Dagur - 19.04.1989, Qupperneq 1
Staöa dómkirkjuprests í
Reykjavík var auglýst laus til
umsóknar fyrir skömmu. Vitað
er að einn prestur af Norður-
landi hefur ákveðið að sækja
um, sr. Hjálmar Jónsson pró-
fastur á Sauðárkróki. Umsókn-
arfrestur um stöðuna er til 3.
maí nk. og 10. maí verður það
Ijóst hver fær prestakallið.
Ekki er vitað hvað margir hafa
sótt um, en heyrst hefur talan
níu í því sambandi, en það
skýrist allt 3. maí.
í samtali við Dag staðfesti sr.
Hjálmar að hann hefði sótt um.
„Pað er ómögulegt að segja
hvernig fer, það er sóknarnefnd-
in sem velur prestinn og hún á
eftir að taka sína ákvörðun,“
sagði Hjálmar.
Hjálmar fór 1. apríl sl. í 3ja
mánaða starfsleyfi, þar sem hann
tekur saman og fer yfir sálma og
söngva fyrir barnakóra og jafnvel
sálmabókarviðbæti, en stefnt er
að útkomu viðbætisins í árslok.
Hjálmar hefur unnið að þessu
undanfarin misseri ásamt sálma-
bókarnefnd þjóðkirkjunnar. „Ef
svo fer að ég fæ stöðuna syðra,
ntun ég hætta strax í starfsleyfinu
og sinna hér minni þjónustu í
prestakallinu, þar til ég hverf
suður. Ég var ekkert með liugann
við dómkirkjuembættið framan
af, en það var eins og flestir vissu
það á undan mér að ég myndi
sækja um. Sfðan fékk ég hring-
ingar að sunnan og óskir um aö
líta á aðstæður. Ég gerði það og
sá margt við þetta prestakall sem
mig langaði til að takast á við,“
sagði Hjálmar ennfremur.
Á meðan Hjálmar er í starfs-
leyfinu munu þeir sr. Gísli Gunn-
arsson í Glaumbæ og sr. Ólafur
Hallgrímsson á Mælifelli sinna
störfum hans í Sauðárkróks-
prestakalli. -bjb
Keidhjol og motorhjol - vorhodar tækninnar.
Mynd: TLV
Samþykkt að taka tilboði frá Möl og sandi og
SS Byggi í byggingu stúdentagarða við Skarðshlíð:
Þetta er mjög gott verkefni
- segir Hólmsteinn Hólmsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Möl og sandi hf.
„Þetta er mjög gott verkefni
og ágætt fyrir Möl og Sand að
fá einingasteypuna,“ segir
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
Kennsla í 7.-9. bekk verður áfram í Síðuskóla á Akureyri:
Tillaga formanns skólanefndar
var samþykkt í bæjarstjóm
Breytingartiilaga Björns Jósefs
Arnviðarsonar, formanns
Skólanefndar Akureyrar, við
fyrri ákvörðun bæjarstjórnar
um framtíðarskipan skólamála
í bænum, var samþykkt með
sex atkvæðum í Bæjarstjórn
Akureyrar í gær. Fimm bæjar-
fulltrúar sátu hjá. Kennsla fyr-
ir nemendur í 7. til 9. bekkjum
grunnskóla verður því í Síðu-
skóla þar til annað verður
ákveðið.
Snemma árs 1987 var ákveðið
Deila VSÍ og ASÍ:
Tfl sáttasemjara
Á fundi viðræðunefndar Al-
þýðusambandsins í dag með
atvinnurekendum, höfnuðu
þeir alfarið að ganga til samn-
inga.
Viðræðunefndin telur tilgangs-
laust að sitja áfram í viðræðum
við atvinnurekendur við þessar
aðstæður. Samkomuleg varð um
að vísa deilunni til sáttasemjara
ríkisins og er því verkstjórn nú í
hans höndum.
Pað er mat viðræðunefndar
ASÍ að nauðsynlegt sé að félögin
sýni skýrt vilja sinn til að knýja á
um samninga. Því óskar viðræðu-
nefndin hér með eftir því að
félögin bregðist skjótt við og afli
nú þegar verkfallsheimildar.
að Gagnfræðaskóli Akureyrar og
Glerárskóli skyldu vera safnskól-
ar fyrir 7. til 9. bekki í bænum.
Samkvæmt fyrri ákvörðun bæjar-
stjórnar hefðu nemendur í Síð-
uhverfi á aldrinum 13 til 16 ára
þurft að sækja Glerárskóla. Með
þá áðstöfun var óánægja í Síðu-
hverfi og hefur foreldrafélag
Síðuskóla m.a. beitt sér fyrir því
að nemendur í hverfinu gætu sótt
allt sitt grunnskólanám í sama
skólann, Síðuskóla.
Björn Jósef sagði m.a. á fund-
inum að hann vonaði að sam-
þykkt tillögu sinnar yrði til þess
að um þessi mál næðist sá friður
sem að væri stefnt og yrði þeim til
heilla sem fyrir málinu hefðu
barist. Hann hefði þá sannfær-
ingu að ekki ætti að þröngva
neinu skólafyrirkomulagi upp á
íbúa Síðuhverfis sem þeir væru
mótfallnir. Hann hefði vissulega
stutt það fyrirkomulag sem
ákveðið var árið 1987 en hefði
síðan skipt um skoðun hvað
Síðuhverfi snerti.
