Dagur - 31.03.1989, Síða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 31. mars 1989
Aðalfundur
Akureyrardeildar KEA
verður haldínn á Hótel KEA þriðjudaginn 11.
apríl kl. 20.00.
Deildarstjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubankans hf. verður hald-
inn í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, Reykjavík,
laugardaginn 8. apríl 1989 og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 32. gr. samþykkta bankans, þar á
meðal breytingar á samþykktum og ákvörðun
arðs.
b) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt hluta-
fjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar
verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 5., 6. og 7. apríl næstkomandi.
F.h. Bankaráðs Alþýðubankans,
Ásmundur Stefánsson, formaður.
Orlofsferð
Verkalýðsfélagsins Einingar 1989 verður
farin til Færeyja dagana 20.-27. júlí ef næg
þátttaka fæst.
Frá Akureyri verður farið með rútu snemma morg-
uns fimmtudaginn 20. júlí til Seyðisfjarðar og þaðan
með M/F Norröna til Þórshafnar í Færeyjum.
Gist verður á Hótel Smyrilline í Þórshöfn og verður
farið í skoðnunarferðir um Færeyjar. Brottför frá
Þórshöfn með M/F Norröna verður miðvikudaginn
26. júlí og er áætluð heimkoma til Akureyrar að
kveldi fimmtudagsins 27. júlí.
Hámarksfjöldi í ferðina er 40 manns.
Verð kr. 27.000,- pr. mann.
Innifalið í verði er ferðir, hótelgisting og morgunmat-
ur.
Þátttöku ber að tilkynna til skrifstofu félagsins á
Akureyri í síma 23503 sem allra fyrst, vegna tak-
markana á sætafjölda, en þó eigi síðar en 15. apríl
n.k.
Ferðanefnd Einingar.
Samviskufangar
Mannréttindasamtökin Amn-
esty Intcrnational vilja vekja
athygli almennings á máli eftir-
farandi samviskufanga. Jafn-
framt vonast samtökin til að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum föngum og
sýna þannig í verki andstöðu
sína gegn því að slík mannrétt-
indabrot séu framin. íslands-
deild Amnesty gefur einnig út
póstkort til stuðnings föngum
mánaðarins. Hægt er að gerast
áskrifandi að þessum kortum
með því að hringja til skrifstof-
unnar, Hafnarstræti 15, virka
daga kl. 14-16 í síma 16940.
Eþíópía:
Bræðurnir Wossen-Seged,
Michael og Bede-Mariam Mek-
onnen hafa verið í haldi í 14 ár án
dóms og laga vegna frændsemi
við fyrri stjórnvöld ríkisins.
Wossen-Seged (einnig þekktur
undir nafninu Paul), 39 ára
gamall, Michael, 34 ára gamall
og Bede-Mariam, 29 ára, eru ætt-
menn fyrrum Eþíópíukeisara.
Þeir hafa verið í haldi án ákæru
og án þess að mál þeirra hafi ver-
ið dómtekið allt frá því að ríkis-
stjórn Haile Selassie keisara var
steypt árið 1974. Allir, sem tengj-
ast fyrri stjórnvöldum og voru
handteknir í byltingunni 1974,
hafa verið látnir lausir, að bræðr-
unum undanteknum, þar með
talin móðir þeirra, Sara Gizaw og
sex aðrar konur. Þær voru látnar
lausar í maí 1988. Engin skýring
hefur verið gefin á varðhaldi
bræðranna og yfirvöld láta ekkert
uppi um hvenær þeir verði látnir
lausir.
Wossen-Seged, Michael og
Bede-Mariam Mekonnen eru í
haldi í Alem Bekagne (þýð.:
Heimsendir) öryggisdeild Aðal-
fangelsisins í Addis Ababa. Þeir
hafa allir þjáðst af heilsuleysi,
sem að hluta til má rekja til lélegr-
ar læknisþjónustu og ómannúð-
legs aðbúnaðar í fangelsinu. Það
var ekki fyrr en á þessu ári, sem
þeim leyfðist að fara í reglulega
læknisskoðun og fá viðeigandi
meðferð. Núna er þeim heimilt
að fá vikulegar heimsóknir og
láta færa sér mat og aðrar nauð-
synjar.
