Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 4. apríl 1989
Tölt fullorðinna: Stig
1. Matthías Eiðsson á Jarli 8 v. 68.53
2. Eiður Matthíasson á Hrímni 8 v. 65.86
3. Birgir Árnason á Stjarna 6 v. 65.06
4. JóhannG. Jóhanness. áLúðvík7v. 65.60
5. Birgir Stefánsson á Stormi 6 v. 63.76
Tölt unglinga: Stig
1. Arnar Grant á Stjörnufák 7 v. 66.13
2. Sigfús Jónsson á Rispu 14 v. 65.50
3. Sigrún Brynjarsdóttir á Kötlu 7 v. 59.70
4. hór Jónsteinsson á Kóng 5 v. 53.60
5. Gestur Júlíusson á Sörla 7 v. 46.90
Kristjana ívarsdóttir sigraði í frjálsum æfingum í kvennaflokki.
150 m skeið:
1. Stuðull 8 v.
Knapi: Örn Grant.
2. Hannibal 8 v.
17.0 sek.
17.0 sek.
Hér sjást Örn Grant á Stuðli og Björn Þorsteinsson á Hannibal á fullum spretti.
Jón Norðfjörð.
Akureyri næsta haust. Þar verður
parakeppni og einnig keppt í opnum
flokkum karla og kvenna.
Gunnlaugur Magnússon frá Akureyri sést hér á fullri ferð í sviginu á Unglingameist-
aramótinu í Bláfjölium. Mynd: Jór
Hestaíþróttir:
Þeir Jóhann V. Gunnarsson og
Sverrir Gestsson kepptu í —70 kg
flokki unglinga. Jóhann lenti í 3. sæti
og Sverrir í því fjórða. En Sverrir
sigraði síðan í frjálsum æfingum yfir
alla flokka.
Jón Norðfjörð sigraði í —70 kg
flokki karla. Þeir Kristján Hjálmars-
son og Ingi V. Jóhannsson kepptu í
-80 kg flokki og lenti Kristján í
þriðja sæti og Ingi í því fjórða.
Kristjana Ivarsdóttir keppti í —57
kg flokki kvenna og lenti í 2. sæti eft-
ir harða keppni við Lóu Jónsdóttur.
En Kristjana sigraði síðan í frjálsum
æfingum.
Þess má geta að fyrirhugað er að
halda mjög sterkt vaxtarræktarmót á
Vel heppnaðar ískappreiðar
- hjá íþróttadeild Léttis
ískappreiðar íþróttadeildar Léttis
á Akureyri voru haldnar fyrir
skömmu í blíðskaparveðri á
Eyjafjarðará, fyrir neðan bæinn
Teig. Hart var barist í öllum grein-
um og þurfti t.d. að heyja einvígi á
milli tveggja hesta í 150 m skeiði,
þar sem þeir höfðu báðir náð
sama tíma.
Upphaflega átti að halda þetta
mót á Leirutjörn við Drottingar-
braut, en þar sem ísinn var ófær
mönnum og hestum vegna vatns og
snjóa var mótinu frestað og það fært
til inn á Eyjafjarðará. En lítum á úrs-
litin:
Knapi: Björn Þorsteinsson.
3. Gargur 9 v. 18.3 sek.
Knapi: Baldvin Guðlaugsson.
200 m skeið:
1. Flandri 8 v. 22.1 sek.
Knapi: Sigurður Á. Snorrason.
2. Stuðull 8 v 22.8 sek.
Knapi: Örn Grant.
3. Hannibal 8 v. 25.9 sek.
Knapi: Bjöm Þorsteinsson.
íslandsmótið í vaxtarrækt var
haldið í Reykjavík laugardaginn
25. mars. Þrír norðlendingar, þau
Jón Norðfjörð, Sverrir Gestsson
og Kristjana ívarsdóttir, unnu til
1. verðlauna á mótinu. Annars var
mótið frekar fámennt og þótti
frekar bragðdauft.
Arnar Bragason frá Húsavík lenti ■ 2.
sæti í stórsvigi 15-16 ára.
j Handknattleikur/2. deild:
IR vann Þór
- og stelpurnar töpuðu illa fyrir FH
Þrátt fyrir að leika einn sinn besta
leik í vetur urðu Þórsarar að
sætta sig við tap gegn hinu sterka
liði ÍR 26:20 í 2. deildinni í hand-
knattleik í íþróttahöllinni á laug-
ardaginn.
Leikur ÍR og Þórs er líklegast
besti 2. deildarleikur á Akureyri í
vetur. Þrátt fyrir að ÍR væri þegar
komið í 1. deild og Þórsarar öruggir
um sæti sitt í deildinni þá var hart
barist og leikurinn hin besta skemmt-
un fyrir áhorfendur.
