Dagur - 31.03.1989, Side 1

Dagur - 31.03.1989, Side 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 72. árgangur Ákureyri, föstudagur 31. mars 1989 61. tölublaö Ólafur Skúlason fékk hreinan meirihluta atkvæða í biskupskjöri: „Vil fyrst og fremst standa ad góðum verkum“ í gær fór fram talning atkvæöa í biskupskjöri. Ólafur Skúla- son, dómprófastur, hlaut hreinan meirihluta atkvæöa eða 55.9% og er því rétt kjör- inn biskup. Olafur mun taka viö embætti biskups íslands þann 1. júlí í sumar þegar Pétur Sigurgeirsson lætur af embætti. Atkvæðin í biskupskjörinu skiptust á milli 8 manna. Ólafur Skúlason hlaut 89, Heimir Steins- son 31, Sigurður Sigurðsson 20, Jón Bjarmann 11, Árni Bergur Sigurbjörnsson 2, Þórhallur Sr. Ólafur Skúlason. Höskuldsson 1, Einar Sigur- björnsson 1 og Sigurður Guð- mundsson 1. Auðir seðlar voru 3 og samanlagt greiddu því 159 atkvæði. „Ég er þakklátur og auömjúk- ur gagnvart þessu. Auðvitað langar mann fyrst og fremsta til að standa að góðum verkum og einhverjar breytingar koma alltaf með mannaskiptum. En það verða engar byltingar eða neitt svoleiðis. Svoleiðis lagað má aldrei vera í kirkjunni," sagði Ólafur Skúlason í samtali við Dag þegar úrslit voru kunn í gær. „Biskupinn er prestur prest- anna og mig langar að sjálfsögðu til að styðja við bakið á prestun- um og hjálpa leiðtogum safnað- anna til að ná sem bestum árangri. Ég held að kirkjan standi nokkuð sterkt í þjóðfélaginu. Hún nýtur mikils velvilja, sem oft á tíðum er auðvitað afskiptalítill velvilji en engu að síður held ég að fólk myndi ekki vilja missa kirkjuna sína,“ sagði Ólafur aðspurður um stöðu kirkjunnar í þjóðfélaginu. Ólafur segir ljóst að sam- heldni sé mikil meðal kirkjunn- ar manna. „Það sést best á þess- um úrslitum en það er heldur ekki oft sem svona mikill meiri- hluti myndast í kirkjunni,“ sagði Ólafur Skúlason. JÓH Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, í ræðustól á Hótel KEA. í forgrunni sjást bæjarráðsmennirnir Freyr Ófeigsson og Sigurður Jóhannesson. Freyr var fundarstjóri en Sigurður ávarpaði fundinn f.h. Bæjarstjórnar Akur- eyrar. Mynd: EHB Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra: „Kaupleigukerfið gæti blómstrað á Akureyri“ Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, ávarpaði fulltrúaráðsfund Sambands íslenskra sveitarfélaga á Hótel KEA á Akureyri í gær. Hún Frumvarp um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga: Fjórdungssamband Norðlendinga gagn- rýnir „reglustikuaðferðir“ við útreikning grunnskólaframlaga Fjórðungssamband Norðlend- inga hefur sent frá sér grein um áhrif grunnskólaframlaga á fjárhag sveitarfélaga í kjölfar breyttrar verkaskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga. Þeirri spurningu er velt upp hvort grunnskólaframlögin munu valda auknu misvægi í fjárhag sveitarfélaganna og er niður- staðan vissulega á þá leið. í grein Fjórðungssambandsins segir svo: „Samkvæmt frumvarpi um breytta verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga er gert ráð fyrir að allir kostnaðarliðir við grunnskóla, sem ekki teljast kennslulaun og stjórnunarkostn- aður, færist til sveitarfélaga. Ætl- ast er til að 15,5% tekna Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga verði var- ið til að greiða niður svonefndan dreifbýliskostnað í skólarekstri, sem er skólaakstur, launakostn- aður vegna mötuneyta, gæsla í heimavistum og biðtímagæsla. í tillögum þeim sem frumvarp- ið styðst við er gert ráð fyrir að framlág vegna dreifbýliskostnað- ar í skóíarekstri nái til strjálbýlis- sveitarfélaga og blandaðra sveit- arfélaga með allt að 700 íbúa. Þéttbýlissveitarfélög eiga ekki rétt á slíku framlagi vegna flutn- inga nemenda, sökum verulegra fjarlægða innan sveitarfélagsins eða vegna flutnings nemenda í önnur sveitarfélög. Dæmi um þetta eru Siglufjörður, Ólafs- fjörður, Grímsey og Hrísey. Grunnskólaframlögin skulu reiknuð eftir fjarlægð nemenda í skólaakstri, þó skal