Dagur - 22.03.1989, Síða 12
Kodak
Express
Gæöaframköllun
k ★Tryggðufilmunniþinni
^besta ^PedrGmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Innanlandsflug Flugleiða:
Akureyri, miðvikudagur 22. mars 1989
Straumiirimi liggur norður
Á mánudagskvöld tepptust
fjórar Fokker vélar Flugleiða á
Akureyrarflugvelli en þær
komust aftur til Reykjavíkur
um hádegisbil á þriðjudag.
Veður skánaði á Akureyri um
kl. 11-13 og komust vélarnar
þá á loft en síðan versnuðu
skilyrðin aftur og var óvíst með
framhaldið um miðjan dag í
gær. Þá var von á Fokker vél
um kl. 16.
Skíðalandsmót íslands á Siglufirði:
Óveður og snjókoma settu
strík í reikninginn
- Ólafsfirðingar ætla sjóleiðis á keppnina
ef ekki viðrar til flugs
Slæmt veður hefur tafið undir-
búning skíðalandsmótsins í
Siglufirði. Kristján Möller,
mótsstjóri, segir að stökkbraut
sem búið var að ryðja upp fyrir
skíðastökkið hafl horflð í
óveðrinu. Þá hefur skaflð yfir
göngubrautirnar og verður að
ryðja þær og rétta af á ný.
„Veðrið hefur gert allan undir-
búning miklu erfiðari,“ sagði
Kristján. „Við vorum langt
komnir um helgina og á sunnu-
daginn var dýrðlegt veður. Þá
vorum við langt komnir með að
byggja upp stökkbrautina en sú
vinna fór öll forgörðum vegna
veðursins. Menn standa eiginlega
í sömu sporum og þegar þeir
byrjuðu á verkinu. Snjókoman
hefur gert okkur erfitt fyrir uppi í
Skarði því mikinn snjó hefur sett
í keppnisbrekkurnar og bakkarn-
ir eru ekki eins vel troðnir og
harðir nú eins og þeir voru um
síðustu helgi.“
Ætlunin er, að sögn Kristjáns
Möller, að setja skíðalandsmótið
í kvöld, svo framarlega sem ein-
hverjir keppendur og eftirlits-
menn verða komnir til Siglufjarð-
ar. Heldur illa horfði þó með
veður og færð í gær, Ólafsfjarð-
armúli lokaður og einnig vegir í
nágrenni Siglufjarðar, eins og
reyndar víða á Norðurlandi.
Ólafur Harðarson, skíðaþjálf-
ari í Ólafsfirði, sagði að tólf
keppendur og fararstjórar færu á
landsmótið frá þeim, þrír í alpa-
greinum og fimm í norrænum
greinum. Ætlunin væri að fara
með flugvél frá Flugfélagi
Norðurlands fyrir hádegi í dag.
Ef ekki yrði flogið myndi skíða-
fólkið fara sjóleiðina til Siglu-
fjarðar, það hefði verið gert áður
í svipuðum kringumstæðum.
EHB
Gunnar Oddur Sigurðsson,
umdæmisstjóri Flugleiða, sagði
að farþegar frá mánudegi og þeir
sem voru bókaðir með morgun-
flugi á þriðjudag hefðu komist
með vélunum fjórum til Reykja-
víkur í gær. Hann sagði að
straumurinn lægi hins vegar
norður og það yrði flogið stans-
laust eftir því sem veður- og
brautarskilyrði leyfðu. Ekki var
ráðgert að senda Boeing þotu til
Akureyrar í gær því skilyrðin á
flugbrautinni uppfylltu ekki
ströngustu kröfur varðandi þot-
una.
Búist er við fjölda farþega
norður um páskana og er skíða-
fólk þar að sjálfsögðu áberandi.
Ekki verður flogið á vegum Flug-
leiða á föstudaginn langa og
páskadag, en á annan dag páska
er búist við miklu annríki og
sagði Gunnar Oddur að þá yrðu
farnar tvær þotuferðir milli
Akureyrar og Reykjavíkur, auk
ferða með Fokker vélunum.
„Það eru gífurlega margar
bókanir komnar fyrir alla pásk-
ana og er lunginn hingað norður
fyrir páska og síðan suður eftir
páska,“ sagði Gunnar Oddur og
hann vonaðist til að veðrið skán-
aði svo áætlun Flugleiða gæti
komist í samt lag. SS
Flug hefur gengið erfiðlega undanfarið. Á myndinni sést starfsmaður Flug-
leiða vera að afísa einn Fokkerinn með heitu vatni. Mynd: tlv
Hús í Grímsey hoifin í snjó:
Þetta er alveg skuggalegt"
segir Héðinn Jónsson, en hann þarf að byija hvem dag á að moka sig út úr húsinu
Þaö er ekki ofsögum sagt að
kyngt hafl niður snjó í Grímsey
síðustu daga. I fyrradag og
fyrrinótt snjóaði þar án afláts
og mönnum ber saman um að
snjór hafl ekki verið þar meiri í
vetur. Sum hús eru bókstaflega
komin á bólakaf í Grímsey og
fólk hefur þurft að byrja hvern
dag að undanförnu á því að
moka sig út.
Héðinn Jónsson, sjómaður, býr
í raðhúsi sem vart sést lengur í.
