Dagur - 22.03.1989, Qupperneq 4
c - HtjM'AC! - S8vf r.ierri .£.$ 'iugfibu.>iiv6iM
4 - DAGUR - Miðvikudagur 22. mars 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍNII: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Steftit í átök
Margt bendir til þess að ófriðlegt verði á
vinnumarkaðinum í vor. Fjölmörg félög innan
BHMR hafa boðað verkfall frá og með 6. apríl,
hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.
Fleiri félög eru þessa dagana að funda um
aðgerðir og búast má við frekari verkfallsboð-
unum innan fárra daga.
Verkfallsrétturinn er nauðsynlegt en jafn-
framt vandmeðfarið vopn. Hann er það vopn
sem síðast á að beita í kjarabaráttu; þ.e. þeg-
ar aðrar leiðir til samkomulags hafa verið full-
reyndar án árangurs. Samningsaðilum ber
skylda til að gera sitt ítrasta til að komast hjá
ófriði á vinnumarkaðinum en því miður hefur
stundum viljað brenna við að verkfallsvopnið
sé notað of fljótt og þá fyrst og fremst til þess
að auka þrýsting á vinnuveitendur. En eftir
að verkfall hefur verið boðað verður naumast
aftur snúið.
Það er sérstaklega mikilvægt nú að komist
verði hjá verkföllum, því staða flestra fyrir-
tækja er þannig að þau mega alls ekki við
vinnustöðvun um lengri eða skemmri tíma.
Einnig er vert að hafa í huga að almennt
atvinnuástand í landinu er verra en um langt
árabil og batnar örugglega ekki við það að
svo og svo mörg fyrirtæki stöðvist vegna
verkfalla.
Sú spurning er áleitin hvort reynt hafi verið
til þrautar að ná samkomulagi áður en verk-
fallsvopnið var tekið úr farteskinu. Er borin
von að samningar náist án þess? Reynslan
sýnir að eftir því sem deilur á vinnumarkaði
verða harðari, þeim mun meiri og óbilgjarnari
verður kröfugerðin. Launþegar vilja auðvitað
fá tekjumissi vegna verkfalls bættan. Komi til
verkfalla nú eykst hættan á nýrri verðbólgu-
holskeflu til mikilla muna.
í blaðinu í dag er haft eftir Birgi Birni Sigur-
jónssyni, hagfræðingi BHMR, að engin við-
brögð hafi enn fengist frá fulltrúum samn-
inganefndar ríkisins við kröfugerð háskóla-
manna. „Ég held að forleiknum hljóti nú að
vera lokið og menn fari að setjast niður og
ræða það sem máli skiptir," segir hagfræð-
ingurinn. Gæti hugsast að millikaflann vanti í
verkið? Eða er ekki fullmikið bráðlæti að
stökkva beint úr forleiknum yfir í lokastefið?
Ljóst er að tímaskortur fer senn að há
samningsaðilum. Nú er hálfur mánuður til
stefnu uns boðuð verkföll koma til fram-
kvæmda. Launþegar og vinnuveitendur
verða að nýta þann tíma vel. Hann er ekki
langur en samt nógu langur ef vilji er fyrir
hendi. Svo mikið er víst að þjóðin hefur ekki
efni á verkföllum eins og málum er komið.
BB.
Nytjakýr á Norðurlandi
Uppgjöri á kúaskýrslum fyrir
árið 1988 er nú nýlokið og sýnir
útkoman að efstu kýrnar hafa
enn bætt sig og mjólka ótrúlega
mikið miðað við eigin þyngd.
íslenska nautgriparæktunar-
starfið hefur borið mikinn árang-
ur og bændúr eru að uppskera
margra ára vinnu en myndu
vissulega yfir heildina njóta enn
betur ef ekki væri fyrir hendi
framleiðslutakmarkanir, því
margir eru hættir að „pína
kýrnar“ eins og sagt er.
Fyrir 60 árum þóttu það góðar
kýr sem fóru yfir 3000 kg sem er
meira en helmingi minna magn,
en þær kýr sem hér eru á listan-
um, mjólka.
í fornöld mjólkuðu kýr hér á
landi enn minna sem má sjá af
því að yfirleitt mun hafa verið ein
kýr á hvern vinnandi mann í
landinu og ekki óalgengt að
bændur hefðu jafnmargar kýr í
nyt eins og hjúin voru mörg.
Þetta breyttist seinna og var talið
um tíma að ein kýr væri á hverja
fimm íbúa.
Þau naut sem eigaflestar dætur
í þessum hópi eru: Skúti 11,
Brúskur 7, Víðir 5, Bratti 5, Bát-
ur 4, Ylur 4, Birtingur 4 og Fáfnir
3. Þessi naut eru bændum ekki
ókunnug enda margar góðar kýr í
landinu út af þeim.
Þrátt fyrir að ræktunin hafi
borið góðan' árangur má margt
bæta og segir ekki alla sögu hve
mikið kýrnar mjólka. Menn vilja
vita meira um ættir þeirra nauta
sem notuð eru til framhaldsrækt-
unar, sérstaklega hvað varðar
heilsufar en margir leggja orðið
mikið upp úr því að eiga hrausta
.gripi.