Að vanda bar mest á Páli Gísla-
syni og var hann markahæstur Þórs-
ara með átta mörk. Einnig stóð
Aðalbjörn Svanlaugsson sig vel þann
tíma sem hann var inn á vellinum.
Þrátt fyrir góða baráttu tókst Þórs-
urum ekki að veita gestunum nægj-
anlega mótspyrnu og urðu að sætta
sig við sex marka tap 26:20.
Stelpurnar í Þórsliðinu í handbolta
lentu hins vegar í krappari dansi og
máttu þola tvö stórtöp gegn FH.
Endaði fyrri leikurinn 33:13 og sá
seinni 30:14 fyrir FH. Úrslitin segja
alla söguna og áttu Þórsstelpurnar
aldrei möguleika gegn kraftmiklum
Hafnarfj arðardömunum.
Unglingameistaramótið á skíðum:
Ólafsfirðingar stóðu sig vel
- ágætur árangur á mótinu
Unglingameistaramót íslands á
skíðum fór fram í BláfjöIIum um
helgina. Keppendur frá Norður-
landi stóðu sig mjög vel á mótinu
og vakti árangur Olafsfirðinga í
alpagreinum nokkra athygli. I
eldri flokki pilta sigruðu Ólafsfirð-
ingar bæði í svigi og stórsvigi og í
yngri flokknum náði Ólafsfirðing-
urinn Ólafur Ægisson öðru sætinu
í stórsvigi. Eftir fyrri umferð í
svigi var hann öruggur í fyrsta sæt-
inu en datt og hætti keppni í þeirri
siðari. í eldri flokki stúlkna náði
María Magnúsdóttir frá Akueyri
góðum árangri en hún sigraði í
svigi og lenti í öðru sæti í stórsvig-
inu, aðeins 3 hundruðustu úr sek-
úndu á eftir Söru Ilalldórsdóttur
frá Isafirði. I norrænu greinunum
stóð slagurinn aðallega milli kepp-
enda frá ísafirði, Siglufirði og
Ólafsflrði en sveit Akureyrar
blandaði sér í slaginn í boðgöng-
unni og hreppti þriðja sætið. En
úrslit á mótinu urðu sem hér segir:
Svig 13-14 ára:
Stúlkur: Samanl. tími
1. Fanney Pálsdóttir ísaf. 1:29.82
2. Hjördís Þórhallsdóttir Ak. 1:32.82
3. Eva Jónasdóttir Ak. 1:33.22
Piltar:
1. Brynjólfur Baldursson Fram 1:26.59
2. Ásmundur Einarsson Sigluf. 1:31.50
3. Gunnar S. Gunnarss. Sey. 1:31.70
Stórsvig 13-14 ára:
Stúlkur:
1. Fanney Pálsdóttir ísaf. 2:02.90
2. Ásta Baldursdóttir Ak. 2:06.64
3. Hildur Ösp Þorsteinsd. Ak. 2:08.23
Piltar:
1. Ásbjörn Jónsson KR 1:59.39
2. Ólafur Ægisson Ólafsfj. 1:59.87
3. Arndí Þorláksson ísaf. 2:01.12
Svig 15-16 ára:
Stúlkur:
1. María Magnúsdóttir Ak. 1:45.38
2. Sara Halldórsdóttir ísaf. 1:45.74
3. Margrét Ösp Arnarsd. ísaf. 1:47.42
Piltar:
1. Ólafur Óskarsson Ólafsf. 1:31.81
2. Arnar Bragason Húsavík 1:32.08
3. Gísli Reynisson ÍR 1:32.38
Stórsvig 15-16 ára:
Stúlkur:
1. Sara Halldórsdóttir ísaf. 1:58.32
2. María Magnúsdóttir Ak. 1:58.35
3. Harpa Hauksdóttir Ak. 1:59.09
Piltar:
1. Kristinn Björnsson Ólafsf. 1:47.22
2. Gísli Reynisson ÍR 1:49.93
3. Magnús H. Karlsson Ak. 1:50.71
Boðganga 13-14 ára pilta:
1. A-sveit Ólafsfjarðar
2. B-sveit Ólafsfjarðar
3. Sveit Siglufjarðar
Boðganga 15-16 ára pilta:
1. Sveit ísafjarðar
2. Sveit Siglufjaðar
3. Sveit Akureyrar
Ganga (hefðbundin aðferð):
Stúlkur 13-14 ára:
1. Hulda Magnúsdóttir Siglufirði
2. Guðbjörg Sigurðsd. ísafirði
3. Þrúður Sturlaugsdóttir Siglufirði
Piltar 13-14 ára:
1. Gísli Árnason ísafirði
2. Kristján Hauksson Ólafsfirði
3. Tryggvi Sigurðsson Ólafsfirði
Piltar 15-16 ára:
1. Daníel Jakobsson ísafirði
2. Gísli Valsson Siglufirði
3. Bjarni Brynjólfsson ísafirði
JÓH
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Jón sigraði
- Sverrir og Kristjana efst í frjálsum æfingum
Þriðjudagur 4. apríl 1989 - DAGUR - 9
Bikarkeppni HSÍ:
KR komið í 8 liða úrslit
- sigraði KA í Reykjavík í gærkvöld með 25 mörkum gegn 19
Handknattleikur/1. deild:
KR er komið í 8 liða úrslit í
bikarkeppni HSÍ eftir sigur á
KA í gærkvöldi. Leikurinn í
heild sinni var slakur, bæði lið
gerðu mistök og á stundum
virtust leikmenn hreinlega
kærulausir og áhugalausir.
