Dagur - 22.03.1989, Síða 3

Dagur - 22.03.1989, Síða 3
Miðvikudagur 22. mars 1989 - DAGUR - 3 Hátt í 3000 félagar í BHMR hafa boðað verkfall frá og með 6. apríl: Forleiknum er lokið og nú hljóta menn að ræða það sem máli skíptir - segir Birgir Björn Sigurjónsson Fjölmörg félög innan BHMR hafa nú samþykkt verkfalls- boðun frá og með 6. apríl ef samningar hafa ekki náðst fyrir þann tíma. Innan BHMR eru um 3300 manns en ætla má að allt að 3000 manns hafi nú þeg- ar boðað verkfal). í gær voru talin atkvæði um verkfallsboð- un hjá fjórum félögum, Útgarði, Félagi þjóðfélags- fræðinga, Kjarafélagi arki- tekta og Kennarafélagi Kenn- araháskóla Islands. Urslit lágu ekki fyrir þegar Dagur hafði síðast spurnir af. Vinnuópar störfuðu í gær en boðaður hef- ur verið samningafundur deilu- aðila í dag. Þau félög innan BHMR sem boðað hafa verkfall þann 6. apríl nk., ef samningar hafa þá ekki tekist, eru: Félag íslenskra nátt- úrufræðinga, 'Félag íslenskra fræða, Félag bókasafnsfræðinga, Félag háskólamenntáðra hjúkr- unarfræðinga, Félag íslenskra sjúkraþjálfara, Iðjuþjálfafélag íslands, Matvæla- og næringa- fræðingafélag íslands, Stéttar- félag félagsfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu, Sál- fræðingaféiag íslands og Hið tslenska kennarafélag. Ólokið er talningu í tveimur félögum, Dýra- læknafélagi íslands og Félagi háskólakennara. Eina félagið sem til þessa hefur fellt verkfallsboðun er Félag fréttamanna, en í því eru frétta- menn á Ríkisútvarpinu og -sjön- varpi. Félög innan BHMR, að Hinu íslenska kennarafélagi undan- skildu, hafa sameiginlega samn- inganefnd í viðræðum við samn- inganefnd ríkisins. HÍK hefur eigin samninganefnd í viðræðum við ríkið. í atkvæðagreiðslu 'HÍK voru 1161 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 960, eða 82,7%. Hlynntir verk- fallsboðun voru 506 eða 52,7% en andvígir 417 eða 43,4%. Ógildir seðlar voru 3 eða 0,3% og auðir 34 eða 3,6%. í HÍK eru framhaldsskólakennarar að stærstum hluta. Þó eru um 300 félagar í HÍK sem kenna í grunn- skólum landsins. Hugsanlegt verkfali kennara myndi því einnig koma illa við skólahald í grunn- skólum. Wincie Jóhannsdóttir, formað- ur Hins íslenska kennarafélags, segist vænta þess að verkfallsboð- un HÍK og fjölmargra annarra félaga innan BHMR muni þrýsta verulega á samninganefnd ríkisins að ganga frá samningum. Hún seg- ir að kennarar vilji vissulega leggja sín lóð á vogarskálarnar til að ljúka samningagerð við ríkið fyrir 6. apríl nk. „Nóg er a.m.k. búið að vinna í þessum málum af hálfu kennarasamtakanna síð- ustu 12-14 mánuði," segir Wincie. Hún segir það hins vegar flækja málið nokkuð að ríkisvaldið virð- ist snúast jafnmikið í kringum samningagerð við Alþýðusam- bandið og sína eigin starfsmenn. Þrátt fyrir að ekki hafi komið í ljós yfirgnæfandi vilji félaga í HÍK til að boða til verkfalls segir Wincie það hins vegar liggja á borðinu að menn vilji knýja fram leiðréttingu á kjörum. „Það er engin hætta á öðru en menn standi þétt saman um ákvörðun meirihluta félaga í HÍK,“ segir Wincie Jóhannsdóttir. „Það er ekkert launungarmál að við viljum ná sömu launum og háskólamenn sem vinna á almennum markaði," segir Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðing- ur hjá BHMR. „Við erum tilbún- ir til að ræða útfærslu á launa- kerfi sem er hliðstætt og hjá há- skólamönnum á almennum mark- aði.