Dagur - 31.03.1989, Qupperneq 3
Föstudagur 31. mars 1989 - DAGUR - 3
Staðsetning skoðunarstöðvar enn óákveðin í Skagafirði:
„Erfitt að finna húsnæði“
- segir Karl Ragnars hjá Bifreiðaskoðun íslands hf.
ar íslands í samtali við Dag.
Skoðunarstöð á vegum Bifreiða-
skoðunar íslands hf. hefur ver-
ið opnuð á Blönduósi fyrir
Húnavatnssýslur og ráðinn
starfsmaður, Þórólfur Óli
Aadnegaard. En fyrir svæðið
austan Yatnsskarðs hefur ekki
verið ákveðið hvar skoðunar-
stöð verður staðsett, en einna
helst kemur til greina að hún
verði á Sauðárkróki, þó illa
hafí gengið að fínna húsnæði.
„Það er afar erfítt að fá hús-
næði á Sauðárkróki, lítið um
húsnæði sem hentar okkur,“
sagði Karl Ragnars fram-
kvæmdastjóri Bifreiðaskoðun-
Karl vonaðist til að staðsetning
skoðunarstöðvar yrði ákveðin í
vor en vildi ekki fullyrða neitt um
það. „Það verður að sjálfsögðu
skoðað í Skagafirði eins og ann-
ars staðar. Ef stöðin verður ekki
komin upp í vor, þá skjótast
menn bara á Blönduós," sagði
Karl. Á Sauðárkróki hefur einn
staður verið orðaður fyrir skoð-
unarstöð, syðri helmingur Vél-
smiðjunar Loga, þar sem Nýja
bílasalan var áður til húsa. Um
þann stað sagði Karl aðeins: „Ég
hef heyrt þann stað nefndan.“
í framtíðinni er gert ráð fyrir
að tvær skoðunarstöðvar verði á
Norðurlandi vestra. Ekki er
alveg ákveðið hvað gerist með
Siglfirðinga, þeir hafa lýst yfir
óánægju með að þurfa að fara til
Sauðárkróks að láta skoða bíl-
ana. Karl sagði að möguleiki væri
á því að fara þyrfti til Siglufjarðar
sérstaklega, og þá með færanlega
skoðunarbílinn. Orðrómur hefur
verið á kreiki um að sá bíll kæm-
ist ekki í gegnum Strákagöngin.
„Hver segir það? Ég ætla ekki að
úttala mig um það, ég hef ekki
mælt göngin sjálfur,“ voru orð
Karls, þegar þessi orðrómur var
borinn undir hann. -bjb
Breytingar á siglingum skipa Sambandsins
til Evrópu og Norður-Ameríku:
Samstarf tekið upp við
tvö erlend skipafélög
Skipadeild Sambandsins hefur
gert sanminga vegna vöru-
flutninga við tvö erlend skipa-
félög, Seatrade og Nedlloyd.
Þessir samningar hafa í för
með sér aukna þjónustu á
flutningaleiðum til og frá
Norður-Ameríku og Evrópu.
Jafnframt því að Skipadeildin
hefur nú tekið upp alþjóðleg
flutningaviðskipti hafa verið
gerðar breytingar á flutningum
með almenna stykkjavöru á
milli Helsinki í Finnlandi og
Islands. Siglingar þangað eru
nú vikulega en voru áður á
þriggja til fjögurra vikna fresti.
Seatrade er eitt af stærstu fyrir-
tækjum í heiminum í rekstri
frystiskipa. Samningur Skipa-
deildarinnar við fyrirtækið felur í
sér samsiglingu Jökulfells og
Nidaros, sem er leiguskip í eigu
Færeyinga. Skipin munu sigla frá
Hollandi til hafna í Danmörku,
Noregi, Færeyjum og íslandi og
áfram til Gloucester í Bandaríkj-
unum. Á austurleiðinni munu
skipin hafa viðkomu í höfnum í
Bandaríkjunum, Kanada,
Grænlandi, íslandi og Hollandi.
Að sögn Arnar Gústafssonar,
forstöðumanns sölu- og markaðs-
deildar Sambandsins, koma þessi
skip ekki til með að eiga viðkomu
á Norðurlandshöfnum en Arnar-
fell mun áfram lesta freðfisk á
Norðurlandshöfnum og flytja til
Reykjavíkur þar sem honum
verður umskipað í Nidaros og
Jökulfell. Þessi skip munu lesta í
Reykjavík á þriggja vikna fresti.