Eða svo vitnað sé til orða hans:
„Það er varla nema loftnetið sem
stendur orðið upp úr.“ Héðinn
segir að fannfergið sé „alveg
skuggalegt“. „Það má eiginlega
segja að gatið sem maður sér út
Skólanefnd Aktirevrar klofnaði
vegna tíllögu formannsins
Miklar umræður urðu á fundi
Bæjarstjórnar Akureyrar í gær
um skólamál í Síðuhverfl.
Björn Jósef Arnviðarson, for-
maður skólanefndar, mælti
fyrir tillögu um að kennsla fyr-
ir 7.-9. bekki grunnskóla verði
í Síðuskóla þar til annað verð-
ur ákveðið. Skólanefnd er
klofln í afstöðu sinni til
málsins.
í febrúar 1987 samþykkti
bæjarstjórn að tveir safnskólar
skyldu vera á Akureyri fyrir 7.-9.
bekki, Glerárskóli og Gagn-
fræðaskóli Akureyrar. Þessi
ákvörðun olli íbúum Síðuhverfis
áhyggjum og virðast margir
þeirra henni mótfallnir. í greinar-
gerð með tillögu sinni segir Björn
Jósef að telja verði unnt að koma
nemendum 7.-9. bekkja fyrir
næsta skólaár í núverandi hús-
næði. Þó sé Ijóst að skólaárið
Kolbrún Þormóðsdóttir: „Megum
ekki teíja að samfelldur skóladagur
náist sem fyrst.“
1990-91 muni þrengja verulega
að starfsemi skólans. Til að mæta
vandanum til bráðabirgða er bent
á þann möguleika að kaupa laus-
ar kennslustofur. Á fundinum
upplýsti formaður skólanefndar
að slík kennslustofa kostaði um
3,5 milljónir króna, fullbúnar.
„Ég læt undan þrýstingi íbúanna
því ég tel illt að þröngva kerfi
upp á fólk sem trúir ekki á það.
Hér er verið að koma til móts við
vilja íbúanna,“ sagði Björn
Jósef.
Kolbrún Þormóðsdóttir, vara-
bæjarfulltrúi, á sæti í skólanefnd.
Hún sagði að tillaga formanns
nefndarinnar stefndi að því að
seinka því mikilvæga markmiði
að samfelldur skóladagur næðist
við alla grunnskóla bæjarins.
Nemendafjöldi Síðuskóla muni
fara langt fram úr því sem heppi-
legt þyki, einnig sé alvarlegt að
ætlast til að skólahúsnæði verði
byggt norðan Glerár með þeim
afleiðingum að framkvæmdum
seinki við aðra grunnskóla bæjar-
ins, fyrir liggi að stækka þurfi
Síðuskóla fljótlega fyrir 0.-6
bekk. „Við erum ekki að tala um
að senda yngstu krakkana út í
umferðina heldur að gera kröfu
til nemenda í 7.-9. bekk í þá veru
að þeir sæki vel útbúinn safn-
skóla lengra að,“ sagði Kolbrún.
Rafn Hjaltalín lagði til að
byggður verði nýr skóli við
Bugðusíðu fyrir 0.-6. bekki en
samþykkti tillögu formannsins að
öðru leyti. Magnús Aðalbjörns-
son lét bóka í skólanefnd að hann
lýsti fullum stuðningi við fyrri
ákvörðun um tvo safnskóla og
rökstuddi skoðun sína m.a. með
því að þannig næðist samfelldur
skóladagur í öllum grunnskólum.
Freyr Ófeigsson lagði til að
afgreiðslu málsins yrði frestað og
það lagt fyrir bæjarráð til frekari
umfjöllunar. Það var samþykkt
með 6 atkvæðum. EHB
um á morgnana sé ekki stærra í
þvermál en skólprör.“
Segja má að skeflt hafi að
umræddu raðhúsi í fyrstu eigin-
legu vetrarveðrunum en áhlaup
síðustu daga hefur ekki orðið til
að bæta ástandið. „Ég er að
hugsa um að ná í dráttarvél þegar
styttir upp og moka frá húsinu.
Kannski maður geti þá séð til
sólar,“ segir Héðinn.
Norðanstórhríðin síðustu daga
hefur sett heldur betur strik í
reikninginn fyrir trillusjómenn-
ina í Grímsey. Þeir gátu hvorki
farið á sjó í fyrradag né gær og
því höfðu þeir ekki haft tækifæri
til að taka upp netin eins og lög
gera ráð fyrir um páskahátíðina.
Frá og með gærdeginum hófst
þorskveiðibann hjá bátunum en
þeim er heimilt að leggja netin á
ný kl. 10 árdegis á þriðjudag eftir
páska. Sjómenn í Grímsey biðu í
gær eftir að lægði þannig að unnt
væri að draga upp netin.
Unnið var í gær hjá Fiskverkun
KEA og lýkur vinnu þar í kvöld
fyrir páskaleyfi. Það verður þó
enginn griður gefinn því vinnu-
vettlingarnir verða dregnir fram
nk. laugardag til að meta saltfisk.
Einnig verður unnið hjá Fisk-
verkuninni á annan dag páska.
Veðrið hefur sett félagslíf
Grímseyinga úr skorðum. Ætlun-
in var að halda árshátíð Kiwanis-
manna í kvöld en sýnt þykir að
ekki verður unnt að ljúka fisk-
verkuninni í eynni fyrr en undir
kvöld. Félagslífið verður því að
þessu sinni að víkja fyrir vinn-
unni í Grímsey. óþh