Dagur - 02.03.1989, Side 11

Dagur - 02.03.1989, Side 11
2. mars 1989 - DAGUR - 11 - 105:80 í síðasta heimaleik vetrarins Sverrir Sverrisson og félagar lians í Tindastólsliðinu rúlluðu IR-ingum upp. og mestur varð munurinn í leikn- um þegar seinni hálfleikur var hálfnaður, 75:45, eða hvorki meira né minna en 30 stig. Pá slökuðu heimamenn aðeins á og ÍR-ingar skoruðu næstu sjö stig. En það dugði ekki til, sprækir Tindastælingar héldu sturluðum ÍR-ingum í um tuttugu og fimm stiga fjarlægð út leikinn og sigr- uðu glæsilega, 105:80. Lið Tindastóls var mjög sann- færandi í þessu leik og á sigurinn svo sannarlega skilið. Það var ekki það að ÍR-ingarnir voru svona lélegir, „strákarnir“ hans Vals voru bara svona góðir, með Eyjólf, Harald, Val og Sverri sem fremstu menn. Til marks um hittni leikmanna Tindastóls í þessum leik, þá hittu þeir úr tíu 3ja stiga skotum, á meðan ÍR- ingar hittu úr fimm. Þetta eitt segir það sem segja þarf um leik- inn. Stig Tindastóls: Eyjólfur Sverrisson 29, Haraldur Leifsson 22, Valur Ingi- mundarson 20, Sverrir Sverrisson 16, Björn Sigtryggsson 10, Kári Marísson 6 og Ágúst Kárason 2. Stig ÍR: Sturla Örlygsson 17, Karl Guðlaugsson 16, Ragnar Torfason 14, Björn Steffensen 10, Gunnar Ö. Þor- steinsson 10, Bragi Reynisson 4 og Eggert Guðntundsson I. Dómarar voru Brynjar Þór Þorsteins- son og Indriði Jósafatsson og komust þeir stórslysalaust frá leiknum. -bjb „Þetta var mjög sanngjarn sigur. Liöiö spilaði góða vörn, sérstaklega í fyrri hálfleik, og sóknin gekk upp, menn hittu úr skotum sínum. Loksins small þetta saman hjá okkur, einn besti leikur okkar í vetur,“ sagði Valur Ingimund- arson þjálfari og leikmaður Tindastóls að loknum sigur- leiknum gegn IR í Flugleiða- deildinni sl. þriðjudagskvöld. Tindastóll vann með miklum yfirburðum, 105:80, og var sig- ur heimamanna aldrei í hættu allan leiktímann. Það var Haraldur Leifsson sem gaf tóninn gegn ÍR-ingum. Hann gerði fyrstu sjö stig Tindastóls og eftir 2ja mínútna leik var staðan 7:3 fyrir heimamenn. Áfram hélt Tindastóll að auka forskot sitt og þegar fyrri hálfleikur var hálfnað- ur var staðan 24:11. Þá kom slæmur kafli hjá Tindastóli og ÍR- ingar skoruðu níu stig í röð og allt í einu var staðan orðin 24:20. En nær fengu ÍR-inga ekki að komast. Tindastóll fór aftur í gang og náði á skömmum tíma 10 stiga forskoti. Leikmenn Tinda- stóls létu ekki þar við sitja og á síðustu tveim mínútum fyrri hálf- leiks skoruðu þeir tíu stig á með- an gestirnir skoruðu ekki eitt ein- asta. Þegar leikmenn gengu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 44:25 fyrir Tindastól. Tindastóll hélt uppteknum hætti i seinni hálfleik, lokaði vörninni og í sókninni gekk allt upp. Forskotið jókst jafnt og þétt íþróttir Flugleiðadeildin í körfu: Tindastóll burstaði ÍR Karfa: KR fór í gang í síðari hálfleik Þrátt fyrir góða baráttu og hagstæð úrslit í leikhléi í leik Þórsara og KR-inga í körfu- knattleik tókst norðanmönn- um ekki að fylgja því eftir í síð- ari hálfleik og urðu að lokum að sætta sig við stórtap 95:68 á Akureyri. Leikurinn átti upphaflega að vera á mánudagskvöldið en var frestað vegna veðurs. Honum var síðan skellt á í flýti á þriðjudag- inn og tókst ekki að auglýsa hann að neinu ráði og voru því áhorf- endur sárafáir. En þrátt fyrir fáa áhorfendur var leikurinn hin ágætasta skemmtun, sérstaklega í fyrri Keppendur í Kjarnagöngunni eru á öllum aldri. Skíðaganga: Skíðatríimnmót í Kjama í kvöld - Allir þátttakendur fá viðurkenningu kvöld fer fram árlegt skíða- jngumót í Kjarnaskógi við kureyri, en móti þessu varð S fresta á dögunum vegna eðurs. Mótið er öllum opið til átttöku, skráning fer fram á aðnum og er fólk hvatt til að ika þátt í því. Dagskrá göngunnar er sú, að