Dagur - 02.03.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 02.03.1989, Blaðsíða 5
2. mars 1989 - DAGUR - 5 Ásgarðsvegur 14 á Húsavík, myndin er tekin fyrir ca. 30 árum og á henni sést að nýbúið er að planta trjám vestan við húsið. Ásgarðsvegur 14 og Ásgarðsvegur 16, sjá má trén í görðunum eins og þau líta út að vetrarlagi í dag. Haust við Búðarána, trén eru í garðinum við Ásgarðsveg 16 og skrúðgarð- inum vestan árinnar. Svona litu bakkar Búðarár út fyrir einum 40 árum en þarna er skrúðgarður Húsvíkinga í dag. við að tryggja ríkinu 100 milljón króna tekjur (við erum um 10% þjóðarinnar) með bjórdrykkju til viðbótar við það sem við neytum nú af sterkum vínum og léttum. Við vitum að þessum tekjum fylgir helmingi meiri kostnaður. Ef við kaupum bjór eftir 1. mars, þá verðum við að kaupa minna af öðru áfengi til þess að heildar- neysla okkar vaxi ekki. Hvert okkar þarf að gæta sín og sinna. Það þýðir ekki að líta til nágrann- ans og ætlast til þess að hann minnki neyslu sína. Geymum sterkt öl á svipaðan hátt og annað alkóhól á heimilum okkar, gjarn- an í læstum hirslum. Menn eiga ekki að vera að störfum undir áhrifum áfengis. Þess vegna skul- um við aldrei líða bjórdrykkju í vinnutímanum. Hefjum óáfenga drykki til vegs og virðingar heima og heiman. Týnum ekki niður hinum þjóð- lega sið að bjóða gestum upp á kaffi og meðlæti. Ef við bjóðum til mannfagnaðar þar sem bjór og annað áfengi er á boðstólum, þá skulum við gæta þess að veita bragðgóða, gjarnan skreytta, óáfenga drykki, í fínustu glösun- um. Ollum veitingahúsum með vínveitingaleyfi ber að hafa á boðstólum úrval óáfengra drykkja á hóflegu verði. Fram- reiðslufólkið okkar kann sitt fag og getur örugglega veitt okkur óáfenga drykki í alls kyns til- brigðum ef við bara biðjum um þá. Skemmtum okkur vel án áfengis og veitum æskunni gott fordæmi. Ólafur Hergill Oddsson, héraðslæknir í Norðurlandshéraði eystra. Rádstefna um land■ nýtingu og gróðurvemd Ákveðið hefur verið að halda ráðstefnu um landnýtingu og gróðurvernd á Húsavík 4. mars n.k. Dagskrá ráðstefn- unnar sýnir, að á ráðstefnunni munu helstu fræði- og áhuga- menn um umhverfismál og nýtingu lands, flytja fyrirlestra og fræða almenning. Dagskrá ráðstefnunnar fylgir með til upplýsingar. Aðdragandi Umhverfismál eru í brenni- depli um gjörvallan heim. ísland er þar engin undan- tekning. Almenn vakning hef- ur orðið um breytt viðhorf til gróðurs og gróðurverndar. Á Húsavík er mikill áhugi á að koma þessum málum t það horf að allir geti nýtt þau land- gæði sem okkur standa til boöa og notið þeirra hver á sinn hátt. Tii þess þarf sam- komulag um breytta landnýt- ingu þannig að framtíðarsýn okkar veröi fagurt gróið land, í stað örfoka mela. Tilgangur Tilgangur ráðstefnunnar er, aö vekja áhuga íbúa bæjar- félagsins á umhverfi sínu og gefa öllum kost á, að fræðast um þessi mál frá öllum sjónar- hornum. Ástæða Ástæða þess að nú er mikil þörf á ráðstefnu sem slíkri er, að nú standa Húsvíkingar frammi fyrir því, að land sem tilheyrir kaupstaðnum er illa farið og fer hnignandi í gróð- urfarslegu tilliti. Bæjaryfirvöld hafa tekið af skarið og ákveð- ið, að