Dagur - 23.02.1989, Page 6
6 - DAGUR - 23. febrúar 1989
Frá opnum dögum í VMA:
Reyndum að hafa dagskrána
sem fjölbreyttasta
- segir Vignir Sigurðsson formaður skólafélagsins
Tækifærið gríptu greitt
giftu það mun skapa
járnið skaltu hamra heitt
að liika er sama og tapa.
Þessi vísa eftir Steingrím
Thorsteinsson, segir Baldvin
Bjarnason skólameistari í
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri að geti verið yfirskrift
opnu daganna í skólanum,
þetta séu dagar tækifæranna.
Opnir dagar hófust á mánu-
daginn og þeim lýkur í kvöld
með veglegri árshátíð í Sjallan-
um. Skólameistari ritar grein í
blað það sem gefið er út vegna
opnu daganna, en það ber
nafnið Jón Krukkur. í grein-
inni segir skólameistari: „Dag-
ar tækifæranna gæti eins verið
samheiti daganna því nú er
stundaskrá felld úr gildi og
hver nemandi kýs sér sína
dagskrá eftir því sem framboð
stendur til á hverjum tíma.
Enginn kemst yfir að taka þátt
í öllum þeim atriðum sein í
boði eru og þess vegna verður
hver og einn að velja og hafna.
Einn er þó sá kostur sem ekki
er í boði, en það er að liggja
heima og taka ekki þátt í
dagskránni því reglur um
mætingar eru í fullu gildi.
Fjölbreytni einkenndi dagskrá
opnu daganna og eflaust hafa
nemendur átt í miklu sálarstríði
við að gera upp á milli dagskrár-
atriða. Að lokinni setningu á
mánudaginn hófst íþróttaflipp í
íþróttahöllinni, Varnaliðið sýndi
þyrlu á Holtinu og þrír flugmenn
hennar sögðu frá hlutverki sínu,
þá var haldið námskeið í sam-
kvæmisdönsum og fulltrúar allra
trúflokka í bænum mættu á sal á
trúmálafund. Um kvöldið frum-
sýndi leikfélagið „Stælt og stolið"
leikritið „Erpingham búðirnar" í
Freyvangi, og Valgeir Guðjóns-
son mætti á sal og spilaði og söng.
Ferðir og fyrirlestrar
Þá var farið í ferðir ýmiss konar
og má þar nefna, skíðaferð,
skoðunarferð urn Mývatn og
dorgveiðikeppni á Mývatni, ferð
í Laxárvirkjun og sjúkrahúsferð
á Sauðárkrók, matarveislu í
Hrísey, ferð í fyrirtæki og útreið-
artúr. Fjallganga á Súlur er á
dagskránni í dag og einnig skoð-
unarferð um merka staði í Eyja-
firði með sr. Bolla Gústavssyni.
Snyrtinámskeið voru haldin
sem og blómaskreytingarnám-
skeið. Fjölmargir fyrirlestrar
voru einnig á dagskránni og má
þar nefna að Jón Hallur Pétursson
frá Kaupþingi leiddi nemendur
í allan sannleik um sparnað,
Magnús Skarphéðinsson og Sveinn
Baldursson spurðu hvort drepa
ætti hvali og Sigmundur Ernir
Rúnarsson frá Stöð 2 talar
um fjölmiðlafárið nú klukkan
10.00. Um hádegisbil geta svo
nemendur fræðst um dulsálar-
fræði hjá Magnúsi Skarphéóins-
syni. Opnu dögunum lýkur í
kvöld með heilmikilli árshátíð
þar sem boðið verður upp á fjöl-
breytt skemmtiatriði.
Tveir í Lúdó
Dagur lagði leið sína á Eyrar-
landsholtið á mánudaginn og
fylgdist með því sem þá var á
dagskránni. Kaffistofan Café
Rómó naut mikilla vinsælda og
þangað inn streymdi uppábúið
þjónustulið með kræsingar á
bökkum. í næstu stofu var spila-
herbergi og sátu þar fjölmargir
að spilum ýmis konar, ellegar
röðuðu myndaspili allmiklu. Þeir
Ingólfur Samúelsson sem er í
þriðja bekk á verslunarbraut og
Jón Ilaröarson útvarpsstjóri.
