Dagur - 31.03.1989, Side 5
Föstudagur 31. mars 1989 - DAGUR - 5
Sverrir Pálsson:
Mimiisbrestur
varabæjarfulltrúans
Hr. ritstjóri!
í heiðruðu blaði yðar, 23. mars
1989, var forsíðufrétt með fyrir-
sögninni: „Ekki ástæða til að ótt-
ast um framkvæmdir við eldri
skóla.“ Þessi frétt fjallaði um
fund í bæjarstjórn Akureyrar,
þar sem til umræðu var m.a.
fundargerð skólanefndar Akur-
eyrar frá 15. mars, en þar var
bókuð samþykkt tillögu for-
manns nefndarinnar þess efnis,
að nemendur 7.-9. bekkjar, sem
eiga heima í Síðuhverfi, skuli
sækja Síðuskóla, „þar til annað
verður ákveðið“.
í fyrrgreindri frétt var
staðhæft, að varabæjarfulltrúi,
sem sat þennan bæjarstjórnar-
fund og hafði jafnframt setið
umræddan skólanefndarfund,
hefði frætt bæjarstjórn um það,
að skólastjórar grunnskólanna á
Akureyri „hefðu allir, fyrir utan
skólastjóra Gagnfræðaskóla
Akureyrar, sem ekki hefði tekið
þátt í umræðunni verið sammála
skólastjóra og kennurum Síðu-
skóla um að ekki þyrfti að hafa
minnstu áhyggjur af þessu máli.“
Nú er það ekki vegna þess að
ég haldi, að skoðanir mínar skipti
hinu minnsta máli í þessu sam-
bandi né orð mín hafi hin
minnstu áhrif á ákvarðanir bæjar-
yfirvalda, að ég rita þér bréfkorn
þetta, heldur vegna hins, að mér
leiðist að láta ósönn orð standa
óleiðrétt um afstöðu mína í máli
þessu, fyrst varabæjarfulltrúan-
um þótti á annað borð taka því
að minnast á hana.
í fyrsta lagi er það alls ekki
rétt, að ég hafi ekki tekið til máls
á skólanefndarfundinum um
þennan lið dagskrárinnar. Það
hafði ég raunar ekki ætlað að
gera, en lét til leiðast vegna
beiðni eins skólanefndarmanns-
ins um að við starfsbræður segð-
um skoðun okkar á máli þessu.
{ öðru lagi vil ég taka fram,
fyrst út í þetta er komið að farið
er á annað borð að viðra í blöð-
um skoðanir skólastjóranna í
bænum á máli þessu og umræður
á skólanefndarfundum yfirleitt,
sem mér þykir í sjálfu sér vægast
sagt mjög hæpið, að ég vísaði til
skriflegrar álitsgerðar, sem ég
lagði fyrir skólanefnd fyrir tveim-
ur árum, þegar skólaskipan
grunnskóla á Akureyri var til
umræðu og síðan ákveðin. Tók
ég fram, að afstaða mín væri enn
óbreytt. - Ég sagðist enn fremur
ekki draga í efa réttmæti orða
formanns skólanefndar í greinar-
gerð hans með tillögunni um
frestun þessarar skólaskipanar,
hvað varðar Síðuskóla, þar til
annað verður ákveðið, og þannig
hljóða: „Telja verður einsýnt, að
sú breyting, sem hér er lögð til,
hafi veruleg áhrif á framkvæmdir
við aðra skóla en hér hafa verið
nefndir og má ljóst vera, að með
þessari ákvörðun er verið að
seinka því að það markmið náist,
að skólasókn geti sem víðast orð-
ið samfelld hjá nemendum." -
Hins vegar sagðist ég skyldu fagna
því, ef menn sæju fram á það, að
fjárhagur Akureyrarbæjar batn-
aði svo á næstu árum, að þessi
orð rættust ekki.
í þriðja lagi þykir mér mjög
leitt, að svo mikill minnisbrestur
skuli hafa orðið hjá varabæjar-
fulltrúanum, sem framangreind
frásögn hans af skólanefndar-
fundinum ber méð sér, ef rétt er
eftir haft. Veit ég ekki, hvað
veldur. Ég vona hins vegar, að
aðrir fundarmenn geti vottað, að
hér er rétt farið með.
Virðingarfyllst.
Sverrir Pálsson.
/i
lesendahornið
Altarisganga í Akureyrarkirkju:
Sóðalegt að láta alla
drekka úr sama bikamum
Lcsandi hringdi og hafði eftirfar-
andi sögu að segja. „Ég var að
láta ferma barnið mitt í Akureyr-
arkirkju, sem er kannski ekki í
frásögur færandi en mig langar að
lýsa yfir óánægju minni með það
hvernig altarisgangan fer fram í
þeirri kirkju. Mér finnst fyrir
neðan allar hellur að prestarnir
skuli láta fleiri hundruð manns
drekka vínið úr sama bikarnum.
Nú á tímum er mikið talað um
alls kyns smitsjúkdóma og að
menn eigi að vara sig á hinu og
þessu. Ekki síst þess vegna finnst
mér þessi aðferð í Akureyrar-
kirkju algjör tímaskekkja á árinu
1989 og hreinlega sóðaleg.