Vinsamlegast skrifið kurteis-
legt bréf og krefjist þess að bræð-
urnir verði látnir lausir tafarlaust
til:
H.E. President Mengistu Haile-Mariam
President of the People’s Democratic
Republic of Ethiopia
Office of the President
Addis Ababa
Ethiopia
Kólombía
Tacisio Medina Charry, 21 árs
gamall stúdent var handtekinn
fyrir ári og síðan hefur ekkert til
hans spurst. Félagar í Kommún-
istaflokki Kólumbíu og nokkrir
stúdentar úr Sur Kólumbíu
háskóla voru stöðvaðir á götu
þann 19. febrúar í borginni Neiva
í Mið-Kólumbíu. Lögreglan var
að kanna persónuskilríki vegfar-
enda. Skilríki Tarcisio Medina
voru í lagi, en lögreglan kom
auga á að hann hélt á eintaki af
dagblaði kommúnista La Voz.
Fyrirliða lögreglusveitarinnar var
gert viðvart, og hann heyrðist
skipa svo fyrir, að Tarcisio skyldi
fluttur á lögreglustöðina í Neiva
til „F-2“ deildar leynilögreglunn-
ar þar. Vitni sagði síðar, að
Tarcisio Medina hefði strax orðið
viðskila við hina handteknu eftir
að komið var á stöðina. Þeir, sem
handteknir voru um leið og hann,
voru látnir lausir síðar um
kvöldið, en til hans hefur ekkert
spurst frá því farið var með hann
á deild „F-2“. Lögregluyfirvöld
bera því við, að þeim sé ókunn-
ugt um afdrif hans. Kommúnista-
flokkurinn er löglegur í Kólumbíu,
en engu að síður hafa margir
flokksmenn verið drepnir og
ýmsir „horfið'* á síðustu árum.
Fjöldskylda Tarcisio Medina
hóf rannsókn á „hvarfi“ hans.
Dómari í borgaralegum dómstóli
vísaði máli hans til herdómstóls,
en general prokúratör, sem fer
með mannréttindamál, vísaði
málinu til baka til borgaralegra
dómstóla. Málinu var enn á ný
vísað til herdómstóls og þar ligg-
ur það í salti. Háskólastúdentar
og kennarar hafa mótmælt hvarfi
Tarcisio Medina og hafa verið
sakaðir um „niðurrifsstarfsemi"
og ýmsir stúdentaleiðtogar hafa
að undanförnu sætt varðhaldi um
stundarsakir.
Vinsamlegast skrifið kurteis-
legt bréf og farið þess á leit að
afdrif hans verði könnuð:
Senor Presidente
Vigilio Barco
Palaci Narino
Bogotá
Colombia
Kína
Song Yude er 34 ára gamall og
predikar mótmælendatrú í Kína.
Hann afplánar nú átta ára fang-
elsisdóm fyrir trúariðkun sína.
Song Yude var predikari í
Tongbo í héraðinu Henan í mið-
Kína. Þar var hann í tengslum
við hóp kristinna manna, sem
neitaði að ganga í Hina sjálf-
stæðu kínversku trúarhreyfingu,
sem er ein af nokkrum þjóðleg-
um trúarhreyfingum sem stjórn-
völd stofnuðu á sjötta áratugnum
með það fyrir augum að stjórna
trúmálum í landinu.
Samkvæmt stefnu stjórnvalda í
trúmálum, ber að skrá hópa
mótmælenda, sem hittast til
bænagjörða á einkaheimilum
(„Hús kirkjum"). Opinbert leyfi
þarf til að boða fagnaðarerindi,
predika eða dreifa bókum með
trúarlegu efni.
Á árunum 1982 til 1984 voru
margir kristnir menn handteknir
fyrir að stunda trúariðkanir án
leyfis og sérstaklega kvað að
þessu í Henan héraði.