Þrátt fyrir að um tíma hafi ver-
ið nokkuð jafnræði með liðun-
um gerðu KR-ingar út um leik-
inn á Iokamínútum fyrri hálf-
leiks og í upphafi þess síðari og
sigruðu með 25 mörkum gegn
19.
Alfreð Gíslason gaf tóninn og
kom KR í 2:0 en Sigurpáll
minnkaði muninn þegar hann
skoraði úr víti eftir að brotið
hafði verið gróflega á Guðmundi
á línunni. Stefán Kristjánsson,
besti maður KR að þessu sinni,
svaraði með tveimur mörkum í
röð og kom liði sínu þremur
mörkum yfir en Guðmundur og
Jakob minnkuðu muninn í eitt
mark. Eftir þessar sviptingar á
fyrstu mínútunum tókst KA að
hanga í andstæðingum sínum og
þegar 6 mínútur voru til leikhlés
jafnaði Guðmundur af línunni.
KA-menn voru of kærulausir á
næstu mínútum og misstu KR-
inga aftur framúr og staðan í
hálfleik var 12:9.
Síðari hálfleikurinn var
afspyrnu leiðinlegur á að horfa.
Fyrri hluta hálfleiksins voru fá
mörk skoruð en því meira um
brot og aukaköst. Alfreð, sem
hafði verið í strangri gæslu allt frá
fyrstu mínútum, fékk lítið að
hreyfa sig og án hans er KR-liðið
ekki svipur hjá sjón. Jakob Jóns-
son gerði mjög góða hluti undir
miðjan halfleikinn og minnkaði
muninn í eitt mark en eftir það
tóku KR-ingar á sig rögg og
hristu KA-menn af sér að nýju.
Leifur Dagfinnsson gladdi oft
augu áhorfenda með snilldarlegri
markvörslu í KR-markinu og víst
er að án hans hefði róður KR
orðið öllu þyngri því hann varði
11 skot í leiknum. JÓH
Mörk KR: Stefán Kristjánsson 7, Sigurður
Sveins. 4, Konráð ólafsson 4, Alfreð Gíslason
3, Jóhannes Stefánsson 3, Þorsteinn Guðjóns-
son 3, Guðmundur Pálmason 1.
Mörk KA: Sigurpáll Aðalst. 5, Jakob Jónsson
4, Erlingur Kristjánsson 3, Guðmundur
Guðmunds. 3, Jóhannes Bjarnason 2, Friðjón
Jónsson 2.
„Ég vil fá þennan bolta“ gæti Þorbjörn Jensson í vörn Valsmanna verið að
segja við KA-manninn Braga Sigurðsson. Það voru engin vettlingatök í
vörninni og fengu KA-menn að kynnast því. Mynd: kk
Meistaramir lögðu KA
- 24:20 í þróttlitlum leik
íslandsmeistarar Vals lögöu
KA að velli 24:20 í 1. deildinni
í handknattleik á sunnudags-
kvöldið. Úrsiit leiksins skiptu
litlu máli fyrir liðin, Valsmenn
voru orðnir meistarar og KA
öruggt með sæti sitt í deildinni,
og bar leikurinn þess glögg
merki. Lítið púður var í leik-
mönnunum og það voru helst
Blak:
íslandsmót
öldunga
- umsóknarfrestur
að renna út
íslandsmót Öldunga í blaki
verður haldið í íþróttahöll-
inni á Akureyri dagana 28.,
29. og 30. apríl n.k. Það er
Skautafélag Akureyrar sem
heldur mótið og rennur
frestur til að tilkynna þátt-
töku í mótinu út á morgun.
