Dagur


Dagur - 02.03.1989, Qupperneq 12

Dagur - 02.03.1989, Qupperneq 12
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR rFIÁRFESTINGARFÉLACID Ráðhústorgi 3, Akureyri Litli drengurinn sem dróst með bíl í Vestursíðunni: Slapp með skrámur og er nú hress og kátur kraftaverk að ekki fór á verri veg Betur fór en á horfðist á föstudaginn í síðustu viku þegar tæplega tveggja ára gamall drengur dróst með bíl u.þ.b. hálfan kílómeter í Vestursíðu á Akureyri. Það má telja kraftaverki næst að barnið slapp svo til ómeitt frá þessu atviki og í dag sjást aðeins á honum nokkrar skrámur í andliti sem eru að gróa. Dagur heimsótti snáðann sem heitir Ólafur Sveinn Gíslason og móður hans, Guðnýju Andra- dóttur í gær og báðum við hana að segja okkur frá tildrögum slyssins. Fjölskyldan býr við Vestur- síðu 2, sem er raðhús og var Guðný með Ólaf Svein fyrir utan húsið. Hún þurfti að bregða sér inn augnablik og þegar út kom á ný, var Ólafur Sveinn horfinn. Hún og eldri sonur hennar, Ingvar Örn, fóru strax að leita, en datt ekki ann- að í hug en að hann væri á næstu grösum. „Skömmu seinna var komið til mín og mér sagt að hann hafi orðið fyrir bíl og ég beðin að koma. Þá var sjúkrabíll kominn og jafnvel haldið að dekk bílsins hefði far- ið yfir hann, en það kom í ljós að svo var ekki sem betur fer.“ Talið er að sjálft slysið hafi viljað þannig til, að Ólafur Sveinn hafi dottið aftan við bif- reiðina sem stóð á bílaplani við húsið. Ökumaður tók ekki eftir honum þegar ekið var af stað, en grunaði fljótlega að eitthvað væri að; hélt jafnvei að sprungið væri á bílnum. Drengurinn hafði flækst fastur undir bílnum og þegar bíllinn var stöðvaður var hann orðinn blár í framan því naglar í dekki voru farnir að toga í úlpuna og hún þrengdi að. Hann lét strax hraustlega í sér heyra þegar losað var um hálsmálið. Talið er að þykk húfa sem Ólafur Sveinn var með hafi bjargað miklu, því hann marðist mikið á eyrum og skrámaðist á höfði. VG Ánægð mæðgin, Ingvar Örn sem er að verða 7 ára ásamt móður sinni Guðnýju Andradóttur og Ólafi Sveini sem nú er hinn hressasti. Mynd: tlv Forráðamenn H.Ó. ræddu við ráðherra og aðra fyrirmenn: Augumanna beinast nú að hlutaí j ársjóðnu m Forsvarsntenn nýs frystihúss í Ólafslirði, Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf., binda miklar vonir við að það muni njóta fyrirgreiðslu nýstofnaðs hluta- fjársjóðs, en þessa dagana er verið að ganga frá reglugerð fyrir hann. Forráðamenn frystihússins ræddu í síðustu viku við ráð- herra, þ.á.m. Steingrím Her- mannsson, forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, um hvernig best væri staðið að rekstri nýs samein- aðs frystihúss í Ólafsfirði. Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri, segir að ráðherrarnir hafi tekið vel í málaleitan forráðamanna H.Ó. og lýst ánægju sinni með það skref að sameina frystihúsin tvö í Ólafsfirði. Febrúarmánuður varð Akureyrarbæ þungur í skauti: Þrjár og hálf milljón í snjómokstur Auk ráðherra ræddu H.Ó.- menn við bankastjóra Lands- bankans, forráðamenn Byggða- stofnunar, Atvinnutryggingar- sjóðs, Fisveiðasjóðs og fleiri. Sem fyrr er rætt um að At- vinnutryggingarsjóður veiti nýju frystihúsi í Ölafsfirði fyrir- greiðslu. Sú fyrirgreiðsla kæmi þó til eftir að hlutafjársjóður hef- ur styrkt stoðir fyrirtækisins með framlagningu hlutafjár. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig staðið verður að því að deila fjár- magni úr hlutafjársjóði til at- vinnufyrirtækja eða hvenær sjóð- urinn hefur starfsemi. Það skýrist ekki fyrr en gengið hefur verið frá reglugerð um hlutafjársjóð- inn. Enn er óljóst hvenær hjól fryst- ingar í Ólafsfirði byrja að snúast. Bjarni Kr. Grímsson vill ekki spá fyrir um hvenær af því getur orðið. Hann segist hins vegar vonast til að á næstunni geti formlega hafist saltfiskvinnsla á vegum Hraðfrystihúss Ólafs- fjarðar. óþh „Gainli rauður“ árgerð ’46 til i slaginn. Mynd: TLV Hverjir bíða í „biðröðinni löngu“ hjá Húsnæðisstofnun: Um 57% umsækjenda í eigin húsnæði - aðeins einn veghefill frá bænum verið í lagi undanfarna daga að fólk vilji hafa hlutina í full- komnu lagi en það veltir ekki vöngum yfir hvaða kostnaður fylgir því. Við þessu er ekkert að gera, við búum norður undir heimskautsbaug