Dagur - 02.03.1989, Qupperneq 3
2. mars 1989 - DAGUR - 3
Illviðrið setti strik í reikninginn hjá Flugleiðum:
Fer félagið með farþega sína
eins og hveqa aðra frakt?
- það vildu íjölmargir farþegar sem fóru til Akureyrar
í þotuflugi á þriðjudagskvöld meina
Það ríkti lítil hrifning á meðal
þeirra rúmlega hundrað far-
þega sem komu með þotu
Flugleiða til Akureyrar frá
Keflavík í fyrrakvöld. Er þotan
lenti á Akureyri um kl. 22.15,
voru liðnir fjórir og hálfur tími
frá því að farþegarnir voru
boðaðir til brottfarar í flug-
stöðina á Reykjavíkurflugvelli.
Erfiðlega gekk að fá nákvæm
svör við þessum töfum og
höfðu margir farþegar á orði
og Flugleiðir færu með þá eins
og hverja aðra frakt en ekki
fólk sem borgaði „stórpening“
fyrir þjónustuna.
Flugleiðir voru að reyna að
„hreinsa upp“ eftir óveðrið um
helgina en ekkert var t.d. flogið
til Akureyrar frá föstudegi og
fram á þriðjudag. Það biðu því
fjölmargir farþegar eftir að kom-
ast á milli áfangastaða og trúlega
flestir á milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Flugleiðir brugðu á
það ráð og senda Boeing þotu
félagsins tvær ferðir til Akureyrar
Minnir einna helst
á gripaflutninga
- segir Kristbjörg Árnadóttir bæjarstjórafrú
á Akureyri en hún var farþegi til Akureyrar
„Mér flnnst í fyrsta lagi vanta
alla þjónustu hjá Flugleiðum
og ég er alveg undrandi á því
hvað fáir létu óánægju sína í
Ijós, því það var þorri farþeg-
anna sótillur,“ sagði Krist-
björg Antonsdóttir bæjar-
stjórafrú á Akureyri í samtali
við Dag en hún var að ferðast
með tvö ung börn í þotu Flug-
leiða til Akureyrar á þriðju-
dagskvöld og hafði þá ýmislegt
að athuga við þjónustu félags-
ins.
„En af hverju segir fólk ekki
eitthvað. Það getur enginn búist
við því að þessi lélega þjón-
usta batni, ef allir þegja. En þess-
ir menn hjá Flugleiðunt mega
skammast sín fyrir þessa fram-
komu gagnvart farþegunum.
Auðvitað getur veðrið sett strik í
reikninginn í einhverjum tilfell-
um en ég var búin að reyna að fá
skýr svör um brottför allan
þriðjudaginn og óskaði einnig
eftir því að tekið yrði tillit til þess
að ég var með tvö lítil börn en
það gekk ekki og mér var sagt að
ef ég ætlaði norður skildi ég mæta
á tilsettum tíma. Mér var reyndar
lofað því að vélin færi í loftið
ekki seinna en kl. 19.45. Það
stóðst nú aldeilis ekki og maður
hefur stundum á tilfinningunni að
þetta fólk hreinlega ljúgi að
manni.
Okkur var tilkynnt um einnar
klst. seinkun þegar við komum
með rútunni til Keflavíkur en þar
var enginn til þess að útskýra
hlutina fyrir okkur, eða til að
athuga hvort okkur vanhag-
aði um eitthvað. Þá er ekkert til-
lit tekið til þess að fólk er að ferð-
ast með lítil börn að kvöldlagi.
Og þeir vakna ekki til lífsins fyrr
en einhverjir farþeganna eru orðn-
ir fjúkandi illir og farnir að berja
í borðið fyrir framan þá.
Mér og annarri konu var boðið
að koma á bakvið til starfsstúlkn-
anna til að fá mjólk handa börn-
unum, af því að við öskruðum á
þær. Það hafðist einnig í gegn
fyrir frekju okkar og tveggja ann-
arra að kaffiterían var opnuð fyr-
ir farþegana.“
Kristbjörg sagðist ekki trúa
öðru en þarna væru einhverjir
yfirmenn en þeir kæmu aldrei til
að skýra málin og því yrðu
óbreyttir starfsmenn, sem væru
kurteisasta fólk, oft fyrir barðinu
á óánægðum farþegum.