“ Birgir segir að engin viðbrögð hafi enn fengist frá fulltrúum Arsþing Ungmennasambands Skagafjaröar, þaö 69. í röö- inni, var haldið í Félagsheimil- inu Bifröst á Sauðárkróki um síöustu helgi. Um 50 þingfull- trúar mættu á staðinn og fóru þingstörf vel fram. Fjöldi mála var til umræðu, auk hefðbund- inna þingmála, og lauk árs- þinginu á að ný stjórn var kjörin. Nýr formaður UMSS er Guðmundur Ingimarsson frá Varmahlíð og tekur hann við af Sveinbirni M. Njálssyni frá Hólum, sem ekki gaf kost á sér áfram. Þá var tilkynnt um val á íþróttamanni Skagafjarð- ar 1988 og Lilja María Snorra- dóttir, sundkonan frækna, hlaut þann heiður. Tók hún við verðlaunum á ársþinginu. Lilja María hlaut 35 stig af 36 mögulegum í kjörinu og kemur þetta engum á óvart, öll vitum við glæsilegan árangur Lilju á síðasta ári. í öðru sæti varð knattspyrnu- og körfuknattleiks- maðurinn Eyjólfur Sverrisson með 28 stig, Berglind Bjarna- dóttir frjálsíþróttakona varð í þriðja sæti nteð 26 stig, Örn Sölvi Halldórsson kylfingur varð fjórði með 12 stig og fimmti varð Helgi Sigurðsson frjálsíþróttakappi með 8 stig. Alls hlutu 10 íþrótta- menn stig í kjörinu um íþrótta- mann Skagafjarðar 1988. Einnig voru afhent verðlaun á ársþing- inu fyrir stigahæstu einstaklinga í skólamótum í frjálsum íþróttum og einnig sérstök verðlaun til þeirra sem settu 10 eða fleiri hér- aðsmet á síðasta ári. Aðeins einn íþróttamaður náði að setja 10 héraðsmet og var það Unnur samninganefndar ríkisins við þessari kröfugerð háskólamanna. „Ég held að forleiknum hljóti nú að vera lokið og menn fari að setjast niður og ræða það sem máli skiptir," segir Birgir Björn. Ekki tókst að hafa upp á for- svarsmönnum samninganefndar ríkisins í gær. óþh Hallgrímsdóttir sem setti 10 hér- aðsmet í sundi. Gestir þingsins voru Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi á Akureyri og stjórnarmaður Í.S.Í., Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri UMFÍ og Guðjón Ingimundarson, heiðurs- félagi í UMSS. Fluttu þeir ávörp á þinginu. Fjöldi tillagna lá fyrir þinginu og voru þær flestar samþykktar, m.a. ný Lottóreglugerð UMSS og ýmsar lagabreytingar. í reikn- ingum kom fram að á síðasta ári varð tap á rekstri UMSS rúmlega- 400 þúsund krónur. Tekjurnar hrukku ekki fyrir gjöldunum, sem voru tæpar 2 milljónir. -bjb Kópasker: Deyfð yfír atvinnulífi Frekar dauft er yfir atvinnulíf- inu á Kópaskeri um þessar mundir. Gunnþóra Jónsdóttir á skrifstofu Presthólahrepps sagði að vinnsla hefði legið niðri í rækjuvinnslu Sæbliks frá því fyrir síðustu mánaða- mót og þá hefur lítið gefið á sjó. Gunnþóra sagði að ástandið væri heldur dauft í atvinnumál- unum en fólk sinnti félagsmálum af krafti og mikið hefði verið um námskeið á Kópaskeri. Menn hefðu a.m.k. nægan tíma núna til þess að rækta félagsstörf en vissu- lega vonaðist fólk eftir betri atvinnuhorfum. SS Lilja María Snorradóttir var kjörin íþróttaniaöur Skagafjaröar 1988 og tók hún viö vcrölaununum á ársþingi LJiVlSS. Hcr cr þaö fráfarandi forniaöur UIVISS, Sveinbjörn M. Njálsson, scni afhcndir Lilju viöurkeiininguna. Mynd: -bjb 69. ársþing UMSS: Lilja María kjörin íþrótta- maður Skagafjarðar 1988 - 400 þúsund króna tap á síðasta ári Flytjum um páskana úr Hafnarstræti í Draupnisgötu 4 TEIKNISTOFAN STÍLL Halldórsmót B.A. Halldórsmót Bridgefélags Akureyrar hefst þriðjudaginn 28. mars. Um er að ræða sveitakeppni með Board-O-Match fyrirkomulagi. Þátttökutilkynningar þurfa að berast stjórn B.A. fyrir kl. 16.00 mánudaginn 27. mars (2. í páskum). Stjórn B.A. aðstoðar við myndun sveita ef óskað er. Spilafólk á Akureyri og nágrenni er hvatt til aÖ skrá sig. Stjórn B.A. Akureyringar Ferskar fréttir með morgunkaffinu ÁskriftarlSr 96-24222 Ingimar Eydal og félagar leika dinnerjass fimmtudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. ★ Verið velkomin Borðapantanir í sima 22200

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.