Dagur - 22.03.1989, Síða 11
Miðvikudagur 22. mars 1989 - DAGUR - 11
fþrótfir
Knattspyrna:
Kostic leikur
með Þórsurum
Gengið hefur verið frá því að
júgóslavinn Kostic leiki með
Þórsurum í 1. deildinni í knatt-
spyrnu næsta sumar. Hann er
mjög alhliða leikmaður og get-
ur leikið flestar stöður á vellin-
um. Það liggur Ijóst fyrir að
hann á eftir að styrkja þá rauð-
Kostic Icikur í Þórsbúningi næsta
sumar.
klæddu mjög mikið í hinni
sterku deildakeppni sem fram
undan er.
Hann dvaldi hér á landi um
nokkurn tíma nú í marsmánuði
og lék nokkra æfingaleiki með
liðinu. Þar stóð hann sig mjög vel
og þess má geta að eftir að hann
fór í vörnina var ekki skorað
mark hjá Þórsurunum. Kostic fór
aftur til heimalands síns en er
væntanlegur hingað til lands strax
eftir páska.
Það liggur því Ijóst fyrir að
tveir Júgóslavar leika með Þórs-
liðinu næsta sumar því Tanevski
er þegar kominn til landsins og
æfir nú á fullu með liðinu.
Þórsliðið fer að öllum líkind-
um suður um páskana og leikur
nokkra æfingaleiki við sunnlensk
lið yfir hátíðarnar. Þó er mögu-
leiki að þessari ferð verði frestað
um eina viku vegna þess að erfitt
er að fá æfingaleiki á þessum
tíma.
Sund:
Óðmskrakkarair
stóðu sig vel
- á sundmeistaramótinu
Sundfólk úr Óðni tók þátt í
íslandsmótinu innanhúss í
sundi um síðustu helgi og stóð
sig vel. Fjórtán Akureyrarmet
féllu og eftir mótið var Svavar
Þór Guðmundsson valinn í
úrvalslið Islands sem keppir í
Iandskeppni Skotlands, Islands
og írlands í Ulster á Irlandi í
byrjun apríl.
Birna Hrönn Sigurjónsdóttir,
Elsa María Guðmundsdóttir,
Ottó K. Túliníus og Svavar Þór
Guðmundsson komust níu sinn-
um í úrslit á mótinu. Bestum
árangri náði síðan Svavar sem
lenti í þriðja sæti í 200 m fjór-
sundi á 2:18.98 og 100 m flug-
sundi á 1:01.12.
Elsa María setti þrjú Akureyr-
armet; í 200 m fjórsundi á
2:38.19, í 100 m bringusundi á
1:19.90, í 200 m bringusundi á
2:51.58.
Birna Hrönn Sigurjónsdóttir
setti þrjú Akureyrarmet; í 800 m
skriðsundi á 10:07.88, í 400 m
skriðsundi á 4:55.33 og í 200
skriðsundi á 2:22.07.
Svava Hrönn Magnúsdóttir
setti Akureyrarmet meyja í 100
m bringusundi á 1:26.69.
Boðsundssveitir Óðins stóðu
sig vel og settu þrjú Akureyr-
armet: A-karlasveit Óðins (Svav-
ar Þór Guðmundsson, Hlynur
Túliníus, Pétur Pétursson og
Ottó Karl Túliníus) setti Akur-
eyrarmet í 4x200 m skriðsundi á
9:04.49.
A-kvennasveit Óðins (Sonja
Gústafsdóttir, Elsa María Guð-
mundsdóttir, Hrafnhildur
Örlygsdóttir og Birna Hrönn Sig-
urjónsdóttir) setti Akureyrarmet
á 10:21.79.
í 4x100 m fjórsundi setti A-
kvennasveit Óðins (Hrafnhildur,
Svava Hrönn, Elsa María og
Birna Hrönn) Akureyrarmet,
synti á 5:11.59.
A-kvennasveitin í 4x100 m
skriðsundi (Sonja, Hrafnhildur,
Elsa María og Birna Hrönn) setti
met og synti á 4:43.45.
Undirbúningur undir skíðalandsmútið á Siglufirði gengur vel og verður það
sett í kvöld þrátt fyrir slæma spá. Anna M. Malmquist verður meðal kepp-
enda. Mynd: TLV
Skíði:
María og Kristinn
unnu tvöfalt
á mótinu á Húsavík
Um síðustu helgi var haldið á
Húsavík Yisa-bikarmót á skíð-
um fyrir 15-16 ára. Einnig var
lokið við mót sem fresta þurfti
á Isafirði fyrir hálfum mánuði.
Keppendur voru rúmlega 50
og fór' mótið mjög vel fram.
Kristinn Björnsson frá Ólafs-
firði og María Magnúsdóttir frá
Akureyri voru sigursæl á Húsa-
vík og sigruðu þau bæði í svigi og
stórsvigi. En lítum þá á úrslitin:
Stórsvig piltar:
1. Kristinn Björnsson Ó.
María Magnúsdóttir frá Akureyri
sigraði í svigi og stórsvigi á Húsavík.
