Dagur - 19.04.1989, Blaðsíða 8

Dagur - 19.04.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 19. apríl 1989 ■ fe&i onm i J lnteinati0„al Training In ‘S* isfils^lli^Sssssi ^“^tSS^'^^riálslnrar rrmrreön4n fordímaumhvers- W^S-í^SK®51 xtsír^S'«?- : sa»9* - * ió siiórna umræDum oþvingað- , ð ; ‘,ramfc;' "f sanntær' inpu og öryggk . ★ Að leggja fram ^ “sveitar- cða bæjarfélagt * Að skipufeggja stort i ★ Að stjórna fundi. „byggjandi orku. k AO . ★ Að leggja fram ^\U^eitar- eða bæjarfélagt. , £rmina á 8Cr. Hætt ^wníréðf ríkjum. U™ léið oe félagsko"“m - irCeIP______________________________ _ .—■--- “ "* " "" ISnrKilrlnr C í m í n Y*rl nlii r. Þórhildur Sigurðardóttir: Þær eru öruggari með sig Þórhildur Sigurðardóttir er í stjórn ITC Flugu. Þórhildur er heimilisfræðikennari og hús- freyja í Haga, Aðaldal og í haust er ár síðan hún gerðist félagi í dcildinni. Þórhildur var spurð hvort ekki væri inikið mál að fara hálfsmánaðarlega yfir vetrartímann úr Aðaldal á fundi í Mývatnssveit. „Nei, nei. Þetta er ekki svo mikið mál, við erum 20-25 mínút- ur á leiðinni og suma fundina fáum við niður í Heiðarbæ eða Ýdali. í haust var haldinn einn fundur á Breiðintýri i Reykjadal, því þar býr einn aðili í deildinni." - Hvað hefur þú fengið út úr því að vera með í þessum félags- skap? „Ég hef oft spurt mig að því. Ég fór í þennan félagsskap fyrst og fremst til þess að reyna að þjálfa mig í því að koma fram. Og fólk sagði: „Pú ert kennari og ert þaulvön í að koma fram og tala yfir fólki." En ég er það bara ekki, þó að ég sé kennari. Ég á mjög erfitt með að koma upp í ræðustól og hef orðið fyrir því að sjá ekki það sem ég hef skrifað á blöð vegna þess að ég var svo nervös, mig langar til að komast yfir þetta. Eitt hefur þessi félags- skapur gefið ntér: Ég er farin að þora að segja hiklaust: „Nei. ég veit betur,“ heima hjá mér, og mér finnst það strax rnikil framför. Gallinn er sá að ég þyrfti að gefa mér miklu nteiri tíma, bæði til.að setja saman það sem ég ætla að flytja og til að læra fundarsköp og það sem stendur í handbókinni. Éf ég gerði það gæti ég gert sjálfri ntér miklu meira gagn.“ - Hefur þú ekki unnið til viðurkenningar fyrir ræðu- mennsku? „Ég tók þátt í ræðukeppni deildar og var þar í fyrsta sæti, þá fylgja því eiginlega þær skyldur að fara í ræðukeppni í ráði, og ég fór suður og tók þátt í ræðu- keppni á Hótel Sögu. Þetta var undirbúin ræða og ég fékk að velja um þrjú efni, hálfum mán- uði áður en ég átti að flytja ræðuna og mátti hafa skrifaða ræðu. Mér þótti mjög skemmti- legt að taka þátt í þessu, en hefði ekki lagt í að fara óundirbúin og eiga að draga um ræðuetni og flytja síðan 5-8 mín. ræðu, eftir fimm mínútur cða svo. Óundir- búin ræða er trekar á undanhajdi, því það gerist svo sárasjaldan aö það þurfi að flytja svona langt mál undirbúningslaust, þó oft þurfi að segja álit sitt á einhverju í 1-2 mín. ræðu." - Hefur þú séö breytingu á konurn eftir að þær hafa gcngið í þennan félágsskap? „Já, ég tel mig sjá breytingar á konum sem gengu í deildina um svipað leyti og ég; þær eru örugg- ari með sig og þora meira. Stundum þegar ég sit á þessum Þórhildur Sigurðardóttir. deildarfundum finnst mér að formið sé óskaplega stíft og ég finn að þetta pirrar mig. Petta er náttúrlega rangt af mér því það er ntjög hollt að reyna að aga sig og læra reglur. Núna, þegar allir mannasiöir, allar reglur og þess háttar, eru heldur á undanhaldi, held ég að þetta sé okkur hollt. Og ég vildi óska þess að það væru lleiri sem gætu gefið sér tíma til þess að geta tekiö þátt í þessum félagsskap og hugsuðu sem svo; nú ætla ég að gera þetta fyrir sjálfa mig. Við gerum þetta fyrir sjálfar okkur og erum ekki alltaf að flytja ræður um einhver merkileg mál, heldur fyrst og fremst að æfa okkur og vera þá betur búnar til að taka þátt í