Dagur - 31.03.1989, Síða 11
Föstudagur 31. mars 1989 - DAGUR r 11
Aðalfundur Osta- og smjörsölunnar sf.:
Ostasala jókst um
3,8 prósent í fyrra
- en smjörsalan dróst saman um 8 prósent
FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
Á AKUREYRI
íbúðir
óskast til leigu fyrir starfsmenn okkar.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofustjóra
síma 22100.
Aðalfundur Osta- og smjörsöl-
unnar sf. var haldinn í húsakynn-
um fyrirtækisins við Bitruháls í
Reykjavík 10. mars 1989. Fund-
inn sóttu 29 fulltrúar frá eigend-
unum, 17 mjólkursamlögum og
Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga. Sambandið hefur nú ákveð-
ið að selja hlut sinn í fyrirtækinu.
Árið 1988 var 30. starfsár Osta-
og smjörsölunnar.
Horfur á að lítið eða nær
ekkert verði flutt út 1989
Til umræðu á aðalfundinum voru
einkum framleiðslu- og sölumál
mjólkurafurða. í ræðu forstjóra,
Óskars H. Gunnarssonar kom
fram, að vegna jafnvægis á milli
framleiðslu og eftirspurnar
innanlands eru horfur á því að
lítið eða nær ekkert verði flutt út
af mjólkurafurðum 1989. Árið
1988 voru flutt út 715 tonn af
ostum. Hins vegar fer verð er-
lendis hækkandi, vegna minnk-
andi mjólkurframleiðslu hvar-
vetna.
Fyrirséð er að ekki verður
skortur á mjólkurafurðum í ár,
en erfitt er að spá um horfurnar
fyrir mars og apríl 1990, en á
þeim árstíma eru birgðir að jafn-
aði lægstar.
Tapaðar viðskiptaskuldir
25 milljónir króna
Rekstur Osta- og smjörsölunnar
sf. var hagstæður árið 1988 og
greiðsluskil til mjólkursamlaga
viðunandi. Heildarsala Osta- og
smjörsölunnar 1988 nam rúmum
2.5 milljarði króna. Tíðindum
sætir að afskrifaðar eru tapaðar
viðskiptaskuldir að upphæð 25
milljónum króna, en skuldatöp
hafa verið óveruleg hjá fyrirtæk-
inu fram til þessa.
Eignir Osta- og smjörsölunnar
eru metnar á 556,7 milljónir
króna, skammtímaskuldir nema
rúmum 280 milljónum en lang-
tímaskuldir tæpum 2 milljónum
kr. Eigið fé fyrirtækisins var 274
milljónir í árslok 1988.
Ostasalan jókst um 3,8%
en smjörsalan dróst saman
Ostasala jókst um 3,8% árið 1988
og er meðalársneysla á íbúa hér-
lendis nú 10,6 kg á ári. Smjörsal-
an dróst saman um 8%, en sala á
öðru viðbiti eykst enn. Viðbit úr
mjólk hefur náð sífellt betri
markaðsstöðu undanfarin ár á
kostnað jurtafeiti- og smjörlíkis-
tegunda.
Ef feitmetisneysla landsmanna
er skoðuð í heild kemur í Ijós að
markaðshlutdeild Osta- • og
smjörsölunnar hefur stöðugt ver-
ið að aukast síðan 1985, en hlutur
smjörlíkis og afurða úr jurtafeiti
minnkað að sama skapi.
Innra eftirlit mjólkuriðnaðar-
ins er mjög sterkt. Auk þess eftir-
lits og rannsókna sem fram fara
hjá öllum mjólkursamlögum og
Rannsóknastofu mjólkuriðnað-
arins í Reykjavík voru rúm 9000
sýni athuguð á rannsóknastofu
Osta- og smjörsölunnar árið
1988. Gæðastaðall mjólkur-
afurða reyndist að jafnaði mjög
hár.
Ostabúð opnuð í Kringlunni
í Reykjavík sl. ár
Ostabúð var opnuð í Kringlunni í
Reykjavík á árinu og hefur hún
notið mikilla vinsælda. Aðrar
ostabúðir eru á Bitruhálsi og við
Snorrabraut. Starfsemi Veislu-
þjónustunnar hefur aukist og
margar nýjar tegundir osta litið
dagsins ljós.
Bragðsterkir ostar eru lagerað-
ir í Ostakjallara Osta- og smjör-
sölunnar fyrir ostabúðir og þá
neytendur sem slíkt kjósa. Osta-
kjallarinn er talinn liður í þróun
ostamenningar á íslandi
Vísitala fram-
færslukostnaðar
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í marsbyrjun
1989. Vísitalan í mars reyndist
vera 117,4 stig (maí 1988 = 100),
eða 2,7% hærri en í febrúar.
Samsvarandi vísitala samkvæmt
eldra grunni (febrúar 1984 = 100)
er 287,8 stig.
