Dagur - 23.02.1989, Blaðsíða 12

Dagur - 23.02.1989, Blaðsíða 12
TEKJUBREF• KJARABRÉF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR rFJÁRFESriNCARFÉLAGID Ráðhústorgi 3, Akureyri Kjörland hf. Svalbarðseyri: Framleiðir franskar úr hollenskum kartöflum „getum ekki átt við veitingahúsamarkaðinn öðruvísi“ segir framkvæmdastjórinn Kartöfluverksmidjan Kjörland hf. á Svalbarðseyri hefur sem kunnugt er gert tilraun til þess að framleiða franskar kartöflur úr innfluttum hollenskum kart- öflum. Guðmundur Ingólfsson framkvæmdastjóri segir fram- leiðsluna líka mjög vel og að von sé á öðrum gámi með um 25 tonnum af hollenskum kart- öflum til landsins, en það magn tekur aðeins um viku tíma í vinnslu. „Við gerðum þetta upphaflega til prufu og til þess að sýna þetta og það lofar það góðu, að meira að segja tvö veitingahús á Akur- eyri hafa tekið þær inn,“ sagði Guðmundur. Um innflutning á erlendum kartöflum er það að segja, að hann er ekki leyfilegur nema þeg- ar skortur er á innlendum. íslenskar kartöflur eru ekki nægj- anlega þurrefnisríkar og veit- ingahúsaeigendur vilja ekki kart- öflur sem ekki hafa 21% þurr- efni. „Það er ekki nema í ein- staka góðæri sem við fáum lít- ið magn af þurrefnisríkum inn- lendum kartöflum og ef banna á innflutning erlendra kartaflna, er verið að setja okkur stólinn fyrir dyrnar með að þjóna veitinga- húsunum. Við getum ekki átt við þann markað öðruvísi.“ Annar veitingastaðanna sem keypt hefur framleiðslu Kjör- lands hf. er Biti sf. sem rekur kjúklingastaðinn við Skipagötu. Að sögn eigenda þar, líkar þeim vel við kartöflurnar. Pær slaga að þeirra mati hátt í gæði erlendra kartaflna og eru mjög bragðgóð- ar. Það eina sem hægt er að setja útá þær er, að þær halda sér ekki eins lengi stökkar eftir steikingu og hinar. Aðspurður um saman- burð við venjulegar íslenskar sögðu þeir Bitamenn að munur- inn væri eins og dagur og nótt. Svo væri það bara spurning um verð og áframhaldandi gæði hvort áframhald verði á kaupum á hollensku kartöflunum frá Kjörlandi. Hollensku kartöflurnar frá Kjörlandi hf. hafa ekki og verða ekki pakkaðar í neytendaumbúð- ir til heimilisnotkunar. Þeir fram- leiða hins vegar áfram íslenskar franskar í neytendaumbúðum. VG Útgerðarfélag Akureyringa: Ekki á dagskrá að kaupa Sulnafellið - segir Sverrir Leósson Eitt stykki hræra „on the rocks“ eða einfaldlega frost og funi á Fróni? Mynd: TLV Fá Ólafsfirðingar ASTRAinn á stofugólfmeð „speglatækni“ Skúla? Það segja allir að þetta sé algjörlega vonlaust „Nei, það er ekki á dagskrá hjá okkur að gera tilboð í Súlnafellið,“ sagði Sverrir Leósson, formaður stjórnar Útgeröarfélags Akureyringa, þegar hann var inntur eftir því hvort ÚA hafi gert kauptilboð í Súlnafell ÞH-361, ísfískskip Útgerðarfélags Norður-Þing- eyinga á Þórshöfn. Dagblaðið Tíminn birti frétt í gær þess efnis að ÚA hafi nú þeg- ar lagt fram kauptilboð í Súlna- fell og megi búast við að það verði staðfest á næstu dögum. Vinna við að breyta „Gamla bakaríinu“ í Siglufírði í íbúðar- hús gengur vel, en Bútur hf. er verktaki að innréttingu átta íbúða í húsinu. Konráð Bald- vinsson, framkvæmdastjóri, segir að þær raddir sem hafí talið húsið of illa farið til að hægt væri að endurbyggja það hefðu haft rangt fyrir sér. Á sínum tíma var mikið deilt um réttmæti þess að innrétta átta íbúðir í Gamla bakaríinu. Rann- sóknastofnun byggingariðnaðar- ins gerði úttekt á húsinu og var niðurstaðan sú að óhætt væri að leggja út í framkvæmdir. Vinna við húsið