Dagur - 31.03.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 31. mars 1989
spurning vikunnar
i
Ertu farin(n) að
skipuleggja sumarfríið?
(Spurt í vorveðri í Reykjavík.)
Þórir Gunnarsson:
Jú, ég fæ verkfall og sumarfrí
og allt hvaö eina. Farinn aö
skipuleggja? Nei, ég er ekki
búinn að fá ákveðið svar um
vinnu. Það verður bara unnið í
fríinu.
Bjarni Magnússon:
Já, við hjónin erum farin að
huga að Evrópuferð, erum að
hugsa um að fá okkur bíla-
leigubíl og keyra um megin-
landið. Annars er maður ekkert
farinn að kíkja áfjármálin, þetta
ræðst mikið af þeim.
Salome Bergsdóttir:
Nei, ekki get ég nú sagt það.
Jú, maður fær auðvitað sumar-
frí en ég er ekkert farinn að
skipuleggja ennþá. Ég ætla
bara að nýta fríið vel.
Kirsten Briem:
Já, ég ætla að vera í hálfan
mánuð í Brautarholti á Skeiðum
þar sem ég ætla aö elda mat
ofan í fólk sem verður í sumar-
skóla í stærðfræði. Það verður
mitt sumarfrí.
Ómar Jóhannsson:
Það er ekkert ákveðið ennþá
hvað maður gerir í fríinu. En þó
getur verið að maður skreppi
norður í land.
Framhaldsskól
Draiimur á J<
Einar Porbergsson leikstjóri:
Gefur álíka mikið
og heilt skólaár
Það er í mikið ráðist að setja
upp Draum á Jónsmessunótt með
leiklistarklúbbi í framhaldsskóla.
Einar Þorbergsson kennari við
Framhaldsskólann er fæddur og
uppalinn í Reykjavík. Hann er
lærður leikari, lauk námi við
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins.
Einar flutti austur á land 1973,
vann sem kennari á Fáskrúðsfirði
í tvö ár og í þrjú ár á Borgarfirði
eystra, en flutti síðan til Húsavík-
ur og þetta er ekki í fyrsta sinn
sem hann ræðst í stórvikri með
ungum Húsvíkingum.
„Fyrsta árið sem ég var hér
setti ég upp Nýjársnóttina eftir
Indriða Einarsson með krökkun-
um við Gagnfræðaskólann. Að
vissu leyti er það verk svipað og
Draumurinn, það byggir upp á
því sama, enda var Indriði undir
áhrifum frá Shakespeare og
margar persónur í verkinu líkar
persónum í verkum hans. Næsta
ár, 1980 setti ég upp Snegla tamin
eftir Shakespeare með Gagn-
fræðaskólanum og lék þá sjálfur
með. Síðan hefur verið hlé þar til
nú að við setjum upp Draum-
inn.“
- Þú hefur sett upp Fiðlarann
á þakinu og Gullna hliðið með
Leikfélagi Húsavíkur. Hvað hef-
ur þú sett upp mörg verk í heild-
ina og hver eru þau helstu?
„Ég hef ekki tölu á hvað ég er
búinn að setja upp mörg leikrit
allt í allt, þau eru vafalaust kom-
in eitthvað á fjórða tug, síðast
þegar ég vissi voru þau komin
hátt á þriðja tuginn en það er
nokkuð langt síðan. Ég setti mik-
ið upp í Kennaraskólanum, lík-
lega fimm sýningar meðan ég var
að læra þar. Fyrsta verkið sem ég
setti upp var Ys og þys út af engu
eftir Shakespeare. Hann er minn
uppáhaldshöfundur og það hefur
ekki farið fram hjá neinum
nemanda mínum.“
- Af hverju stafarShakespeare-
aðdáun þín?
„Það er svo rnikil viska í verk-
um hans. Ef þú ert ekkert að
skoða söguþráð leikritanna getur
þú fundið í þeim svo mikla visku
og heimspeki, en það er það sem
flestir eru ekkert að leita eftir
heldur horfa menn á hráan sögu-
þráðinn. Það sem gerir það að
verk hans hafa lifað eru þessir
kaflar þar sem spekin kemur
fram, en það eru iðulega þeir sem
strikað er yfir við uppsetningu
verkanna.“
- Nú setur þú upp alveg bráð-
skemmtilega leiksýningu með
ungu fólki. Er það almennur mis-
skilningur að Shakespeare sé
þungur og leiðinlegur?
„Fólk fær tilfelli þegar minnst
er á Shakespeare, jafnvel fólk
sem starfar að leiklist og það er
furðulegt. Tilfellið var, þegar við
sýndum Snegluna, að krakkarnir
sem sáu sýninguna skemmtu sér
mjög vel, alveg eins og núna.
Vanalega byrjar fólk á vitlausum
enda, það byrjar á að lesa harm-
leikina af því að þeir eru frægast-
ir og mest um þá talað, en fólk á
að byrja á því að kynna sér gam-
anleikina því þá fær það síður
þessa fóbíu.“
- Er ekki erfitt að halda utan-
um svona sýningu sem sett er upp
með ungu fólki?
„Jú, það er einmitt erfitt að
halda utanum þetta sérstaklega
þegar æfingatíminn er eins langur
og hjá okkur núna. Við æfðum
auðvitað styttri tíma á dag af því
að krakkarnir eru í fullu námi, og
því er erfitt að halda utanum það
að allir haldi einbeitingunni að
þessu verki í tvo mánuði. Það
kom tímabil sem var verulega
erfitt en strax og þau fóru að fá
búningana, leikmyndin kom og
svo ljósin, þá skapaðist þessi
ánægja á ný. Á tímabili áttu þau
erfitt með textann en hann er
fljótlærður af því hann er svo
mikið í ljóðum. Þau náðu merki-
lega vel að skilja textann strax í
upphafi, en við byrjuðum æfingar
með því að sitja saman og velta
fyrir okkur textanum."
- Hvað finnst þér krakkarnir
fá út úr því að taka þátt í þessu?
„Það að starfa saman og að
vinna saman að heilli leiksýn-
ingu. Þessi samvinna krefst að
hver og einn gefi ákveðið af sér
og fórni hinu og þessu til þess að
þetta geti orðið að veruleika, það
er kannski það sem þau fá mest
út úr. Segja má að það að setja
upp heila leiksýningu eins og
þessa gefi krökkum álíka mikið
og heilt ár í skóla.“
- Ertu þreyttur eftir törnina?
„Já, mjög svo. Ég sást eigin-
lega ekki heima hjá mér síðustu
vikuna nema frá þrjú á nóttunni
til sjö á morgnana. En ég er
ánægður með útkomuna. Ég var
nokkuð viss um að leikararnir
mundu skila þessu vel og svo var
ánægjulegt hvað leikmyndin
tókst vel, hún tókst eiginlega bet-
ur en ég þorði að vona. Ég er
þakklátur krökkunum fyrir að
hafa fórnað tíma sínum í þetta,
ánægður með undirtektir sem
verkið hefur fengið og vona að
þetta veki hvöt til að vinna meira
með Shakespeare.“ IM
Leikui
>akka<
Demei
Eymui
Þorbjörg Björnsdóttir, Hörður Harðarson, Bj
hlutverkum sínum.