Af einstökum verðhækkunum
á tímabilinu má nefna að 12,8%
verðhækkun áfengis og 15,1%
verðhækkun tóbaks 13. febrúar
síðastliðinn hafði í för með sér
rúmlega 0,4% hækkun vísitöl-
unnar. Gjaldskrárhækkun ýmissa
opinberra stofnana að undan-
förnu olli alls um 0,5% vísitölu-
hækkun. Par má til dæmis nefna
28,2% hækkun afnotagjalda
RÚV 1. mars síðastliðinn sem
leiddi til 0,2% vísitöluhækkunar
og tæplega 6% hækkun raf-
magns- og hitunarkostnaðar sem
olli um 0,2% hækkun. Hækkun
á verði bensínlítra um 4,6% 1.
mars síðastliðinn hafði í för með
sér 0,2% hækkun á vísitölunni og
3% hækkun á verði nýrra fólks-
bíla olli einnig 0,2% hækkun.
Verðhækkun mjólkur og mjólk-
urafurða 1. mars, en þessar
afurðir hækkuðu að meðaltali um
6,1% olli um 0,2% hækkun.
Húsnæðisliður vísitölunnar
hækkaði um 1,9%, sem olli tæp-
lega 0,3% hækkun á vísitölunni
en sú hækkun stafar fyrst og
fremst af hækkun viðhaldskostn-
aðar og annarra kostnaðarliða,
sem fylgja breytingum á bygging-
arvísitölu. Pá má nefna að verð-
hækkun á fatnaði olli 0,1%
hækkun vísitölunnar. Verðhækk-
un ýmissa annarra vöru- og þjón-
ustuliða olli alls um 0,8% hækkun
á vísitölu framfærslukostnaðar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 21,2%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 6,0% og jafngildir sú
hækkun um 26,4% verðbólgu á
heilu ári.
Bókin Ostalyst hefur notið
gríðarlegra vinsælda
Bókin Ostalyst, sem út kom fyrir
jólin 1988 hefur notið gríðarlegra
vinsælda, seldist nær upp og er nú
komin út í annarri prentun. Að
venju dreifði Osta- og smjörsalan
einnig ýmsum matreiðslu- og
kynningarbæklingum ókeypis og
telur brýnt að sinna þjónustu við
neytendur þannig og með rekstri
á tilraunaeldhúsi.
Osta- og smjörsalan heldur
árlega mörg námskeið fyrir
starfsfólk verslana auk þess sem
haldnar eru vörukynningar fyrir
neytendur í verslunum. Um 4000
manns komu í heimsókn í fyrir-
tækið eina dagstund í tilefni
Norræns tækniárs.
I stjórn Osta- og smjörsölunn-
ar sf. voru kosnir: Ólafur Sverris-
son, formaður, Birgir Guð-
mundsson, varaformaður, Þór-
ólfur Gíslason, ritari, Vífill Búa-
son og Þórarinn E. Sveinsson.
Forstjóri Osta- og smjörsöl-
unnar sf. er Óskar H. Gunnars-
son.
J £þ/0E
Sala getraunaseöla lokar á laugardögum kl. 13:45.
13. LEIKVIKA- 1. APRÍL 1989 1 xn 2
Leikur 1 Aston Villa - Luton !
Leikur 2 Charlton - Middlesbro i
Leikur 3 Derby - Coventry — —
Leikur 4 Everton - Q.P.R.
Lalkta’ $li NorwJiph - Liverpool
Leikur 6 Shetf. Wed. - Millwall
Leikur 7 Southampton - Newcastie
Leikur S Tottenhaih - West Ham
Leikur 9 Wimbledon - Nott. For. —i
Leikur 10 Brighton - Man. City
Lelkur 11 Leeds - Bournemouth
Leikur 12 Swindon - Blackburn
Símsvari hjá getraunum á laugardögurr kl. 16:15 er 91-84590 og -844<&. Ath. brevttan lokunartím; i efl 3 tir
Ef 1. vinningur genjgur ekki út næst, verður sprengivika 8. apríl.
HVER ER STAÐA FYRIRTÆKIS ÞÍNS?
Skilar reksturinn ágóða; gengur dæmið ekki upp, eða er staðan óljós
vegna upplýsingaskorts?
OVISSA?
Við teljum að hjá of mörgum íslenskum fyrirtækjum ríki óvissa um
rekstrarlega stöðu, afleiðingin verður óvissa um verðlagningu og
tilboðsgerð, óvissa um áætlanagerð, óvissa um greiðslustöðu
o.s.frv. o.s.frv.
VIÐ HÖFUM ÁHUGA Á AÐ GERA
UPPLÝSINGAVINNSLU BETRI SKIL
Með skipulagðri og jafnri bókhaldsvinnu og með nútíma tölvunotk-
un er hægt að meta stöðu fyrirtækisins hversu oft sem óskað er.
Okkar skoðun er sú að bókhaldsuppgjör sé ekki aðeins árlegt fram-
tal til skattyfirvalda, heldur rekstrarlegt stjórnunartæki.
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR NÝ VIÐHORF!
Við skipuleggjum og vinnum: Bókhald, laun, reikningsskil, áætiana-
gerð og ve:tum rekstrarráðgjöf eftir þörfum viðskiptavina okkar.
Hefurðu áhuga á að kanna málið? Hafðu þá samband við okkur
sem fyrst.
f REKSTRARRÁÐGJÖF
I REIKNINGSSKIL
RÁÐNINGAR
FELL HF. • TRYGGVABRAUT 22 • PÓSTHÓLF 748 • 602 AKUREYRI • SÍMI 96-25455
I