og verðum að vera undir það búin að svona ástand skapist," sagði Guðmund- ur, og bætti við að hann teldi óráðlegt að fjölga snjómoksturs- tækjum bæjarins. Stefán Baldursson, forstöðu- maður SVA, segir að strætis- vagnarnir hafi átt í miklum erfið- leikum og haldi ekki áætlun á réttum tíma vegna ófærðar. Vissulega séu strætisvagnaleiðir ruddar en djúp hjólför geri vögnunum erfitt fyrir. Hann er þeirrar skoðunar að betur þurfi að fylgja mokstrinum eftir með því að hefla niður í malbik á aðalgötum. EHB Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa átt annríkt undanfarna daga við að ryðja snjó af göt- um bæjarins. Bæjarfélagið á ellefu tæki sem hægt er að nota til snómoksturs, allt frá litlum dráttarvélum upp í veghefla og jarðýtur. Á laugardaginn fór lega í sjálfskiptingu í Clarke- hefli bæjarins og er hann úr leik í bili. Frá því að þetta gerðist hefur aðeins Caterpill- arhefill Akureyrarbæjar ver- ið í gangi en í gær var verið að gera við „Gamla rauð“, veg- hefíl frá árinu 1946, og setja á hann snjóplóg. Guðmundur Guðlaugsson, verkfræðingur hjá Akureyrarbæ, sagði að febrúarmánuður hefði verið bænum dýr hvað snjó- mokstur snerti. Ljóst væri að þrjár og hálf milljón króna hefðu farið í moksturinn þennan eina mánuð og stefndi allt í að meira fé færi í þennan lið bæjarútgjalda í ár en gert var ráð fyrir. Akureyrarbær hefur undanfar- ið fengið hjólaskóflur hjá verk- tökum til að moka snjó af skóla- lóðum í bænum því bæjarstarfs- menn komust ekki yfir að taka að sér fleiri verkefni. Megináhersla er lögð á að ryðja aðalgötur og strætisvagnaleiðir á Akureyri en þrátt fyrir það eru margar göt- urnar illfærar. En telja yfirmenn bæjarins að þeir hafi orðið fyrir ósanngjarnri gagnrýni vegna snjómoksturs? „Það er eðlilegt Húsavík: Nýtt hlutafélag leigir stöð Fiskeldis - mikill meirihluti þeirra telur húsnæði sitt mjög gott Fyrirtæki og einstaklingar, alls níu aðilar á Húsavík, hafa sam- einast um að stofna hlutafélag til kaupa á seiðum og leigu á stöð Fiskeldis hf, og til að kaupa eignir fyrirtækisins ef tok verða á. Stjórn Fiskeldis óskaði eftir gjaldþrotaskiptum 30. des. sl. Fyrirtækið er eig- andi seiðaeldisstöðvar í Haukamýri, rétt sunnan við Húsavíkurbæ. Stærsti hluthaf- inn í fyrirtækinu er Finnbogi Kjeld. Bústjóri Fiskeldis er Sigurður G. Guðjónsson hdl. og hefur hann tekið tilboði hinna níu aðila um kaup á seiðum þeim sem í stöðinni eru og leigu á stöðinni til 1. ágúst nk. í stöðinni eru um 79 þúsund sjógönguseiði, auk sumaralinna seiða. Bæjarstjórn Húsavíkur samþykkti á fundi sín- um sl. þriðjudag að Húsavíkur- bær gerðist aðili að hinu nýja hlutafélagi. IM Félagsvísindastofnun Háskól- ans hefur birt niðurstöður könnunar sem gerð var fyrir Húsnæðisstofun ríkisins m.a. á því hverjir eru nú í biðröðinni eftir láni úr almenna húsnæðis- lánakerfínu en um 10000 manns eru nú í biðröðinni og biðtími eftir láni er orðinn um 34 mánuðir. Samkvæmt könn- uninni búa 57% umsækjenda í eigin húsnæði og 3/4 þeirra telja sig búa í mjög góðu eða fremur góðu húsnæði. I niðurstöðunum kemur enn- fremur fram að um helmingur þeirra umsækjenda sem búa í eig- in húsnæði eiga íbúð í fjölbýlis- húsi. Hins vegar eru um 17% sem búa í einbýlishúsi og 31% í tví- býlis-, rað- eða litlu sambýlishúsi. í könnuninni var einnig skoðað hverjir ætla í biðröðina löngu á næstu tveimur árum. Af þeim hópi búa 33% þegar í eigin hús- næði og 64% þeirra telja sig búa í góðu eða fremur góðu húsnæði. Ekki kemur á óvart að stór hópur þeirra sem eru nú þegar með umsókn í gangi eða ætla að sækja um á næstu tveimur árum er fólk sem er í leiguhúsnæði. Yfir 20% þeirra sem ætla að leggja inn umsókn á næstu tveim- ur árum býr nú í foreldrahúsum. Þegar spurt var úr hvernig fjöl- skyldugerðum umsækjendur koma urðu niðurstöður þær að 63% þeirra sem sótt hafa um lán eru par með barn eða börn. Af þeim hópi sem íhugar að leggja inn umsókn eru pör með börn einnig stærstur hluti. Það vekur hins vegar athygli að um 30% þeirra sem ætla að sækja um eru barnlausir einstaklingar. JÓH Frá og með 1. mars er verðlag Dags sem hér segir: Mánaðaráskrift kr. 900. Grunnverð dálksentimetra auglýsinga kr. 595. Lausasölu- verð kr. 80.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.