Samningur Skipadeildarinnai
við Neldlloyd skipafélagið hljóð-
ar upp á vikulega flutninga á
stykkjavöru í gámum frá Boston,
New York, Norfolk og Jackson-
ville til Rotterdam þar sem gám-
utn er umskipað í skip Skipa-
deildarinnar. Samkomulagið
gildir einnig um flutninga frá ís-
landi til þessara staða og verða
siglingar vikulega. JÓH
Fjórðungssamband Norðlendinga:
„Vanhugsaðar reglur geta leitt íjár-
hag sveitarfélaga í tvísýnu“
í greinargerð sem Fjóðungs-
samband Norðlendinga sendi
frá sér varðandi áhrif grunn-
skólaframlaga vegna væntan-
legra breytinga á verkaskiptinu
milli ríkis og sveitarfélaga
kemur fram að verulegt og
aukið misræmi yrði á milli
sveitarfélaga hvað grunnskóla-
framlög snertir ef tillögurnar
ná fram að ganga í óbreyttri
mynd.
í greininni segir ennfremur:
„Ljóst er, ef hugmyndir þessar
verða að veruleika, að fjárhag
margra sveitarfélaga er stefnt í
hættu, ekki vegna verkefnatil-
færslunnar sjálfar, heldur fyrst og
fremst vegna reglustikuaðferða
við útreikning grunnskólafram-
laga.
Af þessum ástæðum hefur
Fjórðungssamband Norðlend-
inga komið á framfæri eftirfar-
andi atriðum sem úthlutun
grunnskólaframlaga skuli byggj-
ast á:
1. Við útreikning grunnskóla-
framlaga verði miðað við skóla í
stað sveitarfélags.
2. Reikniregla við grunnskóla-
framlag miðist við 3 km akstur og
síðan eftir fjarlægðarþrepum eft-
ir aksturslengd.
3. Grunnskólaframlag nemi
aldrei hærri fjárhæð en 85%
dreifbýliskostnaðar.
4. Nægi grunnskólaframlagið
ekki til að bæta upp 85% kostn-
aðar og munurinn verði það mik-
ill að heildardreifbýliskostnaður
viðkomandi sveitarfélaga verði
hlutfallslega hærri en meðaltal
hliðstæðra sveitarfélaga, megi
bæta muninn upp allt að meðal-
tali þessara sveitarfélaga.
5. Sérstök framlög til hag-
ræðingar í skólastarfi til að gera
skólarekstur hagkvæmari fyrir
sveitarfélögin.
Dæmi um óréttlæti þeirra hug-
mynda sem fyrir liggja um úthlut-
un grunnskólaframlaga eru t.d.
að Skútustaðahreppur fengi
greidd grunnskólaframlög kr.
1.727 þús. umfram kostnað, en
eftir sömu reglu vantaði Aðal-
dælahrepp kr. 1.146 þús. til að
mæta dreifbýliskostnaði.
Árskógshrepp vantar kr. 1.122
þús. og Hrafnagilshrepp kr.
1.170 þús. Reykjahreppur myndi
fá 735 þús. kr. umfram dreifbýlis-
kostnað og Tjörneshreppur kr.
455 þús.
Á þetta er bent til að sýna
hvernig vanhugsaðar reglustiku-
reglur geta leitt fjárhag sveitar-
félaga í tvísýnu og það í nafni
réttlætis og jöfnunar." EHB
__kóteJl_
STEFAMÍA
Restaurant ★ Bar
Höfum opnað
nýjan veitingastað
í hótelinu
Fallegt umhverfi
Stórvel búinn bar
Sýnishorn af kvöldverði:
Rjómasoðin stórlúða með kavíarsósu
kr. 1.045.-
Stebbasteik að hætti hótelstjórans
(nautalund) kr. 1.560.-
Sinnepsmarineraður hörpuskelfiskur
kr. 625,-
og margt margt fleira.
Eftir kl. 22.00, ostabar og ídýfur.
_Jtátei._
STEFAHÍA
Staöur hinna fullorðnu
Háskólinn á Akureyri
Opinn fyrirlestur
í heimspeki
verður í sal Verkmenntaskólans á Akureyri á
Eyrarlandsholti laugardaginn 1. apríl kl. 14.00.
Efni: Nytjastefna og fóstureyðingar.
Fyrirlesari: Kristján Kristjánsson, kennari við Menntaskól-
ann á Akureyri. Stundar nú doktorsnám í heimspeki viö St.
Andrews háskóla.
Staður: í sal Verkmenntaskólans á Akureyri á Eyrarlands-
holti.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Háskólinn á Akureyri.
SKAMMTIMABRÉF
Hagkvæm ávöxtun skammtímafjár
★ 7-9% vextir umfram verðbólgu
★ Alltaf laus og án aukakostnaðar.
Skammtímabréfin eru ætluö þeim sem þurfa að
nota fé sitt innan skamms tíma en vilja
jafnframt ávaxta það á sem hagkvæmastan
hátt.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700
Gengi Einingabréfa
31. mars 1989.
Einingabréf 1 3.687,-
Einingabréf 2 . 2.061.-
Einingabréf 3 . 2.410.-
Lífeyrisbréf . 1.854,-
Skammtímabréf .. 1,273
Skammtímabréf
— skynsamleg
fjárfesting.