100 nythæstu kýr á Norðurlandi 1988
Nr. Nafn Faðir Mjólk kn Eigandi Bær
1 Laufa Víðir 9462 Sverrir Magnússon Efri Ás 1, Hólahreppi
2 Skvetta Vaskur 8820 Félagsbúið Syðri-Bægisá, Öxnadal
3 Flóra 99999 8632 Sverrir Magnússon Efri Ás 1, Hólahreppi
4 Gullhúfa Brúskur 8360 Kristján B. Pétursson Ytri-Reistará, Arnarneshreppi
5 Sveitasaela Göltur 8256 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
6 Frekja 99999 8032 Símon E. Traustason Keitu, Rípurhreppi
7 Rín Álmur 8029 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
8 Kvóta Skúti 7762 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
9 Gola Frami 7753 Félagsbúið Hríshóli, Saurbæjarhreppi
10 Kotasæla Njörður 7731 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
11 Skúta Skúti 7680 ÞorsteinnTr. Þórðarson Grund, Svínavatnshreppi
12 Blanda Bátur 7566 Félagsbúið Syðri-Bægisá, Öxnadal
13 Sexspen Skáli 7546 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
14 Einsemd Ylur 7495 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
15 Kolbrún Kuldi 7437 Pálmar Jóhannesson Egg, Ripurhreppi
16 Stjarna Vaskur 7410 Félagsbúið Baldursheimi, Mývatnssveit
17 Ljósbrá Brúskur 7387 Félagsbúið Baldursheimi, Mývatnssveit
18 Birta Birtingur 7373 Eymundur Þórarinsson Saurbæ, Lýtingsstaðahreppi
19 Linda Forkur 7368 Þorsteinn Tr. Þórðarson Grund, Svínavatnshreppi
20 Kola Brúskur 7325 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
21 Hyrna Álmur 7315 Sveinbjörn Sigurðsson Búvöllum, Aðaldal
22 Stúka Templari 7182 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
23 Flóra 99999 7171 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
24 Mysa Bratti 7143 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
25 106 Gljái 7137 Tilraunastöðin Möðruvöllum, Arnarneshreppi
26 Hengja 99999 7115 Sigurður Björnsson Stóru-Akrar, Akrahreppi
27 Rák Birtingur 7072 Ólöf Þórsdóttir Bakka, Öxnadalshreppi
28 Skjalda Hringur 6978 Þorsteinn Tr. Þórðarson Grund, Svínavatnshreppi
29 Spes Stjarni 6971 Félagsbúið Holtsseli, Hrafnagilshreppi
30 Grágás Kappi 6964 Félagsbúið Klauf, Öngulgsstaðahreppi
31 Folda Skúti 6941 Benjamtn Baldursson Ytri-Tjörnum, Öngulsstaðahreppi
32 Brúska Skúti 6921 Sigurður Björnsson Stóru-Akrar, Akrahreppi
33 Fála Brúskur ' 6860 Sigmar Jóhannsson Sólheimum, Staðarhreppi
34 Drottning Skúti 6846 Pálmar Jóhannesson Egg, Rípurhreppi
35 Búkolla Skúti 6829 Félagsbúið Hrafnsstöðum, Ljósavatnshreppi
36 Kýrunn Völlur 6811 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi
37 Stúra Bátur 6780 Laxamýrarbú Laxamýri, Reykjahreppi
38 Ljómalind Már 6779 Sigmar Jóhannsson Sólheimum, Staðarhreppi
39 Bleik Barði 6765 Simar Jóhannsson Sólheimum, Staðarhreppi
40 Flóra 99999 6731 Tilraunastöðin Möðruvöllum, Arnarneshreppi
41 Branda 99999 6728 Ármann Skjaldarson Skáldsstöðum, Saurbæjarhreppi
42 Lísa Forkur 6726 Ólafur Magnússon Sveinsstöðum, Sveinsstaðarhreppi
43 Gríma Frændi 6712 Félagsbúið Efri-Dálksstöðum, Svalbarðsströnd
44 Hosa 99999 6639 Elías Guðmundsson Stóru-Ásgeirsá, Þorkelshólshreppi
45 Bletta 99999 6629 Sveinn Jónsson Ytra-Kálfsskinni, Árskógshreppi
46 Grána Bratti 6629 Sigurgeir Hannesson Stekkjardal, Svinavatnshreppi
47 Spóla Finnur 6614 Félagsbúið Efri-Dálksstöðum, Svalbarðsströnd
48 Linda Fáfnir 6605 Grímur Jóhannesson Þórisstöðum, Svalbarðsströnd
