Dagur - 31.03.1989, Side 2

Dagur - 31.03.1989, Side 2
2 - DAGUR - Föstudagur 31. mars 1989 Félagsmálaráð Sauðárkróks: Samþykkir styrki til félagasamtaka - alls upp á rúm 1 milljón króna Félagsmálaráð Sauðárkróks samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu að leggja til að nokk- ur félagasamtök í Skagatirði verði styrkt. Samtals nema þessir styrkir rúmri 1 milljón króna. Erindi félagsmálaráðs verður vísað til síðari umræðu fjárhagsáætlunar í bæjar- stjórn. Þá samþykkti félags- málaráð á sama fundi að hækka leikskólagjöld frá 1. apríl. Þau félagasamtök sem félags- málaráð lagði til að fengju styrk voru Leikfélag Sauðárkróks, kr. 435 þúsund, Safnaðarheimilið, kr. 219þúsund, Skagfirðingasveit SVFÍ, kr. 200 þúsund, Skagfirð- ingasveit SVFÍ vegna bátakaupa, kr. 100 þúsund, Skátafélagið Eilífsbúar, kr. 60 þúsund, Sam- band skagfirskra kvenna, kr. 17 þúsund, Sjálfsbjörg, kr. 10 þús- und og Landvernd sömuleiðis kr. 10 þúsund. Beiðnum Kvenna- athvarfs, Krísuvíkursamtakanna, S.Á.Á. og Vinnuhóps gegn sifja- spellum um styrk var hafnað. Leikskólagjöldin í leikskólun- um Furukoti og Glaðheimum hækka frá 1. apríl. Eftir hækkun mun 4ra tíma gæsla kosta 4600 krónur á mánuði, 5 tímar 5750 krónur og 6 tímar kr. 6900. Fyrir einstæða foreldra munu 8 tímar kosta 8000 kr., 9 tímar 9000 kr. og 10 tímar 10 þúsund kr. Fyrir aðra munu 8 tímar kosta 9000 krónur, 9 tímar kr. 10125 og 10 tímar kr. 11250. -bjb Bflahöllin flutt á Óseyri Bílasalan Bílahöllin flutti fyrir skömmu úr Strandgötu á Akureyri í hús- næði að Óseyri 1, Stefnishúsið. Þar er úrval notaðra bíla til sölu og boðið upp á margvísleg skipti og kaup. Á myndinni er Björn Pálsson, sölumað- ur, við einn sölubílinn. Mynd: tlv Atvinnutryggingarsjóður búinn að ráðstafa 800 milljónum af ráðstöfunarfé sínu fram til 1991: Búið að lána og skuldbreyta fyrir röska 2,2 milljarða í 70 fyrirtækjum Gunnar Hilmarsson segir að megináherslu þurfi nú að leggja á Af rösklega 2,2 milljöröum króna sem Atvinnutryggingar- sjóður hefur lánaö út hafa tæp- ar 400 milljónir farið til fyrir- tækja á Norðurlandi. Það kjördæmi sem mest hefur ver- ið lánað til er Austurland en fyrirtækjum þar hafa verið lán- aðar um 570 milljónir króna, þ.e. bein lán eða skuldbreyt- ingar. Samtals eru nú komnar um 210-220 umsóknir um lán úr Atvinnutryggingarsjóði og hefur sjóðurinn lánað röska 2,2 milljarða til 70 fyrirtækja, 63 fyrirtækja í sjávarútvegi og 7 fyrirtækja í iðnaði. Fram til 15. mars sl. voru afgreidd hagræðingarlán, þ.e. peningalán og lán til hlutafjár- aukningar fyrirtækja, að upphæð 274 milljónir króna. Þessi lán skiptast á milli 15 fyrirtækja og þar af eru 13 í sjávarútvegi en tvö í iðnaði. Skuldbreytingarlán voru hins vegar að upphæð 1988 milljónir, þar af 584 milljónir í peningum og 1404 milljónir í skuldabréfum. Atvinnutryggingarsjóður hefur ráðstafað 860 milljónum af þeim 2 milljörðum sem sjóðurinn hef- ur til ráðstöfunar á yfirstandandi ári og því næsta. Gunnar Hilm- arsson, formaður stjórnar Þórsarar hafa augastað á grassvæði við Síðuskóla - sem aðstöðu fyrir leikja- og íþróttanámskeið íþróttafélagið Þór á Akureyri hefur farið þess á leit við skipulagsnefnd Akureyrarbæj- ar