Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 4. apríl 1989
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Fyrirliðinn tryggði sigur Liverpool
- Kerry Dixon skoraði 4 mörk fyrir Chelsea í 2. deild
Nú er lokaspretturinn að hefj-
ast í ensku knattspyrnunni og
það er ljóst að baráttan um
Ronnie Whclan fyrirliði Liverpool
skoraði sigurmarkið gegn Nonvich.
Staðan 1. deild
Arsenal 31 17- 9- 5 59:32 60
Liverpool 30 16- 9- 5 48:22 57
Norwich 30 16- 8- 6 42:30 56
Millwall 31 14- 8- 9 43:36 50
Nott. Forest 30 12-12- 6 44:34 48
Tottenham 33 13-10-10 51:43 47
Coventry 32 12-10-10 39:33 46
Derby 30 13- 6-11 32:28 45
Wimbledon 29 13- 6-10 38:33 45
Man. Utd. 29 11-11- 7 38:24 44
Everton 30 10-11- 9 40:36 41
Q.P.R. 31 9-10-12 31:30 37
Sheff. Wed. 31 9- 9-13 29:39 36
Aston Villa 31 8-11-12 37:47 34
Middlesbro 31 8- 9-14 35:50 33
Charlton 31 7-12-12 35:45 33
Southampton 30 7-12-12 42:56 32
Luton 32 7- 9-16 31:45 30
Newcastle 30 7- 7-16 28:49 28
West Ham 28 5- 7-16 22:47 22
2. deild
Chelsea 38 23-11- 4 80:40 80
Man. City 38 20-10- 8 64:39 70
W.B.A. 38 16-15- 7 56:33 63
Blaekburn 38 18- 9-11 61:52 63
Watford 37 16- 9-12 53:42 58
Ipswich 37 17- 5-15 56:50 56
Bournemouth 3717- 5-15 45:4856
Lecds Utd. 38 14-14-10 50:41 56
C. Palace 35 15-10-10 53:43 55
Swindon 36 14-13- 9 52:45 55
Stoke 36 14-12-10 47:52 54
Barnslev 37 13-13-11 53:51 52
Leicester 38 12-13-13 47:52 49
Portsinouth 38 12-12-14 46:47 48
Sunderland 38 12-12-14 50:52 48
Bradford 38 10-15-13 41:48 45
Plymouth 37 12- 9-16 45:54 45
Oxford 38 11-11-16 50:52 44
Oldham 38 9-16-13 62:62 43
Hull 37 11-10-16 47:56 43
Brighton 38 12- 7-19 50:56 43
Shrewsbury 37 7-14-16 32:56 35
Birmingham 37 5-10-22 23:61 25
Walsall 37 4-13-20 32:61 25
Englandsmeistaratitilinn mun
standa milli þriggja liða, meist-
ara Liverpool, Arsenal og
Norwich. Fallbaráttan er einn-
ig mjög hörð, en fátt virðist nú
geta bjargað West Ham frá
falli í 2. deild. Það er hins veg-
ar óljóst hvaða tvö lið munu
fylgja þeim niður. Chelsea hef-
ur nánast trygt sér sigurinn í 2.
deild og Man. City fer einnig
upp, en baráttan um næstu
fjögur sæti er hörð.
Liverpool er nú komið á skrið
og er í öðru sæti. Eins og menn
sáu í Sjónvarpinu á laugardag
sigraði liðið Norwich á útivelli
mjög örugglega. Liverpool hafði
mikla yfirburði í fyrri hálfleik, en
í þeim síðari kom Norwich meira
inn í leikinn án þess að ógna sigri
meistaranna. Sigurmark leiksins
kom á 20. mín. í fyrri hálfleik,
bakvörðurinn Steve Staunton
braust fram vinstri kant, sendi
fasta sendingu fyrir markið sem
fyrirliði Liverpool, Ronnie Whel-
an, afgreiddi með þrumuskoti
upp í hornið, óverjandi fyrir
Bryn Gunn markvörð Norwich.
John Barnes misnotaði dauðafæri
fyrir Liverpool í síðari hálfleik er
hann. skaut framhjá fyrir opnu
marki og sigur meistaranna aldrei
í hættu. Með slíkum leik er erfitt
að sjá að nokkru liði takist að
stöðva Liverpool og miklar líkur
á að liðið haldi titlinum.
Loks tókst Southampton að
sigra í leik eftir að hafa mistekist
í síðustu 23 deildaleikjum. Sigur-
inn var þó tæpur, umdeild víta-
spyrna á síðustu mín. gegn New-
castle. Dómarinn dæmdi víta-
spyrnu á Gary Kelly markvörð
Newcastle fyrir að fella Rodney
Wallace innan teigs. Miðvörður-
inn Neil Ruddock sem nýlega var
keyptur frá Millwall hélt ró sinni
og skoraði úr vítinu og jók þar
með möguleika Southampton til
að halda sæti sínu í 1. deikl. Mir-
andhinha var tvívegis nærri að
skora fyrir Newcastle og Kelly
varði vel frá Glen Cockerill hjá
Southampton auk þess sem varið
var á línu skalli frá Ruddock.