„Ég hef engar áhyggjur af því
að hafa skipt um skoðun, og tel
að menn eigi að gera slíkt alveg
kinnroðalaust ef þeir komast að
annarri niðustöðu að endurskoð-
uðu máli,“ sagði hann. Varðandi
kostnaðarhliðina nefndi hann að
gert væri ráð fyrir að byggt verði
við Glerárskóla auk byggingar
einnar álmu við Síðuskóla. Þetta
síðastnefnda hefði viljað gleym-
ast í umræðunni en breytingin
væri sú að meira yrði byggt við
Síðuskóla en ætlunin hefði verið
að gera. Samþykkt tillögunar
þýddi jafnframt að þriðji skólinn
yrði byggður í Síðuhverfi. EHB
l'ramkvæmdastjóri hjá Möl og
sandi hf., en í gær ákvaö stjórn
Félagsstofnunar stúdenta á
Akureyri aö taka sameiginlegu
tilboði frá Möl og sandi hf. og
SS Byggi um byggingu stúd-
entagaröa við Skarðshlíð á
Akureyri. Tilboðið hljóðaði
upp á 65.912 milljónir króna.
Verktakarnir þurfa heldur bet-
ur að hafa hraöann á því húsið
skal verða íbúðarhæft þann 1.
október nk.
Samkvæmt teikningum verður
gólfflötur stúdentagarðanna 1483
fermetrar. Kostnaður á hvern
fermeter er rúmlega 44 þúsund
krónur. Fyrsta hæð hússins vcrð-
ur steypt á staðnum en önnur og
þriðja hæð verður úr forsteyptum
einingum frá Möl og sandi.
í húsinu fullbúnu munu búa 34
manns. Parna verða 14 einstakl-
ingsherbergi, 4 paraíbúðir, 4
tveggja herbergja íbúðir og 2
þriggja herbergja íbúðir.
Aö sögn Hólmsteins Hólm-
steinssonar mun Möl og sandur
hf. sjá um framleiðslu eininga í
húsið og uppsetningu veggjaein-
inga. SS Byggir mun hins vegar
annast uppsetningu gólfeininga.
Pá sér Möl og sandur um jarð-
vegsskipti, lóðafrágang og bíla-
plan. Um aðra verkþætti sér SS
Byggir. óþh
Einstakur viðburður á Akureyri:
Harlem Globetrotters heldur
sýningu í íþróttahöllinni
- á laugardaginn kemur kl. 20.30
Hinir heimsfrægu bandarísku
körfuknattleiksmenn í Harlem
Globetrotters halda sýningu í
íþróttahöllinni á Akureyri á
laugardagskvöldið kemur kl.
20.30. Hér er á ferðinni fræg-
asta íþróttalið allra tíma og
þarna gefst Norðlendingum
einstakt tækifæri að sjá
ógleymanlega skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Harlem Globetrotters er á sýn-
ingarferðalagi hér á landi og
verður með sýningar í Laugar-
dalshöllinni og auk þess eina hér
á Akureyri eins og áður er getið.
Forsala aðgöngumiða fer fram í
söluskúr við Útvegsbankann á
Akureyri í dag miðvikudag, á
morgun fimmtudag og á föstudag
frá kl. 13-18. Ef svo einhverjir
miðar verða eftir, verða þeir
seldir í Höllinni á laugardag frá
kl. 18.
Sýningin stendur yfir í 2Vi klst.
en ineð Harlem Globetrotters í
för er lið Washington Generals,
sem hefur ferðast með liðinu
undanfarin 17 ár. Harlem Globe-
trotters hefur haldið sýningar í
yfir 60 ár í nær öllum löndum
heims. Á þessu tíma hefur liðið
haldið 17000 sýningar og á þeim
unnið 16550 leiki. Liðið hefur alls
staðar notið gífurlegrar hylli en
mesti áhorfendafjöldi á einni sýn-
ingu, var 75000 manns í V-
Þýskalandi.
Allir frægustu leikmenn liðsins
mæta til Akureyrar og í þeim
hópi er fyrsta konan sem leikur
með liðinu. Hún heitir Sandra
Hodges, er 26 ára gömul og þykir
alveg stórkostlcg með knöttinn.
Það er Körfuknattleiksdeild
Þórs sem stendur fyrir komu liðs-
ins norður og er hér um mjög
dýrt fyrirtæki að ræða. Það kost-
ar um kr. 1.100.000.- að fá liðið
norður og til að dæmið gangi upp
þurfa Þórsarar að fylla Höllina.
Þeim ætti ekki að verða skota-
skuld úr því, enda er hér um ein-
stakan viðburð að ræða og óvíst
að annað eins tækifæri bjóðist
aftur í bráð. -KK
Laus staða dómkirkjuprests
í Reykjavík:
Sr. Hjálmar á Sauð-
árkróki sækir um
72. árgangur
Akureyri, miövikudagur 19. apríl 1989
74. tölublað
A//t fyrír
i ■ HAFNARSTRÆTI 92 . 602 AKUREYRI SfMI 96 26708 BOX 397