að félaginu verði úthlutað grassvæði í Síðuhverfi í því skyni að efna þar til leikja- og íþróttanámskeiða. Félagið vill þannig koma til móts við kröf- ur íbúa í hverfinu um bætta þjónustu auk þess sem tölu- verð vegalengd er frá Síðu- hverfi að íþróttasvæði Þórs við Glerárskóla og hættulegar umferðargötur á leiðinni. Aðalsteinn Sigurgeirsson, for- maður Þórs, sagði að félagið hefði augastað á grassvæði vestan Síðuskóla í þessu sambandi. Hann sagði jafnframt að Árni Ólafsson skipulagsstjóri hefði tekið erindi félagsins vel, svo og Árni Steinar Jóhannsson garð- yrkjustjóri sem hefur umsjón með þeim hluta svæðisins sem hugsaður er sem útivistarsvæði í framtíðinni. „Skipulagsstjóri vísaði okkur á Jón Baldvin Hannesson, skóla- stjóra Síðuskóla, og hann var mjög jákvæður. Hann sagði það koma til greina að félagið fengi einnig aðstöðu inni í skólanum og næsta skref hjá okkur er að kanna vilja bæjaryfirvalda til að leggja fé í framkvæmdir við að slétta þetta grassvæði," sagði Aðalsteinn. Hann sagði að meiningin væri að vera með mörk á vellinum og bjóða bæði upp á knattspyrnu- og leikjanámskeið fyrir yngstu börnin. Þarna yrðu leiðbeinend- ur frá Þór sem hefðu umsjón með krökkunum og ef aðstaða fengist inni í Síðuskóla væri alltaf hægt að koma börnunum undir þak ef illa viðraði. Aðalsteinn gat þess að lokum að hann hefði frétt að leiksvæði á borð við þetta væri einmitt á óskalista íbúasamtakanna í Síðu- hverfi og áhugi íbúa í hverfinu á framgangi málsins því mikill. SS að ná vöxtum niður sjóðsins, segist reikna með að á árinu verði lánaðar út um 1400 milljónir. Nú sé kominn jafn skriður á útlán en úr dragi á ný þangað til þau fyrirtæki komi til meðferðar sem farið hafi í gegn- um aðgerðir Hlutafjársjóðs. Fram til 15. mars hafði 43 umsóknum verið hafnað en Gunnar segir að reikna megi með að 5-10 þessara fyrirtækja komi aftur til meðferðar þegar þau hafa farið í gegnum hagræðingar í einhverri mynd. Eins og áður segir hefur stór hluti lána sjóðsins runnið til fyrir- tækja á Austurlandi, eða 574.7 milljónir króna. Röð kjördæma eftir upphæðum lítur annars svo út: Vesturland 362.5 millj., Suðurland 342,9 millj., Reykja- nes 272,2 millj., Norðurland eystra 232.6 millj., Reykjavík 166.5 millj., Norðurland vestra 166.4 millj. og Vestfirðir 144.5 milljónir króna. Gunnar Hilmarsson segir að nú þurfi að leggja megináherslu á að koma vöxtunum niður og í framhaldi af því og samhliða þurfi að snúa sér að þeim 12-15 fyrirtækjum út um allt land sem heil byggðarlög standi og falli með. „Það verður að grípa þarna inní áður en þetta verða margfalt dýrari byggðavandamál. Og hvað varðar bréfin þá lít ég svo á að þau verði ekkert vandamál þegar vöxtum hefur verið náð niður,“ segir Gunnar. JÓH Ásláksstaðir - leiðrétting í gær birtist forsfðumynd í Degi frá Ásláksstöðum í Glæsibæjar- hreppi. Þau mistök urðu hins vegar að í texta fyrir neðan myndina segir að hún sé tekin á samnefndum bæ í Arnarnes- hreppi. í annan stað er rang- hermt að systkinin sem sitja í sleðanum séu börn Marenar Árnadóttur. Þetta leiðréttist hér með og eru hlutaðeigendur beðn- ir afsökunar. Framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar: Funda