Dagur - 02.03.1989, Blaðsíða 1
Engin meðalmennska í bjórkaupum
á Akureyri í gær:
Ríflega 1800 ölkassar
- Sanitas með um 86% sölunnar
Það er ekki ofsögum sagt að
landinn hafi fagnað ölinu með
stæl í gær, fyrsta daginn sem
bruggun og sala áfengs öls er
heimiluð á nýjan leik á landi
hér. Fólk þyrptist inn í áfengis-
útsölur um allt land, verslaði
bjórinn og trítlaði síðan bros-
hýrt út í marsnepjuna.
A Akureyri var bókstaflega
allt vitlaust að gera allt frá því
útsala ÁTVR opnaði kl. 09.00 í
Frábært skíðafæri í
Hlíðarfjalli:
Aðsókn á
kvöldin mætti
vera betri
Nú er frábært skíðafæri í Hlíð-
arfjalli og þar ku menn vera
hættir að dansa snjódansa,
enda engin þörf fyrir slíkt
lengur. Hins vegar virðist
skíðafólk ekki vera búið að
átta sig almennilega á þessu
ennþá, því aðsókn hefur ekki
verið sem best, a.m.k. ekki á
kvöldin.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hef-
ur verið opið þrjú kvöld í viku, á
þriðjudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum til kl. 21.00. For-
ráðamenn eru ekki ánægðir með
aðsökn þessi kvöld því aðeins
örfáir skíðamenn hafa nýtt sér
þessa þjónustu. „Við ætlum að
gera lokatilraun í þessari og
næstu viku til þess að hafa opið
og ef aðsókn glæðist ekki, neyð-
umst við til að hafa alveg lokað
hér á kvöldin,“ sagði ívar Sig-
mundsson „skíðakóngur“ í Fjall-
inu í gær. Þá er góð færð uppeft-
ir, búið að ryðja öllum snjó úr
vegi, „og svo er bara að sjá hvað
góða veðrið helst.“
Nú er búið að setja auka
öryggisbúnað við barnatoglyft-
una auk þess sem ráðinn hefur
verið gæslumaður við hana sam-
kvæmt nýjustu öryggiskröfum.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að þess vegna sé farið að selja
aðgang að lyftunni, en svo er
ekki; það er ennþá frítt í barna-
lyftuna. VG
gærmorgun og þartil yfir lauk
kl. 18.00. Bjórinn sópaðist burtu
úr hillunum og naut Lövenbrau 1
frá Sanitas mestrar hylli við-
skiptavina. Haukur Torfason,
útsölustjóri, sagði í samtali við '
Dag laust fyrir kl. 18 í gær, að |
gróft áætlað hafi um 44 þúsund
bjórdósir verið seldar á Akureyri
þennan fyrsta bjórdag, þar af um
38 þúsund dósir frá Sanitas.
Haukur sagði þennan dag hafa í
sölu jafnast á við mestu örtröð
fyrir jól eða árarnót. Hann bætti
við að vegna gífurlegs annríkis í
„Ríkinu“ í gær hafi starfsmenn
þess ekki náð að sinna bunka póst-
kröfusendinga til bjórþyrstra við-
skiptavina í nágrannabyggðarlög-
um. „Ég hugsa að starfsmenn hér
verði að vinna í þessu langt fram
á nótt,“ sagði Haukur.
f bjórfréttum frá Sauðárkróki
er þetta helst: Þar var kappnóg
að gera í gær, eða eins og starfs-
maður í útsölu ÁTVR orðaði
það; „þetta hefur verið eins og
góður föstudagur.“ Þar var á
boðstólum íslenskur bjór frá San-
itas og Agli svo og hálft bretti af
þeim bandaríska Budweiser.
Mjöðurinn sá rauk út eins og skot
og nokkuð gekk á birgðir þess
íslenska.
í útsölu ÁTVR á Siglufirði var
líka lífleg sala í gær, „en það eru
hér engin læti,“ sagði Gottskálk
Rögnvaldsson, útsölustjóri. „Jú,
jú, fólk er greinilega forvitið og
vill prufa bjórinn," bætti hann
við. Á Siglufirði voru íslenskar
bjórtegundir frá Sanitas og Agli
til sölu í gær. óþh
Óþolinmóðir bjórunnendur hópuðust inn í útsölu ÁTVR
á Akureyri, þegar hún opnaði á slaginu 09.00 í gærmorg-
un. Hreinn Guðlaugsson (innfelda myndin) fór fyrstur út
úr .Ríkinu í gærmorgun „vopnaður“ 6 íslensk/þýskum
bjórdósum af gerðinni Lövenbrau. Myndir: tlv
Röð fyrir utan „Ríkið“ í gærmorgun:
Búinn að bíða eftir
þessu í nokkur ár
sagði fyrsti viðskiptavinurinn
„Eg er búinn að bíða eftir
bjórnum í nokkur ár og var
búinn að ákveða fyrir löngu að
koma snemma í ríkið,“ sagði
Hreinn Guðlaugsson en hann
var fyrstur að kassa í útsölu
ATVR á Akureyri í gærmorg-
un. Hann var líka búinn að
ákveða hver tegundin ætti að
vera og fór hann út með sex
Björgvin EA-311 og Baldur EA-108 seldu í Bremerhaven og Hull:
27 af 206 tonnum Björgvins
dæmd ósöluhæf í Þýskalandi
- fiskurinn líklega of gamall,
segir Valdimar Bragason, útgerðarstjóri
Dalvíkurtogararnir Björgvin
EA-311 og Baldur EA-108
seldu afla sinn í vikunni í
Bremerhaven í V-Þýskalandi
og Hull í Bretlandi. Björgvin
fékk heldur lágt verð í Bremer-
Bfll fór nokkrar
veltur við Höfti
- hjón voru flutt á FSA
Bfll valt á Svalbarðsstrandar-
vegi við Höfn laust fyrir klukk-
an 17. í gær. Hjón voru í bfln-
um og voru þau flutt á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Þar var hugað að minniháttar
meiðslum karlmannsins í gær
en konan var þar í nótt til frek-
ari rannsóknar.
