Dagur - 02.03.1989, Síða 10

Dagur - 02.03.1989, Síða 10
10 - DAGUR - 2. mars 1989 f/ myndosögur dogs 7j ÁRLAND ANPRÉS ÖNP BJARGVÆTTIRNIR # Bjórlausir, nýir og mjúkir í tísku Nýi maðurinn eða mjúki maðurinn er kominn í tísku. Ekki mun átt við mjúkan mann í þeirri merkingu sem átti við marga í gær, þegar þeir voru búnir að kíkja að- eins í ölkolluna eða í þeirri merkingu sem mun eiga víð marga eftir nokkrar vikur, þegar þeir verða búnir að kíkja í margar ölkollur og komnir með bjórvömb. Nei, þessi nýi, mjúki maður, sem er kominn í tísku, er algjör andstæða karlrembanna sem allir eru orðnir leiðir á, t.d. maður sem vinnur við að gæta barna, sinna eða annarra, eða gegna öðrum umönnunarhlutverkum, sem hingað til hafa þótt kvenmannsverk, án þess að skammast sín nokkuð fyrir það, eða þá að hann þykist ekkert skammast sín fyrir það. Tilfinningar karl- manna eru meira að segja komnar í tísku og farið að skrifa um þær leikrit og hvaðeina. # Nýrogmjúkur með hita- elementi En það eru ekki allir karlar sem fylgjast með tískunni og verða svona nýir og mjúkir allt í einu. Ýmiss konar erfiðieikar vegna óvissu í atvinnu- og efna- hagsmálum bitna oft harka- lega á heimilislífi og hjóna- böndum og skilnuðum fjölgar. Eins og sjá mátti í smáauglýsingu í einu helg- arblaðanna, frá einni frúnni sem orðin var leið á gömli' karlrembunni og búin að losa sig við hana, óskaði hún eftir nýjum, mjúkum manni og var auglýsingin á þessa leið: „Óska eftir að kaupa stóran, mjúkan, loð- inn bangsa, helst með hita- elementi. Má vera mikið not- aður og farinn að slitna en skilyrði að hann sé hreinn. Litur og útlit skipta ekki öllu máli, eitthvað af eyrum og augum mætti t.d. vanta en bangsi með möl eða hárlos kemur ekki til greina. Tilboð merkt „nýfráskilin“ sendist blaðinu fyrir næstu helgi.“ dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Fimmtudagur 2. mars 18.00 Heiða (35). 18.25 Stundin okkar - endursýning. 18.50 Táknmálsfréttir. 19.00 Endalok heimsveldis. (End of Empire.) Upphafið að endalokunum. 19.54 Ævintýri Tinna. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Vetrartískan 1988-1989. Nýr þáttur um vetrartískuna í ár. 21.05 Fremstur í flokki. • (First Among Equals.) Fyrsti þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í tíu þáttum byggður á sögu eftir Jeffrey Archer. Fjórir ungir menn eiga sæti á breska þing- inu. Þeir hafa mjög ólíkan bakgrunn en sama markmið: Að verða forsætisráð- herra Bretlands. 22.00 íþróttasyrpa. 22.25 Lena Philipsson á tónleikum. 23.00 Seinni fréttir og dagskrárlok. Sjónvarp Akureyri Fimmtudagur 2. mars 15.45 Santa Barbara. 16.30 Með afa. 18.00 Snakk. 18.20 Handbolti. 19.19 19.19. 20.30 Morðgáta. (Morder She Wrote.) 21.25 Forskot á Pepsí popp. 21.35 Þríeykið. (Rude Health.) 22.00 Fláræði.# Njósnarinn Ira Wells er sestur í helgan stein en tekur aftur til við fyrri störf þegar gamall samstarfsmaður hans, Harry, finnst látinn. Alls ekki við hæfi barna. 23.35 Illgresi. Myndin fjallar um konu sem býr ásamt seinni manni sínum og börnum frá fyrra hjónabandi á afskekktu býli í Kenýa. Lokasýning. Ekki við hæfi barna. 01.00 Dagskrárlok. Rás 1 Fimmtudagur 2. mars 6.45 Veðurfregnir ■ Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. - „Kóngsdóttirin fagra" eftir Bjama Jónsson. Björg Ámadóttir hefur lestur- inn. 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Staldraðu við! Jón Gunnar Grjetarsson sér um neyt- endaþátt. 9.40 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón: Pálmi Matthiasson. (Frá Akur- eyri.) 10.00 Fréttir ■ Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tið. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tílkynningar. 13.05 í dagsins önn - Siðir og venjur. 13.35 Miðdegissagan: „í sálarháska", ævi- saga Áma prófasts Þórarinssonar 14.00 Fréttir ■ Tilkynningar. 14.05 Snjóalög. - Snorri Þorvarðarson. (Frá Akureyri). 15.00 Fréttir. 15.03 Leikrit: „Lögreglufulltrúinn lætur í minni pokann" eftir Georges Courtel- ine. 15.45 Þingfréttir. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Mozart og Boc- cherini. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan. 18.20 Staldraðu við! Tónlist ■ Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.32 Daglegt mál. 19.37 Kviksjá. 20.00 Litli barnatiminn. 20.15 Úr tónkverinu - Einleikarinn. 20.30 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands i Háskólabíói. Fyrri hluti. 