Song Yude var handtekinn 16.
júlí 1984. Hann var í haldi til 29.
janúar 1986, en þá kom hann fyr-
ir dómstól ákærður fyrir „and-
byltingaráróður og múgæsingu".
Hann var meðal annars sakaður
um að dreifa afturhaldssömum
trúarritum að utan og standa fyrir
ólöglegum trúarsamkomum
stofnuðum til höfuðs Hinni sjálf-
stæðu kínversku trúarhreyfingu.
Hann var sekur fundinn um að
„koma af stað afturhaldsskoðun-
um“, „kynda undir andspyrnu
við lög ríkisins og tilskipanir", og
„andmæla Hinni sjálfstæðu trúar-
hreyfingu“. Amnesty telur, að
réttarhöldin yfir Song Yude hafi
verð óréttmæt. Honum var ekki
skipaður verjandi og áfrýjun á
máli hans til æðra dómstóls var
hafnað í apríl 1986. Samtökin
láta sig varða að hann er fangels-
aður fyrir trúariðkun sína ein-
vörðungu og enginn veit um
afdrif hans.
Vinsamlegast skrifið kurteis-
legt bréf og farið fram á að hann
verði látinn laus tafarlaust og án
allra skilyrða:
Prime Minister Li Peng
Guowuyuan
Beijinshi
People’s Republic of China.
Útílutningsráð og Iðnlánasjóður:
Upplýsingarit
um vörusýningar
Alþjóðlegar vörusýningar eru
einn mikilvægasti vettvangur
íslenskra fyrirtækja til að
kynna framleiðslu og þjónustu
sína. Tii að auðvelda starfs-
mönnum fyrirtækja, sem hér
um ræðir, að skipuleggja og
undirbúa starfið á sýningum,
hafa Útflutningsráð Islands og
Iðnlánasjóður gefið út vandað
fræðslurit sem heitir Vörusýn-
ingar - markmið, skipulag,
framkvæmd, en útgáfan er
kostuð af Iðnlánasjóði.
Ritið, sem er 60 blaðsíður, er
fyrst og fremst vinnubók með
minnislistum yfir öll þau atriði,
sem þarf að uppfylla og fram-
kvæma þegar sýning er undirbú-
in. Auk þess eru starfslýsingar á
allri þeirri vinnu sem starfsmenn
þátttökufyrirtækis á sýningar-
svæðinu þurfa að hafa í huga.
Auðvelt er að aðlaga minnislist-
ana að þörfum flestra fyrirtækja
og nota þá við áætlanagerð og
framkvæmd sýningarstarfsins.
Mikið er í húfi að árangur af þátt-
töku vörusýningar sé í réttu hlut-
falli við þá fjármuni og vinnu sem
fyrirtækin verja til þeirra.
Þegar fræðsluritið var samið,
var stuðst við danska ritið Effek-
tiv Messedeltagelse, sem gefið er
út af Industrirádet í Kaupmanna-
höfn, en Danir búa yfir mikilli og
góðri reynslu á þessu sviði.
Hulda Kristinsdóttir, viðskipta-
fræðingur, þýddi og staðfærði rit-
ið á íslensku. í inngangi þess seg-
ir Ingjaldur Hannibalsson, fram-
kvæmdastjóri Úí, m.a.: „í þessu
riti er byggt á reynslu og þekk-
ingu fyrirtækja og þjónustuaðila,
innlendra og erlendra, sem hafa
unnið að sýningum með góðum
árangri. Leiðbeiningar eiga að
auðvelda fyrirtækjum sem litla
eða enga reynslu hafa af sýning-
arstarfi að meta hugsanleg tæki-
færi og árangur af sýningum þeg-
ar ákvarðanir eru teknar um þátt-
töku.“
Bæklingurinn Vörusýningar er
annar í ritröð leiðbeiningarita
Útflutningaráðs. í janúar í fyrra
kom út ritið Til að byrja með, en
þar er að finna leiðbeiningar um
fyrstu skrefin í útflutningi. „Allir
þeir sem stunda eða starfa við út-
flutning þurfa að lesa og eiga
þessi rit í gagnasafni sínu,“ segir í
fréttatilkynningu frá útgefend-
um.