Mynd: TLV
Vignir Sigurðsson formaður skóla-
félagsins. Mynd: mþþ
Friðrik Stefánsson í þriðja bekk á
málmiðnaðarbraut spiluð Lúdó
af list mikilli og sögðust ekki hafa
spilað þetta ágæta spil frá fimm
ára aldri. Lúdóið kváðu þeir
áhugaverðara en leikur íslend-
inga og Vestur-Þjóðverja í hand-
knattleik. Eða var það öfugt?
Alltént skemmtu þeir sér hið
Valgeir Guðjónsson lék á als oddi á
tónleikum á sal Verkmenntaskól-
ans. Það gerðu nemendur líka.
Mynd: óþh
besta og léku við hvurn sinn fing-
ur yfir spilinu.
Stranglega bannað
að líta í skólabækur
Vignir Sigurðsson formaður
skólafélagsins sagði að mikill
undirbúningur væri að baki, en
fljótlega upp úr áramótum var
farið að ræða opnu dagana og
hvað bjóða ætti nemendum skól-
ans upp á þessa daga. „Það hefur
lítið farið fyrir námi þessar síð-
ustu vikur,“ sagði Vignir sem er á
öðru ári á viðskiptabraut. Geisp-
andi sagði hann líka að ekki hefði
hann sofið mikið undanfarnar
nætur.
Opnu dagarnir eru nú haldnir
öðru sinni við skólann og sagði
Vignir nemendur afar ánægða
með tilbreytinguna, enda hefði
Augabana - kennarar tilbúnir í slaginn við ni
Kristján Harðarson formaður leik-
félagsins „Stælt og stolið“.
Mynd: mþþ
„Eigui
innlifu
Friðrik og Ingólfur skemmta sér yfir Lúdóspil
Á trúmálafundi með nei
Á opnum dögum í Verkmennta-
skólanum á Akureyri var efnt
til trúmálafundar og á hann
mættu fulltrúar sjö trúarfé-
laga, frá Þjóðkirkjunni,
Kaþólsku kirkjunni, Vottum
Jehova, Aðventistum, Hvíta-
sunnusöfnuðinum, Sjónarhæð
og Mormónum. Fundurinn var
haldinn á sal skólans og sátu
hann fjölmargir nemendur.
Sr. Birgir Snæbjörnsson talaði
fyrir hönd Þjóðkirkjunnar og
ræddi hann meðal annars um
sögu kristindómsins og hversu
erfitt hann hafi átt uppdráttar í
fyrstu. „En ekkert afl getur
stöðvað kirkjuna," sagði sr. Birgir
og benti í því sambandi til Rúss-
lands þar sem kristnum mönnum
hefur verið gert erfitt fyrir, en
stjórnvöld hafa nú játað sig
sigruð. Það hve illa hefur gengið
að uppræta kristindóminn sagði
Birgir vera til merkis um að
kirkjan væri ekki stofnun gerð af
mannavöldum heldur af völdum
guðs.
Sr. Birgir ræddi því næst um
þann klofning sem orðið hefur
varðandi kristindóminn og sagði
hann í raun ósköp eðlilegan. Vís-
aði hann í því sambandi til lesturs
manna á ákveðnu leikriti og sagði
þá túlka það á mismunandi vegu.
Hann sagði að því miður hefðu
fylkingarnar borist á banaspjót-
um, en reynt hefði verið að
tengja þessar deildir saman og
árangur hefði náðst á því sviði.
„Ég vona að kristnir bræður
tengist sterkari böndum, það er
hægt og að því unnið,“ sagði
hann.