Þátttaka tilkynnist til Hauks
Haraldssonar í símum 23202
og 22606, eða í telefaxi 354 6
23233.
gullfallegar línusendingar
Sigurðar Sveinssonar sem
glöddu augað.
Lítið var skorað í fyrri hálfleik
í leiknum. KA reyndi að hanga á
boltanum í sókninni og fóru
reyndar illa með tvö dauðafæri
strax í byrjun. Fyrsta markið
kom ekki fyrr en á 5. mínútu og
var jafnræði með liðunum fram-
an af hálfleiknum. Valsmenn
voru að vísu alltaf fyrri til að
skora og í leikhléi höfðu þeir tvö
mörk yfir 10:8.
Úrslit leiksins réðust á fyrstu
mínútum síðari hálfleiksins.
Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu
mörkin og á sama tíma fóru
heimamenn illa með upplögð
marktækifæri.
Þennan fimm marka mun tókst
KA-mönnum aldrei að vinna
upp. Að vísu minnkuðu þeir
muninn í þrjú mörk undir lok
leiksins 23:20, þegar varamenn
Vals fengu að spreyta sig en gest-
irnir áttu síðasta orðið í leiknum
þegar þeir skoruðu úr vftakasti
eftir að leiktímanum lauk.
KA mætti hreinlega ofjörlum
sínum í þessum leik. Varnar-
leikurinn hjá liðinu var nokkuð
góður í fyrri hálfleik, en í þeim
síðari losnaði of mikið um Geir
Sveinsson á línunni og skoraði
hann grimmt hjá Axel í markinu.
í þessum leik bar mest á Sigurpáli
Árna og var hann vel ógnandi í
horninu. Einnig var Pétur
Bjarnason duglegur að vanda og
Jakob Jónsson hrökk í gang í síð-
ari hálfleik eftir slakan fyrri hálf-
leik. Axel stóð sig ágætlega í
markinu og varði m.a. vítakast
frá Sigurði Sveinssyni. Einnig er
vert að geta ágætrar frammistöðu
Jóhannesar Bjarnasonar í vörn-
inni og hafði hann góðar gætur á
Jakobi Sigurðssyni. Bragi Sig-
urðsson átti einnig ágætan leik og
vakti það nokkra furðu að hann
fékk ekki að leika meira en raun
bar vitni.
Valsliðið er feiknasterkt þrátt
fyrir að hafa ekki leikið neitt sér-
staklega vel í þessum leik. Bestur
þeirra var Geir Sveinsson sem
nýtti sér fullkomlega að varnar-
menn KA fóru framarlega til að
freista þess að stöðva skyttur
Valsmanna. Sigurður Sveinsson
var frekar daufur í leiknum en
átti nokkrar gullfallegar línu-
sendingar. Einnig varði Páll
Guðnason ágætlega í markinu.
Mörk KA: Sigurpáll Á. Aðalsteinsson
6/2, Pétur Bjarnason 4, Jakob Jónsson 4,
Bragi Sigurðsson 2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Jóhannes Bjarnason 1 og
Friðjón Jónsson 1.
Mörk Vals: Geir Sveinsson 7, Valdi-
mar Grímsson 7/2, Júlíus Jónasson 3/1,
Jón Kristjánsson 3, Jakob Sigurðsson 2,
Sigurður Sveinsson 2.
Damixa og GUSTAVSBERG
kynning
verður haldin að Hótel KEA miðvikudaginn
5. apríl kl. 20-23.30.
Dagskrá:
1 . Nýjungar kynntar í Damixa blöndun-
artækjum.
2. GUSTAVSBERG hreinlætistæki og
annað pípulagningaefni.
3. Fyrirspurnir og umræður.
4. Góð mál, veitingar o.fl.
A///r velkomnir!
BYGGINGAVÖRUR
Lagerstarf
Óskum eftir manni til lagerstarfa.
Uppl. veitir verksmiðjustjóri í síma 21165.
Efnaverksmiðjan Sjöfn.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
Skrifstofustarf
Laust er til umsóknar starf á skrifstofu KEA,
Hafnarstræti 91-95.
Æskilegt er að umsækjendur hafi stundað nám á
viðskiptabraut eða hafi reynslu í skrifstofustörfum.
Uppl. veitir starfsmannastjóri í síma 21400.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
Kaupfélag Eyfirðinga.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Læknaritari óskast
í 50% starf á Bæklunardeild frá 1. maí nk.
Upplýsingar veitir læknafulltrúi.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra F.S.A. fyrir 12.
apríl 1989.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, simi 96-22100.
Okkur vantar ungan og röskan
bifvélavirkja eða
vélvirkja
Um framtíðaratvinnu gæti verið að ræða.
Upplýsingar í síma 26700.
Vegagerð ríkisins.