hófst í nóvember. Konráð Baldvinsson sagði að þessa dagana væri verið að vinna við múrverk og hleðslu milliveggja. Kostnaðaráætlun hijóðar upp á 32 milljónir króna og 12 til 14 menn vinna að stað- aldri við bygginguna sem á að „Þarna hefur orðið einhver mis- skilningur. Við höfum ekki rætt það að gera tilboð í þetta skip,“ sagði Sverrir. Eins og áður hefur verið greint frá er Súlnafellið eitt þeirra skipa sem nefnt hefur verið til sögunn- ar til að afla hráefnis fyrir fisk- vinnslu Kaupfélags Eyfirðinga í Hrísey. Engin ákvörðun hefur verið tekin um kaup á nýju skipi, að sögn Jóhanns Þórs Halldórs- sonar, útibússtjóra KEA í Hrís- ey, og er enn verið að skoða ýmsa möguleika í þessu sam- bandi. óþh afhendast upp úr næstu áramót- um. Stefnt er að því að afhenda húsið fyrr, hugsanlega í nóvem- ber. „Þetta hús uppfyllir allar kröf- ur sem hægt er að gera til íbúðar- húsnæðis og meira en það þar Skúli Pálsson, bifvélavirki og sjónvarpsfrömuður í Ólafs- sem það var byggt sem iðnaðar- hús og er því sterkbyggðara en almennt gerist. Þetta leit orðið illa út en það er líka búið að taka langan tíma að ákveða hvað gera átti við húsið,“ sagði Konráð Baldvinsson. EHB - segir Skúli Pálsson fírði, gælir við þá hugmynd að færa Ölafsfírðingum sendingar frá evrópskum sjónvarpstöðv- um inn í stofu. Vikublaðið Múli í Ólafsfírði skýrir frá þessu sl. föstudag. Til þess að þetta verði unnt þarf Skúli að ná að brjóta útsend- ingargeisla frá gervihnöttum með speglum og kasta geislanum á þartilgerðan móttökudisk. Hann hefur reyndar nú þegar þreifað sig áfram með þessa tækni og speglað geislann á annað hundr- að metra. Hann lætur sér það ekki duga og segist stefna að því að spegla hann nokkur hundruð metra. Ef viðunandi árangur verður af tilraunum Skúla er ætlun hans að dreifa efninu í kapalkerfi Vídeo- Skann í Ólafsfirði. í samtali við Dag sagðist Skúli ótrauður halda áfram með þessar athuganir, sem hann segist ekki hafa heyrt getið um áður hvorki hér á landi né erlendis. „Það er reyndar margt óklárt í þessu en ég mun prófa mig áfram jafn- skjótt og veður leyfir. Þetta er alfarið á mínum snærum og það segja mér allir að þetta sé algjör- lega vonlaust. En ég vil ekki gef- ast upp að svo komnu máli,“ seg- ir Skúli. Samkvæmt núgildandi lögum má ekki dreifa slíku efni í kapal- kerfi til fleiri en 36 íbúða og sam- kvæmt því fengi Skúli vart leyfi til að dreifa evrópsku sjónvarps- efni, frá t.d. ASTRA-gervihnett- inum, til allra í kapalkerfi Vídeo- Skann. Skúli bendir hins vegar á að útvarpslög séu í endurskoðun og vonir standi til að reglur um móttöku erlends sjónvarpsefnis frá gervihnöttum verði rýmkað. óþh Bflvelta í Kinn Stór jeppabifreið endastakkst og valt út af veginum skammt sunnan við Ljósvetningabúð í Kinn í fyrradag. Engin meiðsli urðu á fólki við óhappið en tals- verðar skemmdir á bílnum. Jeppinn var á leið frá Akureyri til Húsavíkur og var vegurinn auður á þeim slóðum sem óhapp- ið vildi til nema hvað skafl hafði myndast á móts við afleggjarann heim að Gvendarstöðum. Talið er að ökumaður hafi misst stjórn á bifreiðinni í skaflinum. Bifreið- in endastakkst á veginum, valt síð- an austur af honum og hafnaði á toppnum. Að sögn lögreglunnar var bifreiðin tiltölulega lítið skemmd miðað við aðstæður. IM Stefnt er að því að flytja í nýjar íbúðir í „Gamla bakaríinu“ í nóvember nk. Mynd: ÁS Bútur hf. Siglufirði: Vinna við að breyta „Gamla bakarnnu" gengur vel

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.