Bíllinn fór nokkrar veltur áður
en hann stöðvaðist og er hann
mikið skemmdur. Að sögn lög-
reglunnar á Akureyri má þakka
það þykkum snjóalögum að ekki
fór þarna verr.
Ökumaður mun hafa skyndilega
misst bílinn úr hjólförum og þá
skipti engum togum að hann kast-
aðist til með fyrrgreindum afleið-
ingum. óþh
haven fyrir karfa og ufsa 'en
Baldur fékk viðunandi meðal-
verð í Hull fyrir þorsk og ýsu.
Björgvin landaði 206 tonnum í
Bremerhaven sl. þriðjudag, þar
af voru 27 tonn af elsta fiskinum
dæmd frá sölu vegna ónógra
gæða. Söluandvirði aflans var
12,2 milljónir króna sem gefur
67,78 króna meðalverð á kíló.
Bróðurpartur aflans var karfi og
ufsi.
Verðið sem Björgvin fékk fyrir
sinn afla í Þýskalandi er nokkru
lægra en hefur fengist þar að
undanförnu. Þess ber að geta að
framboð á ufsa, bæði frá íslensk-
um og norskum fiskiskipum, hef-
ur verið þar óvenju mikið undan-
farna daga sem hefur leitt til
verðlækkunar.
Valdimar Bragason, útgerðar-
stjóri, segir að þau 27 tonn úr afla
Björgvins sem dæmd voru ósölu-
hæf, hafi að öllum líkindum verið
orðin of gömul. „Þetta var reynd-
ar orðinn gamall fiskur en við
höfum oft áður selt eldri fisk. Við
erum að ímynda okkur að ástand-
ið á þessum fiski hafi verið slíkt
að hann hafi ekki þolað þessa
geymslu. Ástand fisksins er mis-
munandi eftir því á hvaða svæð-
um hann er veiddur. Elsti fiskur-
inn í þessum túr var veiddur vest-
an við Víkurál," segir Valdimar.
Baldur seldi 77 tonn í Hull sl.
mánudag fyrir 7,6 milljónir
króna. Meðalverð var 98,76
krónur fyrir kílóið. Stærstur hluti
aflans var þorskur en meðalverð
fyrir 23 tonn af ýsu var 129
krónur.
Baldur er nú á heimleið
Björgvin hefur viðkomu í skipa-
smíðastöðinni í Flekkefjord í
Noregi, þar sem gert verður við
klæðingu í lest. Vonast er til að
viðgerð verði lokið nk. sunnu-
dag. óþh
en
dósir af Lövenbrau, sem
reyndar virtist vinsælasta teg-
undin fyrstu mínúturnar, en all
margir virtust vera að prófa sig
áfram og keyptu 2-3 tegundir.
Fyrstu bjórkaupendurnir voru
komnir fyrir utan verslunina hálf-
tíma áður en hún opnaði. Þar á
meðal voru tveir piltar sem lokið
höfðu sinni vinnu kl. 06.00 um
morguninn og ætluðu þeir að „fá
sér einn“ fyrir svefninn. „Ætli við
kaupum ekki sex bjóra hvor og
sinn hvora tegundina,“ sögðu
þeir.
Þegar verslunin opnaði kl.
09.00 beið um 20 manna hópur
fyrir utan og keyptu þeir allir
bjór þegar inn var komið. Þeir
viðskiptavinir sem Dagur ræddi
við, ætluðu flestir að láta bjórinn
vera þangað til um kvöldið og
aðspurðir um verð voru þeir
nokkuð ánægðir með það. „Þetta
er hvorki of dýrt né ódýrt, bara
alveg passlegt," sagði einn við-
mælenda okkar. Þá er óhætt að
segja að loftið hafi verið raf-
magnað því á þeim stutta tíma
sem við stöldruðum við, gleymdu
nokkrir að taka afganginn sinn,
svo mikið lá þeim á að komast út
með ölið.
I útsölunni á Akureyri voru
tæplega 100 þúsund bjórdósir á
lager þegar verslunin opnaði.
Það voru 3 tegundir frá Sana og
ein frá Egils. Afgreiðslumennirn-
ir höfðu á orði að líklega kláruð-
ust birgðirnar fyrir hádegi en
stutt væri að fara til þess að ná í
meira. Þá voru þeir sömuleiðis
fegnir því að sjálfsafgreiðslukerf-
ið væri komið í gagnið því með
því kæmust þeir hjá burði og
hlaupum með mjöðinn. VG