49 Blika Álmur 6599 Sigmundur Sigurjónsson Hvassafelli, Saurbæjarhreppi
50 Sokka Ylur 6592 Félagsbúið Syðri-Bægisá, Öxnadal
51 Rauðbrá Kuldi 6587 Sigmar Jóhannsson Sólheimum, Staðarhreppi
52 Magna Askur 6583 Tilraunastöðin Möðruvöllum, Arnarneshreppi
53 Sóley Skúti 6570 Félagsbúið Baldursheimi, Mývatnssveit
54 Mörk 99999 6563 Erlingur Garðarsson Neðra-Ási 1, Hólahreppi
55 Branda Nikki 6558 Ari Jónsson Sólbergi, Svalbarðsströnd
56 Gribba Borgþór 6554 Sverrir Magnússon Efri-Ás 1, Hólahreppi
57 Grána 99999 6547 Bjarni Maronsson Ásgeirsbrekku, Viðvíkurhreppi
58 Von Gljái 6543 Sigurgísli Sveinbjörnsson Hrisum, Saurbæjarhreppi
59 Formósa Skúti 6527 Jón og Sigurbjörg Búrfelli, Ytri-Torfustaöahreppi
60 Kola Skúti 6523 Félagsbúið Fellshlíð, Saurbæjarhreppi
61 Laufa Lambi 6519 ÞorsteinnTr. Þórðarson Grund, Svinavatnshreppi
62 Linda 99999 6507 Félagsbúið Hríshóli, Saurbæjarhreppi
63 Árbót Víðir 6482 Félagsbúið Rauðafelli, Bárðardal
64 Stina Álmur 6481 Hörður Guðmundsson Svertingsstöðum, Öngulsstaðahreppi
65 Hnoðra Skúti 6476 Walter Ehrat Hallfríðarstöðum, Skriðuhreppi
66 Karen Jóki 6474 Sveinn Jónsson Ytra-Kálfsskinni, Árskógshreppi
67 Skrauta Brúskur 6473 Félagsbúið Syðri-Bægisá, Öxnadal
68 Nótt Bratti 6469 Sverrir Magnússon Efri-Ás 1, Hólahreppi
69 Kola Brúskur 6468 Félagsbúið Krónustöðum, Saurbæjarhreppi
70 Huppa Fáfnir 6466 Þorsteinn Rútsson Þverá, Öxnadal
71 Pæja Blíður 6463 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
72 Karólína Kappi 6457 Sverrir Magnússon Efri-Ás 1, Hólahreppi
73 Tinna Bratti 6455 Bjarni Kristinsson Rifkelsstöðum I, Öngulsstaðahreppi
74 Yrja Magni 6454 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
75 Toppa 65811 6446 Ásmundur Kristinsson Höfða 2, Grýtubakkahreppi
76 Bredda Víðir 6443 Pálmar Jóhannesson Egg, Rípurhreppi
77 Búkolla 99999 6439 Pálmi Ragnarsson Garðakoti, Hólahreppi
78 Lukka Bratti 6427 Þorlákur Jónasson Vogar II, Mývatnssveit
79 Mósa Víðir 6422 Viðar Þorsteinsson Brakanda, Skriðuhreppi
80 Murta Varmi 6421 Pálmar Jóhannesson Egg, Rípurhreppi
81 Grána 99999 6408 Sigmar Jóhannsson Sólheimum, Staðarhreppi
82 Skeifa Birtingur 6403 Félagsbúið Syðri-Bægisá, Öxnadal
83 Gæf 99999 6400 Félagsbúið Hrafnsstöðum, Ljósavatnshreppi
84 Lýra Birtingur 6398 Sigurður Björnsson Stóru-Akrar, Akrahreppi
85 Rönd Bátur 6394 Félagsbúið Hríshóli, Saurbæjarhreppi
86 Gjörð Víðir 6393 Ólafur A. Thorlasíus Öxnafelli, Saurbæjarhreppi
87 Brandrós 99999 6373 Tilraunastöðin Möðruvöllum, Arnarneshreppi
88 Kringla 99999 6364 Jens B. Guðmundsson Gili, Skarðshreppi
89 Díla Brúskur 6362 Jón Laxdal Nesi, Grýtubakkahreppi
90 Skúta Bátur 6361 Sturla Eiðsson Þúfnavöllum, Skriðuhreppi
91 Blesa Kaktus 6354 Sigurður Friðriksson Stekkjarflötum, Akrahreppi
92 Grána Skáli 6353 Sveinn Jónsson Ytra-Kálfsskinni, Árskógsströnd
93 Skrauta Ýlir 6345 Sverrir Magnússon Efri-Ás 1, Hólahreppi
94 Sóta Templari 6344 Tilraunastöðin Möðruvöllum, Arnarneshreppi
95 Rauðka Skúti 6344 Þorsteinn Tr. Þórðarson Grund, Svínavatnshreppi
96 Skrauta Ylur 6341 Árni Hermannsson Ytri-Bægisá 1, Glæsibæjarhreppi
97 Búkolla Ylur 6337 Sigurgeir Pálsson Sigtúnum, Öngulsstaðahreppi
98 Sunna Fáfnir 6332 Erlingur Garðarsson Neðra-Ási 1, Hólahreppi
99 Dimma Bergur 6331 Birgir Þórðarson Öngulsstöðum 2, Öngulsstaðahreppi
100 Skíma Þróttur 6331 Sverrir Magnússon Efri-Ás 1, Hólahreppi