Dagur - 05.04.1989, Side 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 5. apríl 1989
f/ myndasögur d'ags ~B
ÁRLAND
HERSIR
ANDRÉS ÖND
# Verður þetta
„fullorðins-
útvarp“?
Fréttir um að Hljóðbylgjan
ætli sér að draga saman
seglin og að hún verði
nokkurs konar svæðisút-
varp Bylgjunnar hafa vakið
nokkra athygli í fjölmiðla-
heiminum. Hljóðbylgjan fór
af stað með nokkrum krafti
en þegar á leið dró úr mætti
hennar og nú virðist hún
ætla að renna inn í samein-
aða Stjörnu-Bylgjuútvarps-
stöð.
Þessi sameining Bylgjunn-
ar, Stjörnunnar og Hljóð-
bylgjunnar er á margan hátt
athyglisverð og ætti þessi
nýja stöð að geta veitt
Ríkisútvarpinu verðuga
samkeppni. Þá vonandi ekki
eingöngu á auglýsinga-
markaðinum heldur og á
faglega markaðinum, þ.e.
með vönduðum dagskrár-
liðum.
Hér á Norðurlandi verður
spennandi að sjá hvað sam-
keppnin við Svæðisútvarpið
gerir. Tekst þessari nýju
Hljóðbylgju að koma á lagg-
irnar „fullorðinsútvarpi,“
eins og forsvarsmenn
stöðvarinnar hafa oft talað
um, eða mun þetta verða
áfram rekið sem ungfinga-
diskótek.
# Á brattann
að sækja
Það er hins vegar á brattann
að sækja í samkeppni við
svæðisútvarpið. Þeir svæð-
isútvarpsmenn hafa komið
sér vel fyrir á markaðinum
og sýnt það og sannað með
vandaðri dagskrárgerð að
það verður ekki létt verk að
keppa við þá. Hins vegar er
vitað mál að samkeppni er
af hinu góða og allir hafa
gott af því að fá keppinaut.
Og umsjónarmaður S&S
veit það að vinir hans á
svæðisútvarpinu fagna auk-
inni samkeppni og munu
sjálfsagt tvíeflast við að fá
keppinaut á markaðinn.
Fyrst við erum að ræða um
útvarpsmál þá er vert að
minnast á að margir Norð-
lendingar hafa komið að máli
við S&S og kvartað undan
því að svæðisútvarpið sé á
sama tíma og Þjóðarsálin á
Rás 2. Það er spurning hvort
ekki er hægt að finna ein-
hverja lausn á því máli.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Miðvikudagur 5. apríl
16.30 Fræðsluvarp.
1. Ljós, taka, Afríka.
Mynd sem sýnir þá þrautseigju og hug-
kvæmni sem liggur að baki tökum á nátt-
úrulífsmyndum.
2. Alles Gute - 17. þáttur.
Þýskukennsla fyrir byrjendur.
18.00 Töfragluggi Bomma.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.25 Hver á að ráða?
(Who’s the Boss?)
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Nýjasta tækni og vísindi.
21.10 Á tali hjá Hemma Gunn.
Hermann Gunnarsson tekur á móti gest-
um í sjónvarpssal í beinni útsendingu.
22.15 Redl ofursti.
(Redl Ezredes.)
Ungversk/þýsk bíómynd frá 1984.
Aðalhlutverk: Klaus Maria Brandauer,
Armin Muller-Stahl og Gudrun Land-
grebe.
Myndin byggir á sannsögulegum atburð-
um og fjallar um Redl ofursta sem var
háttsettur í her Ungverja. Hann fellir hug
til systur æskuvinar síns, en hún kemst
að því að Redl ber svipaðan hug til bróður
hennar.
23.00 Seinni fréttir.
23.10 Redl ofursti - frh.
00.40 Dagskrárlok.
Sjónvarp Akureyri
Miðvikudagur 5. apríl
15.45 Santa Barbara.
16.30 Topp 40.
17.25 Dægradvöl.
(ABC's World Sportsman.)
18.10 Handbolti.
19.19 19:19.