girða af land sveitar- félagsins til aukinnar friðunar og til að auka möguleika bæjarbúa til að nýta sér landið umhverfis kaupstaðinn til úti- vistar, landgræðslu og skóg- ræktar. Slíkar framkvæmdir kalla á viöbrögð frá íbúum Húsavíkurkaupstaðar, sem allir saman bera að sjálfsögðu ábyrgð á því landi sem kaup- staðnum tilheyrir. Forsenda Forsenda þess að halda slika ráðstefnu er, að það er sann- að að hér má auðveldlega rækta upp land, hvort sem það er skógrækt, trjárækt, landgræðsla eða uppgræðsla örfoka lands. Skrúðgarður Húsvíkinga, skógræktarblettir, lúpínusáning og starf áhuga- manna og hópa að gróður- vernd sýna, að það er ekki aðeins mögulegt að snúa vörn í sókn, heldur gefur það góð- an árangur. Væntingar í kjölfar ráðstefnunnar 4. mars er fyrirhugað að stofna sam- tök um gróðurvernd, land- græðslu og landnýtingu. Þeg- ar hefur verið haft samband við fimmtíu aðila sem eru full- trúar svo til allra þeirra félaga og félagasamtaka sem starfa á Húsavík. Viðbrögö hafa ver- ið aldeilis frábær og verður að telja að nú sé lag, að hrinda af stað meiriháttar átaki í um- hverfismálum á Húsavík. Takist vel til með fram- kvæmd þessara mála hér, má sýna fram á hvernig hægt er að koma þessum málum áleiðis annars staöar. Ljóst er, aö nauðsynlegt er að leysa þessi mál þannig að réttur allra sé virtur innan hagsmuna heildarinnar. Hverjir koma á ráðstefnuna? Allir eru velkomnir að sitja ráð- stefnuna. Sveitarstjórnum vítt og breitt um landið hefur sér- staklega veriö boðið að senda fulltrúa og ráðstefnan verður rækilega kynnt í nágranna- sveitarfélögum Húsavíkur. Landbúnaðarráðherra mun flytja ávarp. Ekkert ráðstefnu- gjald þarf að greiða og Hótel Húsavík og Flugleiðir munu bjóða sérkjör vegna ráðstefn- unnar. Þess er vænst, að frétt- um og fjölmiðlun frá ráðstefn- unni verði vel sinnt, því vart hefur verið haldin ráðstefna um þessi mál þar, sem svo mörg sjónarmið eiga mögu- leika á að koma fram. Helstu hugmyndir Þegar hafa komið fram hug- myndir um hvernig best sé að nýta þá möguleika, sem opn- ast er landið hefur verið friðað. Má þar til nefna verðlauna- hugmynd, sem fram kom í hugmyndasamkeppni átaks- verkefnis á Húsavik, en hún fól í sér, að koma upp skjól- beltum allt umhverfis Húsavík, bæði til að hækka hitastigið og minnka vindþáttinn og spara þannig hundruð þúsunda króna í snjómokstri. Einnig hefur komið fram sú hugmynd, að afhenda félög- um og félagasamtökum svæði til ræktunar og uppgræðslu. Að gróðursetja aspargöng frá syðri bæjarmörkum inn í kaupstaðinn, er hugmynd, sem skotið hefur upp kollin- um, auk hugmynda um sam- tök íbúa í hverfum til að vinna saman að trjárækt í nágrenni hverfa sinna. Er hér þó aðeins fátt eitt til talið. Að lokum • Ráðstefnan er aðeins byrj- unin. Við væntum stuðnings ykkar. cPedlð,my^íZtr, HRAÐFRAMKOLLUN Föstudaginn 3. mars kl. 9.00 opnum við nýjan framköllunarstað að Hofsbót 4 ~\ r Áhersla verður lögð á Super myndir (10x15). Tilboð fyrstu vikuna: 1 stækkun 15x21 fylgir öllum 35 mm filmum, sem koma í framköllun. Veriö velkomin. SJÁUMST. cPeóíoinyndír’ Hofsbót 4 • Sími 23324.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.