Jogvan Purkhus kynnti Sjónar-
hæðarsöfnuðinn, en hann á rætur
sínar að rekja til Arthurs Gook
sem kom til Akureyrar í upphafi
aldarinnar. Hin síðari ár er
söfnuðurinn einkum þekktur fyr-
ir starf sitt við sumarbúðirnar að
Ástjörn. Um 20 manns tilheyra
söfnuðinum og er aðaláherslan
lögð á þann boðskap sem Jesús
Kristur boðaði. Jogvan sagði að
öll trúmálaumræða ætti að snúast
um það að menn tækju á móti
Kristi sem sínum persónulega
frelsara. Síðan las hann upp úr
Fjallræðunni og sagði þann sem
byggði á bjargi hafa þann grund-
völl er stæði.
Hvítasunnusöfnuðurinn var
stofnaður 30. maí árið 1936 og er
frjálst trúfélag utan Þjóðkirkj-
unnar. Söfnuðurinn rekur leik-
skólann Hlíðarból í Glerárhverfi
í samvinnu við Akureyrarbæ og
þar eru nú 75 börn. Vörður
Traustason lagði á það áherslu að
Hvítasunnusöfnuðurinn væri
ekki sértrúarsöfnuður og nefndi
að minnsta kosti átta dæmi um að
svo væri ekki. Söfnuðurinn
byggði trú sína á guðsorði og
tryði því að öll Biblían væri sönn,
en hins vegar tryðu menn því
ekki að hægt væri að vinna sig inn
í guðsríki. „Við trúum því að Jesús
Kristur komi aftur og muni hrífa
þá í burt með sér sem tekið hafa
persónulega afstöðu með honum,“
sagði Vörður og minntist að lok-
um á að allir þeir hópar sem sam-
an voru komnir á sal skólans
gætu starfað saman á grundvelli
kristindómsins.
Fyrir Votta Jehova talaði
Roger Bjork og sagði hann með-
limi safnaðarins vera votta hins
sanna guðs. „Við erum vottar um
Jehova guð sem er alvaldur í
heiminum,“ sagði Roger. Hann
sagði Votta Jehova trúa á Jesús
Krist sem guð hefði sent til jarð-
arinnar svo við gætum öðlast
eilíft líf. Upphaflegan tilgang
hingaðkomu Krists sagði hann að
hefði verið að gera jörðina að
paradís þar sem allir lifðu í sátt
og samlyndi og þar sem friður og
öryggi ríkti. Hann sagði að með-
limir safnaðarins þyrftu að sýna í
verki að þeir lifðu samkvæmt
vilja guðs. Þeir þyrftu að fara út
af örkinni og boða fagnaðarer-
indið oft við litlar vinsældir. Slíkt
starf fer nú fram í 212 löndum í
heiminum. „Sumir vilja þagga
niður í þeim sem fara með sann-
leikann,“ sagði Roger og vitnaði
til Biblíunnar þar sem sagði frá
meðferð þeirri er postularnir
fengu er þeir boðuðu fagnaðarer-
indi Krists.
Faðir Robert Bradsaw talaði
fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar
og brá upp lítilli dæmisögu. Hann
sagði frá listaverki sem sýnir
Krist berja að dyrum húss
nokkurs. Lítil stúlka sem skoðaði
málverkið segir við föður sinn, að
listamaðurinn hafi gert mistök
við gerð myndarinnar, því hand-
fang hurðarinnar sé innan á, en
ekki að utan. „Jesús kemur aldrei
með afli inn í hjarta fólks, hand-
fangið er að innan og það er okk-
ar að opna.“ Hann ráðlagði unga
fólkinu í salnum að leggja eyrun
við hið lága hvísl, það gæti verið
hinn þögli Jesús að berja að
dyrum. „Það er ykkar að bjóða
Kristi inn í líf ykkar, hann langar
að deilda með ykkur lífi sínu.“
Faðir Robert benti á að flestir
forfeðra okkar hefðu verið
kaþólskrar trúar og sagði síðan
að kaþólskir menn tryðu því ein-
læglega að Jesús hefði aðeins
Fulltrú
fund si
sem þe