Ég veit til þess að í nokkrum
kirkjum eru notaðir litlir bikarar
fyrir hvern mann og það er m.a.
vegna þess að læknar hafa ráðlagt
prestum að hafa þann háttinn á.
Enda er það mun viturlegra en að
menn séu að drekka úr sama
bikarnum.“
Dagur hafði samband við séra
Birgir Snæbjörnsson sóknarprest
í Akureyrarkirkju og hann hafði
þetta um málið að segja:
„Ég reikna nú með að þetta
breytist með tímanum. Það er
farið að framleiða sérstakt altar-
isbrauð sem dýpt er í kaleikinn
og deilt þá út saman brauði og
víni. - Og ég reikna með að þetta
fyrirkomulag ryðji sér til rúms.
En hins vegar hafa læknar lýst því
yfir að t.d. eyðni geti ekki smitast
í sambandi við altarisgöngu og
mér finnst nú ákaflega einkenni-
legt ef að fólk kemur til altaris
með það hugarfar að vera hrætt
við smitsjúkdóma. Því að þegar
við prestarnir tökum til altaris
með þessum bikar, þá þerrum við
af barminum mjög vendilega
með sérstökum servíettum, eftir
að hver maður hefur bergt á
bikarnum.
Þessir litlu bikarar sem þarna
er minnst á, eru til í nokkrum
kirkjum en ég veit til þess að það
eru margir óánægðir með þá
aðferð. Þetta var orðið þannig að
það minnti á þegar fólk var að
skála. Þá kannski beið fjölskyld-
an þar til allir voru búnir að fá í
sinn bikar og drukku síðan allir
af í einu. Það líkaði mörgum
ekki, þannig að það eru einnig
skiptar skoðanir um þá. En það
hafa margir lýst yfir ánægju sinni
með altarisgönguguðsþjónust-
urnar í Akureyrarkirkju.
Mér finnst persónulega alveg
sjálfsagt að taka þessa athuga-
semd til greina og jafnvel breyta
núverandi fyrirkomulagi en mér
finnst nú nokkuð langt gengið að
tala um sóðaskap. Þetta mál var
einmitt rætt á prófastafundi
nýlega, þannig að kirkjan er með
þetta mál í gangi og ég vona bara
að það finnist á þessu lausn sem
allir geti sætt sig við.“
Ósvífinn strætóbflstjóri
Þrír ungir nemar skrifa.
Um daginn áttum við leið upp á
Brekku og tókum strætó. Þá vildi
það til að við lentum á mjög
ósvífnum strætóbílstjóra sem
með hátterni sínu var stétt sinni
til algjörrar skammar. Við borg-
uðum okkar gjald (sem er orðið
50 krónur). Þá mælti karl: „Þið
vitið að það er búið að hækka.“
Við játtum því og mælti hann þá:
„Fæstir ykkar borguðu 50 kall,“
og bað hann okkur að telja. Við
sögðum að við hefðum borgað og
þá byrjaði hann bara með fúkyrði
og dónaskap. Við töldum pening-
ana og komumst að því að við
höfðum greitt fullt gjald. Bíl-
stjórinn lét sig þó ekki. Einn úr
hópnum borgaði 10 krónur og
svo gengum við burtu með flekk-
að mannorð.
Þakklæti til Akureyringa
Halldór og Valur frá Hafnarfirði
komu að máli við blaðið og vildu
koma á framfæri þakklæti til
Akureyringa fyrir hlýjar móttök-
ur á öðrum landsfundi Bahu-
safnaðarins.
Sérstaklega vildu þeir koma á
framfæri þakklæti til starfsmanns
atvinnumálanefndar Akureyrar-
bæjar, Þorleifs Þórs Jónssonar.
Sögðu þeir Halldór og Valur að
með jafn greiðvikinn og fjöl-
fróðugan mann og Þorleif þyrfti
Akureyringar engu að kvíða að
fólk frá Hafnarfirði og nágrenni
kæmi ekki til að njóta þess sem
bærinn hefði upp á bjóða.
Að vísu töldu þeir Halldór og
Valur að bærinn ætti að bjóða
upp á meiri skemmtanir yfir
helgar, eins og t.d páskahelgina,
en Akureyringar hefðu bætt þeim
það upp með hlýlegum móttök-
um í heimahúsum.
HÓTEL KEA
Laugardagur 1. apríl
Dansleikur
. . . ognú verður tvistað
upp um alla veggi
Hin frábæra stuðsveit
Geirmundar Valtyssonar
lætur lífsdansinn hljóma
fram eftir nóttu
★
Húsiö opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00.
I Veriö velkomin jp
! Borðapantanir í síma 22200
Jazzdans - Ballet
Námskeið hefjast 3. apríl.
Jazzdans. Fyrir 7 ára og eldri. Byrjendur og framhald.
Ballet. Yngst 7 ára.
Jazzleikskóli fyrir börn 4-6 ára.
Leikir, söngur, dans, leikræn tjáning.
Skírteinaafhending sunnudaginn 2. apríl kl. 14-16.
Innritun í síma 24979 frá kl. 15-20.
Innritun laugardag
frá kl. 14-18.
Tryggvabraut 22
Akureyri
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.