21.30 Eldur og regn. Smásögur eftir Vigdísi Grímsdóttur. Erla B. Skúladóttir velur og les. 22.00 Fréttir • Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Guðrún Ægisdóttir les 34. sálm. 22.30 ímynd Jesú í bókmenntum. Annar þáttur. 23.10 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar íslands i Háskólabíói. - Síðari hluti. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Fimmtudagur 2. mars 7.03 Morgunútvarpið. 9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun. Eva Ásrún Albertsdóttir. 11.03 Stefniunót. Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það sem neytendur varðar. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.15 Heimsblöðin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu. Margrét Blöndal og Gestur Einar Jónas- son leika þrautreynda gullaldartónlist. 14.05 Milli mála. Óskar Páll Sveinsson á útkíkki. 16.03 Dagskrá. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum flytjendum. 20.30 Útvarp unga fólksins. 21.30 Fræðsluvarp: Lærum ensku. 22.07 Sperrið eyrun. - Anna Björk Birgisdóttir leikur þunga- rokk á ellefta tímanum. 01.10 Vökulögin. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30. Fréttir eru sagðar kl. 2,4,7, 7.30, 8,8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Ríkisútvarpið á Akureyri Fimmtudagur 2. mars 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Stjarnan Fimmtudagur 2. mars 7.30 Jón Axel Ólafsson vaknar hress og vekur hlustendur með skemmtilegri tónlist við allra hæfi, spjall- ar við hlustendur og tekur púlsinn á ýms- um málum. Fréttir kl. 8 og fréttayfirlit kl. 8.45. 10.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Hver vinnu 10.000 kallinn? Sá eða sú sem hringir í síma 681900 og er hlustandi númer 102, vinnur 10.000 krónur 1 bein- hörðum peningum. Helgi spilar að sjálf- sögðu nú sem fyrr öll nýjustu lögin og kryddar blönduna hæfilega með gömlum, góðum lummum. 14.00 Gísli Kristjánsson spilar óskalögin og rabbar við hlustendur. Síminn er 681900. 18.00 Af líkama og sál. Bjami Dagur Jónsson stýrir þætti sem fjallar um okkur sjálf, manneskjuna og hvernig best er að öðlast andlegt öryggi, skapa líkamlega vellíðan og sálarlegt jafnvægi. Af líkama og sál er opinn vett- vangur fyrir skoðanaskipti og þú getur komið með þína spurningu til viðmæl- anda Bjarna Dags sem verða meðal ann- ars Jóna Ingibjörg, kynfræðingur, Rafn Geirdal, heilsuráðgjafi og Garðar Garð- arsson, samskiptaráðgjafi. 19.00 Setið að snæðingi. Þægileg tónlist á meðan hlustendur snæða kvöldmatinn. 20.00 Sigurður Helgi Hlöðversson og Sig- ursteinn Másson. Þessir tveir bráðhressu dagskrárgerðar- menn fara á kostum á kvöldin. Óskalaga- síminn sem fyrr 681900. 24.00-07.30 Næturstjörnur. Ókynnt tónlist úr ýmsum áttum til morguns. Fréttir á Stjörnunni kl. 8, 10, 12, 14 og 18. Fréttayfirlit kl. 8.45. Hljóðbylgjan Fimmtudagur 2. mars 07.00 Réttu megin framúr. Ómar Pétursson spjaUar við hlustendur í morgunsárið, kemur með fréttir sem koma að gagni og spilar góða tónlist. 09.00 Morgungull. Hafdís Eygló Jónsdóttir á seinni hluta morgunvaktar. Símar 27711 fyrir Norðurland og 625511 fyrir Suðurland. 12.00 Ókynnt hádegistónlist, 13.00 Perlur og pastaróttir. Snorri Sturluson sér um tónlistina þína og lítur m.a. í dagbók og slúðurblöð. 17.00 Síðdegi í lagi. Þáttur fullur af fróðleik og tónlist í umsjá Þráins Brjánssonar. Meðal efnis er Belgurinn, upplýsinga- pakki og það sem fréttnæmast þykir hverju sinni. 19.00 Ókynnt tónlist með kvöldmatnum. 20.00 Pétur Guðjónsson stjórnar tónlistinni á fimmtudagskvöldi. 23.00 Þráinn Brjánsson þægileg tónlist fyrir svefninn. 01.00 Dagskrárlok. Bylgjan Fimmtudagur 2. mars 07.30 Páll Þorsteinsson. Tónlist sem gott er að vakna við - litið í blöðin og sagt frá veðri og færð. Fréttir kl. 8 og Potturinn kl. 9. 10.00 Valdis Gunnarsdóttir. Góð Bylgjutónlist hjá Valdísi. Fréttir kl. 10, 12 og 13. Potturinn kl. 11. Brávallagötuhyskið kemur milli kl. 10 og 11. 14.00 Þorsteinn Ásgeirsson. Góð stemmning með góðri tónlist. Fréttir kl. 14 og 16. Potturinn kl. 15 og 17. Bibba og Dóri milli kl. 17 og 18. 18.00 Fréttir. 18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst þér? Steingrímur og Bylgjuhlustendur tala saman. Síminn er 611111. 19.00 Freymóður T. Sigurðsson. 20.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. 24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.