Leikurinn þó slakur og staða
Newcastle slærn.
Tony Adams fyrirliði Arsenal koin
mikið við sögu í leiknum gegn Man.
Utd.
Sheffield Wed. lék sinn besta
leik á tímabilinu gegn Millwall og
sigur liðsins sanngjarn. Chris
Turner í marki liðsins hafði lítið
að gera og greinilegt að Ron Atk-
inson er að gera góða hluti með
liðið. Á 18. mín. hjálpuðust þrír
nýir leikmenn liðsins að við fyrsta
markið, Charlton Pnlmer skoraði
eftir undirbúning Steve Whitton
og David Bennett. Whitton bætti
öðru markinu við og síðan því
þriðja eftir sendingu frá David
Hirst sem hætti við að skjóta úr
góðu færi er hann sá Whitton bet-
ur staðsettan og Sheffield virðist
vera að bjarga sér úr fallhætt-
unni.
Tottenham ýtti West Ham
fram af hengifluginu er liðið sigr-
aði 3:0 þar sem Phil Parkes hélt
upp á að 20 ár voru liðin frá hans
fyrsta leik. Hann hafði lítið að
gera í fyrri hálfleik, West Ham
átti leikinn, en er 3 mín. voru til
hlés skoraði Ali Amar Nayim fyr-
ir Tottenham er hann stýrði skoti
Chris Waddle í netið. Frank Mc-
Avennie var nærri að jafna fyrir
West Ham í síðari hálfleik með
skalla, en Erik Thorstvedt varði
glæsilega. Tottenham bætti síðan
við tveimur mörkum á lokamín-
útunum, fyrst Terry Fenwick úr
tvíteknu víti sem dæmt var á
Parkes fyrir brot á Paul Stewart
og síðan bætti Stewart þriðja
markinu við.
Aston Villa vann dýrmætan
sigur gegn Luton í fallbaráttunni
á laugardag. Tony Daley skoraði
strax á 2. mín. fyrir Villa, en á
27. mín. jafnaði Ricky Hill með
skalla fyrir Luton. Ian Olney
skoraði síðan sigurmark Aston
Villa, en Luton sem er í mikilli
fallhættu leikur til úrslita um
Deildabikarinn um næstu helgi.
Charlton krækti einnig í dýr-
mæt stig í fallbaráttunni gegn
Middlesbrough. Mikill baráttu-
leikur og John Humphrey skor-
aði snemma leiks fyrir Charlton.
Paul Mortimer bætti síðara marki
Charlton við í góðum sigri.
Derby sigraði Coventry heima
Á sunnudag léku Manchester
Utd. og Arsenal á Old Traf-
ford mjög mikilvægan leik í
baráttunni um Englandsmeist-
aratitilinn. Liðin skildn jöfn og
þar með náði Arsenal þriggja
stiga forskoti yfir Liverpool,
en Arsenal hefur leikið einum
leik meira.
Leikurinn mun án efa verða
fyrirliða Arsenal, Tony Adams,
minnistæður. Leikurinn fór fram
í miklu vatnsveðri sem kom í veg
fyrir að leikmenn gætu sýnt sínar
bestu hliðar. í fyrri háltleik voru
leikmenn Arsenal ragir og sýndu
ekki þann kraft og sigurvilja sem
geislar af Liverpool þessa dag-
ana. Arsenal tók þó leikinn í sín-
með marki Paul Blades undir lok
leiksins.
Everton fór létt með Q.P.R.,
sigraði 4:1 heima. Wayne Clarke,
Kevin Sheedy úr víti, Trevor
Steven og Tony Cottee skoruðu
fyrir Everton. Mark Falco skor-
aði eina mark Q.P.R. úr víta-
spyrnu.
Wimbledon fór létt með Nott-
ingham For. á laugardag og leik-
menn Forest greinilega með hug-
ann við úrslitaleikinn í Deilda-
bikarnum um næstu helgi. Lawr-
ie Sanchez skoraði tvö og þeir
Paul Miller og John Fashanu sitt
markið hvor fyrir Wimbledon, en
eina mark Forest gerði Nigel
Clough.
2. deild
• Chelsea virðist hafa tryggt sér
sigur í 2. deild, vann Barnsley 5:3
í fjörugum leik. Kerry Dixon
skoraði 4 mörk fyrir Chelsea í
leiknum.
• Man. City er í öðru sæti þrátt
fyrir skrykkjótt gengi í síðustu
leikjum. Tapaði úti gegn Brigh-
ton þar sem Alan Curbishley og
sjálfsmark Ian Brightwell gerðu
út um leikinn, en mark City gerði
Trevor Morley.
• Portsmouth er að missa af lest-
inni, gerði jafntefli gegn Hull
City. Mike Quinn skoraði, en
Keith Edwards jafnaði fyrir Hull
City.
