Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 4. apríl 1989 - DAGUR - 3
Næg vinna á Dalvík:
En óvissu gætir með vinnu
fyrir skólafólkið í sumar
- segir Valgerður Guðmundsdóttir,
starfsmaður Verkalýðsfélagsins Einingar
Að sögn Valgerðar Guðmunds-
dóttur, starfsmanns Verka-
lýðsfélagsins Einingar á
Dalvík, gætir nokkurrar óvissu
með atvinnu fyrir skólafólk í
sumar. Hún segir að vinnan
standi og falli með aflabrögð-
um togara og báta og um þau
sé erfltt að spá margar vikur
fram í tímann.
Frystihús Kaupfélags Eyfirð-
inga á Dalvík er langstærsti vinnu-
staðurinn á Dalvík, með um 80
manns á launaskrá. Þar hefui
fjöldi unglinga fengið vinnu
undanfarin sumur en Kristmann
Kristmannsson, verkstjóri, segist
ekki búast við að geta ráðið jafn-
marga unglinga í sumar og oft
áður. Ástæðuna segir hann
fyrst og fremst vera þá að fast-
ráðnir starfsmenn Frystihússins
virðist ætla að taka sumarfrí í
skemmra lagi á komandi sumri.
„Það hefur ekki verið mjög mikil
vinna og því má ætla að fólk hafi
heldur litla peninga milli hand-
anna. Það er þó ekki að fullu
komið í ljós með fjölda unglinga
í sumarafleysingar vegna þess að
fastráðið starfsfólk hefur ekki
endanlega gengið frá skráningu í
sumarfrí," segir Kristmann.
Þessa dagana er nóg að gera
við frystingu og söltun hjá KEA.
Björgvin landaði 160 tonnum af
blönduðum fiski strax eftir páska
og er nú verið að ljúka vinnslu
hans. Reyndar fóru um 30 tonn
aflans til Siglufjarðar til vinnslu
hjá Þormóði Ramma. óþh
Jöfnunarsjoður sveitarfélaga:
Tekjur verði miðaðar við
heildarskatttekjur ríkisins
44. fulltrúaráðsfundi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
lauk á Akureyri á föstudag.
Nefndir á vegum sambandsins
skiluðu áliti í mörgum málum
sem varða sveitarstjórnir og
samskipti ríkis og sveitarfé-
laga, fjármálastjórn sveitarfé-
Iaga og tekjustofna, jöfnunar-
sjóðsframlög, samstarf um at-
vinnumál, staðgreiðslu- og at-
vinnumál og innri málefni sam-
bandsins.
Verkaskipta- og tekjustofna-
nefnd hafði til umfjöllunar frum-
vörp þau er liggja fyrir alþingi um
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga og tekjustofna sveitarfé-
laga. Nefndin lagði til að fulltrúa-
ráðsfundurinn samþykkti frum-
varpið með þeim breytingum að
sjúkrastofnanir samkv. heilbrigð-
islögum, kirkjur, skólar o.s.frv.
verði undanþegin fasteignaskatti.
Þá er lagt til að tekjur Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga verði miðaðar
við heildartekjur ríkissjóðs af
beinum og óbeinum sköttum.
Mælt er með að frumvarp um
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga verði samþykkt með þeim
breytingum sem koma fram í
bréfi frá stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga í byrjun
febrúar. Þessar tillögur voru sam-
þykktar samhljóða á fulltrúaráðs-
fundinum.
Fjárhagsnefnd hafði til um-
fjöllunar reikninga sambandsins
fyrir árið 1988 og fjárhagsáætlun
ársins í ár. Hvort tveggja var
samþykkt samhljóða. Þá var
samþykkt að stjórn sambandsins
verði heimilað að ráða mann sem
hefði með höndum eftirlit á skil-
um staðgreiðslutekna sveitarfé-
laga.
Samþykkt var að láta fara fram
könnun á fjárhagsstöðu sveitar-
félaga almennt. Fulltrúaráðið
lagði til að birtar verði ábending-
ar til sveitarstjórna með viðmið-
unartölum um hámarksskuldir og
greiðslubyrði einstakra sveitar-
sjóða miðað við tekjur. í þessum
ábendingum komi fram hvar
hættumörk séu talin liggja á
þessu sviði.
Allsherjarnefnd vildi leggja
áherslu á að sem fyrst yrði kölluð
saman nefnd sú sem kjörin var á
síðasta landsþingi og gera átti til-
lögu um breytingar á kjöri til
stjórnar og fulltrúaráðs.
Lagt var til að stjórn sam-
bandsins hæfi þegar í stað við-
ræður við stjórnvöld um aukin
framlög til tekjujöfnunar milli
sveitarfélaga, a.in.k. 50 til 60
milljónir króna, þannig að svip-
aðri upphæð verði varið til auka-
framlaga nú og á síðasta ári.
Auk þess var ályktað um sam-
starf um atvinnumál við stjórn-
völd, staðgreiðslumál, gjald-
heimtur, árbók sveitarfélaga,
fjárhag sambandsins og samein-
ingu sveitarfélaga. EHB
Húsaleiga
hækkar
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði sem samkvæmt
samningum fylgir vísitölu hús-
næðiskostnaðar eða breytingum
meðallauna, sbr. lög nr. 62/1984,
hækkar um 1,25% frá og með 1.
apríl 1989. Reiknast þessi hækk-
un á þá leigu sem er í mars 1989.
Leiga helst síðan óbreytt næstu
tvo mánuði, þ.e. í maí og júní
1989.
DAGUR
Revkjavík
S 9M7450
Norðlcnskt dagblað
Landssamband
íslenskra
vélsleðamanna
Landsmót í Kerlingarfjöllum
- helgina 7.-8. apríl
Þeir félagsmenn á Norðurlandi sem ætla á mótið láti skrá
sig hjá eftirtöldum aðilum:
Þorsteinn 96-21509,
Vilhelm 96-23900,
Stefán 96-24913.
Tómas Búi sími 96-21825.
Dýnur fyrir alla
í öll rúm
Latex dýnan er eina dýnan á markaðnum
úr ekta náttúrugúmmíi.
Svampdýnur — stífar og mjúkar.
Eggjabakkadýnurnar vinsælu.
Saumum yfir gömlu dýnurnar.
Sendum í póstkröfu.
VersliÖ við fagmann.
Svampur og Bólstrun
Austursíða 2, sími 96-25137.
/---------------------------------\
Tölvufrædslan auglýsir:
PC — gnmnnámskeið
Efni tiámskeiðs:
Helstu hugtök tölvutækninnar
Vélbúnaður PC-tölva
Stýrikcrtið MS-DOS
Ritvinnslukerfið Word Perfect
Töflureiknirinn Multiplan
Lengd: lSi klst.
★ ★
Ritviimsliikerflð WORD
Efiii námskeiðs:
Almennt fjallað um ritvinnslukerfi í tölvum
Vinnuumhveríi WORD
Helstu skipanir og valmyndir WÖRD
Æflngar í notkun kcrflsins
Uppsetning texta og útlitssíður
rölvuíræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34 • sími 27899.
V ________________________________/
JIUI IVUSUCg 3IVCIIIIIIUICJI u
27. apríl til 1. maí
Misstu ekki af
VerÖ í tvíbýli kr. 34.150,-
★ Amsterdam er einstök ★
(Aðeins tveir vinnudagar.)
Drottningardagurinn er 29. apríl og þá
breytist borgin í eitt iðandi partý.
Fararstjóri Haraldur Ingi Haraldsson.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Umboðsaðili á Akureyri
er Bókabúðin Edda