„Þetta ferðalag til og frá Kefla-
vík minnti einna helst á gripa-
flutninga og ég hef heyrt fleiri
farþega sem hafa þurft að fara þá
leiðina, segja það sama,“ sagði
Kristbjörg Antonsdóttir. -KK
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða:
Verið að leita leiða
til að bæta aðstöðuna
„Það hafa veriö vandræöi í
fluginu að undanförnu bæði
vegna veðurs, vélarbilana og
eins vegna þess að við erum
með vélar í skoðun. Það varð
því Ijóst snemma á þriðjudag
að það þyrfti að fara í þotuflug
til Akureyrar og ekki síst þar
sem það biðu 300 manns eftir
því að komast norður,“ sagði
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi
Flugleiða, aðspurður um þær
taflr sem urðu á fluginu til
Akureyrar á þriðjudag.
„Það var boðað í þessi þotu-
flug um hádegi á þriðjudag og
fyrri ferðin var nokkuð á áætlun.
Þó höfðu orðið tafir á vélinni í
millilandafluginu fyrr um daginn
á þriðjudag og var flogið frá
Keflavík.
Þeir farþegar sem áttu bókað
með seinni ferð þotunnar frá
Keflavík á þriðjudag, áttu að
mæta kl. 17.45 í flugstöðina f
Reykjavík. Þar voru þeir síðan
látnir bíða í eina og hálfa klst.,
áður en þeir voru kallaðir í rút-
urnar sem fluttu þá til Keflavík-
ur. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í
Keflavík var komið um kl. 20 og
þá var farþegum tilkynnt um
einnar klst. seinkun til viðbótar
þeirri seinkun sem áður hafði
verið tilkynnt um í Reykjavík.
Þá hugðust farþegar koma sér
fyrir í einni af veitingastofum
flugstöðvarinnar en var þá til-
kynnt að þeim væri öllum búið að
loka og ekki hægt að opna fyrir
farþegana. Þá varð uppi fótur og
fit og eftir að nokkrir farþegar
höfðu gert hávaða við afgreiðslu-
borðið og krafist þess að komast í
veitingaaðstöðuna, var látið und-
an og opnað. Þar gafst farþegum
kostur á að kaupa sér eitthvað í
svanginn en þá dundi enn eitt
áfallið yfir, er tilkynnt var um
hálfrar klst. seinkun til viðbótar
og brottför ákveðin kl. 21.30.
Það gekk eftir og á annað hundr-
að langþreyttir og úrillir farþegar
stigu út úr þotunni á Akureyrar-
flugvelli um kl. 22.15. -KK
15 daga rútuferð
frá Húsavík
1.-16. júní n.k.
Færeyjar - Danmörk - Þýskaland - Noregur
Fyrirhuguð hópferð frá Húsavík til Evrópu
með rútu heiman og heim
Áhugasamir hafi samband í síma 96-42100
FERÐASKRIFSTOFA
HÚSAVÍKUR Sim,96-42100
Björn Sigurðsson sími 96-42200.
f
og eins í ferðinni til og frá Akur-
eyri, þar sem beið fjöldi fólks og
mikil frakt. Seinni ferðin, þar
sem var áætluð brottför kl. 19.45,
var ekki farin fyrr en kl. 21.30.
Þar sem ekki er aðstaða fyrir
farþega í innanlandsflugi í flug-
stöðinni í Keflavík, voru þeir
látnir bíða í Reykjavík og þegar
farþegarnir voru sendir af stað til
Keflavíkur var ekki ljóst hversu
miklar tafirnar voru.“
Einar sagði ennfremur að verið
væri að vinna að því að finna leiðir
til þess að breyta núverandi
ástandi í flugstöðinni í Keflavík,
hvað varðar veitingaaðstöðuna
og aðra aðstöðu fyrir farþega í
innanlandsfluginu, sem þar þurfa
að bíða. -KK
Stórútsala
í Kjallai'a, I lrísalmidi 5
I tsíikui en/i
í fiilhuii
C-7 C_7
Nyjítr vönir komiiar
Opið til ld. 19.00 fimintiidaga
og föstudaga.
IQ. 10-16 laugardaga.
SÍMI
(96)21400
Kjallaii Ilrísalundi
Wit -tt. _ . i
• tr i /yirv'j