á Akureyri og Húsavík Framkvæmdastjórn Sjálfs- bjargar, landssambands fatl- aðra, heldur fund á Akureyri á laugardag. Á sunnudag mun framkvæmdastjórnin fara til Húsavíkur og heimsækja stjórn og félagsmenn Sjálfs- bjargar þar. í framkvæmdastjórninni eru fimm menn og er einn þeirra, Valdimar Pétursson, búsettur á Akureyri. Jóhann Pétur Sveins- son, lögfræðingur, er formaður framkvæmdastjórnarinnar, en Theodór A. Jónsson er fram- kvæmdastjóri. Aðrir í stjórninni eru Friðrik Ársæll Friðriksson, varaformaður, og þær Guðríður Þorsteinsdóttir og Pálína Snorra- dóttir. Á Akureyri mun framkvæmda- stjórnin halda fund með stjórn, varastjórn og nefndum Sjálfs- bjargar að Bjargi klukkan 15.00. Ekki er um almennan félagsfund að ræða en stutt er í aðalfund Sjálfsbjargar á Akureyri. Fund- urinn á Húsavík liefst klukkan 13.30, sömuleiðis með stjórn félagsins og nefndum. EHB Ólafsfjörður: ■ Fiskmar hf. hefur óskað eftir því að Iðnþróunarsjóður Ólafsfjarðar veiti einfalda ábyrgð vegna tveggja lána, annars vegar að upphæð kr. 2.300.000,- og hins vegar kr. 2.800.000.- sem fyrirtækið tek- ur hjá Iðnlánasjóði. Bæjarráð hefur samþykkt að veita ein- falda ábyrgð enda fáist að mati ráðsins og bæjarstjóra ftill- nægjandi trygging og ábyrgð- artfminn verði sem stystur. ■ Á fundi umferðarmála- nefndar fyrir skömmu var Helga Jónsdóttir kjörin for- maður nefndarinnar og Þor- steinn K. Björnsson ritari. ■ Á sama fundi var tekið fyr- ir erindi frá byggingarnefnd. Umferðarnefnd telur að ekki verði um neitt umferðartækni- legt vandamál að ræða vegna hugsanlegrar byggingar bensín- stöðvar á horni Ægisgötu og Aðalgötu en ncfndin vill vekja athygli á því að gæta verður þess að fjarlægð verði nægjan- leg frá Aðalgötu að nyðri inn- keyrlsu að stöðinni. Þá hefur nefndin óskað eftir því að sjá fullmótaðar teikningar áður en þær verða samþykktar. ■ Uinferðarnefnd hefur lagt til að hraðahindranir verði settar upp á eftirtöldum stöðum: Á Ægisgötu sunnan Bylgjubyggðar. Á Aðalgötu á móts við Magnús Gamalíesson hf. Á Aðalgötu við Aðalgötu 2-4. ■ Á fundi skólanefndar nýlega korn fram að skóla- stjórar vita ekki urn neinar breytingar á kennarastöðum utan eina stöðu í Grunn- skólanum, staöan felur í sér kennslu í dönsku, eðlisfræði og tónmennt. ■ Formaður almannavarnar- nefndar lagði til á fundi nefnd- arinnar fyrir skömmu að sam- in yrði ályktun um að fá sem fyrst neyðarlýsingu á flugvöll- inn. ■ Á fundi bæjarráðs nýlega, var tekið fyrir bréf frá Karls- krona í Svíþjóð en þar kemur fram að Karlskrona býður 5 unglingum á aldrinum 16-20 ára til dvalar á tímabilinu 10. júlí til 4. ágúst 1989. Jafnframt var lagt fram bréf frá Thisted þar sem haldið verður upp á 50 ára afmæli vinabæjakeðju á Norðurlöndunum 3.-11. júlí í sumar. ■ Á fundi bæjarráðs nýlega var lagt fram til kynningar bréf frá Félagsmálaráðuneytinu, dags. 27. febrúar 1989. f því er vísað til bréfs Almannavarna ríkisins dags. 10 feb. sl. en þar er lagt til að Ólafsfjarðarbæ verði veittar kr. 1.794.726,- úr Ofanflóðasjóði, vegna fram- kvæmda við varnarskurði. Upphæðin er 80% af heildar- kostnaði við verkiö, sem var kr. 2.243.408.-.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.