• Leeds Utd. hefur enn von um
að komast í úrslitakeppnina eftir
3:0 sigur gegn Bournemouth.
Carl Shutt sem Leeds Utd. fékk í
skiptum fyrir Bob Taylor nýlega
frá Bristol City skoraði öll þrjú
mörkin fyrir liðið.
• Gary McAllister skoraði sigur-
nrark Leicester gegn Oxford.
• Michael Milligan skoraði fyrir
Oldham, en Jimmy Quinn fyrir
Bradford í 1:1 jafntefli liðanna.
• Shrewsbury berst fyrir veru
sinni í deildinni og náði að sigra
Crystal Palace sem er ofarlega í
2. deild.
• Stoke City náði aðeins jöfnu
1 - Arsenal 1
ar hendur í síðari hálfleik og náði
forystu þegar 13 mín. voru til
leiksloka. Eftir hornspyrnú Brian
Marwood skallaði Steve Bould
inn að marki Utd. þar sem Tony
Adams kastaði sér fram og skall-
aði í markið. Arsenal virtist hafa
tryggt sér öll stigin, en 7 mín. síð-
ar urðu Adams á mistök er hann
ætlaði að hreinsa frá marki sínu,
en tókst ekki betur til en svo að
boltinn skrúfaðist yfir John Lukic
í nrarki Arsenal og í netið. Sorg-
legur endir fyrir Adams og gæti
reynst liðinu dýrkeyptur. Eftir 3
vikur munu Liverpool og Arsenal
mætast á Anfield í Liverpool og
þar gætu úrslit ráðist í deilda-
keppninni í ár. p.L.A
gegn Plymouth og tapaði þar
með dýrmætum stigum á heima-
velli.
• Sunderland missti einnig stig á
heimavelli í jafntefli gegn Birm-
ingham og kemst ekki upp.
• Swindon gerði einnig jafnteli
heima gegn Blackburn, staða
Swindon þó sæmileg og Black-
burn tryggt með sæti í úrslitun-
um.
• Sama má segja um W.B.A.
þrátt fyrir markalaust jafntefli úti
gegn Walsall.
• Watford sigraði hins vegar
Ipswich, en bæði þessi lið standa
þokkalega að vígi í baráttunni á
toppnum.
• 13. deild er Wolves efst með
74 stig, Port Vale 66 og Sheffield
Utd. og Bristol Rovers með 63
stig. Á botninum eru Gillingham
með 31 stig og Aldershot með 29.
• Efst í 4. deild eru Rotherham,
Scunthorpe og Crewe með 68 stig
og Tranmere með 65 stig. Neðst
eru Darlington og Colchester
með 31 stig. Þ.L.A.
Úrslit
1. deild
Aston Villa-Luton 2:1
Charlton-Middleshrough 2:0
Derby-Coventry 1:0
Everton-Q.P.R. 4:1
Manchester Utd.-Arsenal 1:1
Norwich-Liverpool 0:1
Sheffield Wcd.-Millwall 3:0
Southampton-Newcastle 1:0
Tottenham-West Ham 3:0
Wimbledon-Nottingham For 4:1
2. deild
Brighton-Manchester City 2:1
Chelsca-Barnsley 5:3
Ilull City-Portsmouth 1:1
Leeds Utd.-Bournemouth 3:0
Leicester-Oxford 1:0
Oldham-Bradford 1:1
Shrewsbury-Crystal Palace 2:1
Stoke City-Plymouth 2:2
Sunderland-Birminghain 2:2
Swindon-Blackburn 1:1
Walsall-W.B.A. 0:0,
Watford-Ipswich 3:2
3. deild
Brentford-Aldershot 2:1
Bristol Rovers-Blackpool 1:0
Bury-Huddersfield 0:6
Cardiff City-Bristol City 1:1
Chcster-Bolton 0:0
Chesterfield-Swansea 2:0
Gillingham-Northampton 1:0
Mansfield-Wolves 3:1
Notts County-Wigan 1:0
Preston-Fullham 1:4
Rcading-Port Vale 3:0
Southend-Sheffield Utd. 2:1
4. deild
Burnley-Hereford 3:3
Cambridge-Wrexham 2:0
Carlisle-Hartlepool 2:1
Colchestcr-Rochdale 3:0
Darlington-Tranmere 1:2
Exeter-Peterborough 3:1
Lcyton Orient-Grimsby 5:0
Lincoln-Stockport 0:0
Rolherham-York City 0:1
Searborough-Halifax 3:1
Scunthorpe-Doncaster 2:1
Torquay-Crewe 2:1
Úrslit í vikunni
1. deild
Liverpool-Derby 1:0
Luton-Tottcnham 1:3
2. deild
Ipswich-Chelsea 0:1
Bryan Gunn markvörður Norwich varð að horfa á eftir boltanum í netið
gegn Liverpool.
Mistök Adams dýrkeypt
- Man. Utd.