kl. 18.00 fer fram tímataka og lýkur henni kl. 19.00. Þá tekur við almennt trimmmót þar sem keppendur geta gengið einn eða fleiri hringi. Allir keppendur sem taka þátt í mótinu fá viðurkenn- ingar fyrir þátttökuna sem gefnar Aðalfundur Þórs Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Glerár- skóla sunnudaginn 5. mars kl. 14.00. á sunnudaginn Á dagskrá verða lagabreyting- ar og venjuleg aðalfundarstörf. Þórsarar eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfsemi félagsins. eru af Skógræktarfélagi Eyja- fjarðar, en þeir gefa einnig verð- launagripina. Áætlað er að mót- inu ljúki kl. 22.00 í kvöld. Takmarkað pláss fyrir bfla - Mætið því snemma Vert er að benda fólki á að koma snemma til að forðast troðning og einnig að takmarkað pláss er fyrir bíla á bílastæðinu við Kjarnaskóg. Mjög algengt er að heilu fjölskyldurnar hafi tekið sig saman og tekið þátt í þessu Trimmmóti í Kjarnaskógi og hvetja aðstandendur göngunnar sem flesta að drífa sig í Kjarna- skóg í kvöld til að taka þátt í mótinu. VG - og lagði Þór 95:68 hálfleik. KR-ingar spiluðu stífa pressuvörn allan völlinn en Þórs- liðinu tókst furðanlega vel upp gegn slíkri leikaðferð. Boltinn var látinn ganga hratt manna á milli og oft sáust skemmtileg til- þrif í sókninni. Á tímabili Ieit úr fyrir að KR- ingar myndu stinga heimamenn af en með góðri baráttu og ágæt- um leik tókst Þórsurum að minnka muninn í tvö stig fyrir leikhlé, 43:41 fyrir KR. í síðari hálfleik dró hins vegar ört í sundur með liðunum. KR- ingar skoruðu jafnt og þétt á rneðan ekkert gekk í sókninni hjá Þór. Þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum höfðu þeir rauðklæddu ekki skorað nema sex stig og þar með var leikurinn tapaður. Þórsarar hresstust að vísu und- ir lokin en 27 stiga sigur þeirra röndóttu var staðreynd, 95:68. Guðmundur Björnsson átti mjög góðan leik með Þórsurum í fyrri hálfleik og skoraði grimmt. Rétt fyrir leikhlé meiddist hann síðan og náði sér engan veginn á strik í þeirn síðari. Eiríkur Sig- urðsson var einnig drjúgur að vanda og gafst aldrei upp. Hjá KR var Guðni Guðnason yfirburðamaður og réðu Þórsarar ekkert við hann í síðari hálfleik. Einnig átti Birgir Mikaelsson góðan leik. Stig Þórs: Guðmundur Björnsson 17, Eiríkur Sigurðsson 17, Björn Sveinsson 12, Kristján Rafnsson 12, Þórir Guð- laugsson 4, Einar Viðarsson 2, Jóhann Sigurðsson 2 og Þórður Wathne 2. Stig KR: Guðni Guðnason 23, Birgir Mikaelsson 18, Matthías Einarsson 16, Ólafur Guðmundsson 13, ívar Webster 8, Jóhannes Kristbjörnsson 7, Hörður Gunnarsson 5, Lárus Árnason 5. Þau neyðarlegu mistök urðu á íþróttasíðu í gær að frétt birtist einum degi of snemma. Það var að sjálfsögðu fréttin um leik Þórs og ÍS sem fram á að fara í kvöld í Reykjavík, en ekki í gærkvöld eins og fréttin gaf til kynna. Von- andi hefur þetta ekki sett melt- inguna úr lagi hjá neinum og ef Þór leikur eins og þeir gerðu gegn KR er engin hætta á öðru en liðið haldi sér meðal þeirra bestu. ______________________AP Veggtennis: Framhalds- aðalfundur í kvöld að Bjargi Framhaldsaðalfundur Vegg- tcnnisklúbhsins verður haldinn að Bjargi í kvöld fímmutdag kl. 20.30. Allt áhugafólk um veggtennis er hvatt til að mæta. Stofnfundurinn var haldinn síðastliðið föstudagskvöld og voru þar lögð fram drög að lög- um klúbbsins, árgjaldi o.fl. Markmið veggtennisklúbbsins er að efla íþróttina og stuðla að framgangi hennar, veita klúbb- meðlimum aðstöðu og kennslu, stofna til áskorendamóta innan klúbbs og koma af stað keppnum við aðra veggtennisklúbba á landinu. Vert er að hvetja alla íþrótta- áhugamenn til að fjölmenna á þennan fund því Akureyri hefur upp á bjóða eina bestu veggtenn- isaðstöðu í landinu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.