Dagur - 23.02.1989, Page 7

Dagur - 23.02.1989, Page 7
23. febrúar 1989 - DAGUR - 7 mcndur skólans. Mynd: TLV Úr kafdstofunni Café Rómó. Borðin hlaðin kræsingum. Mynd: TLV m bara eftir nokkra kubba!“ Vaskir Verkmenntaskólanemar raða myndaspili af mikilli n* Mynd: TLV Mynd: TLV fjölbreytnin verið höfð að leiðar- ljósi við undirbúning dagskrár- atriða. „Við vilduin hafa þetta sem veglegast.“ Vignir sagði skólameistara hafa gefið út þá tilskipun til nemenda að stranglega væri bannað að líta í skólabækurnar meðan á opnu dögunum stæði og vissi hann ekki betur en nemend- ur virtu þá tilskipun allir sem einn. Fullt er í flestar ferðir sem farnar verða og sagði Vignir að svo mikil væri ásóknin að setja hefði þurft á aukaferð. Hún verð- ur farin að Hólum í Hjaltadal og er þegar fullskipað í hana. „Þessir opnu dagar eru kjörinn vettvang- ur til að auka kynni á milli nemenda og lífga upp á félags- andann,“ sagði Vignir, en nem- endur í dagskóla eru um 900 og ef allt er talið á milli 12-1300. „Annars er félagsandinn góður og fer batnandi." Vignir sagði að skólayfirvöld með Baldvin Bjarnason í farar- broddi hefðu reynst einkar vel, „verið jákvæð og hvetjandi í alla staði. Þetta er alveg frábært lið hérna, Aggi húsvörður og stelp- urnar á skrifstofunni og bara allir,“ sagði Vignir hæstánægður með fyrsta opna daginn í VMA. Erpingham búðirnar Leikfélagið „Stælt og stolið“ hef- ur sýnt leikritið „Erpingham búð- irnar“ í Freyvangi og verður síð- asta sýning verksins annað kvöld, en hún er opin almenningi. Kristján Hákonarson sagði frum- sýningardaginn að menn væru nokkuð strekktir á taugum vegna frumsýningarinnar, en vonaði að ögn slaknaði á spennunni. Æfing- ar hafa staðið yfir síðustu tvo mánuði. Erpingham búðirnar er eftir breska leikritaskáldið Joe Orton, en leikstjóri nú er Pétur Eggertz. Leikritið gerist í sumarbúðum frú Erpingham þar sem staddir eru nokkrir gestir. „Þetta er ærsla- leikrit, fjallar um sært stolt bæða gestanna og frú Erpingham,“ sagði Kristján. Níu leikarar fara með texta- hlutverk, en mun fieiri koma fram í sýningunni og má þar meðal annars nefna að kór skólans var fenginn til samstarfs við leikfé- lagið og efnt verður til skemmt- unar í sumarbúðum f.úarinnar. Ýmsir atburðir koma upp í nendum VMA ar allra trúarhópa á Akureyri mættu á trúmála- “iii haldinn var á opnu dögunum í VMA þar :ir kynntu söfnuði sína. Mynd: mþþ stofnað eina kirkju og það væri kaþólska kirkjan. Skúli Torfason frá Aðventist- um lýsti í upphafi yfir því að orð- ið sértrúarsöfnuður væri svo gott sem horfið úr málinu og menn væru orðnir mun opnari fyrir trúmálum en áður var. Söfnuður Aðventista á rætur sínar að rekja til manna er hófu miklar biblíu- rannsóknir í Bandaríkjunum um miðja 19.öldina. Söfnuðurinn var stofnaður árið 1863 og telur hann nú um 6 milljónir manna um all- an heim. Skúli sagði heilaga ritn- ingu vera trúarjátningu þeirra er aðhylltust söfnuðinn. Hann sagði Aðventista ekki hafa sérstaka trúarjátningu, en þeir byggðu hins vegar á 27 atriðum, sem hann komst ekki yfir að útskýra öll vegna hins knappa tíma er ræðumönnum var skammtaður. Öll byggjast þessi atriði á Biblí- unni, „hún er fullkomin.“ Skúli sagði einnig að svo væri litið á að guð væri ódauðlegur, alvitur og alltaf nálægur. Aðventistar trúa því að guð hafi skapa heiminn á 6 dögum og hvílst þann sjöunda. „Að þessu var hlegið þegar ég var í menntaskóla, en svo er ekki lengur,“ sagði Skúli og veifaði Newsweek blaði hvar sagt var frá því að allt mannkynið ætti rætur að rekja til einnar konu og var sú kölluð Eva. Að lokum talaði ungur maður frá Mormónasöfnuðinum, Erik að nafni, en hann er fæddur í Utah í Bandaríkjunum. Þar gekk hann í skóla, en hefur starfað sem trúboði á íslandi í 16 mán- uði. Erik talaði um fagnaðarer- indið sem fært hefði mönnum svo mikla gleði. Hann sagðist ekki hafa tala við drottinn augliti til auglitis, en hefði fengið svar við bænum sínum og væri sannfærð- ur. Hann sagði trúna gera mönn- um kleift að skilja betur tilgang lífsins og þá öðluðust menn vissu um að dýrð guðs er viska. Að erindunum loknum var stutt hlé en síðan gafst fundar- mönnum færi á að spyrja sem þeir nýttu sér óspart. mþþ Samkvæmisdansarnir nutu mikilla vinsælda. Mynd: tlv sumarbúðunum og sem enda á örlagaríkan hátt. Útvarp VMA Um tuttugu manns vinna við dag- skrárgerð í Útvarpi VMA. Við hittum útvarpsstjórann, Jón Harðarson á göngunum og spjölluðum lítillega við hann. „Það er FAT, Félag áhugamanna um tónlist, sem sér um útvarpið,“ sagði Jón. Útsendingartíminn síðustu daga hefur verið frá klukkan 8.00 á morgnana og til kl. 00.01 um nóttina. Útsending- um verður hætt kl. 18.00 í kvöld. „Við byrjuðum strax um ára- mótin að vinna í þessu, sækja um leyfi og því um líkt. Síðan höfum við þurft að fá lánuð tæki og ýmislegt fleira sem tilheyrir því að setja upp útvarpsstöð," sagði Jón. Fréttastofa er starfandi við útvarpsstöðina og er sendur út klukkutíma fréttaþáttur þá daga sem opnu dagarnir standa. Eink- um sagði Jón að fluttar væru fréttir af því sem væri að gerast, þá væru tekin viðtöl og útvarpað væri frá þeim fyrirlestrum sem væru í gangi hverju sinni. „Þetta er spennandi," sagði Jón, „en ég vildi ekki vinna við þetta árið um kring.“ mþþ Alþýðuflokksfélag Akureyrar heldur aðalfund sinn, fimmtudaginn 2. mars að Strandgötu 9, kl. 20.30. Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. Stofnun veggtennisklúbbs verður föstudaginn 24. febrúar kl. 17.30 að Bjargi, Bugðusíðu 1. Allir áhugamenn' um veggtennis eru hvattir til að mæta. Veggboltinn

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.