna
hagstæðustu leiðir í þeim. Það
eru um tvö ár síðan við
skoðuðum þetta dæmi og því
er ástæða til að líta aftur á það
nú,“ segir Guðmundur Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri
ístess hf.
„Þessir hlutir þurfa að vera í
nokkuð stöðugri endurskoðun,
þannig að maður lokist ekki inn í
óhagstæðari lausnum en völ er
á,“ segir Guðmundur.
Aflað hefur verið upplýsinga
um verð hjá nokkrum flutninga-
aðilum og segir Guðmundur að
þær verði vegnar og metnar á
næstu dögum áður en tekin verð-
ur ákvörðun hver hljóti hnossið.
Til þessa hefur Eimskip flutt
fóður frá ístess hf. til Noregs en
færeyskt flutningafyrirtæki, North-
west line, hefur annast flutninga
á fóðri til Færeyja. Hér innan-
lands hefur stærstur hluti fóður-
flutninganna komið í hlut Dreka
hf. óþh
„Mér finnst að það ætti að
byggja hér almennilegan flugvöll
en ég hef engan sérstakan áhuga
á hernaðarvelli. Hvað aðflug og
veðurskilyði varðar ættum við að
vera efstir á blaði. Hvað fuglalíf í
nágrenni flugvalla varðar þá
sækja fuglar svo á flugvelli að það
er til vandræða og það er langt í
frá að fuglalíf hverfi í nágrenni
flugvalla, t.d. verpir æðarfugl
bæði við Akureyrarflugvöll og
Keflavíkurflugvöll og lóur hafa
verpt hér inni á brautinni á Húsa-
víkurvelli,“ sagði Sigurður.
„Þetta er byggðasjónarmið.
Það er ekki hægt að hafna þessari
forkönnun og menn mega ekki
láta pólitískt moldviðri villa sér
sýn ef þeir ætla að búa í héraði.
Ef í Ijós kemur við þessa for-
könnun að staðurinn hentar ekki
frá öryggissjónarmiði þá nær
þetta ekki lengra. En með til-
komu millilandaflugvallar opnast
nýjar leiðir til útflutnings t.d. á
eldisfiski og öðrum ferskum fiski
og ekki veitir af atvinnutækifær-
unum hér þegar jafnvel ónefndir
menn í héraði hafa hug á að flytja
vinnslu Mjólkursamlags KÞ til
Akureyrar,“ sagði Gunnar og
bætti við að við byggingu flug-
vallar skapaðist tímabundin
vinna - eins og við virkjunarfram-
kvæmdir, en með tilkomu vallar-
ins yrði skilin eftir ómældur fjöldi
af varanlegum atvinnutækifær-
um. IM
n
þðftSHAMAR NF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut ■ Akureyri • Sími 22700
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
ALLAR
UPPLÝSINGAR
Á EIINIUM STAÐ „
wBKBm