ekki reikna grunnskólaframlag vegna þeirra nemenda sem eiga styttra að sækja en 5 km til skóla. Áætlað grunnskólaframlag á starfsviku í skóla fyrir nemanda í 5 til 15 km akstursfjarlægð frá skóla er 1.470 kr. Fyrir 15-30 km eru þetta 2.240 kr. og yfir 30 km kr. 3.080. Tölurnar eru á verðlági ársins 1987. Til að finna grunnskóla- framlag hvers sveitarfélags þarf að margfalda vikuframlag á nemanda með starfsvikufjölda skóla. EHB Sjá nánar á bls. 3 ræddi meðal annars um fyrir- hugaðar breytingar á verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga og endurskoðun á tekjustofn- um sveitarfélaga. Sagði Jó- hanna að miðað við þær undir- tektir sem frumvörpin um verkaskiptinguna og tekju- stofnana hefðu fengið við fyrri umræði á Alþingi, gerði hún sér góðar vonir um að þau yrðu samþykkt fyrir þingslit í vor. í máli Jóhönnu kom fram að hún teldi nauðsynlegt að í félags- málaráðuneytinu yrði unnið að setningu reglugerðar sem kvæði á um hvernig framlög úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga ættu eftir að breytast í kjölfar breyttrar verka- skiptingar ríkis og sveitarfélaga. Tilgangurinn væri að efla framlög úr sjóðnum til aðstoðar lítilla og vanmegnugra sveitarfélaga. Um þriðja stjórnsýslustigið sagði Jóhanna að margir hefðu litið svo á að breyting íslenska stjórnkerfisins í þá veru hamlaði gegn ójafnvægi í byggð og tekju- dreifingu á landinu. Brýnt væri að fólk spyrði sig þeirrar spurn- ingar hvort þessu væri svo farið. Á vegum félagsmálaráðuneytis- ins væri unnið að athugun á reynslu Norðurlandanna af slíku stjórnsýslustigi og fyrirkomulagi sveitarstjórnarmála ásamt verka- skiptingu milli ríkis og fylkja. Greinargerð verður samin af starfshópi um þetta efni. Kaupleigukerfið mun henta vel til að skapa jafnvægi á lands- byggðinni og Ákureyri væri gott dæmi um sveitarfélag þar sem kaupleigukerfið ætti að geta blómstrað, að sögn ráðherrans. Hún taldi vænlegt að nota bygg- ingariðnaðinn og kaupleigukerfið sem hagstjórnartæki til að koma í veg fyrir atvinnuleysi á lands- byggðinni, en atvinnuleysið væri vissulega eitt af stærstu verkefn- um ríkis og sveitarfélaga um þessar mundir. Sameiginlegt átak hins opinbera þyrfti til að snúa vörn í sókn í atvinnumálum þjóð- arinnar og til að byggja upp og auka félagslega þjónustu. Rann- sóknir Byggðastofnunar sýni að byggja þurfi 1400 íbúðir árlega frá 1988 til 1993 á landinu. Þá þurfi að kanna áhrif kaupleigu- íbúðanna á marga þætti í fjárhag sveitarfélaga og aðrar aðstæður. EHB Ofaníburður í Aðaldai á sumardagskránni - segir Rúnar H. Sigmundsson, umdæmisstjóri Flugmálastjórnar Rúnar H. Sigmundsson, um- dæmisstjóri Flugmálastjórnar, segir það á dagskrá í sumar að bera ofan í Aðaldalsilugvöll til að fyrirbyggja að völlurinn lokist vegna bleytu. „Við erum að gæla við að blanda rauðum hraunsalla, sem oft er nefndur hraunbruni, saman við ofaní- burðinn,“ segir Rúnar. Ástand Aðaldalsvallar hefur verið afleitt eftir páskana og ekki reyndist unnt að fljúga þangað sl. þriðjudag og miðvikudag. Eftir frostnótt tókst loks að lenda Fokkervél Flugleiða í Aðaldal í gærmorgun og von var á annarri vél í gærkvöld. Borið var ofan í Aðaldalsflug- völl haustið 1987 og kom í ljós í fyrravor að sá ofaníburður hafði ekki tekist sem skyldi. Hann lok- aðist hvað eftir annað vegna aurbleytu og sagan virðist ætla að endurtaka sig nú. Rúnar segir það vera algengt að fyrsta árið eftir ofaníburð séu flugvellir slæmir en síðar gangi fínefnið niður og yfirborð flugvallanna standi af sér veðrasviptingar. „En á það ber að líta með Aðaldals- flugvöll að tíðarfar bæði í fyrra- vor og nú síðla vetrar hefur verið alveg með eindæmum óhagstætt og gert okkur erfitt fyrir,“ segir Rúnar. Hann segir ekki ákveðna fjár- veitingu til úrbóta á Aðaldals- flugvelli í sumar en gera megi ráð fyrir að til þess arna verði varið hluta framkvæmdafjár, sem til ráðstöfunar er á árinu. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.