Dagur - 23.02.1989, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 23. febrúar 1989
myndasögur dags
í-
ARLAND
Ég veit ekkert hvað ég á að gera ... Siggi
skelfir, skólahrekkjusvínið, lætur mig aldrei
í friði!... Hann er búinn að líma saman
allar bækurnar mínar... troða mér inn í
pinn minn ... og traðka á nestinu mínu'
Hvers vegna gef-1 Nei, ég held ekki Lísa ..
urðu honum ekki ég er nefnilega frekar á
bara einn á'ann?! móti svoleiðís löguðu.
l ..i wi v-i s i / 11 f ysxiamzzn u j m
ANDRÉS ÖND
íiTTr -i i -ti í i i \ <3 . \ 1 1 zéLi ^ ■
HERSIR
BJARGVÆTTIRNiR
Hvernig tókst þér aö sleppa fráu
Brasilísku fangelsi? .. .
peninganna vinur. Góðir lögfræðing-
■ | ’ ar... mútur... það væri gaman að segja
iRspaTTa Þer fleira en menn mínir eru æstir í að
5-6 , * skemmta sér...
Gar
# Farþeginn
Náttfari, sem er flugvél af
gerðinni Fokker og er í eigu
Flugleiða lenti í snjóruðn-
ingi á Akureyrarflugvelli nú
fyrir skömmu. Það vita svo
sem allir og þarf því ekki
upprifjunar við. Fjölmiðlar
greindu að sjálfsögðu frá
atburði þessum og sögðu
meðal annars frá því að
þrjátíu og tveir farþegar
hefðu verið um borð í vél-
inni. í frétt af þessu tagi er
nauðsynlegt að ræða aðeins
við farþega og spyrja til að
mynda hvort skelfing hafi
gripið um sig þeirra á
meðal. Þetta gerðu fjölmiðl-
ar. Ef við byrjum á Degi,
(bara si svona) þá var spjall-
að við farþegann Jón Lárus-
son. í Svæðisútvarpinu var
rætt við farþegann Jón Lár-
usson og Morgunblaðið
m II ll
0L UU Uu
ræddi Ifka við Jón Lárus-
son. Gott ef nefndur Jón
Lárusson lýsti ekki einnig
reynslu farþega af lendingu
þessari í Dagblaðinu Vísi.
Og þá vaknar ein spurning:
Var aðeins einn farþegi með
vélinni, nefnilega títtnefnd-
ur Jón Lárusson?
# Kaupa þeír
nýju
útgáfuna?
Eru langreyðar kefldar? Og
meira að segja miklu oftar
en menn áður álitu? Þannig
spurði blaðið sem boðað
hefur frjálslyndi auk fram-
fara í sjö tugi ára, Tíminn,
lesendur sína á föstudag í
fyrri viku. Fyrirsögnin var
allnokkuð áberandi eins og
títt er með forsíðufyrirsagn-
ir áðurnefnds blaðs og tóku
því margir eftir. Voru menn
ekki á eitt sáttir við fyrir-
sögnina og fannst Tíminn f
vondu máli. En um hitt voru
menn sammála, að vask-
lega var að málum staðið á
þeim bæjum hvar langreyð-
arnar væru keflaðar. Sáu að
vísu kannski ekki alveg í
hendi sér hvernig slík með-
höndlun hvalsins færi yfir-
leitt fram. Um tilganginn var
og heldur ekki vitað.
Það var svo hinn næsta dag,
laugardag, að bréf barst frá
ritstjórn og voru þar málin
skýrð nánar. Nefnilega við
samningu fyrirsagnarinnar
var gamla útgáfa Orðabókar
Menningarsjóðs höfð til
hliðsjónar og þótti einsýnt
að hún væri úrelt orðin.
Sennilega hafa þeir Tíma-
menn endurnýjað bókakost
sinn eftir þetta áfall og fest
kaup á nýju útgáfunni.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 23. febrúar
18.00 Heiða (35).
18.25 Stundin okkar - endursýning.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Endalok heimsveldis.
(End of Empire.)
