Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 4. apríl 1989 - DAGUR - 7 - sigraði ÍS 3:2 í spennandi leik KA tryggði sér íslandsmeist- aratitilinn í biaki með því að sigra Stúdenta 3:2 í æsispenn- andi leik í Iþróttahöllinni á sunnudaginn. Sigur KA- manna á þessu Islandsmóti var fyllilega verðskuldaður enda hefur liðið ekki tapað einum einasta leik á mótinu í allan vetur. En ÍS lét KA-menn svo sann- arlega vinna fyrir stigunum að þessu sinni. Þrátt fyrir að þrjá fastamenn vantaði í liðið þá spil- uðu Stúdentarnir mjög vel enda höfðu þeir allt að vinna, engu að tapa. KA-liðið virkaði hins vegar mjög taugaóstyrkt, sérstaklega í fyrstu hrinunni, og voru leik- menn eins og Sigurður Arnar og Stefánarnir tveir ekki svipur hjá sjón. Það má sjálfsagt segja að Sigurður hafi smassað oftar í net- ið í þessum leik en öllum öðrum leikjum vetrarins samanlagt. ÍS gekk því á lagið og komst í 5:0 í fyrstu hrinunni. KA-liðið hresstist að vísu örlítið en á milli gáfu þeir Stúdentunum ótrúlega auðveld stig. ÍS vann því nokkuð öruggan sigur 15:8 í þessari hrinu. KA kom ntun ákveðnara til leiks í þeirri næstu og náði strax undirtökunum. Hins vegar brást uppspilið hjá Hauki nokkuð oft og heimamenn náðu því að ekki að innbyrða sigurinn örugglega. í þessari hrinu sýndu kínverjarnir tveir á vellinum, Zhao Shan Ven hjá ÍS og Fei hjá KA, stórkost- lega takta og létu taugastríðið ekki hafa áhrif á sig. En það var einkum fyrir stórleik Feis sem KA náði að sigra í þessari lotu 15:8. Hinir fjölmörgu áhorfendur sem leið sína lögðu í Höllina önduðu nú léttara enda bjuggust þeir við að KA myndi nú sýna sínar bestu hliðar. En ÍS ætíaði sér greinilega ekki að færa þeim gulklæddu íslandsmeistaratitilinn á silfurfati. Þeir komu mjög ákveðnir til leiks og engin þreytu- merki sáust á þeim þrátt fyrir að sömu leikmennirnir spiluðu allan leikinn. Reyndar var það sama upp á teningnum hjá KA, nema að Ósk- ar Aðalbjörnsson, einn hinna ungu og efr.ilegu blakmanna í KA-liðinu, kom inn á í annarri hrinu og stóð sig sig vel, sérstak- lega þá í hávörninni. Þriðja hrinan var hinn mesti barningur. Jafnt var á flestum tölum allan leikinn og skipust lið- in á að vinna uppgjöfina. En Stúdentarnir voru sterkari á endasprettinum ogsigruöu 15:12. Nú voru jafnvel hörðustu KA- menn í áhorfendastúkunni farnir að verða nokkuð órólegir. „Ætlaði norðlenskt lið enn einu sinni að tapa titli á lokasprettinum?" spurðu menn sig. Nei, sögðu grimmir KA-menn og æddu inn á völlinn með íslandsmeistaraglampa í augun- unt. Að vísu þrjóskuðust gcstirn- ir nokkuð við í byrjun en svo fór betra úthald heimamanna, sigur- viljinn og hvatningarhróp áhorf- enda að segja til sín. Stefánarnir hrukku í gang og Haukur fór að spila upp eins og engill. Það var ekki að sökum að spyrja að skotríðin dundi á ÍS-mönnum og áttu þeir ekkert svar við henni. Lokatölur urðu 15:5. Áhorfendur létu nú vel til sín heyra í úrslitahrinunni og strax frá fyrstu uppgjöf var Ijóst að KA var kornið til að sigra. Þeir skor- uðu fyrstu þrjú stigin og hrinan var einstefna. Að vísu tókst ÍS aðeins að klóra í bakkann en hrinunni lauk með öruggum sigri KA 15:8 og þar með kemur Is- landsmeistarabikarinn í blaki hingað norður í fyrsta skipti. Þetta er líka í fyrsta skipti sem meistaraflokkur karla hjá KA verður Islandsmeistari í einhverri flokkaíþrótt. Til hamingju KA! Þetta var spennandi en ekki að sama skapi vel spilaður blakleik- ur. Það var of mikið í húfi til þess. Að vísu var hann hin besta skemmtun fyrir áhorfendur og ekki spilltu úrslitin fyrir. KA-lið- iö náði sér ekki á strik fyrr en undir lokin en þá sýndu þeir hvað í þeim býr. Fei þjálfari var sá eini sem spilaði af fullri getu allan leikinn og reyndar má segja að hann hafi átt stórleik. Þarna kom í Ijós reynslan sem hann hefur, í gegnum fjölmarga landsleiki, að spila undir pressu. Að öllum öðr- um ólöstuðum þá á Fei, sem þjálfari og leikntaður, einn stærsta þátt í þessum frábæra árangri KA-liðsins á þessu keppnistímabili. fS-liðið á hrós skilið fyrir góða baráttu og skcmmtilegan leik, sérstaklega í Ijósi þess að þrjá menn vantaði í liðið. I þessum leik bar mest á Þorvaldi Sigfússyni og Ven þjálfara. En Stúdentarnir mættu ofjörlum sínum að þessu sinni og nú geta þeir einbeitt sér að úrslitaleiknum í bikarkeppn- inni gegn Þrótturum. í ;|tw,i | ‘ VmjÖ f-l 1 'V. 'MðéJEft Q w i 1 Islandsnieistarar KA 1989. Efri röð f.v.: Sigurður Arnar Ólafsson, Óskar Aðalhjörnsson, Gunnar Garðarsson, Stefán Jóhannsson, Stefán Magnússon, Hou Xiao Fei þjálfari. Neðri röð f.v.: Einar Sigtryggsson, Magnús Aðal- steinsson, Haukur Valtýsson, Jón Vídalín, Oddur Ólafsson, Pétur Ólafsson. Mynd: kk Fei þjálfari KA-manna átti stórleik gegn ÍS. Mymi: Kk „Mál til komið“ - segir Haukur Valtýsson fyrirliði KA „Þetta er að sjálfsögðu stór- kostleg tilfinning. Ég hef aldrei orðiö íslandsmeistari og það var niál til komið,“ sagði Haukur Valtýsson hinn snjalli fyrirliði KA-liðsins í blaki eftir að liðið hafði tryggt sér titilinn með sigri á ÍS á sunnudaginn. Þessi titill er kórónan á glæsi- legan feril Hauks í blakinu. Hann kynntist íþróttinni fyrst á Laug- um og spilaði síðan með liði Stúdenta fyrir sunnan er hann var við nám í Háskólanum. En undanfarin ár hefur hann spilað með KA og verið einn af burðar- ásunum í liðinu. Hann var m.a. kosinn blakmaður ársins at' BLÍ í fyrra. „Þetta var erfiður leikur og ekki sérstaklega vel spilaöur af okkar hálfu. Við vorum hálf- taugaóstyrkir í byrjun og vörnin var mjög slök. ÍS náð því að skora ódýr stig en við náðum okkur sem betur fer á strik og titilinn er okkar,“ sagði fyrirlið- inn með sigurbros á vör. Haukur Valtvsson hefur nú unnið alla þá titla sem hægt cr að ná í í blakinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.