Dagur - 22.03.1989, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 22. mars 1989
„Erum bestir í kuldaskóm“
Um þessar mundir er Iiðin tæp
„meðganga“ síðan skóverk-
smiðjan Strikið á Akureyri tók
til starfa, en sem kunnugt er
keyptu nokkrir athafnamenn
verksmiðjuna af Sambandinu á
síðasta vori. Ætla má að 9
mánuðir séu hæfileg meðganga
fyrir skóverksmiðju til að
koma sér af stað og því lék
okkur forvitni á að vita hvernig
gengi hjá nýliðunum. Nú, það
kom í Ijós að „barnið“ fæddist
fullburða fyrir löngu því langt
er síðan þeir hjá Strikinu kom-
ust á fullt skrið og þeir eru
langt frá því að kvarta eins og
svo margir þessa dagana; þeir
eru hæstánægðir.
„Fyrirtækið er gert upp mán-
aðarlega og okkur hefur alltaf
tekist að halda okkur réttu
megin við núllið. Við vitum svo
sannarlega hvaða ástand ríkir nú
í þjóðfélaginu og hlökkum því
mjög til næsta góðæris," sagði
Haukur Ármannsson fram-
kvæmdastjóri með fangið fullt af
skóm þegar blaðamenn Dags bar
að garði. Hann þurfti ekki að
eyða löngum tíma í að sannfæra
okkur um að þeir vissu hvað þeir
væru að gera, skórnir töluðu sínu
máli.
Sérstaðan felst í
skömmum afgreiðslutíma
Aðspurður um hvort ekki væri
erfitt að standa í samkeppni við
erlenda innflutta skó sagði Hauk-
ur, að þeir hjá Strikinu leggðu
alla áherslu á sérstaka þjónustu
við viðskiptavininn. „Sérstaða
okkar er sú, að við getum afgreitt
pantanir á mun skemmri tíma en
innflytjendurnir. Á meðan af-
greiðslutíminn á innfluttum skóm
er um 6-8 mánuðir, tekur það
okkur aðeins 1-2 mánuði að
afgreiða pantanir. Þá getum við
sömuleiðis afgreitt mun smærri
pantanir en innflytjendurnir sem
kemur sér vel fyrir okkar við-
skiptavini."
Þegar Strikið tók til starfa voru
viðskiptavinir verksmiðjunnar
um 28-29 talsins. í dag eru þeir
orðnir um 130, en af þeim er stór
hluti aðrir aðilar en verslanir svo
sem ýmsar stofnanir og fyrirtæki
sem sjá starfsfólki sínu fyrir
vinnufatnaði. Sem dæmi má
nefna að vetrar- og sumarskór á
alla lögreglumenn og tollverði
eru framleiddir hjá þeim. Þessa
aukningu viðskiptavina þakkar
Haukur dugnaði sölumanna.
„Við auglýsum lítið en leggjum
áherslu á persónuleg tengsl.“
Sölumenn Striksins eru því mikið
á ferðinni og sagði Sigurður
Magnússon sölumaður sem
staddur var á staðnum, að af 60
dögum fyrstu tvo mánuði ársins
hafi hann aðeins verið 15 daga
heima hjá sér, sem aðallega staf-
aði af ófærð. Þetta hlutfall ætti
eftir að minnka með hækkandi
sól og betri færð.
Starfsfólkið fylgist með
Hjá Strikinu vinna nú 42 starfs-
menn sem er 7 fleiri en þegar
starfsemin hófst í ágúst. Allir
starfsmennirnir unnu áður hjá
Skóverksmiðju Sambandsins og
höfðu margir mjög langa starfs-
reynslu. „Við réðum til okkar
alla fyrrverandi starfsmenn sem
vildu starfa áfram. Þá byrjuðum
við á því að afnema bónuskerfi
og taka upp fasta yfirborgun sem
gerir að verkum að við losnum
v'ið allt stress og fáum enn vand-
iðri vinnu. Starfsfólkið okkar
ylgist svo grannt með gangi fyrir-
- rætt við Hauk Ármannsson hjá Strikinu á Akureyri
tækisins því við setjum reglulega
upp yfirlit um ýmsa þætti rekst-
ursins á kaffistofunni." Fram-
leiðslan er að jafnaði um 150 pör
á dag, 3000 á mánuði og um
40.000 pör á ári. Heildarskósala í
landinu er um ein milljón pör á
ári svo verksmiðjan er með um
4% markaðshlutdeild. Leðrið í
skóna er aðallega flutt inn frá
Bretlandi, Noregi, Danmörku og
Portúgal og sólarnir frá Portúgal,
Danmörku og Noregi. Haukur
sagði að þeir hefðu nýlega gert
nýja innkaupasamninga á leðri
sem þeir vonuðust til að gerðu að
verkum að verð á skóm héldist
óbreytt þrátt fyrir yfirvofandi
launahækkanir.
Eins og Japanarnir . . .
Hjá Strikinu er lögð áhersla á
„venjulega“ skó, þ.e. svokallaða
klassíska skó. Þrátt fyrir þetta fer
Sigurður Magnússon og Haukur
Ármannsson glaðbeittir á svip.
tíska ekki framhjá þeim; t.d. eru
skór með stáltá áberandi nú,
enda slíkir skór vinsælir ferming-
arskór. „Við erum að fara að
kynna vetrarlínuna ’89 í verslun-
um fyrir næstu helgi, en við erum
bestir í kuldaskónum. Þar leggj-
um við áherslu á vandaða, vel
fóðraða skó. Þá erum við líka
mjög góðir í karlmannaskóm,
enda erum við flestir karlmenn
sem ráðum þessu og framleiðum
skó eins og þá sem við sjálfir
myndum vilja ganga á. Okkur
vantar ennþá pínulítið til að vera
fullkomlega ánægðir með kven-
línuna hjá okkur, en það á eftir
að koma.“ Varðandi liti, eru um
70% af framleiðslu Striksins
svartir skór, einfaldlega vegna
þess að þeir eru mest keyptir. Þar
á eftir koma skór í mildum brún-
um litum.
Aðspurður um hönnun sagði
Haukur, að þeir færu venjulega
þá leið að fara til útlanda, líta í
skóverslanir og spyrjast fyrir um
hvaða skór séu vinsælastir. „Svo
kaupum við eitt par af hverjum,
förum heim og framleiðum 1000
eins pör,“ sagði Haukur að lok-
um og bætti við „svona eins og
Japanarnir gera!“ VG
Hjá Strikinu vinna nú 42 starfsmenn
sem er 7 fleiri en þegar starfsemin
hófst í ágúst.
Hjá Strikinu er lögð áhersla á „venjulega“ skó, þ.e. svokallaða klassíska skó, og framleiðslan er 150 pör á dag.
Myndir: TLV