Upphafið að endalokunum.
Bresk mynd sem fjallar um hvernig
Breska heimsveldið missti tök sín á
nýlendum sínum þegar kreppa tók að í
heimsstyrjöldinni síðari.
19.54 Ævintýri Tinna.
Krabbinn með gullnu klæmar (6).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Gúmmbjörgunarbátai.
Kennslumynd frá Siglingamálstofnun
ríkisins um meðferð og notkun gúmmí-
björgunarbáta.
20.50 Matlok.
21.35 íþróttasyrpa.
22.10 Hvers vegna er Jörn óvær?
Mynd gerð í samvinnu við foreldrasamfé-
lag misþroska bama í Noregi og lýsir fötl-
un þessara barna og þeim erfiðleikum
sem þau og aðstandendur þeirra eiga við
að stríða.
23.00 Seinni fréttir.
ATH! Hugsanlegt er að bein útsending
frá B-keppninni raski dagskránni að
einhverju leyti.
Sjónvarp Akureyri
Fimmtudagur 23. febrúar
15.45 Santa Barbara.
16.30 Með afa.
18.00 Fimmtudagsbitinn.
18.50 Snakk.
19.19 19.19.
20.30 Morðgáta.
(Morder She Wrote.)
21.20 Forskot á Pepsí popp.
21.30 Þríeykið.
(Rude Health.)
Lokaþáttur.
21.55 Leikið tveimur skjöldum.#
(Little Drummer Girl.)
Mynd sem byggð er á sögu hins fræga rit-
höfundar John Le Carré.
Alls ekki við hæfi barna.
00.05 Barnfóstran.
(Sitting Pretty.)
Bráðskemmtileg gamanmynd um fullorð-
inn mann sem tekur að sér barnagæslu
fyrir ung hjón. Starfið ferst honum ein-
staklega vel úr hendi enda er maðurinn
snillingur sem hefur mikla reynslu á öll-
um sviðum.
01.30 Dagskrárlok.
Rásl
Fimmtudagur 23. febrúar
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Baldur Sigurðsson talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
- „Kári litli og Lappi."
Höfundurinn Stefán Júlíusson lýkur lestri
sögu sinnar.
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Staldraðu við!
Jón Gunnar Grjetarsson sér um neyt-
endaþátt.
9.40 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
Umsjón: Jón Gauti Jónsson á Sauðár-
króki.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Ölgerð fyrr á öldum.
13.35 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup'* eft-
ir Yann Queffeléc (21).
14.00 Fróttir • Tilkynningar.
14.05 Fimmtudagssyrpa.
15.00 Fréttir.
15.03 Leikrit: „Hjá tannlækni" eftir James
Saunders.
15.50 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
- Börn með leiklistaráhuga.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Liszt og Schubert.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.20 Staldraðu við!
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Daglegt mál.
19.37 Kviksjá.
Þáttur um menningarmál.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Samnorrænir kammertónleikar.
Kynnir Bergþóra Jónsdóttir:
22.00 Fréttir.
22.07 Frá Alþjóðlega skákmótinu í Reykja-
vík.
Jón Þ. Þór segir frá gangi skáka í níundu
umferð.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma.
Guðrún Ægisdóttir les 28. sálm.
22.30 ímynd Jesú í bókmenntum.
Fyrsti þáttur.
23.10 Fimmtudagsumræðan.
Umsjón: Sigurður Tómas Björgvinsson.
(Frá Akureyri.)
24.00 Fróttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Fimmtudagur 23. febrúar
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
11.03 Stefnumót.
Jóhanna Harðardóttir tekur fyrirþað sem
neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
Margrét Blöndal og Gestur Einar Jónas-
son leika þrautreynda gullaldartónlist og
gefa gaum að smáblómum í mannlífs-
reitnum. (Frá Akureyri.)
14.05 Á milli mála.
Óskar Páll Sveinsson á útkíkki.
