Dagur - 31.03.1989, Page 6
6 - DAGUR - Fpstudagur 31,-mars 1989
Orlofsferðir
Undirrituð verkalýðsfélög vilja minna á
ódýru orlofsferðirnar á vegum launþega-
samtakanna til Kaupmannahafnar og Saar-
brucken.
Kaupmannahöfn
Verðdæmi til Kaupmannahafnar
Flug ............... 11.500aukflugvallarskatts
Flug fyrir börn .... 10.500 auk flugvallarskatts
Bíll ............... frá 10.700,1 vika, ótakmark. akstur
Hús í Karlslunde ... 20.350 vikan, hámark 5 manns
(Verð miðað við staðgreiðslu og gengi 21.3. 1989)
Brottfarardagar í 2-3 vikna ferðir:
1., 8., 18., 22. og 29. júní. 6., 13., 20. og 27. júlí. 3., 10.
og 17. ágúst.
Saarbrucken
Verðdæmi til Saarbrucken
Flug ........... 14.950 auk flugvallarskatts
Flug fyrir börn . 10.000 auk flugvallarskatts
Bíll ........... frá 8.510,1 vika, ótakmark. akstur
Hús í Warsberg
(VR og BSRB) ... frá 20.000 vikan, hámark 5 manns
(Verð miðað við staðgreiðslu og gengi 21.3. 1989.)
Brottfarardagar:
1., 8., 18., 22. og 29. júní. 7., 14., 21. og 28. júlí. 3., 10.
og 17. ágúst.
Söludagur verður þriðjudaginn 4. apríi frá
kl. 17-21 hjá Samvinnuferðum-Landsýn,
Skipagötu 14, Akureyri, sími 27200.
Iðja, félag verksmiðjufólks.
Verkalýðsfélagið Eining.
Félag málmiðnaðarmanna.
Félag verslunar- og skrifstofufólks.
Sjómannafélag Eyjafjarðar.
Trésmiðafélag Akureyrar.
Leikfimi ★ Erobik
i( Þrekhringur i(
6 vikna námskeið hefjast mánudaginn 3. apríl.
Sem fyrr bjóðum við upp á úrval námskeiða fyrir byrjendur
og framhald, konur og karlar.
Þú finnur örugglega eitthvað sem hentar þér.
Hringdu nú þegar og fáðu upplýsingar, við reynum að hjálpa
þér að finna flokk við þitt hæfi.
FLOKKAR:
1. Kvennaleikfimi. Rólegir tímar fyrir óþjálfaðar konur
og þær sem vilja fara sér hægt.
2. Róleg músíkleikfimi. Rólegir tímar fyrir þær sem
komnar eru af stað og eru í einhverri þjálfun.
3. Leikfimi og megrun. Styrkjandi æfingar fyrir þær
sem vilja grennast. - Leiðbeint um mataræði.
Vigtun, mæling, aðhald.
4. Magi, rass og læri. Mjúkt erobik. Styrkjandi og
vaxtamótandi æfingar. Engin hopp. Fjörugir tímar,
fjörug tónlist. Byrjendur og framhald.
5. Framhaldstími. Aðeins fyrir mjög vanar.
Hröð og eldfjörug leikfimi - Púl! Dúndrandi fjör.
6. Erobik. Þolþjálfun fyrir konur og karla. Hörkupúl og
fjör.
7. Þrekhringur. Erobik og tækjaleikfimi í sama tíman-
um. Hörkutímar fyrir konur og karla. Fjör, hvatning
með skemmtilegri tónlist. Leiðbeinandi stýrir
hópnum.
Innritun og upplýsingar
í sima 24979 frá kl. 15-20.
Innritun laugard. frá kl. 14-18.
Skírteinaafhending
sunnudaginn 2. apríl
frá kl. 14-16.
d.
'pmstudíó
'olice
Sími 24979
Tryggvabraut 22
Akureyri
Hvoð er oð gerost
Akureyri: Samúel Jóhannsson
í Gamla Lirndi
í kvöld föstudaginn 31. mars kl 19.00, opnar Samúel Jóhannssor fjögurra daga sýningu á mynd verkum sínum í Gamla Lundi vií Eiðsvöll á Akureyri. Þetta er sjötta einkasýnin^ Samúels en auk þess hefur hanr tekið þátt í fjölmörgum samsýn- ingum, á Akureyri, Kjarvalsstöð- um og í Norræna húsinu. Flestar myndirnar eru unnar á þessu ári. Sýningin stendur yfir eins og áður segir í fjóra daga, í kvöld frá kl. 19-21, á ntorgun laugardag frá kl. 14-19, á sunnudaginn frá kl. 14-19 en sýningunni lýkur síðan á mánudag en þá er hún opin frá kl. 16-20.