20.30 Skýjum ofar.
(Reaching for the Skies.)
7. þáttur.
21.35 Af bæ í borg.
(Perfect Strangers.)
22.00 Leyniskúffan.
(Tiroir Secret.)
Lokaþáttur.
23.00 Viðskipti.
23.25 Öskubuskufrí.
(Cinderella Liberty.)
Titill þessarar gamansömu myndar er
rakinn til landgönguleyfis sjómanna sem
rennur úr á miðnætti.
01.15 Dagskrárlok.
Rás 1
Miðvikudagur 5. apríl
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
„Agnarögn" eftir Pál H. Jónsson.
Heimir Pálsson, Hildur Heimisdóttir og
höfundur lesa (9).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 íslenskur matur.
9.40 Landpósturinn - Frá Austurlandi.
Umsjón: Haraldur Bjarnason.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit ■ Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Að markaðssetja
ísland.
13.35 Miðdegissagan: „Riddarinn og
drekinn" eftir John Gardner.
Þorsteinn Antonsson þýddi.
Viðar Eggertsson les (3).
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Norrænir tónar.
14.35 íslenskir einsöngvarar og kórar.
15.00 Fréttir.
15.03 Þjóðsögur og ævintýri.
15.45 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Pjotr Tsaíkovskí.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Tónskáldaþingið í París 1988.
21.00 Að tafli.
21.30 Börn og tungumálakennsla.
22.00 Fréttir • Dagskrá morgundagsins •
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Samantekt um Atlantshafsbanda-
lagið.
23.10 Djassþáttur.
- Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
Ci.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Miðvikudagur 5. apríl
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun.
- Eva Ásrún Albertsdóttir.
11.03 Stefnumót.
- Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það
sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
Gestur Einar Jónasson leikur þraut-
reynda gullaldartónlist og gefur gaum að
smáblómum í mannlífsreitnum.
14.05 Milli mála.
Óskar Páll á útkíkki.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 íþróttarásin.
22.07 Á rólinu
með Önnu Björk Birgisdóttur.
01.10 Vökulögin.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og
4.30.
Fréttir eru sagðar kl. 2,4, 7, 7.30, 8,8.30,
9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19,
22 og 24.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Miðvikudagur 5. apríl
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Miðvikudagur 5. apríl
07.00 Réttu megin framúr.
Ómar Pétursson spjallar við hlustendur í
morgunsárið, kemur með fréttir sem
koma að gagni og spilar góða tónlist.
09.00 Morgungull.
Hafdís Eygló Jónsdóttir á seinni hluta
morgunvaktar.
Afmæliskveðju- og óskalagasímarnir eru
27711 fyrir Norðlendinga og 625511 fyrir
Sunnlendinga.
12.00 Ókynnt hádegistónlist.
13.00 Perlur og pastaréttir.
Snorri Sturluson sér um tónlistina þína og
lítur m.a. í dagbók og slúðurblöð.
Sími fyrir kveðjur og óskalög 27711 á
Norðurlandi og 625511 fyrir Suðurland.
17.00 Síðdegi í lagi.
Þáttur fullur af fróðleik og tónlist í umsjá
Þráins Brjánssonar.
Meðal efnis er Belgurinn, upplýsinga-
pakki og það sem fréttnæmast þykir
hverju sinni.
19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist,
20.00 Axel Axelsson
er ykkar maður á miðvikudagskvöldum.
23.00 Þráinn Brjánsson
tekur endasprettinn. Góð tónlist fyrir
svefninn.
01.00 Dagskrárlok.
Stjarnan - Bylgjan
Talsveröar breytingar hafa átt sér stað á dagskrá
Bylgjunnar og Stjörnunnar við sameiningu þess-
ara fyrirtækja. Prátt fyrir ítrekuð tilmæli hafa
forráðamenn stöðvanna ekki séð ástæðu til að
senda Degi breytta dagskrá til birtingar, þótt því
hafi verið lofað. Par til ný dagskrá berst sér blað-
ið ekki ástæðu til að birta dagskrá Bylgjunnar og
Stjörnunnar í þessum dálki.
Rítstjóri.