16.03 Dagskrá.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
21.30 Fræðsluvarp: Lærum ensku.
22.07 Sperrið eyrun.
- Anna Björk Birgisdóttir leikur þunga-
rokk á ellefta tímanum.
23.45 Innskot frá Alþjóðlega skákmótinu í
Reykjavík.
01.10 Vökulögin.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og
4.30.
Fróttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30,
9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19,
22 og 24.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Fimmtudagur 23. febrúar
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Stjarnan
Fimmtudagur 23. febrúar
7.30 Jón Axel Ólafsson
vaknar hress og vekur hlustendur með
skemmtilegri tónlist við allra hæfi, spjall-
ar við hlustendur og tekur púlsinn á ýms-
um málum.
10.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
Þessi ljúfi dagskrárgerðarmaður er mætt-
ur aftur til leiks. Helgi spilar að sjálfsögðu
nú sem fyrr öll nýjustu lögin og kryddar
blönduna hæfilega með gömlum, góðum
lummum.
14.00 Gísli Kristjánsson
spilar óskalögin og rabbar við hlustendur.
Síminn er 681900.
18.00 Róleg tónlist
á meðan hlustendur borða í rólegheitum
heima, eða heiman.
20.00 Sigurður Helgi Hlöðversson og Sig-
ursteinn Másson.
Þessir tveir bráðhressu dagskrárgerðar-
menn fara á kostum á kvöldin. Óskalaga-
síminn sem fyrr 681900.
24.00-07.30 Næturstjörnur.
Fréttir á Stjörnunni kl. 8, 10, 12, 14 og
18.
Fréttayfirlit kl. 8.45.
Bylgjan
Fimmtudagur 23. febrúar
07.30 Páli Þorsteinsson.
Tónlist sem gott er að vakna við - litið í
blöðin og sagt frá veðri og færð.
Fréttir kl. 8 og Potturinn kl. 9.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Góð Bylgjutónlist hjá Valdísi.
Fréttir kl. 10, 12 og 13. Potturinn kl. 11.
Brávallagötuhyskið kemur milli kl. 10 og
11.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Góð stemmning með góðri tónlist.
Fréttir kl. 14 og 16. Potturinn kl. 15 og 17.
Bibba og Dóri milli kl. 17 og 18.
18.00 Fréttir.
18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst
þér?
Steingrimur og Bylgjuhlustendur tala
saman. Siminn er 611111.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Hljóðbylgjan
Fimmtudagur 23. febrúar
07.00 Róttu megin framúr.
Ómar Pétursson spjallar við hlustendur í
morgunsárið, kemur með fréttir sem
koma að gagni og spilar góða tónlist.
09.00 Morgungull.
Hafdís Eygló Jónsdóttir á seinni hluta
morgunvaktar.
12.00 Ókynnt hádegistónlist,
13.00 Perlur og pastaréttir.
Snorri Sturluson sér um tónlistina þína og
lítur m.a. í dagbök og slúðurblöð.
17.00 Síðdegi í lagi.
Þáttur fullur af fróðleik og tónlist í umsjá
Þráins Brjánssonar.
19.00 Ókynnt tónlist með kvöldmatnum.
20.00 Pétur Guðjónsson
stjórnar tónlistinni á fimmtudagskvöldi.
23.00 Þráinn Brjánsson
þægileg tónlist fyrir svefninn.
01.00 Dagskrárlok.
Ólund
Fimmtudagur 23. febrúar
19.00 Gatið.
20.00 Skólaþáttur.
Umsjón hafa nemendur í Tónlistarskólan-
um. Klassísk tónlist.
21.00 Fregnir.
30 mínútna fréttaþáttur.Litið í leiðara og
góðar fregnir. Fólk kemur í spjall.
21.30 Menningin.
Ljóðskáld vikunnar, smásögur, tónlistar-
viðburðir og menning næstu viku.
Viðtöl.
23.00 Eitt kíló.
Kristján Ingimarsson spilar eitt kíló af
plötum frá Gramminu.
Fæst á Ólund.
24.00 Dagskrárlok.