Rökkurkórinn
10 ára
- söngskemmtun
í Miðgarði
í tilefni 10 ára afmælis Rökkur-
kórsins í Skagafirði verður söng-
skemmtun og veislukaffi í Félags-
heimilinu Miðgarði laugardags-
kvöldið 1. apríl nk. kl. 21.00.
Stjórnandi Rökkurkórsins er
Sveinn Árnason og undirieikari
Rögnvaldur Valbergsson.
Jón Olafsson mun ásamt hljóm-
sveitinni Glaumum skemmta í Vík-
urröst annað kvöld.
Bítlavinur
á Dalvík
Hljómsveitin Glaumar með Jón
Ólafsson „Bítlavin" í fararbroddi
mun spila á stórdansleik í Vík-
urröst á Dalvík á laugardags-
kvöld.
Glaumar hafa spilað í Sjallan-
um að undanförnu við mjög góð-
ar undirtektir og er ekki að efa að
hljómsveitin ásamt „Bítlavinin-
um“ Jóni Ólafssyni eiga eftir að
trylla Dalvíkinga og nærsveitar-
menn í Víkurröst annað kvöld.
40 ár frá því að ísland gekk í Nató:
Þess minnst með
fundi í Borgarbíói
- á morgun laugardag kl. 14.00
Þann 30. mars 1949 gekk ísland í
Nató og verður þess minnst með
fundi í Borgarbíói á Akureyri á
morgun laugardag kl. 14.00.
Þekktar hljómsveitir mun
spila, Ijóð verða lesin og Ragnar
Arnalds og Benedikt Sigurðarson
flytja ávörp, einnig munu lista-
menn koma fram. Állir herstöðv-
arandstæðingar og friðarsinnar
hvattir til þess að fjölmenna.
Dagskráin hefst sem fyrr sagði
kl. 14.00 og er húsið öllum opið.
Að dagskránni standa Alþýðu-
bandalagið á Akureyri og
Æskulýðsfylking Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri.
l unduriun í Borgarbíói hefst kl. 14.00.
Vinabæjasamskipti á Norðurlöndum:
llálfrar aldar
afmælí í júní
Hálfrar aldar afmæli vinabæja-
samskipta á Norðurlöndum
verður haldið hátíðlegt í
Thisted, Danmörku, dagana
3.-11. júní 1989, en slík vina-
bæjasamskipti eru talin hefjast
með heimsókn frá Uddevalla í
Svíþjóð til Thisted fyrir 50
árum.
Margrét Danadrottning mun
setja hátíðina og búist er við um
10 þúsund gestum víðs vegar af
Norðurlöndunum, sem heimsæki
Thisted meðan á hátíðinni
stendur.
í undirbúningi er mjög fjölþætt
dagskrá sem spannar yfir marga
málaflokka, svo sem tónlist,
myndlist, vísnasöng, golf, skák,
bridge, ýmsar íþróttir og margt
fleira.
Á vegum Norræna félagsins á
íslandi verður boðið upp á leigu-
flug til Thistrup og aftur heim
með áætlunarflugi. Verð á þessu
flugi verður 16.500 kr. fyrir full-
orðna og 10.000 kr. fyrir börn. Er
þá um að ræða flug frá Keflavík
og þangað til baka, en 35% af-
sláttur býðst á innanlandsflugi í
tengslum við utanlandsflug sem
þetta.
Þar sem heimferð er með
venjulegu áætlunarflugi, þá er
rétt að benda á, að fólk getur
tengt heimsókn til Thisted víð-
tækara ferðalagi um Norðurlönd
eða Mið-Evrópu.
Nánari upplýsingar varðandi
þetta viðamikla hátíðarmót í
Thisted liggja frammi hjá Nor-
rænu upplýsingaskrifstofunni og
á skrifstofu skóla- og menning-
arfulltrúa Akureyrarbæjar,
Strandgötu 19 B, eða í símum 96-
27599 og 96-27245.