félagslífi annars staðar." IM Sara Hólm. og löngun til að taka þátt í starf- inu. Fólk er ekki þvingað til neins og er í sjálfsvald sett hvort það tekur þátt í ræðukeppnunum eða ekki." - Nú eru það stundum býsna stór verkefni sem þið eigið að skila fyrir fundina, er starfið tímafrekt? „Stundum, en það er auðvitað tímafrekast fyrir byrjendur. Ég vil hvetja alla til að kynna sér þennan félagsskap, og ekki láta umtal um ræðuflutning fæla sig neitt frá, því hann er ekki nema lítill hluti af starfinu." IM Sara Hólm: „Þetta er góður félags- skapur og þroskandf Sara Hólm, húsfreyja aö Skóg- um í Reykjahverfi hefur starf- aö sem féiagi í ITC Flugu á annaö ár. Hún var spurð hvernig henni fyndist að vera í félagsskapnum. „Mér finnst það injög gott, þetta er félagsskapur sent höfðar til mín á margan hátt. Mér finnst það mjög skemmtileg tilbreyting að starfa í þessari deild og eigin- lega mjög gefandi, því þetta er góður félagsskapur og þrosk- andi." - Eftir hverju varst þú að sækjast þegar þú gekkst í deild- ina? „Ég vissi eiginlega varla út í hvað ég var að fara, held að ég hafi helst verið að sækjast eftir fróðleik og skemmtun." - Hvað finnst þér þú hafa fengið út úr starfinu? „Pað er alltaf svolítið erfitt að meta sinn eigin árangur. Kannski er ég orðin örlítið betri hlustandi og ég hugsa að ég geti staðið upp án teljandi skelfingar, nánast hvar sem er, og sagt nafnið niitt. Mér finnst sjálfri að ég venji ntig á skipulegri vinnubrögð og ef ég er með verkefni á fundi kvíði ég ekki fyrir því allan tímann á ntilli funda. Fundirnir eru góð hvíld frá daglegu amstri, þar þarf ekki að taka neinar ákvarðanir heldur aðeins njóta líðandi stundar. Ég cr ekki búin að starfa mjög lengi og vona að ég eigi eftir að bæta sjálfa mig mikið." - Hefur þú séð mikla breyt- ingu á konum eftir að þær hafa gengið í félagið? „Já, ég hef séð feiminn félaga breytast í fyrsta flokks ræðu- manneskju. Eftir að fólk hefur setið tvo fundi hjá deildinni má það sækja um inngöngu. Nýir félagar fá góðan aðlöðunartíma í félagsskapnum og verkefni eftir því sem þeir treysta sér til. Yfir- leitt er fólk ekki búið að sitja marga fundi þegar vaknar áhugi Sc „Þaðl að sta Sólveig Sveina Sveinbjörns- dóttir er forseti ITC deildar- innar Flugu. Sólveig býr í Kís- iliðjuþorpinu í Mývatnssveit, er húsmóðir en vinnur hálfan daginn á skrifstofu Hótels Reynihlíöar. I fundarhléi gaf hún sér til tíma til að svara nokkrum spurningum blaða- manns, sem fyrst spurði hvern- ig félagsskap hér væri um að ræða. „Þessi félagsskapur er aðallega uppbyggður á því að maður er að þjálfa sjálfan sig. Ekki er um að ræða líknarstarfsemi eða neitt þannig, þetta er eingöngu til að byggja upp mann sjálfan; að koma fram, þora að tjá sig, segja sínar skoðanir, læra að mynda sér skoðanir og koma þeint á framfæri.“ - Er félagsskapurinn eingöngu fyrir konur? „Það er enginn karl genginn i þessi samtök hér á landi, en við erum búnar að opna þau fyrir karlmönnum líka. Þeim er heimil þátttaka en það hcfur enginn karlmaður sótt um inngöngu í okkar deild ennþá, og hvergi á landinu, mér vitanlega." - Hvernig er staðið að félaga- öflun? „Við höldum kynningarfundi, þar kynnum við félagsskapinn og hvetjum konur til að koma, ger- um þeim Ijóst að við erum ein- göngu að vinna fyrir okkur sjálfar. Það er hverjum sem er heimilt að óska eftir inngöngu í deild og það er síðan deildarinn- ar að samþykkja inntökuna.“ - Félagsskapurinn gekk áður undir nafninu Málfreyjur, eruð þið hættar að nefna ykkur það? „Þegar deildirnar voru opnað- ar fyrir bæði kynin var það nafn fellt niður, því karlar þóttu ekki geta nefnst freyjur. Það var því ákveðið af landssamtökunum að nota þessa erlendu skammstöfun I.T.C. sem notuð er um allan Félagskonur sem mættu á fundinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.