Dagur


Dagur - 02.03.1989, Qupperneq 6

Dagur - 02.03.1989, Qupperneq 6
6- DAGUR-2. mars 1989 Rakarastofan verður ^ lokuö frá 12. mars til 6. apríl. Sigryggur Júlíusson. 4 XII lefgu! Tvö skrifstofuherbergi til Ieigu í Gránufélagsgötu 4 (J.M.J. húsinu). Geta verið samliggjandi. Upplýsingar gefur Jón M. Jónsson í símum 24453 og 27630. Veggtennisklúbbur Framhaldsstofnfundur Veggtennisklúbbsins verður haldinn að Bjargi, ,/;/ fimmtudaginn 2. mars ,■ -■ kl. 20.30. r Allir sem áhuga hafa eru hvattir til aö mæta. Undirbúningsnefnd. Hver verður Ung í kvöld verður mikið um dýrðir í Sjallanum á Akureyri, því þar verður krýnd Ungfrú Norðurland 1989. Sex stúlkur, allar frá Akureyri, taka þátt í keppninni að þessu sinni, en útilokað reyndist að fá stúlkur utan Akureyrar í keppnina um Ungfrú Norðurland. Húsið verður opnað kl. 19.00 og verður byrjað á að bjóða upp á fordrykk áður en borðhald hefst. Matseðillinn samanstendur af forrétti sem ber nafnið „Fegurð hafsins“, í aðalrétt verður nautafille með sveppum og koníakspiparsósu og í eftirrétt verður „Drottningartríó“ með regnbogasósu. Að borðhaldi loknu koma stúlkurnar fram í sundbolum og því næst verður tískusýning frá Fan Unique. Að skemmtiatriði loknu koma stúlkurnar fram í síðkjólum og því næst verða úrslit gjörð kunn. Dómnefnd Fegurðarsamkeppni Islands skipa þau Ólafur Ásta Birgisdóttir: Þama er kominn 19 ára Akureyringur. Ásta vinnur í verslun og þegar hún er ekki að vinna stundar hún alhliða útiveru. Mest þykir henni gaman að fara í sund, á skíði og að leika fót- bolta. Hún hefur ekki enn ákveðið hvað hún ætlar að gera í framtíðinni. JONAS VIÐAR sýnir í GAMLA LUNDI 25. febrúar -5. mars NÝ AKRÝLMÁLVERK Opið frá kl. 16.00-22.00 alla virka daga og kl. 14.00-22.00 um helgina. Ásta Björk Matthíasdóttir: Ásta er 18 ára gömul, hún er Akureyringur og leggur stund á nám á verslunarsviði Verk- menntaskólans á Akureyri. Hún hefur áhuga á öllum íþróttum og sjálf æfir hún fótbolta. Ásta stefnir að því að Ijúka stúdentsprófi og halda síðan í nám til útlanda. Brynja Þóranna Viðarsdóttir: Brynja er 18 ára og stundar nám í skrifstofu- tækni hjá Tölvufræðslunni á Akureyri. Helstu áhugamál hennar eru útivist og ferðalög, sér- staklega snjósleðaferðir og þá vill hún geta farið á ball af og til.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.