Mynd: óþh
Sundfólkið Ottó K. Tulinius , Svavar Þ. Guðmundsson, Birna H. Sigurjónsdóttir og Elsa M. Guðmundsdóttir kom-
ust níu sinnum í úrslit á innanhússmeistaramótinu í sundi. Mynd: ap
2. Arnar Bragason H.
3. Ólafur Óskarsson Ó.
Stórsvig stúlkur:
1. María Magnúsdóttir A.
2. Harpa Hauksdóttir A.
3. Sara Halldórsdóttir í.
Svig piltar:
1. Kristinn Björnsson Ó.
2. Ólafur Óskarsson Ó.
3. Gísli Reynisson ÍR.
Svig stúlkur:
1. María Magnúsdóttir A.
2. Linda B. Pálsdóttir A.
3. Sóley Sigurðardóttir H.
Stórsvig stúlkur:
1. Unnur A. Valdimarsdóttir Ó.
2. María Magnúsdóttir A.
3. Sóley Sigurðardóttir H.
Svig piltar:
1. Ólafur Óskarsson Ó.
2. Magnús H. Karlsson A.
3. Jóhann B. Gunnarsson í.
Handbolti:
Karl til
Hollands
- með drengja-
landsliðinu
Karl Karlsson úr KA hefur
verið valinn í drengjalandsliðið
t handknattleik sem keppir á
alþjóðlegu móti í Hollandi um
páskana.
Þetta er svokallað Benelux-
mót og keppa þar landslið Hol-
lands, Belgíu, Luxemborgar og
íslands. Eftirtaldir leikmenn hafa
verið valdið til keppninnar:
Markmenn:
Ingvar Ragnarsson Stjörnunni
Ásgeir Baldurs UBK
Sigurður Þorvaldsson Fram
Útileikmenn:
Karl Karlsson KA
Andri V. Sigurðsson Fram
Jason K. Ólafsson Fram
Leó Hauksson Fram
Ragnar Kristjánsson Fram
Dagur Sigurðsson Val
Óskar Óskarsson Val
Gunnar Kvaran UMFA
Ríkharður Daðason UMFA
Halldór Eyjólfsson KR
Patrekur Jóhannesson Stjörnunni
Páll Þórólfsson Þrótti
Karl Karlsson úr KA er eini norðan-
pilturinn í drengjalandsliðinu í
handknattleik.
Úrslitakeppnin í handknattleik:
Þór í 5. sæti
- í úrslitum 4. flokks
Þórsarar lentu í 5. sæti í úrslita-
keppni í 4. flokki í handknatt-
leik sem fram fór í Hafnarfirði
um helgina. Þór spilaði um 5.-
6. sætið við Stjörnuna og sigr-
aði örugglega, 17:11.
Þórsarar léku í b-riðli með ÍR,
FH, UBK og KR. Á föstudags-
kvöldið vann Þór Breiðablik með
24 mörkunt gegn 20 og síðar um
kvöldið gerði liðið jafntefli við
KR, 14:14. Á laugardaginn unnu
Þórsarar ÍR með 18 mörkum
gegn 13 en síðar um daginn töp-
uðu þeir naumlega fyrir FH,
12:13. Með sigri í þeim leik hefðu
Þórsarar hins vegar getað komist
í úrslitaleikinn.
KR sigraði í b-riðlinum en
Fram sigraði í a-riðli og í úrslita-
leik sigraði KR. Haukar unnu
FH í keppninni um 3. sætið, Þór
vann Stjörnuna í leik um 5.
sætið, Týr vann UBK í leik um 7.
sætið og ÍR vann Valsmenn í leik
um 9. sætið í tvíframlengdum
leik.
Af öðrum úrslitum í yngri
flokkum má nefna að Stjarnan
sigraði Víking í úrslitum í 2.
tlokki kvenna 10:8. ÍBK sigraði
Breiðablik í úrslitum í 4. flokki
kvenna 8:7. FH lagði HK í úrslit-
um í 6. flokki pilta 4:3. JÓH
Handknattleikur/1. deild:
KA og UBK í kvöld
- heil umferð í 1. deildinni
Heil umferð verður í 1. deild-
inni í handknattleik í kvöld.
KA flýgur suður og keppir við
Breiðablik í Kópavogi kl. 20.15.
Blikarnir eru nánast fallnir í 2.
deild, en KA verður að vinna
leikinn til þess að koma sér úr
fallhættu.
Aðrir leikir í umferðinni eru
Valur og Víkingur, Stjarnan og
ÍBV, FH og KR og Fram og
Grótta.
nmrtwm'
ttfc' k.' k.'tt l'VUC «1
ctvvvivn inktiMKdttr
*tnnnn,i8v;vjnsv,'t